Tíminn - 02.10.1986, Side 9

Tíminn - 02.10.1986, Side 9
Fimmtudagur 2. október 1986 Tíminn 9 llllllllllilllllllll IPRÓTTIR lilllllllllr- ;<allllllll!? ,|lllllli! '!!íllllllllif ::1lllllli'Jillllllllllllllllllllllll!>:,:'.::.i:ii1lllllllllllllll Reykjavíkurmeistarar KR KR-ingar urðu í fyrrakvöld Reykjavíkurmeistarar í körfuknattleik er þeir sigruðu Val með 60 sigum gegn 59 í úrslitaleik mótsins. Leikurinn var jafn og spennandi, staðan í hálfleik var 33-29 fyrir KR en liðin skiptust á um að hafa forystuna í leiknum. Á lokamínútunni náðu Valsmenn boltanum þegar staðan var orðin 60-59 en misstu hann aftur og KR-ingum tókst að halda sigrinum sín megin. Garðar Jóhannsson skoraði flest stig KR, 14 en Guðni Guðnson skoraði 12. Hjá Val skoraði Tómas Holton 14 stig og Einar Ólafsson 12. Tímainynd Sverrir. Skaginn tapaði 0-6 - í seinni leiknum gegn Sporting Skagamenn töpuðu fyrir Sporting þannig að endanlegar tölur eru 15-0 Lissabon með engu marki gegn sex fy.rjr Sportinit. í síðari viðureign liðanna í Evrópu- ' pað vorif Meade, McDonald, keppni félagsliða í Portúgal í Zinho (2) og Mario (2) sem skoruðu gærkvöld. Skagamenn töpuðu fyrri mörk Sporting í gærkvöld. leiknum með engu marki gegn níu Ámundi Sigmundsson sækir að Tacconi markverði Juventus en Ámunda tókst ekki að skora frekar en öðrum Valsmönnum. Tímamynd-Pétur Heldur stór sigur - Valsmenn nýttu ekki færin og Juventus sigraði 4-0 Það var kuldalegt að litast urn á Laugardalsvelli í upphafi leiks Vals og Juventus í gærkvöld, völlurinn blautur, hitastigið að nálgast frost- rnarkið og gustaði um stúkuna. En áhorfendur og leikmenn gerðu sitt besta til að láta það ekki á sig fá og má raunaf heita merkilegt hversu margir áhorfendur hleyptu í sig kjarki og mættu á völlinn. Knattspyrnan varð af fyrrnefnd- um ástæðum ekki eins góð og efni stóðu til, leikmenn áttu í mesta basli með að hemja sig og knöttinn á vellinum. Það var Platini sem skor- aði fyrsta mark leiksins og var það jafnframt fyrsta færið sem eitthvað kvað að. Knötturinn barst manna á milli í vítateig Valsmanna en skyndi- lega var Platini á auðunt sjó með boltann fyrir framan sig og hann lét ekki bjóða sér það tvisvar, skaut föstu skoti upp í þaknetið út við stöng hægra megin. Annað mark Juventus kom 12 mínútum síðar og var mjög áþekkt því fyrra nema nú var það Laudrup sem átti í hlut og skaut upp í vinstra hornið. Á 37. mínútu skoraði Laudrup þriðja markið, fékk knöttinn miðja vegu milli miðju og vítateigs, hljóp af sér tvo Valsmenn og skoraði. Á 79. mínútu var Briarhi með knöttinn í vítateig og felldi Guðmundur mark- vörður hann þegar hann ætlaði að kasta sér á knöttinn. Briarhi tók sjálfur vítaspyrnuna en Guðmundur gerði sér lítið fyrir og varði stórglæsi- lega. Það hlýtur að teljast skraut- fjörður í hatt markvarðar að verja vítaspyrnu á móti Juventus. Síðasta mark íeiksins var stórglæsilegt. Vig- nola skaut háum knetti að markinu, skotið var fast og Guðmundur varð að nota hnefann til að verja. Platini var skammt undan og snéri sér við og skaut aftur fyrir sig, hjólhesta- spyrna og knötturinn fór rétt undir slána í markið. Þessi úrsiit, 4-0 gefa ekki alveg rétta .mynd af gangi leiksins, Vals- menn áttu mörg góð færi en virtust missa kjarkinn þegar markið nálgað- ist og skot þeirra voru oft gersamlega út í bláinn. Það væri ekki fjarri lagi að ætla að Valsmenn hefðu getað skorað 3-4 rnörk ef þeir hafðu haft nægilega trú á sjálfunt sér. Guðmundur Hreiðarsson stóð sig mjög vel í liði Vals, greip oft vel inní auk vítaspyrnunnar sem hann varði. Tæplega verður hann sakaður um mörkin. Aðrir leikmenn voru svip- aðir og allir sóknarmennirnir, áttu það sammerkt að fara einstaklega klaufalega með færin. En ef á heild- ina er litið lék Valsliðið alls ekki illa, miðað við aðstæður. Platini er óumdeilanlega sterkasti maður Juventus þó hann virtist ekki leggja hart að sér í gærkvöld, fór a.m.k. ekki í návígi í vörninni. Þá eru Laudrup og Briarhi hættulegir í sókninni. Liðin sem léku í gærkvöld: (númer á leikvelli í sviga) Valur: Guömundur Hreiöarsson (1), Sigur- Jón Kristjánsson (2), Bergþór Magnússon (3), Magni Pétursson (4), Jón Grétar Jóns- son (5), Þorgrímur Þráinsson (6), Guöni Bergsson (7), Hilmar Sighvatsson (8), Valur Valsson (9), Ingvar Guðmundsson (10), Ámundi Sigmundsson (11) Anthoni Gre* gory (13) 70. mín. Juventus: Tacconi (1), Caricola (2), Pioli (3), Manfredonia (4), (Vignola (15) 46. mín.), Favero (5), Solda (6), Mauro (7), Bonetti (8), Briarhi (9), Platini (10), Laudrup (11). Ifi i Úrslit í Evrópumótunum í knattspyrnu Hér á eftir fara úrslit í Evrópuleikjunt í gærkvöldi. Heimaliðið er talið á undan, fyrstu tölurnar tákna úrslitin í gærkvöldi, næst eru úrslitin í fyrri leiknum og loka heildarúrslitin. Liðin sem sigra fara áfram í 2. umferð en hin eru úr leik. Evrópukeppni meistaraliða: Valur-Juventus 0-4 0-7 0-11 Gornik Zarbrze (Póll.) - Anderlecht (Belgíu) 1-1 2-0 3-1 Dynamo Berlin (A-Þýskal.) - Örgryte (Svíþj.) 4-1 3-2 7-3 Bayern Múnchen (V-Þýskal.) -PSV (Holland) 0-0 2-0 2-0 Celtic (Skotland) - Shamrock Rovers (írl.) 2-0 1-0 3-0 Real Madrid (Spáni) - Young Boys (Sviss) 5-0 0-1 5-1 Austria Vín (Austurr.) - Beggen (Luxemburg) 3-0 3-0 6-0 Hjk Helsinki (Finnl.) - Nicosia (Kýpur) 3-2 0-1 3-3 — Nicosia fer áf ram, skoraöi fleiri mörk á útivelli Dynamo Tirana (Albaníu) - Besiktas (Tyrkl.) 0-1 0-2 0-3 Dynamo Kiev (Sovétr.) - Beroe Stara (Búlgaríu) 2-0 1-1 3-1 Ajax (Möltu) - Porto (Portúgal) 0-1 0-9 0-10 Honved (Ungverjal.) - Bröndby (Danmörk) 2-2 4-1 6-3 Panathinaikos (Grikkl.) -Rauða Stjarnan (Júgósl.) 2-1 0-3 2-4 Evrópukeppni bikarhafa: Sporting-ÍA 6-0 9-0 15-0 Bordeaux (Frakkl.) - Waterford (írland.) 4-0 2-1 6-1 Lilleström (Noregi- Benfica (Portúgal) 1-2 0-2 1-4 Sion (Sviss) - Aberdeen (Skotland) 3-0 1-2 4-2 Real Zaragoza (Spáni) -Roma (Ítalíu) 2-0 0-2 2-2 - Zaragoza sigraði 4-3 í vítaspyrnukeppni Lokomotiv (A-Þýskal.) - Glentoran (N-írl.) 2-0 1-1 3-1 Limassol (Kýpur) - Malmö (Svíþj.) 2-1 0-6 2-7 Spartak Trnava (Tékk.) - Stuttgart (V-Þýskal.) 0-0 0-1 0-1 Brugge (Belgíu) - Rapid Vín (Austurríki) 3-3 3-4 6-7 Luxembourg (Lúx) - Piraeus (Grikkl.) 0-3 0-3 0-6 Ajax (Holland) -Bursaspor (Tyrkl.) 5-0 2-0 7-0 Dinamo Bucharest (Rúmeníu) -Tirana (Albaníu) 1-2 0-1 1-3 Wrexham (Wales) -Zurreio (Möltu) 4-0 3-0 7-0 Torpedo Moskva (Sovét.) - Haka (Finnl.) 3-1 2-2 5-3 Mostar (Júgósl.) - Vasas Búdapest (Ungverjal.) 3-2 2-1 5-4 Vitosha (Búlgaríu) -1903 Kaupmannahöfn (Danm.) 2-0 0-1 2-1 Evrópukeppni félagsliða (UEFA): Valerengen (Noregi) -Beveren (Belgiu) 0-0 0-1 0-1 Sredets Sofia (Búlgaríu) - Tyrol (Austurriki) 2-0 0-3 2-3 Toulouso (Frakkl.)-Napoli (Frakkl.) 1-0 0-1 1-1 -Toulouse sigraði 4-3 í vítaspyrnukeppni Torino (Ítalíu)-Nanted (Frakkl.) 1-1 4-0 5-1 Werder Bremen (V-Þýskal.)-Atletico Madrid (Spáni) 2-1 0-2 2-3 DuklaPrag (Tékk.)-Hearts (Skotland) 1-0 2-3 3-3 - Dukla f er áf ram, skoraði fleiri mörk á útivelli Standard Liege (Belgíu)-Rijeka (Júgóslavíu) 1-1 1-0 2-1 Magdeburg (A-Þýskal.)-Atletico Bilbao (Spáni) 1-0 0-2 1-2 Leverkusen (V-Þýskal.)-Kalmar (Svíþj.) 3-0 4-1 7-1 WidzewLodz (Póllandi)-Linz (Austurríki) 1-0 1-1 2-1 Carl Zeiss Jena (A-Þýskal.)-Uerdingen (V-Þýskal.) 0-4 0-3 0-7 Plovdiv (Búlgaríu)-Hibemians (Möltu) 8-0 2-0 10-0 Hadjuk Split (Júgóslavíu)-Crete (Grikklandi) 4-0 0-1 4-1 Göthenburg (Sviþj.)-Sigma Olomouc (Tékk.) 4-0 1-1 5-1 Galatasaray (Tyrkl.)-Craiova (Rúmeníu) 2-1 0-2 2-3 Nicosia (Kýpur)-Studentesc (Rúmeníu) 1-1 0-1 1-2 Brandenburg (A-þýskal.)-Coleraine (N-írl.) 1-0 1-1 2-1 Barcelona (Spáni)-Flamurtari Vlora (Albaníu) 0-0 1-1 1-1 -Barcelona fer áfram, skoraði, fleiri mörk á útivelli Luzern (Sviss)-Spartak Moskva(Sovét.) 0-1 0-0 0-1 Dnépr (Sovét.)-Legia Warsjá (Pólland) 0-1 0-0 0-1 Feyenoord (Holland)-Munkas (Ungverjal.) 2-0 0-1 2-1 Eto Gyor (Ungverjal.)-Dynamo Minsk (Sovét.) 0-1 4-2 4-3 Guimares (Portúgal)-Sparta Prag (Tékk.) 2-1 1-1 3-2 Jeunesse D’Esch (Lúx)-Ghent (Belgiu) 1-1 1-2 2-3 Lyngby (Danmörk)-Xamax (Sviss) 1-3 0-2 1-5 Galway (Írl.)-Groningen (Holland) 1-3 1-5 2-8 Partizan Belgrad (Júgósl.) - Gladbach (VnÞýskal.) 1-3 0-1 1-4 Atli og Arnór skoruðu Liðunum sem íslensku atvinnu- mennirnir leika með gekk vel í Evrópukeppninni í gærkvöld. Bayern Uerdingen sem Atli Eð- valdsson leikur með sigraði Carl Zeiss Jena 4-0 og vann 7-0 saman- lagt. Atli Eðvaldsson skoraði eitt af mörkum Uerdingen. Arnór Guðjohnsen skoraði einnig, með Anderlecht gegn Gornik Zabrze. Leiknum lauk 1-1 og heildarúrslit urðu 3-1 Anderlecht í vil. Þriðja íslend- ingaliðið sem komst áfrant var Stuttgart sem Ásgeir Sigurvinsson leikur með, þeir gerðu 0-0 jafntefli við Spartak Trnava en unnu fyrri leikinn 1-0 og komast því áfram. Hinsvegar tapaði Luzern sem Ómar Torfason og Sigurður Grét- arsson eru á samningi hjá.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.