Tíminn - 02.10.1986, Side 11

Tíminn - 02.10.1986, Side 11
Tíminn 11 Fimmtudagur 2. október 1986 TÆKNI OG FRAMFARIR Myndsendingar Á undanförnum árum hefur það farið í vöxt að almenningur taki nýjustu tækniþekkinguna í sína notkun. Á markaðnunt er nú til búnaður sem gerir það kleift, með aðstoð tölvu (auðvitað), að senda myndir á milli amatöranna með radiobúnaðinum sem fyrir hendi er. Aðferðin er einföld í flókinleika sínum og byggist á tónum. í theoríu átti einnig að vera hægt að beita sömu tækni við myndsímann sem við rekumst á í öllum vísindaskáld- sögum. Sendingin á myndinni tekur allt að 20 sekúndur og er myndin uppbyggð úr 16 misdökkum pixel- einingum (pixel er einn punktur á myndfleti) og fer lengd sendingar- innar eftir því hversu mörg pixel þarf fyrir myndflötinn. Venjulegur myndflötur tölvuskjás er 512x256 pixel og þarf því nokkuð margar tóneiningar til að byggja upp mynd- ina. En nú eru það ekki lengur einungis radíoamatörar sem senda myndir sín á milli, enn sem komið er þá eru þetta kyrrmyndir en með aukinni notkun ljósþráða er þess vænst að hægt verði að senda hreyfi- myndir milli myndsíma. í raun er símahæfileiki myndsímans aukaatr- iði, talsamband er svo margfalt ein- faldara en myndsamband. Hingað til hafa slíkar sendingar farið fram á póstfaxtækjunr og sér- hæfðari tölvum. en núna eru á leiðinni á markaðinn forrit fyrir myndsendingar á milli tölva en ann- markarnir eru enn þcir að gæði myndarinnar fara eftir myndskján- um sem henni er varpað á og grein- ingarhæfni upptökubúnaðarins. Myndsímatæki þau sem eru á leið- inni á markaðinn notast við litla skjái með hlutfallslega mikilli upp- lausn. Notast er við flókna en hrað- virka algoritma til að endurnýja meginmyndflöt oftar en bakgrunn. Þess vegna er nauðsynlegt að við- komandi aðili stilli sér rétt upp gagnvart upptökubúnaði símans ellegar á hann á hættu að hluti af andliti 'hans flokkist með bakrunni. Myndsímar þessir höfða því einungis til þeirra ríku og þeirra sem hafa mikla þörf fyrir slíkan tækjabúnað. Það skemmtilega við sendingar mynda er að hægt er að taka þær upp á diskling eða segulband og skoða þær á skjá eða sjónvarpi eftir að þær voru notaðar og hafa alltaf myndir á lager til notkunar. Þannig er hægt að koma ýmsum skilaboðum og upplýs- ingum til skila sem ekki væri hægt að lýsa með orðum. Algengast er að slíkar myndsendingar séu notaðar til að senda á milli myndir af viðkom- andi aðilum, myndkort og almennar myndir af því tagi sem er nauðsyn- legur fyrir rekstur fyrirtækja. Notkun stafrænna-til-tón-breyta veldur þó því vandkvæði að það verður að festa ákveðinn fjölda pix- ellita í byrjun og miða síðan lægstu og hæstu tónhæð við neðsta og efsta lit litasviðsins sem ákveðið cr. Tón- hæðir þar á milli er ráða svo lit pixelanna. Eins og í flestum öðrunr þáttum daglegs lífs hefur tölvan búið sér til nýtingarmöguleika. Micron Eye er til dæmis upprunalega hannað fyrir færslu mynda og gagna inn á tölvur með greiningu myndrænna upplýs- inga yfir á stafrænt form. Notkun þess í stað videobúnaðs til upptöku myndar til sendingar á myndum hefur sparað sumum tölvueigendum kaup á videobúnaði en með þeim ágalla að þcir hafa þurft að senda tvær myndir til að ná fram sömu myndgæðum og eru á venjulegum skjánr. Það er athyglisvert að sím- sending á skjölum og myndum bygg- ist að mörgu leyti á sömu meginatrið- um og venjuleg sending á milli tölva og því hægt að senda þangað sem símasamband næst og búnaður fyrir móttöku er fyrir hendi. Upplausn myndanna er einungis háð þeim tíma sem sending mynd- anna má taka og upptökubúnaður getur greint. Því eru einfaldar grófar, svarthvítar myndir margfalt fljótari í sendingu en litmynd þar sem smæstu atriði koma fram. Þetta er auðvitað einnig háð því að mót- ttökubúnaðurinn ráði við að taka á móti og birta sendinguna. LÁTTU Tímann EKKI FLJÚCA FRÁ ÞÉR ÁSKRIFTARSÍMI 686300 Ertu að byggja upp líkamann? Þá er blaðburður góður kostur fyrir þig Við leitum að blaðberum til starfa víðsvegar um borgina. Álftahólar, Blikahólar, Dúfnahólar, Fýlshólar. Rauðagerð, Sogavegur frá 101-212 Hafðu samband. Tímlnn SÍÐUMULA 15 S686300 Itilefni opnunar. Kaupstaðar vœlajcs ViÖ höfum opnað Kaupstað, - nýja verslun í Mjódd þar sem verslunin VÍÖir var áður til húsa. í tilefni þessara tímamóta höfum viö útbúið Ijúffenga villikryddaöa lambasteik sem þú matreiðir á örfáum mínútum ■ og heldur þér óvænta veislu ávirkumdegi! Lambakjöt afnýslátruðu kr. 298.- pr.kg. Þú velur læri, hrygg eöa bóg af nýslátruðu fjallalambi, villikryddað og tilbúið beint í ofninn. Villisósa fráTORO, grænmeti frá SÓL hf. o.fl. meölæti átilboðsverði. Þú færö Kaupstaðarstelk með öllu á þessu frábæra tilboðsverði fram á laugardag. Láttusjá þig! 3 KAUPSTAÐUR IMJODD Auglýsing um endurgreiðslu á gjaldi af kjarnfóðri sem keypt var á tímabilinu 23. júní 1980 til 2. október 1981. í framhaldi af dómi Hæstaréttar 23. desember 1985 verður gjald af kjarnfóðri sem keypt var á tímabilinu 23. júní 1980 til 2. október 1981 endurgreitt. Þeir aðilar sem telja sig eiga endur- greiðslurétt skulu framvísa kröfum sínum til fjár- málaráðuneytis eða landbúnaðarráðuneytis eigi síðar en 15. nóvember 1986. Með kröfunum skulu fylgja gögn sem sýna það kjarnfóðurgjald sem kröfuhafi telur sig hafa sig greitt á umræddu tímabili. Fullnægjandi gögn teljast: frumrit af sölunótum eða afrit af sölunótum sem löggiltur endurskoðandi fóðursala hefur staðfest. Þar sem kjarnfóðurgjald er ekki sérgreint í verði fóðurs á sölunótu verður kröfuhafi að afla staðfestingar fóðursala um þátt kjarnfóðurgjalds í verði einstakra fóðurtegunda og fóðurblandna sem krafist er endurgreiðslu á. Reykjavík, 30. september 1986.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.