Tíminn - 02.10.1986, Side 7
Fimmtudagur 2. október 1986
Tíminn 7
VETTVANGUR
llllllllllllllillllllllllll
Helgi S. Guömundsson:
Þörf er umræou
Hvernig lítur ungt fólk til fram-
tíðar á Islandi í dag? Trúlega er
framtíðarsýnin misjöfn.
Sá sem spyr hefur kannski ofur-
lítið samviskubit. Þegar litið er til
tveggja síðustu áratuga og reynt að
gera sér ljóst hvaða heim við hin
eldri höfum skapað, hvað kemur
þá í ljós?
- Höfum við búið vel að mennta-
kerfinu?
- Eru næg atvinnutækifæri fyrir
það unga fólk, sem á næstu árum
mun koma út í atvinnulífið?
- Höfum við hlúð að fjölskyldunni
og skapað henni nógu veglegan
sess í ímynd fólks?
- Er ungt fólk ánægt með það
þjóðfélag, sem við höfum skapað?
Eigum við að skoða þessi fjögur
atriði.
Það er svo komið að kennara-
starf er ekki eftirsóknarvert vegna
lélegra launa og horfir til vandræða
með að manna stöður í skólum.
Má því segja að menntakerfi og
skipulag þess sé í algeru lamasessi.
Á að láta við svo búið standa?
Fjölskylda, fjölskyldu-
líf. Hvaöernú það? Ég
persónlega myndi nú
sem minnst vilja ræða
um þau mál vegna
þess að því meir sem
ég hugsa um þau,
þeim mun meiri
skömm hef ég á því
hvernig komið er fyrir
hinu hefðbundna fjöl-
skyldulífi
m
Atvinnutækifæri tengjast
menntun, þar kemur skipulagsleys-
ið sem á undan er getið fram,því
nánast öll menntun hefur gengið út
á þjónustugreinarnar og þar er
markaður að mettast.
Aðalatvinnuvegur þjóðarinnar,
sjávarútvegurinn, stendur á barmi
gjaldþrots og því samfara er flótti
af landsbyggðinni. Byggingaiðnað-
ur hefur nánast iegið niðri og ekki
er hægt að benda á neinar nýjar
framleiðslugreinar. Ákveðinn hóp-
ur manna hefur barist ötullega
fyrir því a fækka bændum og öll
umræða um þá stétt gerð tortryggi-
leg.
Fjölskylda, fjölskyldulíf, hvað
er nú það? Ég persónulega myndi
nú helst sem minnst vilja ræða um
þau mál vegna þess að því meir
sem ég hugsa um þau, þeim mun
meiri skömm hef ég á því hvernig
komið er fyrir hinu hefðbundna
fjölskyldulífi.
Til er stór hópur fólks í dag, sem
telur sig hafa unnið þar sigur, það
er að segja að því hefur tekist að
hræra svo rækilega upp í hlutverka-
skiptingunni að fólk stendur í háv-
aða rifrildi yfir hvort hjóna eigi að
Afleiðingin af þessu er
sú að stofnanir á veg-
um þess opinbera eiga
að sjá um uppeldi
barna okkar og opin-
berar skýrslur sýna að
stór hluti hjónabanda
fer út um þúfur
VJ
skipta um bleyju á barninu eða
vinna störfin á heimilinu. Og þetta
kalla sumir baráttu fyrir jafnrétti.
Afleiðingin af þessu er sú að
stofnanir á vegum þess opinbera
eiga að sjá um uppeldi barna okkar
og opinberar skýrslur sýna að stór
hluti hjónabanda fer út um þúfur.
Erum við stolt yfir þessu og er
unga fólkið ánægt með þess þróun
mála?
f>að verður ekki sagt að við
höfum skapað öryggi fyrir unga
fólkið og bið ég hér með um
umræðu um þessi mál. Það hentar
ágætlega nú, því innan tíðar gefst
fóíki kostur á að kjósa þá fulltrúa
inn á Alþingi, sem það trúir best til
að skapa manneskjulegt þjóðfélag.
Helgi S. Guðmundsson.
markaðsfulltrúi
Stefán Guðmundsson, alþingismaður:
Brjótast varð út úr
þessum vítahring
„Það er ekki oflofuð samtíð,
en umbætt og glaðari framtíð
sú veröld, er sjáandinn sér.“
Það hefur dregist of lengi að
menn viðurkenndu breytta hætti í
þjóðlífi okkar, því hefur m.a.
vandi atvinnuveganna verið miklu
erfiðari viðfangs en annars hefði
orðið. Við eigum mikla ónýtta
möguleika til aukinnar verðmæta-
sköpunar í hefðbundum atvinnu-
greinum þjóðarinnar, ef rétt er að
unnið.
Sókn til bættra lífskjara byggist
á því að okkur takist að hefja
verulega nýsköpun í atvinnulífinu
m.a. með frekari nýtingu og full-
vinnslu afurða ásamt öflugri mark-
aðssókn.
Brjáluð verðbólga hefur leikið
landsmenn grátt og fáa verr en
bændur. Nú þegar svo gæfulega
hefur tekist til í viðureigninni við
verðbólguna eins og raun ber vitni
er vissulega ástæða til bjartsýni,
enda er það svo að víða hafa menn
hafist handa.
Mikil umræða hefur farið fram
um landbúnaðarmál nú um skeið.
Þar hafa margir látið til sín taka og
haft sitt hvað til málanna að leggja.
Ég verð að viðurkenna að of mikið
finnst mér hafa borið á því í
þessum umræðum, að menn þætt-
ust ekki sjá vandann, hvað þá að
menn kannist við hann eða bendi á
færari leiðir en nú eru farnar.
Hér eru margar samverkandi
ástæður sem þessu valda.
Það er mikill misskilningur að
vandinn hafi orðið til á Alþingi á
vordögum 1985. í þessu sambandi
er fróðlegt fyrir þá, sem vilja leita
skynsamlegrar lausnar að skoða
atvinnuskiptingu þjóðarinnar frá
1960-1984.
Hér sést hvað hefur verið að
gerast, og við hvað er að fást. Þeim
fer sífellt fækkandi, sem að frumat-
vinnugreinum þjóðarinnar starfa.
íslendingar búa ekki einir við þessa
þróun mála, hér er það sama að
gerast og í nágrannalöndum okkar.
Það er nauðsynlegt að glöggva
sig á þeirri stöðu sem framleiðslan
var í á þessum árum.
Þetta var vandinn sem menn
stóðu frammi fyrir. Vaxandi fram-
leiðsla en minnkandi neysla.
Neysluvenjur landsmanna hafa
verið að breytast. Því er nauðsyn-
legra nú en nokkru sinni fyrr að
stórefla vöruþróun, markaðsleit og
samkeppnishæfni landbúnaðaraf-
urða. Það er ekki spurning að hér
er hægt að framleiða hágæða vöru,
og að því á að vinna, jafnframt því
kindakjöts og mjólkur: að afkoma búanna verði sem t
Kindakjöt Mjólk
Framleiðsla Neysla Framleiðsla Neysla
Árið 1960 10.331 7.830 97.672.000 88.000.000
Árið 1970 11.280 8.480 100.599.000 93.500.000
Árið 1975 14.715 10.348 111.525.000 102.300.000
Árið 1979 15.157 9.678 117.199.000 100.300.000
Árið 1980 13.541 9.990 107.018.000 105.400.000
Árið 1981 14.224 10.546 102.959.000 96.300.000
Árið 1982 13.770 10.338 104.572.000 101.800.000
Árið 1983 12.978 10.356 106.446.000 99.500.000
Árið 1984 12.239 9.385 108.462.000 99.400.000
Árið 1985 12.228 9.202 115.878.000 96.200.000
f búvörulögunum sem samþykkt
voru í júní 1985 eru m.a. ákvæði
Sókn til bættra lífskjara
byggist á því að okkur
takist að hefja verulega
nýsköpun í atvinnulíf-
inu m.a. með frekari
nýtingu og fullvinnslu
afurða ásamt öflugri
markaðssókn.
1960 1970 1980 1984
Landbúnaður 16% 12.1% 7.4% 5.5%
Fiskveiðar 8.2% 6.4% 5% 4.5%
Fiskiðnaður 10.1% 8.1% 9.1% 8.9%
Byggingast. og iðnaður26.2% 28.8% 26.4% 25.3%
Þjónustustörf 39.5% 44.6% 52.1% 55.8%
um framleiðslumagn og fullvirðis-
rétt afurðanna. Samningur land-
búnaðarráðherra og fulltrúa Stétt-
arsambands bænda um fullvirðis-
rétt afurða er árið 1985 12.500 tonn
af kindakjöti og 107 milljón ltr. af
mjólk, árið 1986 er þeta 11.800
tonn af kindakjöti og 106 milljón
Itr. af mjólk.
Búvörulögin hafa einnig að
geyma ákvæði, um því sem næst
staðgreiðslu mjólkur og kinda-
kjöts. Staðgreiðsla afurðanna er
mikið mál fyrir bændastéttina og því
ber að fagna að það er í höfn.
í lögunum er kveðið á um að
verja skuli meira en einum millj-
arði króna til endurskipulagningar
og búháttabreytinga í sveitum
landsins fram til ársins 1991. Margs-
konar möguleikar eru í nýjum
atvinnukostum sem henta vel með
hefðbundnum landbúnaði.
Það er nauðsynlegra nú en
nokkru sinni fyrr að efla þessar
greinar og skapa þeim sem best
rekstrar- og starfsskilyrði.
Þegar Ijóst var hvert stefndi í
framleiðslumálum landbúnaðarins
leituðu forsvarsmenn bænda eftir
því við Alþingi að þeir fengju
heimildir til stjórnunar á fram-
leiðslunni.
Það tók Alþingi 13 ár að átta sig
á því hvert stefndi, því það var
ekki fyrr en árið 1979 þegar Stein-
grímur Hermannsson var landbún-
aðarráðherra, sem breytingar voru
gerðar á framleiðsluráðslögunum,
sem heimiluðu ákveðna stjórnun
framleiðslunnar.
í júní 1985, tuttugu árum eftirað
samtök bænda óskuðu eftir um-
ræddum breytingum eru nýju bú-
vörulögin samþykkt á Alþingi sem
gera þessa stjórnun enn virkari en
áður.
Það er mikil blekking að kenna
hinum nýju búvörulögum um þá
erfiðleika, sem sótt hafa að land-
búnaðinum, sá vandi varð til löngu
áður en lögin voru samþykkt í júní
1985. Aðgerðarleysi í þessum mál-
urn og hjáseta á vordögum 1985
var versti kosturinn sem bænda-
stéttin gat fengið.
Deilt hefur verið á þingmenn og
ráðherra Framsóknarflokksins
vegna setningar umræddra laga.
Það kom í hlut Framsóknar-
flokksins að hafa forystu um lausn
þessa vanda. Brjótast varð úr þeim
vítahring, þannig að landbúnaður-
inn gæti hafið sókn eftir nýjum
leiðum.
Bændur vita, að Framsóknar-
flokkurinn hefur ætíð dugað þeim
best, bæði í sókn og vörn.
Ég hefi þá trú að innan ekki
langs tíma muni það sannast að svo
hafi það einnig verið í þessu máli.