Tíminn - 02.10.1986, Page 6
6 Tíminn Fimmtudagur 2. október 1986
íhúfi
Það er heiður fyrir ísland að leiðtogarnir skuli velja það
fyrir fundarstað, sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra, þegar hann tilkynnti að Reagan Bandaríkjaforseti og
Gorbatsjov leiðtogi Sovétríkjanna hefðu óskað eftir að fá að
halda fund í Reykjavík um aðra helgi.
Einstætt er að einni fámennustu þjóð heims býðst tækifæri
til að auðsýna leiðtogum tveggja voldugustu þjóða veraldar
gistivináttu sína og hljótum við að gera allt sem í okkar valdi
stendur til að standa undir því trausti sem leiðtogarnir sýna
með valinu á fundarstað.
ísland er vel í sveit sett til að halda fundi sem þennan, mitt
á milli Washington og Moskvu. En fleira kemur til,
landfræðileg einangrun tryggir að auðvelt er að fylgjast með
ferðum til og frá landinu og stöðva allar grunsantlegar
mannaferðir. Hryðjuverk eru óþekkt á íslandi og tiltölulega
auðvelt er að viðhafa alla nauðsynlega öryggisgæslu.
Höfuðviðræðuefni leiðtoganna munu verða afvopnunarmál
og gagnkvæmt eftirlit með vígbúnaði. Vígbúnaðarkapphiaup-
ið hvílir eins og mara á þjóðum heims og þrátt fyrir
langvarandi og ítrekaðar viðræður um þau efni hefur því
miður ekki tekist að draga úr því sem neinu nemur.
Undanfarið hafa þó teikn verið á lofti um að einhver vilji
sé fyrir hendi að draga úr hinum hrikalega vígbúnaði og koma
á gagnkvæmu eftirliti með hernaðarumsvifum.
Málsmetandi menn úti í hinum stóra heimi hafa lýst yfir að
lítils árangurs sé að vænta af fundinum í Reykjavík. Þetta
verður undirbúningsfundur annars fundar leiðtoganna sem
sennilega verður haldinn síðar á þessu ári.
En það af hvílíkri skyndingu er boðað til fundarins í
Reykjavík glæðir vonir um að leiðtogarnir eigi brýn erindi
hvor við annan og gæti því allt eins farið að Reyicjavíkur-
fundurinn verði sögulegri en menn órar nú fyrir. En það er
von allra friðelskandi manna, að leiðtogar Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna beri gæfu til að leggja grundvöll að bættri
sambúð ríkjanna, eyða tortryggni sín á milli og umfram allt
að ná samkomulagi um verulegan samdrátt vígbúnaðar og
helst eyðingu gereyðingarvopna.
Sú leið verður ekki stigin í einu skrefi, en sé gagnkvæmur
vilji fyrir hendi og tortryggnin yfirunnin getur leiðtogafundur-
inn markað djúp spor, sem eftir verður munað.
Þegar til kastana kemur mun athygli heimsins fyrst og
fremst beinast að leiðtogunum tveimur og þeim árangri sem
þeir kunna að ná á fundi sínum. í annan stað mun hún beinast
að þeim vettvangi sem þeir hafa valið sér til viðræðna.
ísland verður óhjákvæmilega í sviðsljósinu þá daga sem
leiðtogar risaveldanna dvelja hér. Einstætt tækifæri býðst til
að kynna land og þjóð. Þó skyldu menn varast að gera það
með billegu auglýsingaskrumi eða nota leiðtogafundinn
óhóflega sér til framdráttar.
Besta auglýsingin sem ísland getur fengið er að færa heim
sanninn um að hér búi siðuð þjóð sem veldur því hlutverki
með sóma sem henni hefur óvænt borist og með stuttum
fyrirvara.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, hefur sagt að
hann muni ekki nota þetta tækifæri til að færa ágreiningsefni
á tal við leiðtogana. Fundurinn sé miklu mikilvægari en svo
að það sé við hæfi að dreifa huga þeirra sem að honum standa
í mál sem eðlilegt sé að leyst verði á öðrum vettvangi.
Sjálfsagt er að allir aðrir fari að dæmi forsætisráðherra. ÖIl
upphlaup og kröfugerð hljóta að sitja á hakanum þegar svo
mikið er í húfi sem hér verður raunin á.
íslendingar hljóta sem gestgjafar að leggja allan metnað
sinn í að sýna umheiminum að þeir séu þess trausts verðir,
sem þeim hefur verið sýnt.
Illlllllllll
GARRI lliilÍllllll
iilllllllliiiilllllllllllilllllllllllllllillllllllliilllllillllliiilllillillillll lllllllliiilliflliIIIUIlllllillllliiiii
Guðmundur þáði rósir fyrir ómakið úr hendi formanns síns. Ásmundur hefur lítið sofið undanfarið.
Svavar varar við gyllihoðum.
„Velkominn elsku félagi
Guðmundur!“
Eitthvað í þcssa vcru ávarpaði
Jón Baldvin, nýja félaga sinn
Guðmund Einarsson, fyrrum
þingmann B.J. ■ sjónvarpinu í
fyrrakvöld og siðan bætti hann við.
Hér eru nokkrar rauðar rósir sem
ég fann og bið þig um að koma
þeim í vatn hið bráðasta til að þ*r
fölni ekki eins fljótt. Rósirnar
táknuðu i senn ást og það að nú
vaeru skoðanir Guðmundar og co.,
dauðar og jarðaðar að fullu.
Rósavöndur Guðmundar, sem
hann færði formanni sínum voru
ekki eins margar, bara einar tvær
að mig minnir. Enda lét flokkurinn
sálugi ekki eftir neinar Ijárhæðir til
crfingjanna. Guðmundur benti
hins vegar á að fjöldi rósanna
skipti ekki máli heldur liturinn.
Þeir félagar sem nú kæmu til liðs
við kratana hefðu valið hvíta litinn,
lit hreinleikans og formaðurinn
mætti trúa því að þeim dytti ckki í
hug að æsa til ófriðar og þeir væru
alveg ákveðnir í að hætta við allar
sínar fyrri skoðanir - enda fyrir
löngu liúnir að sjá að þær liefðu
vcrið barnalegar og hefðu alls ekki
átt nokkurn rétt á sér.
Síðan hurfu félagarnir og settu
rósirnar í vatn.
Hvoru megin við miðju?
Jón Baldvin hefurlöngum haldið
því fram að Alþýðuflokkurinn urid-
ir hans stjórn væri vinstra megin
við miðju.
Óneitanlega minnir þó stefna
formannsins frekar á klukkukólf
sem slæst frá hægri til vinstri.
Hann skrifar til vinstri en talar til
hægrí. Gott er að hafa tungur tvær
o.s.frv.
Það vekur t.a.m. eftirtekt að
fyrrum liðsmenn B.J. sem ein-
hverjar skoðanir höfðu á málefn-
um voru ívið meira til hægrí en
vinstri. Þannig litu t.d. vinir okkar
á Norðurlöndum á málin þegar
þcir skipuðu Stefáni Benediktssyni
á bekk með sjálfstæðismönnum
s.l. vetur og lét hann sér það vel
líka.
Nú hins vcgar telur formaðurinn
að nægilega liafí veiðst á hægri
vængnum og biðlar í ákafa til
vinstri.
I’annig hefur Ásmundur Stefáns-
son ekki fengið að sofa hcilan
svefn í langan tíma og til að kaupa
sér stundarfrið lofar hann að stíga
í pontu og ávarpa kratana í Hvera-
gerði um helgina. Hvort Ásmund-
ur er hins vegar búinn að fá cins
mikla leið á Þjóðviljaliðinu eins og
Jón Baldvin vill vera láta á eftir að
koma ■ Ijós, en ætla mætti að
Ásmundi sé nú ekki alveg sama um
alla þá sem þar vinna. Minna má á
að kona Ásmundar er fram-
kvæmdastjóri Þjóðviljans.
Vamaðarorð Svavars
Þessi læti í Jóni Baldvin hafa
orðið til þess að formaður Alþýðu-
bandalagsins, Svavar Gestsson,
hefur sent út sérstakan boðskap frá
sér á prenti til þeirra fáu stuðn-
ingsmanna Alþýðubandalagsins
sem við þann flokk kannast. Varar
hann við spillingaröflum og biður
flokksmenn sína að vera vakandi
fyrir hvers konar villutrúarmönn-
um og loka skilningarvitunum þeg-
ar þeir berja að dyruni. Engum er
betur Ijós hin slæma staða Alþýðu-
bandalagsins en Svavari enda full
ástæða fyrir hann að óttast mátt
rósabúntanna sem stendur þeiin til
boða er yfirgefa Alþýðubandalag-
ið.
VÍTTOG BREITT
lllllllllllll
IIIIIIIUII
Samvinnuverslun
Reykvíkinga
I gær glöddust félagshyggju-
menn í Reykjavík, á sama tíma og
búast má við að ýmsir úr hópi
frjálshyggjumanna og einka-
rekstrarsinna hafi síöur fundið til-
efni til fagnaðar. Ástæða þessa var
sú að þá tók KRON formlega við
rckstri einnar af stærstu matvöru-
verslunum Reykjavíkur, sem til
þessa hefur verið rekin undir nafn-
inu Víðir. cn mun eftirleiðis lieita
Kaupstaður.
Skoðanamunur fólks um það
hvort verslun sé betur komin í
höndum einkareksturs eða félags-
reksturs er ekkert til að fara í felur
með, og síður en svo nokkuð til að
láta valda sárindum. Hvortveggja
rekstrarformið hefur sína kosti, og
það er ekkert annað en eðlilegt að
fólk hallist til annarrar hvorrar
áttarinnar i skoðunum sínum. Slíkt
er hverjum manni frjálst og styðst
raunar við hornsteina þess lýðræðis
sem við byggjum íslenska þjóðfé-
lagið á.
En hitt er annað mál að það er
hvorugu rekstrarforminu til góðs
að verða of yfirgnæfandi. Einn
lielsti ókostur einkaverslunar er sá
að fyrirtæki úr þeim herbúðum
hafa á liðnum árum sýnt verulega
tilhneigingu til að hnappa sér sam-
an á þéttbýlisstöðunum þar sem
mannfjöldinn og hagnaðarvonin
eru mest.
Einn helsti kostur samvinnu-
verslunar er sá að fyrirtæki hennar,
kaupfélögin, setja þjónustuhlut-
verk sitt ofar gróðavoninni. Þess
vegna eru þau kyrr á heimaslóöum
sínum og hlaupa ekki burt. Þetta á
raunar einnig við um kaupfélög í
■þéttbýli. Til dæmis verður trúlega
bið á því að KRON setji upp útibú
á Akureyri eða á Egilsstöðum til
að elta verslunargróða í þeim
landshlutum. KRON er eign íbúa
Reykjavíkur og nágrennis og þjón-
ar þeim einum.
Þetta einkenni kaupfélaganna
veldur því að á mörgum smærri
stöðum víðs vegar um landiö hefur
það komið í hlut þeirra að annast
nánast alla smásöluverslunina.
Skammsýnir menn deila stundum
á þau fyrir að vera það sem þeir
kalla einokunarfyrirtæki á þcssum
stöðum. Þá gæta þeir hins vegar
ekki að því að einkafyrirtækin leita
ekki út á þessa staði, sem þeim er
þó frjálst, af þeirri ástæðu að þeim
finnst gróðavonin þar of lítil. Ef
íbúar þessara staða rækju ekki
kaupfélög er hætt við að verslunar-
þjónustan á þeim mörgum yrði
ekki annað en svipur hjá sjón frá
því sem hún er núna.
Félagshyggjumenn hafa lengi
haft af því áhyggjur að hlutur
félagsrekinnar vcrslunar í Reykja-
vík væri of lítill. Ekki kannski
endilega vegna þess að skortur sé
á verslunarsamkeppni í borginni,
heldur vegna þeirra afleiðinga sem
aðhaldslaust ofurveldi kaupmanna
getur haft í för mcð sér. Það getur
leitt til þess að verslunargróði
þeirra verði þar notaður til að
hlaða undir frjálshyggjusinnuð
stjórnmálaöfl í borginni og jafnvel
til algjörseinræðis þeirra. Og menn
úr slíkum hópum eru trúlega ekki
þeir sem fólk treystir best til að
trvggja trausta og áreiðanlega fé-
lagslega þjónustu. Þar er um að
ræða liluti eins og dagheimili,
skóla, heilbrigðisþjónustu, strætis-
vagna og annað það sem brennur á
hinum almenna launþega í borg-
inni.
Þetta hangir þannig allt á sömu
spýtunni, og þess vegna er það
fagnaðarefni þeim, sem aðhyllast
félagshyggju og óttast framgang
frjálshyggjuaflanna, ef kaupfélagið
í Reykjavík nær að auka enn
hlutdeild sína í markaðnum þar.
Enginn er að tala um að kaupfélag-
ið eigi að útrýma kaupmönnum úr
borginni. Margir þeirra eru ötulir
dugnaðarmenn sem kappkosta að
veita góða þjónustu. En kaup-
félagsvcrslunin í Reykjavík má
gjarnan aukast að því marki að
einkaverslunin yfirgnæfi hana ekki
lengur í þcim mæli sem hún hefur
gert í langan tíma. ~esig
Tímirm
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason
Ritstjóri: NíelsÁrni Lund
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjóri: Guðmundur Hermannsson
Aðstoðarfréttastjóri: Eggert Skúlason
Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, taeknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-