Tíminn - 17.10.1986, Síða 2

Tíminn - 17.10.1986, Síða 2
2 Tíminn Föstudagur 17. október 1986 Haraldur Ólafsson „Kemur ekki á óvart“ „Þetta kemur mér ekki á óvart. Mér hefur fundist þess gæta undan- farið að það væri mikill áhugi að vakna á Framsóknarflokknum hér á þessu svæði - miklu léttara undir fæti en verið hefur. Ég er því ekkert hissa á þessari útkomu,“ sagði Har- aldur Ólafsson, alþingismaður Reykvíkinga, spurður álits á niður- stöðu skoðanakönnunar Helgar- póstsins um tvöföldun fylgis flokksins í Reykjavík og á Reykjanesi. Og meira en það, Haraldur kvaðst eiga von á því að fylgishlutfall Fram- sóknarflokksins ætti eftir að aukast enn á þessu svæði. -HEI Finnur Ingólfsson. „Á eftir að margfaldast“ „Umræðan um að fá Steingrím í framboð á Reykjanesi og breytingar á framboðslista flokksins i Reykja- vík hafa orðið þess valdandi að fylgi Framsóknarflokksins tvöfaldast á þessu svæði. Þessari fylgisaukningu, sem fram kemur í þessari skoðana- könnun, þurfum við að fylgja eftir með breytingum í Reykjavík og þá má búast við að tölurnar eigi eftir að margfaldast," sagði Finnur Ingólfs- son, væntanlegur prófkjörskandídat Framsóknarflokksins í Reykjavík. - HEI Ný skoðanakönnun Helgarpóstsins: Framsókn tvöfaldar fylgið í Reykjavík og Reykjanesi Bolli Héðinsson. „Góð byrjun“ „Ég gleðst yfir því að fylgi l'lokks- ins fari vaxandi," sagði Bolli Héðins- son. sem gefið hefur kost á sér í væntanlegt prófkjör Framsóknar- flokksins í Reykjavík, þegarTíminn færöi honum fréttirnar af skoöana- könnun Helgarpóstsins, sem hann var þá ekki farinn að heyra um. „Þetta er góð byrjun, en baráttan er enn ekki hafin,“ sagði Bolli. -HEI Hólmfríður Karlsdóttir afhenti Haruo vinninginn sem er vikuferð til íslands fyrir tvo. Vinningshafi í happdrætti fréttamanna: Mynd: Matthías Vill spila golf og gista hjá bændu m Stéttarsamband bænda gaf aðal- vinninginn í happdrætti fréttamanna í Hagaskóla á meðan leiðtogafund- urinn stóð yfir. Vinningurinn var viku ferð til íslands fyrir tvo, gisting á Hótel Sögu eða hjá ferðaþjónustu bænda eftir því sem vinningshafi óskar. Flugleiðir gefa flugfarið. Sá sent vann íslandsferðina er japanskur fréttastjóri í London, Haruo Takebayshi frá blaðinu Sekai Nippo sem þýðir hinar daglegu heimsfréttir. Blaðið er gefið út á japönsku í 280 þúsund eintökum og hefur fréttamenn í 40 þjóðlöndum. Haruo kvaðst myndu koma til ís- lands næsta sumar ásatnt eiginkonu sinni. Hann vildi ferðast um ísland og valdi því ferðaþjónustu bænda sem gististaði. Hann ætlar að spila golf á íslandi því það er mjög dýrt í Japan. Einn hringur í 18 holu golf- velli þar kostar um 4000 ísl. krónur en golfvellir í Japan eru yfirleitt húsþök. Það er því að öllum líkind- um álíka dýrt að spila golf í Japan og að fara í laxveiði á íslandi. ABS „Framsóknarflokkurinn hefursótt verulega á í Reykjavík og Reykja- nesi og tvöfaldað fylgið í þessum tveim kjördæmum frá síðustu skoð- anakönnunum,“ segir í Helgarpóst- inum í gær um skoðanakönnun sem Skáis gerði fyrir blaðið um síðustu helgi, en það var áður en formaður Framsóknarflokksins Steingrímur Hermannsson tilkynnti að hann ætl- aði í framboö í Reykjaneskjördæmi. Alls 800 einstaklingar voru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa í kosningum nú, um stuðning við ríkisstjórnina cða ekki og hvernig stjórn viðkomandi vildi fá eftir kosn- ingar. Tveggja þingmanna fjölgun Sé miðað við þá sem afstöðu tóku lýstu 11,4% Reykvíkinga stuðningi við Framsóknarflokkinn og 10,2% Reyknesinga. Sterkasta fylgi flokks- ins er þó enn á landsbyggðinni, 22,2% þeirra sem afstöðu tóku. Framsóknarfylgið cr því 15,0% á landinu öllu, sem er aukning úr 11,9% í Helgarpóstskönnun í ágúst s.l. Þingmannafjöldi (miöað við 63 þingmenn) flokksins óx úr 8 í 10 milli þessara kannana. Og þriggja þingmanna tap Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur á þessum sama tíma skroppið saman úr 44,4% niður í 40,3% á landinu öllu, sem fækkar áætluðum þing- mönnum hans úr 29 niður í 26. Öfugt við Framsókn á Sjálfstæðis- flokkurinn lang mest af fylgi sínu á suðvesturhorninu, eða 50% á Reykjanesi og45,5% í Reykjavík af þeim er afstöðu tóku. Á landsbyggð- inni er hlutfallið hins vegar 31,6%. Lítill heimanmundur Miðað við allt landið styrkti AI- þýðuflokkurinn stöðu sína frá 19% í ágúst í 21,2% nú. Þess ber þó að gæta að á þessu tímabili hafa flokkn- um í raun bæst 3 þingmenn frá Bandalagi jafnaðarmanna. Fylgis- aukningin í könnuninni færir honum hins vegar aðeins 1 þingmann, 13 nú í stað 12 í ágúst. Fylgi Alþýðuflokks- ins er hlutfallslega lang mest á Reykjanesi, 25%, en 21,3% á lands- byggðinniog aðeins 18,8% íReykja- Alþýðubandalagið lítið fylgi á Reykjanesi Alþýðubandalagið bætti fylgi sitt úr 14,3% í 16,5% á landsvísu nrilli þessara tveggja kannana, sem fjölg- ar þingmönnum þeirra úr 9 í 10 að dómi Helgarpóstsins. Bandalagið á hlutfallslega sama fylgi í höfuðborg- inni, 19,1% á landsbyggðinni, en aðcins 11,1% á Reykjanesi. ...og sömuleiðis Kvennalisti Fylgi Kvennalistans hcfur minnk- að úr 8,1% í ágúst niður í 5,7% nú sem færir áætlaðu þingmannatölu hans úr 5 niður í 4. Mestu munar þar um fylgishrun á Reykjanesi úr 11% niður í 2,8% nú. í Reykjavík á Kvennalisti 7,4% samkvæmt könnuninni og 5,8% á landsbyggð- inni. Enginn bandalagsmaður Enginn þeirra sem lenti í úrtaki Helgarpóstsins ætlaði að gefa Bandalagi jafnaðarmanna atkvæði. Af þeim sem afstöðu tóku lýstu tæp 54% stuðningi við ríkisstjórn- ina, en rúm 46% ekki, miðað við 55,5% og44,5% í síðustu könnun. Óskastjórn flestra Samstarf núverandi stjórnar- flokka fékk einnig langmest fylgi - 31.1% - þegar spurt var um óska- stjórn fólks eftir næstu kosningar. Næst vinsælust var viðreisnarstjórn 21,7% og í þriðja sæti vinstri stjórn með 19,9% fylgi. Aðeins frá 2,3% til 4,8% nefndu einhvern eftirtalinna möguleika sem sína óskastjórn: Ný- sköpun - alla flokka nema Sjálf- stæðisflokk - A-flokkana og Kvennalista - Sjálfstæðisflokk og Alþýðubandalag - Krata, Kvenna- lista og sjálfstæðismenn. Um 10,8% óskuðu sér helst stjórnar sjálfstæðis- ntanna einna. Ákveðnara fólk á landsbyggðinni Athyglisvert var hve kjósendur á landsbyggðinni virtust taka ákveðn- ari afstöðu heldur en á suðvestur- horninu. Þannig voru aðeins um 12% landsbyggðamanna óákveðin á móti 18,3% Reykvíkinga og tæp 20% Reyknesinga. Sömuleiðis voru aðeins rúmlega 8% landsbyggða- manna sem kváðust ekki ætla að kjósa eða skila þá auðu á móti 15% Reyknesinga og 17,3% Reykjavík- inga. Hlutfall þeirra sem neituðu að svara var svipað - 6 til 7% - á öllum þessum landssvæðum. -HEI Fylgi á öllu laiitlinu: Okt. % Ágúst % Alþýðuflokkur 21,1 19,0 Framsóknarllokkur 15,9 11,9 Sjálfstæðisflokkur 40,3 44,4 Alþýðubandalag 16,5 14,3 Kvennalisti 5,7 8,1 Aðrirflokkar 0,4 Fylgi ilokkanna miðað við þá sem afstöðu tóku í skoðanakönnuninni á öllu landinu. Gleymum ■ ekkil geosjúkum ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.