Tíminn - 16.07.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 16. júlí 1986
Allt í handaskolum
í opinberri heimsókn!
Nýlokið er opinberri heimsókn
stórhertogahjónanna frá Lúxem-
borg hér á landi og hefur ekki
annað heyrst en hún liafi gengið
stórslysalaust fyrir sig, þó að veður-
guðirnir hefðu að skaðlausu mátt
vera þeim hliðhollari.
En það er ekki sjálfgert mál að
opinberar hcimsóknir gangi full-
komlega eftir fyrirframgerðri
dagskrá, eins og eftirfarandi lýsing
á hcimsókn Kenneth Kaunda for-
seta Zambíu til Beatrix Hollands-
drottningar ber með sér, en það
skal tekið fram í upphafi að drottn-
ingin sú hefur ekki sérstakt orð á
sér fyrir að sýna þolinmæði!
Ekki byrjaði nú heimsóknin vel.
Drottning varð að bíða í eina
klukkustund á flugvellinum við
Amsterdam eftir því að flugvél
forsetans lenti. Því var borið við að
flugmaðurinn hefði villst, svo ræki-
lcga að hann var tvisvar búinn að
lljúga framhjá Hollandi áður en
hann vissi af!
Það er hætt við að Beatrix Hol-
landsdrottning hafi ekki verið
svona broshýr þegar móttökurnar
gengu allar á afturfótunum.
Lítið betra tók þó við þegar
hann hafði loks fundið þetta nett-
lega land. Flugvélinni var lent
langa vegu frá rauða dreglinum og
hefðarfólkinu í móttökunefndinni.
Nefndin, og þar á meðal drottning-
in, varð að taka til fótanna til að
veita forsetanum eins virðulega
móttöku og mögulegt var undir
þessum kringumstæðum. Og nú
mætti halda að allt hefði gengið
eins og í sögu eftir þessar hrakfarir,
en það var öðru nær!
Drottningin og forsetinn bjugg-
ust til að stíga upp í hina opinberu
límósínu, sem færa skyldi þau til
hallarinnar í Haag. En viti menn,
bíllinn var harðlæstur, og það sem
verra var, bílstjóri drottningar
hafði týnt lyklinum. Á meðan á
lyklaleitinni stóð hírðust þau
drottningin og forsetinn í ómerki-
legum Ford-bíl, sem starfslið
drottningar hefur til ráðstöfunar.
Eftir alla þessa hrakninga er
trúlegt að þau Beatrix og Kaunda
hafi verið fegin að komast loks í
húsaskjól.
Kenneth Kaunda Zambiuforseti
hefur við stærri vanda að glíma
þessa dagana en hvort flugmaður-
inn hans fínnur Holland. í ná-
grannaríkinu Suður-Afríku er allt í
hers höndum þessa dagana og
Zambíumenn eru við öllu búnir.
Glassman-hjónin og börnin: Andrew 17 ára sem segir „Hún er Hollywood holdi klædd!“ og Krooke, 15 ára, sem segir: „Pabbi er alltof góður
handa hcnni!“
Victoria og eiginmaður hennar Harry Glassman brosa blítt, en kunnugir
scgja að það virðist vera orðið aðalatriðið að allt líti slétt og fellt út á
yfírborðinu.
aðurinn varð Harry Glassman svo
dýrkeyptur, að hann hefur orðið
skuldugur. Þrátt fyrir að hann fær
stórfúlgur fyrir hverja læknisað-
gerð hefur hann ekki getað staðið
við sínar skuldbindingar peninga-
lega án þess að fá fjárstuðning frá
eiginkonunni.
Þá er ótalið hversu Glassman er
illa viö ef Victoriu verður á að
minnast á einhvern af sínum mörgu
fyrrvcrandi vinum og elskhugum.
Hún hefur reyndar aðeins einu
sinni áður verið gift, en búið með
og verið trúlofuð oft og mörgum
sinnum. Þar má telja: Frank Sin-
atra, George Peppard, Warren Be-
atty, Elliott Gould, Andy Gibb (úr
Bee Gees), Desi Arnaz jr. o.fl.
Henni varð svo það á í viðtali við
blaðamann að minnast lítillega á
Frank Sinatra og annan fornvin, og
urðu mikil leiðindi þess vegna á
heimilinu.
Það er satt og rétt, að út á við
lítur allt vel út, og hin fallega
Dallas-stjarna segist vera í sjöunda
himni í hjónabandinu, en þeirsem
þekkja til segja að spennan magnist
með hverjum degi og Victoria hafi
við ýmsar raunir að stríða.
Hjúskapar
raunir
Victoriu
c
%JAGT er að vandamálin
hrannist upp í hinu ársgamla
hjónabandi þeirra Victoriu Princ-
ipal og læknisins Harry Glassmans.
Eitt af stóru vandamálunum er
trúarlegs eðlis, því að eiginmaður-
inn er gyðingatrúar og hefur sótt
það fast að Victoria aðhyllist sömu
trú, en hún er uppalin í kaþólskum
sið og hefur ckki getað fengið sig
til að ganga af trúnni. Glassman
hefur þó fengið hana til að koma í
samkunduhús gyðinga með sér og
hefur fengið rabbíann til að ræða
málin við þau.
Annað mikið vandamál, sem
þau Glassman-hjón eiga við að
stríða er að börn læknisins, 15 og
17 ára búa hjá þeim á heimilinu og
segja kunnugir að þau geti ekki
fellt sig við stjúpu sína.
Þriðja málið sem er efst á blaði
cr að Victoria lét ganga frá sínum
eignum sem „séreign konu“, þegar
hún gekk í hjónabandið, en skiln-
Á giftingardaginn: „Þetta er eins
«g að upplifa ævintýri!“ sagði
brúðurin, en það vcrsta er að
ævintýrin taka endu.
■11111 ÚTLÖND lllllllllllll!
FRÉTTAYFIRUT
MOSKVA — Gennady
Gerasimov talsmaður sovéska
utanríkisráðuneytisins sagði
stjórnvöld lands síns ekki ætla
að taka ákvörðun um fram-
lengingu kjarnorkuvopnatil-
raunabannsins fyrr en fullt svar
varðandi afvopnunartillögur
þeirra bærist frá Ronald Reag-
an Bandaríkjaforseta og stjórn
hans.
LUNDÚNIR — Stjórnvöld
Bretlands og Sovétríkjanna
hafa undirritað samkomulag
um að fella niður fjárkröfur og
skaðabótakröfur sem ríkin tvö
hafa gert á hendur hvort öðru.
Hér var um að ræða kröfur
sem náöu allt afturtil byltingar-
innar árið 1917.
BEIRÚT — ísraelskar her-
flugvélar flugu yfir Líbanon í
gær og brutu hljóðmúrinn hvað
eftir annað yfir Beirút.
MOSKVA — Talsrpaður so-
véska utanríkisráðuneytisins
staðfesti fréttir um að banda-
rískir og sovéskir afvopnunar-
sérfræðingar myndu hittast í
Genf innan skamms til að ræða
ákvörðun Reagan Bandaríkja-
forseta um að hætta að láta
framfylgja Salt-2 samkomulag-
inu frá 1979.
TEL AVIV - Yitzhak
Shamir, hinn hægrisinnaði
utanríkisráðherra ísraels-
stjórnar, virðast vera að styrkj-
ast í sessi og staða Símonar
Peres forsætisráðherra að
veikjast vegna hneykslismáls-
ins er tengist Shin Bet, leyni-
þjónustu landsins.
MADRÍD — Ásakanirum illa
útbúna lögreglu og krafa um
að Jose Barrionuevo innanrík-
isráðherra segi af sér hafa
gengið fjöllum hærra á Spáni
eftir að níu þjóðvarðliðar létu
lífið í sprengjuárás skæruliða,
þriðju bílsprengjuárásinni á
þessu ári.
NÝJA DELHI — Embættis-
menn indversku ríkisstjórnar-
innar og fulltrúar íþróttamála
neituðu fréttum um að Indverj-
ar ætluðu sér að halda íþrótta-
mót fyrir þau lönd sem hætt
hefðu við þátttöku í Samveldis-
leikunum í Edinborg.
MARAWI, Filippseyjar
— Skæruliðar muslima sem
rændu tíu rómversk-kaþólsk-
um nunnum hótuðu í gær að
lífláta þær ef herinn, sem um-
kringt hefur verustað mann-
ræningjanna, myndi láta til
skarar skríða.
MOSKVA — Sovésku geim-
fararnir Leonid Kixim og Vla-
dimir Solovyov snéru aftur til
jarðar í Soyuz T-15 „geimtaxa“
sínum frá geimstöðinni MIR
eftir fjögurra mánaða dvöl í
geimnum.