Tíminn - 17.10.1986, Blaðsíða 5
Föstudagur 17. október 1986
Tíminn 5
Daniloff fékk tvo gjafapakka af fiski. Sigtryggur Jónsson frá Sölustofnun Lagmetis afhendir honum pakkana
Unnar matvörur
kynntar í París
íslenskar landbúnaðarafurðir
verða í fyrsta sinn kynntar á alþjóð-
legu matvælasýningunni í París sem
hefst n.k. sunnudag og stendur í
viku. Áður hafa íslenskar fiskafurðir
verið kynntar á henni og að þessu
sinni verða fimm fyrirtæki í sjávarút-
vegi saman með bás á sýningunni.
Auðunn Bjarni Ólafsson frá
nrarkaðsnefnd landbúnaðarins og
Oddur Helgason frá Mjólkursamsöl-
unni munu fá aðstöðu í bás sem
Útflutningsráð íslands hefur aðsetur
í á sýningunni. Þar munu þeir kynna
fitusnautt hangikjöt og rjómaskyr
með súkkulaðibragði. Tíminn hafði
samband við Auðunn og spurði
hann hvaða þýðingu hann teldi að
það hefði fyrir íslenskar landbúnað-
arafurðir að komast inn á slíka
sýningu.
„Við rennum náttúrlega alveg
blint í sjóinn með það, enda fyrirvar-
inn stuttur. Hinsvegar er sýningin á
mjög góðum tíma fyrir ísland þar
sem það er búið að vera mikið í
sviðsljósinu að undanförnu. I fram-
haldi af þessari sýningu skiptir það
mestu máli, á hvaða verði hægt er að
selja unnar íslenskar afurðir því að
íslendingar hafa ekki leyfi til að selja
meira en 600 tonn af hráu kjöti í
Efnahagsbandalagslöndunum. Ef
hinsvegar unnar vörur seljast er
kominn markaður til viðbótar óháð-
ur þessum kjötkvóta Efnahags-
bandalagsins,“ sagði Auðunn.
í sýningarbás sem Sölustofnun
lagmetis, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Sjávarafurðadeild SÍS,
Akwa og bændur höfðu í frétta-
mannamiðstöðinni á meðan leið-
togafundurinn stóð yfir var gerð
tilraun til að kynna íslensk matvæli
og sú tilraun tókst með ágætum.
Þessir aðilar munu á næstunni senda
sameiginlega bréf til þeirra frétta-
manna sem sýndu áhuga á að skrifa
um íslensk matvæli í blöð sín. Þeir
verða beðnir að hafa samband til
íslands ef þeir verða varir við áhuga
á íslandi og íslenskum landbúnaðar-
og sjávarafurðum. Auðunn sagði að
það hefði gefist mjög vel að landbún-
aður og sjávarútvegur hefði unnið
saman að þessum sýningarbás og full
ástæða væri til þess að áframhald
yrði á þeirri samvinnu.
1 framhaldi af kynningunni í
fréttamiðstöðinni hafa komið upp
margar hugmyndir unt hvernig best-
um árangri má ná í því að selja
íslenskar landbúnaðarafurðir. Ein
Fréttamenn voru sumir hverjir í fæði í básnum í fréttamannamiðstöðinni. Hér
eru þýskir sælkerar að snæða ostapinna og fleira góðgæti.
hugmyndin sem nú á töluvcrðu fylgi
að fagna er sú að leggja skuli áherslu
á að útlendingar komi til íslands og
borði þar holla rammíslenska fæðu
sem matreidd er af íslendingum. I
því sambandi mætti einnig hugsa sér
að íslendingar settu á stofn matsölu-
staðakeðju erlendis þar sem cinnig
mætti bjóða upp á sömu fæðu.
-ABS
Íslenskt rjómaskyr með súkkuiaðibragði, rjómi, mjólk, ostur og tært íslenskt
vatn. Sólveig Eyjólfsdóttir frá Mjólkursamsölunni og Margrét Björnsdóttir
frá Ferðamálaráði bjóða hér upp á íslenskan mat. Myndir: Eiríkur
Tilkynning frá
landbúnaðar-
ráðuneytinu til þeirra
sem stofnuðu félagsbú
fyrir 1. janúar 1985
í samræmi við ákvæði 2. mgr. 28. gr. jarðalaga nr.
65/1976, sbr. 1. nr. 90/1984, skal senda ráðuneyt-
inu skriflegan félagsbúsamning til samþykktar fyrir
15. nóvember nk.
Landbúnaðarráðuneytið 13. október 1986.
Varahlutir í
MASSEYFERGUSON
ágóðu verði
MÍIMySTAHF
Jámhátsi 2 Síctm 83266 HORvk.
Pórthólt 10180
Aðalfundur
fulltrúaráðsins
Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í
Reykjavík verður haldinn sunnudaginn 19. október
nk. að Rauðarárstíg 18.
Fundurinn hefst kl. 10.00 f.h. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa verða teknar ákvarðanir um próf-
kjör vegna alþingiskosninganna. Dagskrá nánar
auglýst síðar.
Stjórnin
OtC*CtC
IJJJ
v/r%ss Atvinna
Hjúkrunarfræðingar! Hjúkrunarforstjóra vantar
að dvalar- og sjúkradeild Hornbrekku Ólafsfirði frá
1. nóvember. Umsóknarfrestur er til 25. október.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 96-
62480.
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar
Árna Sæmundssonar
fyrrv. hreppstjóra,
Stóru-Mörk
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Suðurlands fyrir
góða umönnun í veikindum hins látna. Fyrir hönd aðstandenda.
Lilja Olafsdottir