Tíminn - 02.10.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn j
Yfirlæknirinn í Svartaskógi
Er heimakær fjöl-
skyldufaðir í Vín
Mannvinurinn og kærleiksand-
inn á sjúkrahúsinu í Svartaskógi,
Brinkmann yfirlæknir á nú þegar
marga aðdáendur hér á landi, rétt
eins og í landi Svartaskógar, Þýska-
landi, en þar er fólk þess fullvíst að
hvergi megi það eiga von á eins
góðri sjúkrahúsmeðferð og einmitt
á sjúkrahúsinu í Svartaskógi.
En Klausjúrgen Wussow, sem
leikur Brinkmann yfirlækni, á ekki
sínar heimaslóðir í Svartaskógi, og
reyndar ekki einu sinni í Þýska-
landi. Hann er austurrískur, hú-
settur í Vín í gamalgrónu og
skemmtilegu hverfi sem allir þeir
sem til Vi'nar koma þekkja, þ.e. í
sjálfu Grinzing. Hús fjölskyldunn-
ar stendur þar á sérlega skemmti-
legum stað enda una þau sér þar
vel hjónin Klausjúrgen Wussow,
kona hans, leikkonan Ida Krott-
endorf, og börn þeirra tvö, sem
bæði eiga sér hlutverk í sjúkrahús-
þáttunum.
Þau Ida og Klausjúrgen eru búin
að halda upp á silfurbrúðkaupið
sitt og Alexander sonur þeirra,
sem orðinn er 25 ára og systir hans,
Barbara, sem leikur hjúkrunar-
nemann Elke í sjúkrahúsþáttun-
um, sýna ekkcrt fararsnið á sér úr
foreldrahúsum. Enda er fjölskyld-
an ákaflega samhent og heimakær,
þó að húsbóndinn verði að vera
mikið að heiman vegna vinnu
sinnar.
Húsmóðirin er hins vegar meira
heima við, enda á hún erfitt með
að vera á ferð og flugi vegna starfa
sinna sem prófessor við virtan
leiklistarskóla í Vín. Aftur á móti
er hátíð í bænum þegar Klaus
staldrar aðeins við heima þegar
hann tekur að sér hlutverk á leik-
sviði í Vín. Og þegar gesti ber að
garði er að sjálfsögðu Sacherterta
á borðum, eins og vera ber í Vín!
Klausjúrgen
Wussow er fyrir-
myndarfaðir og
fjölskyldan er
heiniakær og
samhent. Börnin
Alexander og Bar-
bara cru ckkert á
leið úr forcldrahús-
Hárgreiðsla heima hjá ELIZABETH TAYLOR gat
tekið hálfan daginn, þó ekki væri allur tíminn í
að klippa, leggja og greiða frúnni, því þar voru
á boðstólum matur, drykkir og skemmtilegheit.
PRINCESS MICHAEL er með erfitt hár, þannig að
það þarf mikla umhirðu, segir Annie Russell.
„Hár hennar getur verið glæsilegt og prinsessan
veit alltaf hvað hún vill og hefur ákveðinn
smekk“.
TAHNEE WELCH, (dóttir Rachel Welch) segir
hárgreiðslumeistarinn að hafi einna allra besta
hár, sem hún hafí farið höndum um; þykkt,
fallegt og lifandi.
Hárgreiðslumeistarinn
segir frá
að segja svolítið frá hvernig henni hefur gengið
að eiga við hár ýmissa frægra persóna, en það
er auðvitað stórmál fyrir þá sem sífellt eru í
sviðsljósinu og Ijósmyndarar elta með mynda-
vélina á lofti, að hafa hárgreiðslu sem hæfir
þeirra persónuleika sem best.
Um Eiizabeth Taylor segir Annie m.a.: „Ég sá
um hár hennar fyrir um það bil 12 árum, en þá
var Elizabeth gift Richard Burton. Hún var þá
upp á sitt allra besta, fallegust allra kvenna, að
sagt var. Hár hennar var þá slétt og sítt, en hana
langaði í tilbreytingu, og ég klippti hana þá í
svokallaða „ljónagreiðslu“, og tætti upp á henni
hárið. Þrátt fyrir margvíslega sjúkdóma sem
hafa hrjáð Elizabeth hefur hún alltaf gott hár og
þegar hún hafði málað sig og ég lagað á henni
hárið, mátti sjá langar leiðir að þarna var
stórstjarna á ferð.
Það var alltaf gaman að koma heim til þeirra
Elizabeth og Richards Burton til að klippa og
laga hár þeirra. Boðið var upp á veitingar og þau
sýndu mér ný málverk, sem þau höfðu keypt, -
eða þá nýja skartgripi, sem hann hafði gefið
sinni fögru frú, og það var líf og fjör í kring um
þau. Síðan skildu leiðir og ég hugsaði ekki um
hár Elizabeth Taylor fyrr en hún kom til mín
fyrir tveimur árum, og þá vildi hún fá breytta
hárgreiðslu, því að nú hafði hún grennst svo
mikið, að henni fannst að því ætti að fylgja ný
greiðsla. Hár hennar var klippt í ntiklar styttur
og gráu hárin látin halda sér, sérstaklega í
ennistoppi og vöngum. Það klæddi leikkonuna
geysilega vel, og nú var talað um hina „nýju
Elizabeth" og hún hlyti að vera búin að fá sér
„nýjan mann“! Það vissi ég auðvitað ekkert um,
- en ég var hreykin af hinni „nýju Elizabeth“,“
segir Annie Russell hárgreiðslusnillingur.
Það má láta það fylgja með, að þeir sem vildu
fá hárgreiðslumeistarann Annie Russell til að
Annie Russel heitir hárgreiðslukona, sem er
mjög þekkt í sínu hcimalandi, Englandi, og
hefur hún í gegnum árin farið höndum um hár
frægustu leikara og ntargra tiginna manna og
kvenna. Meðal fastra viðskipavina hennar hafa
m.a. verið: Elizabeth Taylor, Samantha Fox,
Isabella Rossellini, Princess Michael o.fl., o.fl.
þckktar persónur. Annie hárgreiðslukona ségist
yfirleitt ekki tala um viðskiptavini sína, en hún
lét þó tilleiðast í viðtali við breskt kvennablað.
ISABELLA ROSSELLMI vill helst einfalda hárgreið-
slu, en hún getur verið mjög glæsileg og er fögur
cins og Ingrid Bergman, móðir hennar var.
SAMANTHA FOX hefur sjálf fundið hárgreiðslustíl
við sitt hæfi, segir Annie Russel, og bætir því
við, - að allir sjái að Samantha sé meira sexí með
síðu Ijósu lokkana, en ef hún væri stuttklippt og
drengjaleg!
fara snillingshöndum um hár sitt gætu reynt að
hafa samband við hárgreiðslustofuna hennar: 1
Kensington Church Walk, London W12. En hvort
nokkur tími er laus hjá henni er aftur annað mál!
Fimmtudagur 2. október 1986
llllllilllllllllllllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllliil
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Talsmaður
Sovétstjórnarinnar sagði hana
vilja að Reykjavíkurfundurinn í
naestu viku snerist aðallega
um kjarnorkuafvopnunarmál.
Stuttu áður hafði sovéska
fréttastofan Tass harðlega
gagnrýnt kjarnorkutilrauna-
sprengingu Bandaríkjamanna
í fyrradag og sagt hana sýna
að bandarísk stjórnvöld ynnu
enn að því að ná hernaðarleg-
um yfirburðum og hefðu lítinn
áhuga á viðræðum um afvopn-
unarmál.
MANILA - Corazon Aquino
forseti Filippseyja fagnaði
handtöku eins leiotoga skæru-
liða. Vinstrisinnar gagnrýndu
handtökuna hinsvegar mjög og
sögðu hana tilraun af hálfu
hersins til að koma í veg fyrir
að samningar næðust milli
skæruliða kommúnista og
stjórnvalda.
KHARTOUM - Flugvélum
með matvæli til sveltandi fólks
í Suður-Súdan var ekki leyft að
fljúga frá Khartoum en hjálpar-
starfsmenn neituðu að skýra
ástæðurtafarinnar. Skæruliðar
í suðurhluta larrsins sem berj-
ast gegn stjórnarhernum hafa
hótað að skjóta niður hverja þá
flugvél sem kemur með mat-
væli til svæðisins.
JÓHANNESARBORG
England - Sendiherra Banda-
ríkjanna í Lundúnum sagði að
kjarnorkuafvopnunarstefna
Verkamannaflokksins breska
hefði slæm áhrif á vestrænt
samstarf og gæti haft þær
afleiðingar að Bandaríkjastjórn
færi alvarlega að huga að því
að draga sig út úr samstarfi við
Evrópulönd.
SIDON , Líbanon-Fimmtán
manneskjur særðust þegar
múslimskir bardagamenn
skutu á flóttamannabúðir Pal-
estínumanna í Suður-Líban-
JÓHANNESARBORG-
Tugþúsundir svartra námu-
verkamanna mættu ekki til
vinnu til að minnast hinna 177
félaga sinna sem létust í versta
gullnámuslysi Suður-Afríku í
síðasta mánuði.—
ISLAMABAD -Talsmaður
utanríkisráðuneytisins í Pak-
istan sagði flugræningjana
sem rændu flugvél Pan Am
flugfélagsins í Karachi í síð-
asta mánuði hafa ætlað að
sþrenaja hana í loft upþ á miðri
flugleið sinni.