Tíminn - 16.07.1986, Blaðsíða 5
Tíminn 5
Miðvikudagur 16. júlí 1986
UTLÖND
Brestir í bandalagi
Samveldisríkja
Aöalritari Samveldisbandalagsins hveturtil sátta-Howe þeytist heimshornannaá milli
Lundúnir-Reuter.
Umferð við hafnir Suður-Afríku er mikil. Mun hún minnka á næstunni?
Aðalritari Samveldisbandalagsins
kom fram með tillögur varðandi
efnahagslegar refsiaðgerðir gegn
stjórn Suður-Afríku í gær til að
reyna að koma í veg fyrir klofning í
bandalaginu varðandi mál þetta. Á
sama tíma tilkynnti Sir Geoffrey
Howe utanríkisráðherra Bretlands
að hann myndi fljúga til Washington
og eiga þar viðræður við ráðamenn
um málefni þau er tengjast stjórn
hvíta minnihlutans í Suður-Afríku.
Sir Shridath Ramphal aðalritari
Breska samveldisins sagði í ræðu í
Lundúnum að þörf væri á efnahags-
legum refsiaðgerðum gegn stjórn
Suður-Afríku. Hann krafðist þó
ekki að fullu viðskiptabanni við
landið yrði komið á.
Breska stjórnin hefur staðið fast á
móti víðtæku viðskiptabanni og
þessi skoðun kom enn að nýju fram
í ræðu MargrétarThatchers forsætis-
ráðherra Bretlands á þingi í gær. Þar
sagði hún að algjört viðskiptabann
myndi valda svörtum íbúum Suður-
Afríku miklum þjáningum.
Ramphal hvatti þá sjö leiðtoga
helstu Samveldisríkjanna, sem hitt-
ast í Lundúnum í næsta mánuði, að
leita samkomulagsleiða um málefni
Suður-Afríku.
Ráðstefna leiðtoga rfkjanna sjö
(hið svokallaða „minisummit" Sam-
veldisins) hefst þann 2. ágúst næst-
komandi og er búist við að þar muni
Thatcher mæta harðri gagnrýni frá
hinum sex leiðtogunum. Ramphal
taldi ekki ólíklegt að svo gæti farið
að kalla þyrfti til neyðarráðstefnu
sem fulltrúar allra 49 ríkja Samveld-
isins myndu sækja.
Brestir eru raunar þegar komnir í
Samveldiseininguna vegna ákvörð-
unar fimm Afríkuríkja að senda
ekki íþróttalið á Samveldisleikana i
sem haldnir verða í Edinborg á
Skotlandi síðar í þessum mánuði.
Það skýrist reyndar á næstu dögum
hvort líeiri ríki fylgi í kjölfarið og
sendi ekki lið á leikana til að mót-
mæla stefnu Bretlandsstjórnar gagn-
vart Suður-Afríku. í gær bárust þær
fréttir að svo geti farið að íþrótta-
menn frá Indlandi, einu áhrifamesta
ríki Samveldisins, verði ekki sendir
til Edinborgar.
Ramphal benti á í ræðu sinni í gær
að á síðustu aðalráðstefnu Samveld-
isins, sem haldin var í Nassau á
Bahamaeyjum í október síðastliðn-
um, hefði verið birtur listi yfir hugs-
anlegar aðgerðir gegn stjórn hvíta
minnihlutans í Suður-Afríku yrði
ekkert aðhafst í landinu í þá átt að
nema aðskilnaðarlögin úr gildi. Listi
þessi innihélt m.a. bann við flugum-
ferð til Suður-Afríku og engar lán-
veitingar til Suður-Afríku frá stjórn-
völdurn ríkja bandalagsins.
Þá tilkynnti Howe utanríkisráð-
herra Bretlands að hann myndi
fljúga til Washington á fimmtudag-
inn og eiga þar viðræður við George
Shultz utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, George Bush varaforseta og
fleiri háttsetta ráðamenn. Málefni
Suður-Afríku verða rædd á fundum
þessum.
Howe flýgur nú heimshornanna á
milli á vegum Bretlandsstjórnar til
að reyna að finna lausn á þeirri
úlfakreppu sem komið hefur til
vegna mismunandi afstöðu til refsi-
aðgerða gegn stjórn hvíta minnihlut-
ans í Suður-Afríku. Hann er væntan-
legur til Suður-Afríku í næstu viku.
Suður-Afríka:
Búareruvið
öllu búnir
Jóhannesarborg-Kcuter
Samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð var í Suður-Afríku eru
vopn nokkuð algeng á heintilum
hvíta minnihlutans í landinu.
Könnunin leiddi í ljós að á 51%
heimila hvítra íbúa Suður-Atr-
íku eru vopn höfð við höndina.
Niðurstöður könnunarinnar
voru birtar í gær og við nánari
athugun má sjá að vopn voru
geymd á 60% heimila þeirra Búa
scm af hollcnsku bergi eru brotnir
en á 39% heimila þar sem enska
er aðalmálið.
Chile:
Valda-
sjúkur
forseti
Santiagu-Rcutcr
Gabricl Valdes lciðtogi stjórnar-
andstöðunnar í Chile ásakaði Aug-
usto Pinoehet forscta hcrforingja-
stjórnarinnar í gær um að ætla scr að
stjórna landinu alla sína lífstíð.
Hann sagði að flokkur sinn inyndi
berjast fyrir lýðræði hvað scm slíkt
kostaði.
„Friösamlcg barátla allra Chile-
búa fyrir lýðræði liefur aldrci verið
brýnni en cinmitt nú,“ sagði Valdes
á frcttamannafundi. Valdes er leið-
togi Kristilega demókrataflokksins.
Yfirlýsing Valdesar, cn flokkur
hans er sá stærsti í hinu sex flokka
lýðræðisbandlagi, fylgdi í kjölfar
nýlegrar yfirlýsingar frá Pinochet
þar sem hann gal í skyn að stjórn sín
myndi stcfna á nýtt átta ára tímabil
cftir 1989.
Gert hcfur verið ráð fyrir að á
árinu 1989 verði lýöræði komið á í
Chilc þ.e. að borgaralcg stjórn taki
við völdum.
Vakles gaf skýrt í Ijós að flokkur
sinn myndi bcrjast hatrammlega
gegn því að Pinochet héldi áfram
völdum í skjóli hersins eftir árið
1989.
Suður-Afríka:
Fjárfesting í eigin landi
Winnie Mandela hvetur til efnahagslegra refsiaðgeröa - Segir
Thatcher einungis líta á svertingja sem fjárfestingu
Washington-Reuter
Ástralía:
Enn ein syndin bættist
við í játningaklefanum
Fcrth-Rculur
Maður einn í Ástralíu þóttist
ætla að fá fyrirgefningu synda sinna
í rómversk-kaþólskri kirkju í gær
en reyndi þess í stað að ræna prest
kirkjunnar. Þetta var haft eftir
prestinum sjálfum.
John Jobst biskup sagði frétta-
mönnum í Broome í Norðvestur
Ástralíu að hann hefði þurft að
flýja játningaklefa kirkju sinnar
þegar áðurnefndur maður hótaði
honum og krafðist upphæðar sem
samsvarar um 250 íslenskum
krónum. Nunna sem á staðnum
var hringdi á lögreglu en maðurinn,
sem var um þrítugt, hafði þá flúið
kirkjuna.
„Ég var ekki með aur á mér,“
sagði Jobst.
Flugvélaumferð:
Samdráttur í ferðalögum
yfir Norður- Atlantshafið
Lundúnir-Rculcr
Winnie Mandela, baráttukona
fyrir réttindum svartra í Suður-Afr-
íku og eiginkona hins fangelsaða
Nelsons Mandela, hvatti í gær til
efnahagslegra refsiaðgerða gegn
Suður-Afríku. Þá neitaði hún mót-
bárum Margrétar Thatchers forsæt-
isráðherra Bretlands gegn viðskipta-
þvingunum og sagði hana einungis
líta á svertingja í Suður-Afríku sem
fjárfestingu Breta í landinu.
Það var bandarísk sjónvarpsstöð
sem átti viðtal við Mandela í Jóhann-
esarborg í fyrradag og var því sjón-
varpað um Bandaríkin í gær. Mand-
ela sagði þar að efnahagslegar refsi-
aðgerðir væru eina friðsamlega leið-
in sem eftir væri til að reyna að hafa
áhrif á aðskilnaðarstefnu stjórn-
valda.
Mandela sagði svertingja lands
síns vita að þeir myndu þjást kæmi
til efnahagslegra þvingana en slíkt
væri óumflýjanlegt þar eð þetta væri
eina leiðin sem eftir ætti að fara.
Baráttukonan fræga neitaði rök-
semdum Margrétar Thatchers gegn
refsiaðgerðum er snertu efnahag
Suður-Afríku.
„Hún getur ekki komið fram með
annað þar sem hún hefur einungis
áhuga á að vernda breska starfsmenn
í landi okkar,“ sagði Winnie Mand-
ela og bætti við að um 250 þúsund
Bretar störfuðu í landinu.
„Hún vill vernda viðskiptatengslin
við okkar land. Margrét Thatcher
lítur einungis á okkur sem fjárfest-
ingu í okkar eigin landi,“ sagði
Mandela ennfremur.
Mandela sagði hvítu minnihluta-
stjórnina einungis geta haldið áfram
sinni siðferðisröngu stjórnarstefnu
vegna þess að sú stefna nyti stuðn-
ings bæði breska og bandarískra
stjórnvalda.
Forráðamenn evrópskra flugfé-
laga spáðu því í gær að 4% sam-
ÚTLÖNÐ
Umsjón: Heimir
Bergsson
dráttur yrði á ferðum yfir Atlants-
hafið á þessu ári. Aðalástæðurnar
fyrir samdrættinum voru sagðar
vera lækkandi gengi dollarans og
hræðsla Bandaríkjamanna við
hugsanleg hryðjuverk í Evrópu.
Hinir tuttugu meðlimir Samtaka
evrópskraflugfélaga (AEA)gáfu út
yfirlýsingu þar sem skýrt var frá að
ferðum yfir Atlantsála hefði fjölg-
að um 5,6% árið 1985 og þrátt fyrir
samdrátt á þessu ári væri búist við
að ferðum myndi aftur fjölga á
næsta ári um 7,5%.
Ferðir yfir Norður-Atlantshafið
drógust saman um heil 8,5% í maí
síðastliðnum sé miðað við sama
mánuð á síðasta ári. Alls voru
fjögur sæti laus af hverjum tíu í
þessum mánuði.
Winnie Mandela ásamt öðrum frægum baráttumanni fyrir réttindum svartra
í Suður-Afríku, Desmond Tutu biskup. Mandela hafði sitthvað að segja í
viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð