Tíminn - 17.10.1986, Síða 1
f ^ STOFNAÐUR1917
liminti
SFJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staó
SAMVINNUBANKI o
ÍSLANDS HF.
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986 - 236. TBL. 70. ÁRG.
HALLDÓR REYNISSON
ari var kjörinn
prestur í Hruna-
prestakalli í Árnes-
sýslu í kosningum
um helgina. Fjórir
sóttu um presta-
kalliö. Halldór sem
fékk 125 atkvæöi sr. Haraldur M.
Kristjánsson sem hlaut 119 atkvæði,
sr. Onundur Björnsson sem hiaut 63
atkvæði og Jón ísleifsson cand. theol
sem fékk 2 atkvæði. Á kjörskrá voru
383 en 310 greiddu atkvæði.
10 TALSTÖÐVUM aðverð
mæti um 2 milljónir
króna var stolið frá
fréttamönnum
bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar
NBC á meðan þeir
dvöldu hér á landi
vegna leiðtoga-
fundar Reagans og
Gorbatsjovs.
Stuldurinn upp-
götvaðist ekki fyrr
en fréttamennirnir
voru að taka sam-
an tæki sín og tól
og voru að fara af
landi brott, en tal-
stöðvarnar voru í
geymslu úti á
Reykjavíkurflugvelli á meðan frétta-
mennirnir dvöldu á landinu. Málið hefur
verið kært til RLR og er hún að
rannsaka málið, NBS sjónvarpsstöðin
veitir þeim góð fundarlaun sem veita
upplýsingar sem leiða til upplýsingar á
stuldinum.
RAFMAGNSLAUST varð í
gærmorgun í nýja miðbænum og er
það í enn eitt skiptið sem rafmagns-
laust verður á þessu svæði nú á
nokkrum dögum. Að þessu sinni fór
rafmaanið ekki af eins stóru svæði oa
um síðustu helgi. Rafmagnslaust varð
í hálftima á bilinu hálf ellefu til ellefu.
Starfsmenn Pósts og síma voru valdir
að rafmagnsleysinu, en þeir slitu sund-
ur háspennustreng í Ofanleiti þegar
þeir voru aðgrafa fyrir símalínum í
götunni.
SLYSAVARNASKÓLI
sjómanna efnir til almenns námskeiðs
fyrir sjómenn dagana 21. til 24. október
næstkomandi. Fjallað verður um
helstu þætti öryggismála, svo sem
endurlífgun og skyndihjálp, flutninq
slasaðra og ráð til að halda lífi við
erfiðar aðstæður, meðferð ýmissa
björgunartækja um borð í skipum og
höfnum. Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða frá Slysavarnafélagi íslands,
Landssambandi slökkviliðsmanna,
Landhelgisgæslunni, Siglingamála-
stofnun og Líffræðistofnun Háskólans.
ÍSRAELSKAR herflugvélar
gerðu loftárásir á skotmörk í Suður-LÍ-
banon í,gær og var þetta þrettánda
loftárás ísraelsmanna í Líbanon það
sem af er þessu ári. Árásin fylgdi í
kjölfar handsprengjuárásar skæruliða
á hermenn j Jerúsalem þar sem einn
maður lést. í fréttum frá Damascus var
ein flugvélanna sögð hafa verið skotin
niður og flugmennirnir handteknir.
SÆTTIR tókust í gær milli Símon-
ar Peresar og Yitzhak Shamirs um
skipti á forsætisráðherraembættinu í
ísrael sem sá siðarnefndi tekur nú við
eftir að hafa séð um stjórn utanríkis-
mála í stjórn Peresar.
KRUMMI
; „Þá er bara að krefjast
| þess af Rússum að
þeir selji okkur olíuna
I í trétunnum, sem ekki
: eru lengur framleidd-
ar í heiminum.11
Rússar neita að kaupa síld:
Kröfur um frestun
olíukaupsviðræðna
- frá saltendum, útvegsmönnum og sjómönnum
Ljóst er að ekkert verður af sölu
á saltsíld til Sovétríkjanna í ár,
nema knúnar verði fram róttækar
breytingar á afstöðu þeirra með
einum eðaöðrum hætti. Viðræðum
Síldarútvegsnefndar og sovésku
viðræðunefndarinnar, sem hófust
á mánudag eftir 4 daga hlé, er nú
lokið án nokkurs samkomulags.
Sovétmenn hafa sagt það endan-
lega ákvörðun að ekki verði greitt
hærra verð fyrir síld frá íslandi, en
þeir hafa samið um nýlega við
Kanadamenn. Verðið sem þeir
sömdu um við Kanadamenn er 46%
lægra í bandarískum dollurum en
það meðalverð sem fékkst fyrir
saltsíld til Sovétríkjanna í fyrra.
Raunlækkun verðtilboðs Sovét-
manna er meiri því ekki er tekið
tillit til lækkunar dollars gagnvart
krónu og öðrum gjaldmiðlum í
þessum útreikningi. Ljóst er að
undirboð frá Norðmönnum, sem
bjóða 30% lægra verð en meðal-
verð íslenskrar síldar í fyrra, og frá
Hollendingum, Bretum, og
Kanadamönnum hafa gert að engu
sölumöguleika á saltsíld til Sovét-
ríkjanna f ár. Þetta þýðir að íslend-
ingar verða af sölu sem í fyrra nam
cinum 20 milljónum dollara, en
þessi tekjumissir kemur harðast
niður á sjávarplássum á Austur-
landi og á Suðvesturlandi. í ramma-
samningi um viðskipti landanna
er gert ráð fyrir að árlega verði seld
til Sovétríkjanna 200-250 þúsund
tunnur af síld, og í fyrra voru
seldar þangað 200 þúsund tunnur.
Síldarsaltendur, sjómenn og út-
vegsmenn hafa krafist þess að þess-
Árni Þ. Árnason stjórnarformaður Byggung hf. skýrir málin fyrir íbúum í Reka- og Seilugranda á fundi í KR
heimilinu í gærkvöldi. Tímainynd Pétur
íbúum blöskra bakreikningar
Mikill hiti var og stór orð fuku á
fundi sem íbúar Byggungíbúða við
Seilugranda og Rekagranda héldu
meðstjórnByggunghf.í gærkvöldi
vegna bakreikninga sem þessir
íbúar hafa fengið frá fyrirtækinu.
Bakreikningar þessir hafa verið
sendir út vegna 129 fbúða í fyrr-
greindum húsum og nema frá um
200 þúsundum og allt að milljón.
Skýringar Byggung á reikningun-
um eru að þeir séu margir vegna
bílskýla og auk þess vegna vísitölu-
þróunar.
Á fundinum var borin upp og
samþykkt tillaga um að fengið
verði virt cndurskoðunarfyrirtæki
til að athuga bókhald og fjárreiður
Byggung hf. og fulltrúar af hverj-
unt stigagangi velji cndurskoðand-
ann sameiginlega. Einnig var skor-
aö á stjórn Byggung hf. að fresta
uppgjöri þar til þessi athugun hafi
farið fram og niðurstöður fengist.
ari afstöðu Sovétmanna verði svar-
að í sömu mynt og viðræðunt, sem
hefjast eiga um olíuviðskipti land-
anna nú á mánudag verði frestað.
„Við hefðum viljað láta stoppa,
eða fresta samningaviðræðum um
olíukaup af Sovétmönnum," sagði
Björgvin Jónsson forntaður í Fé-
lagi síldarsaltenda á Suður- og
Vesturlandi í gærkvöld. Kristján
Ragnarsson framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna hafði þetta um málið að segja:
„Það er ekkert álitamál að samn-
inga af þessu tagi getur enginn
gert. Þeir byggja þetta á einhverju
heimsmarkaðsverði, sem raunarer
ekkert heimsmarkaðsverð því síld-
in er niðurgreidd og styrkt í þeint
löndurn sent þeir kaupa hana frá.
Á saraa tíma erum við að afhenda
þcint upp í úrelta santninga, karfa-
og ufsaflök á verði sem er langt
undir heimsmarkaðsverði og við
stórtöpum á þeim viðskiptum mið-
að við að selja þessar afuröir á
frjálsunt markaði. Það sem er enn
verra, cf satt reynist, er að það
standi til að fara að semja um kaup
á olíu fyrir allt næsta ár í byrjun
næstu viku. Við höfum óskað eftir
því að viðskipti okkar um
olíukaup, sem út af fyrir sig liafa
ekki vcrið óhagstæð undanfarin ár,
verði endurmetin á grundvelli þess
að þeir eru að rifta öllum viðskipt-
um við okkur.“ Kristján sagði
ennfremur að útvegsmenn heföu
farið þess á leit við viðskiptaráð-
herra að fyrirhuguðum olíuviðræð-
um verði frestað.
Samkvæmt heimildum Tímans
mun vera hljómgrunnur fyrir því
innan ríkisstjórnarinnar að bcita
olíusamningaviðræðunum í þessu
máli þó ekki sé samstaða um tneð
hvaða hætti slíkt verði gert. Tvennt
hefur verið nefnt, að fresta hrein-
lega viðræðunt annars vegar eða
hins vegar að fara fram á umtals-
verða lækkun á olíuverði og láta
þannig reyna á viðskiptavild So-
vétmanna um leið og santningavið-
ræður myndu væntanlega dragast á
langinn. Áætlað var að samninga-
nefnd um olíukaup færi utan á
laugardag.
- BG
Stef num að 5% verð-
bólgu á næsta ári
sagði forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöld
Ríkisstjórnin hyggst ná fjórum
meginmarkmiðum með efnahags-
stefnunni fyrir árið 1987: verð-
hækkanir á árinu 1987 verði ekki
meiri en 4-5%; atvinna verði næg
en betra jafnvægi og minni spenna
á vinnumarkaði; vöxtur þjóðar-
framleiðslu og þjóðarútgjalda
haldist í hendur og verði nálægt
2% á næsta ári; viðskipti við útlönd
verði sem næst hallalaus og hlutfall
erlendra skulda af landsframleiðslu
og gjaldeyristekjum lækki.
Þetta var kjarninn f stefnuræðu
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra,
„Takist að ná þessum markmið-
um, má verja þann kaupmátt ráð-
' stöfunartekna og þau lífskjör, sem
náðst hafa á árinu 1986,“ sagði
forsætisráðherra. Þá sagði Stein-
grímur að fylgt yrði sömu aðhalds-
stefnu í gengismálunt og gert hefur
verið í ár, því stöðugt gengi
væri forsenda minnkandi verð-
bólgu og jafnvægis í efnahagsmál-
um þjóðarinnar.
Forsætisráðherra kom einniginn
á samstarf við erlenda aðila í
atvinnurekstri og sagði að samstarf
við erlenda aðila, sem byggju yfir
þckkingu og tækni gæti leyst mik-
inn vanda. Hins vegar væri nauð-
synlegt að endurskoða reglur sem
gilda um þátttöku erlendra aðila í
íslenskum atvinnufyrirtækjum,
nteð það að leiðarljósi að íslend-
ingar sjálfir hefðu óskeil forræði
yfir atvinnulífi landsins. ÞÆÓ
Steingrímur Hermannsson flytur
stefnuræðu sína á Alþingi í gær.
Tíniamynd Svcrrir