Tíminn - 02.10.1986, Síða 5

Tíminn - 02.10.1986, Síða 5
Fimmtudagur 2. október 1986 Tíminn Fundur Reagans og Gorbatsjovs: Lundúnir lágu fyrir Reykjavík Moskva, Brússei-Keuter Sovétstjórnin lagði til að fundur þeirra Gorbatsjovs Sovétieiðtoga og Reagans Bandaríkjaforseta, svo- kallaður undirbúningsfundur, fyrir leiðtogafundinn í Bandaríkjunum, yrði haldinn annaðhvort í Lundún- um eða Reykjavík. Paðvar talsmað- ur sovéska utanríkisráðuneytisins sem skýrði frá þessu á fundi með fréttamönnum í Moskvu. Talsmaðurinn Boris Pyadyshev sagði Bandaríkjamenn „ekki hafa viljað að fundurinn yrði í Lundún- um“ og því hefði Reykjavík orðið fyrir valinu sem nafli alheimsins þann 11.-12. október næstkomandi. Heimildarmenn innan belgísku stjórnarinnar sögðu hinsvegar í gær að Mikhail Gorbatsjov hefði lagt fram tillögu um nokkra staði þar sem hann vildi halda fund með Ronald Reagan. Reykjavík hefði síðan verið sá staður sem leiðtogarn- ir tveir gátu best sætt sig við eftir að Bandaríkjastjórn hafði krafist þessa að fundurinn yrði hafður í einu NATO ríkjanna. ísland er sem kunnugt er aðili að Atlantshafsbandalaginu ásamt fimmtán öðrum þjóðum en hefur þá sérstöðu að hafa engan her á sínum vegum. Símon Wiesenthal er nú meðlimur Frönsku heiðursfylkingarinnar. Gott hjá honum. Oröuveiting: Frönsk stjórnvöld heiðra Wiesenthal Vínarborg-Keuter Frönsk stjórnvöld sæmdu í vik- unni hinn aldna nasistaveiðara Símon Wiesenthal orðu Frönsku heiðursfylkingarinnar. Athöfn þessi fór fram í franska sendiráðinu í Vínarborg. Francois-Regis Bastide afhenti Wiesenthal orðuna í nafni forsetans Francois Mitterrand en Wiesenthal hefur haft það að starfi síðustu fjörutíu árin að elta uppi nasista- glæpamenn. Wiesenthal er nú 77 ára gamall og stjórnar enn Skráningarmiðstöð gyðinga sem hefur aðsetur í Vínar- borg. Hann hjálpaði til við hina frægu leit að Adolf Eichmann sem ísraelska leyniþjónustan rændi frá Buenos Aires árið 1961. Eichmann var síðar tekinn af lífi. fyrir morð á gyðingum. „Ég tilheyri því fóiki sem þurfti að þola mestu hörmungarnar í síðari heimsstyrjöldinni," sagði Wiesenth- al við athöfnina. Wiesenthal var handtekinn í Pól- landi árið 1941 en varð frjáls frá Mauthausen útrýmingarbúðunum í Austurríki fjórum árum síðar. ÚTLÖND UMSJÓN: Heimir BLAÐAMAÐUR Þessir kappar ætla að ræða hvor við annan í Reykjavík í næstu viku. Margir vona að eitthvað af viti fari á milli þeirra. Reykjavíkurfundurinn: Hófleg bjartsýni einkennirumræður Reuter Stjórnir Sovétríkjanna og Banda- ríkjanna ræddu í gær um vonir að árangur næðist í vopnasamningavið- ræðum á Reykjavíkurfundinum í næstu viku en margir stjórnmála- menn í Vestur-Evrópu létu í ljós efasemdir um að einhver árangur næðist í viðræðum þeirra Reagans Bandaríkjaforseta og Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Kremlvcrjar vilja að kjarnorkuaf- vopnunarviðræður verði mál málanna á Reykjavíkurfundinum. Hinsvegar voru ráðamenn í Hvíta húsinu spar- ari á orð í sambandi við fundinn. vonuðust þó til að viðræðurnar leiddu til samkomulags í afvopnun- armálum þótt síðar yrði. Boris Pyadyshev talsmaður sovcska utanríkisráðuneytisins sagði á fréttamannafundi í Moskvu að lciðtogarnir tveir yrðu „að vinna að málum er vörðuðu kjarnorkuaf- vopnunarmál". Pyadyshev gaf í skyn að útkoma fundarins í Reykjavík hefði mikla þýðingu fyrir viðræður leiðtoganna í framtíðinni. Donald Regan aðstoðarmaður Bandaríkjaforseta sagði hinsvegar í sjónvarpsviðtali að Reykjavíkur- fundurinn gæti orðið árangursríkur ef mennirnir tvær næðu „betri skiln- ingi sín á milli“. Ekki nefndi Rcgan sérstaklega um hvaða hliðar af- vopnunarmála yrði rætt í Reykjavík en sérfræðingar eru þó flestir á einu máli um að fækkun meðaldrægra eldflauga í Evrópu sé nú nær eina sviðið þar sem búast má við einhverj- um árangri. Stjórnmálamenn og stjórnmála- sérfræðingar í Evrópu fögnuðu flest- irverðandi Reykjavíkurfundi cn létu þó í Ijós efasemdir um að árangur yrði af viðræðum Reagans og Gor- batsjovs þá tvo daga sem þær standa yfir. Hans Van Den Broek utanríkis- ráðherra Hollands sagðist t.d. ekki búast við neinu samkomulagi um afvopnunarmál í Reykjavík ogShirl- ey Williams, ein leiðtoga Sósíaldem- ókrataflokksins í Bretlandi, sagðist hafa áhyggjur af því að Bandaríkja- stjórn" ... væri ekki viss um hvaða skref næst ætti að taka í þessum málum". Iþróttir og stjórnmál: Svíar vilja engin tengsl við S-Afríku Dvfiinni'Reuter keDDtu í löndum beirra. Einnit? Dyflinni-Reuter Sænski íþróttamálaráðherrann hvatti í gær vestur-evrópska starfs- bræður sína til að skera á íþrótta- tengsl við Suður-Afríku og taka ákveðna afstöðu gegn aðskilnaðar- stefnu stjórnarinnar þar. Ulf Lonnqvist íþróttamálaráð- herra Svíþjóðar sagði á fundi íþróttamálaráðherra V-Evrópuríkja í Dyflinni á írlandi að „þátttaka í íþróttum aðskilnaðarsinna horfir framhjá og styrkir aðskilnaðarstefn- una og er því hlutur sem allar ríkisstjórnir verða að hugleiða." Hann hvatti ríkisstjórnir Vestur- Evrópu til að koma í veg fyrir að íþróttamenn frá Suður-Afríku kepptu í löndum þeirra. Einnig hvatti hann þær til þess að styrkja ekki fjárhagslega þá íþróttamenn er kepptu í Suður-Afríku. „Við stöndum á krossgötum þar sem örlög kúgaðs fólks verða ákveð- in. Straumar í breytingarátt eru nú meiri en nokkru sinni fyrr í Suður- Afríku," sagði Lonnqvist sem nýtur stuðnings annarra Norðurlanda- þjóða í tillögugerð sinni varðandi þetta mál. Hinsvegar er ólíklegt að tillaga hans vcrði samþykkt þegar gengið verður til atkvæða í dag. Astæðan er andstaða íþióttamálaráðherra Bretlands, Frakklands og Vestur- Pýskalands. Kína: Dauðakossinn Peking-Keuter Kínverskur brúðgumi drap nýgifta konu sína á brúðkaups- daginn með því að kyssa hana ástríðufullum og löngum kossi á hálsinn. Kvöldfréttablaðið Lanz- hou sagði gesti í brúðkaupi í borg nyrst í Kína liafa heyrt öskur frá hcrbergi þeirra, ruðst inn og fundið brúðina og brúðgumann meðvitundarlaus í sófa. Þau voru flutt á spítala, en brúðurin lést skömmusíðar. Brúðguminn, sem ekki var nefndur nafni, sagði seinna að hann hefði verið að kyssa konu sína á hálsinn. Læknirinn staðfesti ástríðuna þannig að kraftur og lengd koss- ins hefði orsakaði of hraðan hjartslátt sem varð bani brúðar- innar. D.H.T. Sovétríkin: r Ihaldssamir skriffinnar standa gegn breytingum Moskva-Reuter Eigingjarnir skriffinnar standa gegn tilraunum Mikhail Gorbatsjovs Sovétleiðtoga til að gera sovéskt þjóðfélag heiðarlegra og afkasta- meira. Þetta var niðurstaðan sem fékkst á fundi miðnefndar kommún- istaflokksins nú nýlega. Það var blaðið Pravda sem birti fréttir frá fundi miðnefndarinnar og mátti þar m.a. lesa að ákvörðunum þeim sem þing flokksins tók í febrúar síðastliðnum hefði ekki verið komið „nógu kröftuglega" í framkvæmd. Leiðin að „perestroika" (efna- hagslegri og siðferðislegri endur- sköpun) hefur mætt „þjóðfélags- lcgri, sálfræðilegri og skipulagðri mótspyrnu frá þeim sem af eigingirni sinni reyna að halda í úreltar reglur og sína eigin hagsmuni," sagði í fundargerð miðnefndarinnar. Áður en meðlimir miðnefndarinn- ar komust að þessari niðurstöðu hlustuðu þeir á upplestur skýrslu sem samin var af félaga Gorbatsjov. Þar gagnrýndi Sovétleiðtoginn mjög íhaldssama embættismenn f ráðu- neytum Moskvuborgar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.