Tíminn - 06.09.1986, Síða 5
Laugardagur 6. september 1986
Tíminn 5
ÚTLÖND
Vélin sem raent var á nugvellinum í Karachi í Pakistan í gær var frá bandaríska flugfélaginu Pan Am af gerðinni Boeins 747. Myndin sýnir samskonar flugvél
á Keflavíkurtlugvelli.
Flugrán í Pakistan:
Sérsveitir yfirbuga
flugvélarræningjana
Miöjarðarhafiö:
Bandarískt
flugmóðurskip
lætur úr höfn
Bandaríska flugmóðurskipið
Forrestal fór í gær frá Napolí á Ítalíu
en bandarískir sjóliðsforingjar vildu
ekki segja hvert skipið væri að fara.
Foringjarnir vildu einungis staðfesta
að skipið væri farið frá Ítalíu, en
Forrestal tók þátt í sameiginlegum
heræfingum með Egyptum í Mið-
jarðarhafinu undan landhelgi Líbýu
í síðustu viku.
Reuterfréttastofan hafði það þó
eftir embættismönnum í Washington
í gær að brottför skipsins væri tengd
flugráninu' í Pakistan í gærmorgun.
Embættismennirnir vildu ekki gefa
frekari upplýsingar um hvert flug-
móðurskipið færi, eða hvað það ætti
að gera.
Sérsveitir pakistanska hersins réðust inn í bandaríska farþegaþotu
á Karachiflugvelli í Pakistan um kl. 5 í gær og yfirbuguðu fjóra
menn sem höfðu tekið hana herskildi snemma í gærmorgun. I
skothríðinni munu 15 af þeim tæplega 400 farþegum sem í vélinni
voru hafa látist, og tugir manna særst. Að sögn vitna, réðust
sérsveitirnar inn í flugvélina eftir að ræningjarnir höfðu haflð
ómarkvissa skothríð inni í vélinni. Einn ræningjanna var drepinn,
annar særður en hinir tveir voru teknir lifandi.
Þegar skothríð ræningjanna hófst hrundu farþegar upp hurðum
og settu í gang öryggisrennu og tókst mörgum þeirra að flýja úr
vélinni á þann hátt. Handsprengjur sem ræningjarnir köstuðu
sprungu ekki.
Pað var um kl. sex í gærmorgun
að staðartíma að fjórir þungvopnað-
ir menn hertóku farþegaþotu frá
bandaríska flugfélaginu Pan Ameri-
can, á flugvellinum í Karachi í
Pakistan. Mennirnir, sem voru
vopnaðir sjálfvirkum byssum af sov-
éskri gerð og handsprengjum, komu
inn í flugvélina dulbúnir sem örygg-
isverðir um svipað leyti og farþeg-
arnir. Vélin, sem er af gerðinni
Boeing 747. hafði millilent í Karachi
á leið sinni frá Bombay til Frankfurt
í Pýskalandi. Einn maður hefur
látist af völdum skotsára. sem hann
hlaut þegar ræningjarnir tóku flug-
vélina, en tveir flugvallarstarfsmenn
og farþegi annarrar vélar særðust
einnig í þeirri skothríð. Skothríðin
varaði hins vegar flugmenn vélarinn-
ar við því, að ekki var allt með
felldu. Flugmennirnir brugðu skjótt
við og flúðu niður kaðalstiga úr
flugmannaklefanum og komust burt
heilu og höldnu. Mikið lið lögreglu
ogsjúkra- og slökkviliðsmanna um-
kringdi vélina á skammri stundu.
Fjórmenningarnir, sem rændu
vélinni töluðu arabísku og er talið að
þeir séu af líbýskum eða palestínsk-
um uppruna.
Ræningjarnir kröfðust þess af
pakistönskum stjórnvöldum, að fá
flugáhöfn í vélina sem færi með þá
til Kýpur þar sem leystir yrðu úr
haldi fangar sem í haldi eru í fangelsi
í Larancha. Farþegar í þotunni voru
flestir Indverjar, en einnig rúmlega
40 Bandaríkjamenn, einir 15 Bretar
og 2 Svíar.
Ræningjarnir sögðust myndu
byrja að drepa farþega kl. 2 í gærdag
ef kröfum þeirra yrði ekki fullnægt,
en fresturinn rann út án þess að
nokkur ummerki sæjust um aftökur.
Ræningjarnir framlengdu síðan
frestinn um 4 klst. og kom því árás
sérsveitanna um 50 mínútum áður
en fresturinn rann út.
Mestan hluta dagsins sátu ræningj-
arnir á verði í flugvélinni, einn í
flugmannaklefanum, á meðan hinir
gættu dyranna. í samningaviðræðum
sínum við pakistönsk stjórnvöld
höfðu ræningjarnir íhugað þann
möguleika að sleppa öllum farþeg-
unum ef flugmennirnir kæmu aftur,
en skiptu síðan um skoðun og sögðu
að einungis konum og börnum yrði
sleppt ef flugmenn kæmu og flygju
mcð þá til Kýpur.
Stjórnvöld á Kýpur, íran og Lí-
banon höfðu öll tilkynnt að vélinni
yrði ekki leyft að lenda í þessum
löndum.
Tvenn samtök múslima hafa sagst
hafa skipulagt ránið, önnur samtök-
in eru lítt þekkt og kalla sig „Líbýsku
byltingardeildirnar" en tilkynning
frá þeim kom til fréttastofu á Kýpur.
Hin samtökin kalla sig „Jundallah"
eða „Hcrmenn guðs“ og sendu þau
dagblaði í Beirút vélritaða tilkynn-
ingu. Bæði samtökin sögðust hafa
valið vélina vegna þess að um borð
í henni væru bandarískir leyniþjón-
ustumenn.
Sjá
einnig
erlendar
fréttir
ábls.
10-11.
Flugrán í Pakistan:
Tvenn samtök lýsa
ábyrgð á hendur sér
Fjórir fangar á Kýpur:
Hverja vildu flugvéla>
ræningjarnir lausa?
Samkvæmt upplýsingum frá
stjórnvöldum á Kýpur eru einungis
fjórir menn þar í haldi sem koma
til greina sem þeir fangar, sem
flugvélaræningjar bandarísku
Boeing farþegaþotunnar vildu fá
lausa, en þeir eru:
Ian Michael Davison, 25 ára
breskur trésmiður, sem dæmdur var
ásamt tveim öðrum í lífstíðar-
fangelsi fyrir að hafa drepið tvo
menn og eina konu frá ísrael um
borð í snekkjunni „First“, í
Larnaca Marina í september 1985.
Davison sagði árið 1985 að hann
væri meðlimur í sérsveit í PLO,
sem kallast „Sveit 17.“ Þegar hann
var fangelsaður í desember sl.
sagði hann aðspurður um hvort
hann byggist við að verða frelsað-
ur: „Við verðum bara að sjá til.“
Khaled Addel E1 Khatib, 28 ára
námsmaður frá Sýrlandi, en hann
er í lífstíðarfangelsi fyrir sömu
sakir og Davison. Khatib sagðist
við réttarhöldin í desember vera
palestínskur skæruliði frá Beirút
og fyrrum lífvörður leiðtogans Abu
Hassans, sem dó þegar bíla-
sprengja sprakk árið 1979.
Abdel Hakim Saado Al-Khalifa,
29 ára bílstjóri frá Jórdaníu. Hann
er einnig í lífstíðarfangelsi fyrir
sömu sakir og Davison og Khatib.
Amin Suleyman Zarour, 25 ára
Líbani, er fjórði fanginn sem til
greina kemur að flugræningjarnir
hafi viljað lausan. Hann er í gæslu-
varðhaldi og bíður réttarhalda,
sem eiga að fara fram 22. septem-
ber og hann er ákærður fyrir að
hafa ólögmæt vopn og sprengiefni
í hafurtaski sínu.
Hingað til óþekkt samtök,
„Líbýsku byltingardeildirnar"
hringdu á alþjóðlega fréttastofu í
Nicosia á Kýpur og kváðust bera
ábyrgð á flugráninu í Pakistan. í
upphringingunni sagði orðrétt:
„Líbýsku byltingardeildirnar til-
kynna hér með, að þær eru ábyrgar
fyrir að ræna bandarísku flugvélinni
sem nú er á flugvellinum í Karachi,
vegna þess að um borð í vélinni eru
bandarískir leyniþjónustumenn sem
hermenn okkar munu dæma og taka
af lífi.“
Nokkru eftir að þessi orðsending
kom fram á Kýpur var vélritaðri
orðsendingu á arabísku komið á
ritstjórnarskrifstofur óháðs blaðs í
Beirút. Yfirlýsingin byrjaði á versi
úr Kóraninum og titillinn á henni var
„Yfirlýsing númer 1“. Orðrétt segir
í orðsendingunni: „Jundallah sam-
tökin (hermenn guðs) lýsa á hendur
sér ábyrgð á árás á nokkra yfirmenn
úr bandaríska hernum, og leyniþjón-
ustumenn frá CIA ásamt leyniþjón-
ustumönnum úr ísraelsku leyniþjón-
ustunni Mossad, sem eru um borð í
bandarísku farþegaþotunni á flug-
vellinum í Karachi í Pakistan. Þessir
menn eru hluti af samsæri gegn
stríðandi þjóðum, og hyggjast
myrða, stunda hryðjuverkastarfsemi
og blóðsúthellingar, á laun og fyrir
almanna sjónum. í hroka sínum og
fjandskap við múhameðstrúarmenn
og frelsisunnandi þjóðir, sem leita
eftir sjálfstæði.“
Þá segir ennfremur í orðsending-
unni að „Martyr Zulfikar Ali Butto"
herdeild samtakanna hafi tekist vel
upp um morguninn og allt hafi
gengið samkvæmt áætlun. Ennfremur
kemur fram að árásinni sé ekki beint
gegn bandarísku þjóðinni heldur
hryðjuverkastjórn Reagans sem
þráfaldlega vanvirði öll mannleg
gildi.
Líbýa neitar tengslum
við flugránið í Pakistan
- telur CIA eiga hlut að máli
Líbýumenn hafa harðlega neitað
því að þeir hafi staðið á bak við
flugvélaránið í Pakistan í gær, og
segja að verið væri að búa til ástæðu
fyrir Bandaríkin að ráðast á sig.
Athyglin beindist strax að Líbýu
þegar samtök sem kalla sig „Líbýsku
byltingardeildirnar" sögðust bera
ábyrgð á ráninu.
Jana, opinbera fréttastofan í Lí-
býu sagði í gær að þeir hefðu hvergi
komið nærri og undruðust að þessar
leiðir væru notaðar til að flækja
Líbýu í málið. Málatilbúningur af
þessu tagi gæti einungis hafa komið frá
ötlum sem fjandsamleg væru Líbýu,
eins ogt.d. bandarísku leyniþjónust-
unni CIA, „til þess að skapa innan-
tóma ástæðu fyrir því að gera árás á
Líbýu og réttlæta slíka árás“, eins og
fréttastofan komst að orði. Gaddafí
Líbýuforseti er nú á þingi óháðra
ríkja í Harare í Zimbabwe og hefur
hann einnig neitað tengslum við
flugránið.