Tíminn - 02.10.1986, Side 3

Tíminn - 02.10.1986, Side 3
Fimmtudagur 2. október 1986 Tíminn 3 Edward Derwinski: Engir leynisamningar gerðir við Rainbow skipaf élagið - um óskertar tekjur Blaðamenn á símafundi með Derwinski. Til haegri fyrir borðsenda situr Hugh Ivory forstöðumaður Menningarstofnunar Bandaríkjanna. Tímamynd-Sverrir „Það er eitthvað sem þeir hafa fundiö út upp á eigin spýtur og er algerlega þeirra mál,“ sagði Edward Derwinski sérlegur lög- fræðiráðunautur Shultz utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna á blaða- mannafundi sem boðaður var af Menningarstofnun Bandaríkjanna í gær og fram fór í gegnum síma. Derwinski var hér að svara spurn- ingu blaðamanns um hvort gerðir hefðu verið einhverjir sérsamning- ar við Rainbow Navigation, en talsmenn skipafélagsins hafa látið hafa eftir sér að Rainbow muniekki tapa vegna nýgerðs flutningasamn- ings íslands og Bandaríkjanna og að tekjur félagsins muni haldast óbreyttar rétt eins og forgangslög- in bandarísku frá 1904 væru enn í gildi. „Það hafa ekki verið gerðar neinar leynilegar ráðstafanir í þessu sambandi, hvorki samningur sem byggir á skrifuðum skjölum né gagnkvæmum skilningi,“ sagði Derwinski. Hann sagði að skipafélagið hafi fallist á þennan samning vegna þess að forráðamenn þess hefðu sannfærst um mikilvægi öryggis- samstarfs íslendinga og Banda- ríkjamanna, og að hér væri um einsdæmi að ræða, sem ekki gilti sem fordæmi varðandi aðra flutn- inga. Derwinski gerði grein fyrir samningnum milli ríkisstjórna ís- lands og Bandaríkjanna fyrir utan- ríkismálanefnd Öldungadeildar- innar í fyrradag og lagði þar þunga áherslu á mikilvægi hans fyrir bandaríska hagsmuni. Hann mælti eindregið með því að Öldunga- deildin samþykkti samninginn og sagði að það myndi greiða fyrir samstarfi þjóðanna í öryggismál- um. A blaðamannafundinum í gær var Derwinski spurður um líkindin á því að samningurinn færi í gegn- um Öldungadeildina og hvenær búast mætti við að hann kæmi þar til endanlegrar afgreiðslu. Hann sagðist ekkert geta sagt um þessi atriði með vissu, en taldi ekki ólíklegt að utanríkismálanefnd þingsins myndi samþykkja samn- inginn í dag fimmtudag og þá kæmi til kasta formanns nefndarinnar og leiðtoga stjórnmálaflokkanna í deildinni að ákveða hvenær um- ræður og atkvæöagreiðsla urn hann gæti farið fram. Varðandi líkur á því að samningurinn hlyti braut- argengi sagði Derwinski, að cftir því sem hann kæmist næst væru allir lykilþingmcnn Öldungadeild- arinnar mjög jákvæðir í þessu máli. - BG Deilur um arð- semi ígulkerja Sumargleðin í Broadway - undir stjórn Ragga Bjarna Er útflutningur á ígulkerjum og ígulkerjahrognum arðvænlegur at- vinnuvegur eða ekki? Þróunarfélag íslands telur að um arðvænlegan rekstur sé að ræða og hefur þvt lánað tvcimur athafnamönnum úr Sand- gerði 3 niillj. króna til að þeir geti hafið slíkan rekstur. Annar aðili, Egill G. Jónsson sent hugði á sams- konar útflutning telur hins vegar að nægar forsendur séu ekki fyrir hendi, verð sé of lágt og að það verði að stunda greinina eins og búskap eigi hún að borga sig. Birgir Kristinsson, húsasmíða- meistari og Steinþór Gunnarsson, Alþingiskosningar: Helgi S. í prófkjör - hjá Framsóknarflokkn- um í Reykjavík Helgi S. Guðmundsson, mark- aðsfulltrúi hjá Samvinnutrygg- ingum hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3ja sæti í prófkjöri fram- sóknarmanna í Reykjavík. Helgi skipaði 7. sæti á lista flokksins við síðustu borgar- stjórnarkosningar. Helgi er fæddur árið 1948 og er kvæntur Sigrúnu Sjöfn Helga- dóttur og eiga þau þrjú börn. pípulagningarmeistari standa fyrir tilrauninni í Sandgerðinni og er í undirbúningi hjá þeim kaup á bát og leiga á gamalli niöursuðuverksmiðju í Sandgerði. Þeir eru báðir áhuga- menn um köfun, enda þarf að kafa niður eftir ígulkerjunum. Steinþór sagði að framleiðslan væri að síga af stað, en þó væri margt ófrágengið. Sagði Steinþór að stefnt væri að að ná um einu tonni af ígulkerjum upp á dag, og gerðu þeir ráð fyrir að ráða þyrfti milli 15 og 20 starfsmcnn til að hreinsa hrognin. Markaður væri bæði í Frakklandi og Japan, og hefðu veitingahús í París óskað eftir að kaupa öll ígulker sem úr sjó koma í nóvember og desembermánuði. Enn ætti þó eftir að fá leyfi heilbrigð- isyfirvalda í Frakklandi, en hér væri um innflutning á lifandi ígulkerjum að ræða og kröfur því mjög strangar. Taldi Steinþór það þó aðeins vera tímaspursmál hvenær það leyfi fengist. Vonaðist Steinþór eftir að leyfi fengist til að flytja hrognin söltuð til Japans, verðið væri mun betra en fyrir fryst hrogn. Væri maður frá Sölumiðstöðinni í Japan núna að athuga með markaði auk þess sem fleiri möguleikar væru opnir í þeim málum. Egill G. Jónsson sem hugað hefur að útflutningsmöguleikum, sagði í samtali við Tímann að verð hefði reynst of lágt, og væri það nýtilkom- ið vegn mikils framboðs á ígulkerja- hrognum frá Norður-Kóreu. Sagðist Egill einnig hafa lært það að ígul- kerjatínslu þyrfti að stunda sem hvern annan búskap. Það þyrfti með öðrum orðum að grisja svæðin í 3 til 5 ár áður en þau verða veiðanleg með það fyrir augum að setja ígul- kerin fersk á markað. Aldur ígul- kerjanna þyrfti að vera á bilinu 3-5 ára, og það væru sín byrjendamistök að átta sig ekki á þesu. Sagði Egill að mörg ljón hefðu birst á veginum í síðustu viku sem hann hefði ekki getað ímyndað sér fyrirfram og taldi hann að það yrði ekkert framhald á þessu. Litlir einstaklingar með stórar hugmyndir ættu því ekki bjarta framtíð á þessu sviði. phh Sumargleðin skemmtir nú lands- mönnum sextánda árið í röð og er það öruggt að enginn hópur skemmti- krafta og hljómlistarmanna hefur starfað svo lengi við jafnmiklar vin- sældir. Sumargleðin skemmtir nú í Broadway í þriðja skiptið. í ár voru gerðar miklar breytingar Umboðsmaður Smyrilline á Seyð- isfirði hefur boðið ríkisstjórninni Smyril á leigu til að leysa að hluta þann vanda serri skapast hefur vegna skorts á gistirými í Reykjavík og nágrenni vegna fundar þeirra Reag- ans og Gorbatsjovs. á hljómsveitinni og hún yngd upp þrátt fyrir aldurinn. Aðalbreytingin er sú að söngkonan Sigrún Hjálmtýs- dóttir (Diddú) gekk til liðs við hópinn og einnig fjórar dansmeyjar frá Dansnýjung Kollu, þrjár af þeim eru úr Svörtu ekkjunum. í hljóm- sveitina bættist ungur og efnilegur Að sögn Jónasar Hallgrímssonar umboðsmanns skipsins, taldi hann það siðferðilega skyldu sína að bjóða stjórnvöldum skipið á undan öðrum, en væntanlega yrðu fleiri um hit- una, ef leigja á skipið til þeirra sem vilja hagnast á skorti á hótelrými í hljómlistarmaður að nafni Einar Bragi. Hinir síungu og eldhressu Bessi Bjarnason, Magnús Ólafsson, Her- mann Gunnarsson eru allir á sínum stað. Ragnar Bjarnason er svo nátt- úrlega ásamt hljómsveit sinni en Ragnar á veg og vanda af að halda þessum fjórtán manna hópi saman. D.H.T. Reykjavík þessa daga sem fundurinn stendur yfir og á undan. Skipið tekur 180 manns í koju, en auk þess er mikið auka pláss í skipinu, bæði í sölum þar sem „flugstólar" eru og í kaffistofu. ABS Gistirými í Reykjavíkurhöfn? STJÓRNINNIBÝÐST SMYRILL TIL LEIGU - á meðan leiðtogafundurinn stendur yfir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.