Tíminn - 22.07.1986, Blaðsíða 11

Tíminn - 22.07.1986, Blaðsíða 11
Þriöjudagur 22. júl í 1986 Tíminn 11 mtileg rkurferð ganga fóru með bílunum og hittust allir svo við Skagfjörðsskála. Margt var um manninn í Mörkinni þennan dag. Undu mennn sér við að ganga um, sumir fóru og skoðuðu hina myndarlegu göngubrú, sem Ferðafélagið hefir sett á Krossá undir Valahnúki. Úr Langadal var ekið inn í Bása, þar sem Útivist hefir reist tvo skála og brugðu menn þá á leik, ungir og gamlir. Þaðan var haldið í Stakkholtsgjá og gengu flestir langan veg inn gjána, sem er hið mesta náttúruundur. Er furðulegt að sjá hvernig birki og víðir tyllir sér í glufur í snarbröttu berginu og fegursti blómagróður þekur hamraveggina. Þrátt fyrir dumbungsveður létu þátttakendur hið besta af ferðinni, enda hlýtt og notalegt á Suðurlandi þennan dag. Bolli Héðinsson og Guðmundur Ginarsson lctu sig ekki vanta ■ ferðina. í Básum var brugðið á lcik. Hér er Steinþór Þorsteinsson, formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík að hlaupa í skarðið. Flcstir fararstjórarnir voru Sunnlendingar. Hér er Alfreö Þorsteinsson, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur með Stefáni Jasonarsyni, Snorra Þorvaldssyni og Þráni Valdimarssyni i Fljótshlíðinni. Fyrsti áningastaöurinn var við Gluggafoss í Fljótshlíðinni. Á myndinni sjást m.a. Hannes Pálsson og eiginkona hans Sigrún Helgadóttir, Kristinn Finnbogason og Haraldur Olafsson. Steinþór Þorsteinsson er greinilega ánægður með ferðina og hina miklu þátttöku. Ferðafólkið er hér við lónið við Gígjökul. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.