Tíminn - 17.10.1986, Síða 12
12 Tíminn
ÍÞRÓTTIR lllll
Frá GuAnuindi Fr. Jónassyni í London:
■ Allt bendir mí til að Jesper
Olsen fari frá Manchester United
eftir að Remi Moses sló hann
niður á æfingu um daginn með
þeim afleiðingum að sauma þurfti
11 spor kringum annað auga
hans.
A.m.k. tvö lið hafa gert tilboð
í Olsen, Borussia Mönchengla-
dbach og Lille Frakklandi.
■ Knattspyrnumaður sem spil-
ar með áhugamannaliði í Eng-
landi hefur verið útilokaður frá
knattspyrnu til frambúðar fyrir
að ráðast á dómara, og ekki nóg
með það því þegar honum hafði
verið vikið af leikvelli réðst hann
á bíl dómarans og hálf eyðilagði
hann.
■ Þrír leikmenn hjá Chelsea
eru komnir á sölulista, það eru
þeir Joe McLaughlin, David Spe-
edie og Nigel Spackman. Heyrst
hefur að Liverpool hafi áhuga á
þeim síðastnefnda.
■ Terry Fenwick Oueens Park
Rangers sem lék með enska
landsliðinu í Mexíkó hefur farið
fram á að verða seldur. Manc-
hester United og Glasgow Ran-
gers hafa sýnt áhuga.
■ Neale Cooper Aston Villa
sem keyptur var frá Aberdeen í
vor hefur átt við meiðsli að stríð
og ekki getað spilað með í haust
en hann er nú allur að hressast og
erfarinn aðspila með varaliðinu.
■ Mark Hateley og Ray Wilkins
sem spila nteð ítalska liðinu AC
Mílano hafa ekki átt sjö dagana
sæla upp á síðkastið, áhorfendur
hafa úað á þá á vellinum og þeim
hefur ekki gengið vcl.
Föstudagur 17. október 1986
Fjörutíu stiga munur
Þeir félagar Gylfi Þorkelsson og Sigurður Ingimundarson sem hér sjást slást
um knöttinn þcgar Gylfi lék með ÍR leika nú báðir með Keflavík og skoruðu
samtals 21 stig í gærkvöld.
Jafntefli í Þýskalandi
Vestur-Þjóðverjar og Spánverj-
ar gerðu jafntefli 2-2 í vináttuleik í
knattspyrnu í Hannover í Þýska-
landi í fyrrakvöld.
Spánverjar tóku forystuna rétt
fyrir leikhlé með marki Emilio
Butragueno. Eftir skot hans fór
knötturinn í varnarmann Þjóð-
verja og þaðan í markið án þess að
Tony Schumacher kæmi vörnum
við.
Herbert Waas jafnaði fyrir Þjóð-
verja er 15 mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik, einlék gegnum
vörnina eftir að hann hafði fengið
knöttinn með hælspyrnu frá nýlið-
anum Wolfram Wuttke.
Níu mínútum síðar skoruðu
Þjóðverjar aftur. Uwe Rahn skall-
aði knöttinn í markið eftir fyrirgjöf
Tómasar Bertholds.
Það var svo úr vítaspyrnu sem
jöfnunarmark Spánverja kom 12
mínútum fyrir leikslok. Andoni
Goikoetxea skoraði úr vitaspyrn-
unni sem var dæmd eftir að Júrgen
Kohler braut á Julio Salinas innan
vftateigs.
Af þeim 14 leikmönnum sem
léku þennan leik fyrir Þjóðverja
voru 10 yngri en 25 ára og er
greinilegt að Beckenbauer ætlar að
halda áfram leit að nýju stórliði.
Spænska liðið var hinsvegar
óbreytt frá því í sumar.
í leik IBK og Fram í Keflavík
Hann var ekki mikið fyrir augað
körfuknattleikurinn sem boðið var
uppá í Keflavík í gærkvöld. I fyrri
hálfleik voru bæði lið slök en Kefl-
víkingar hrcsstust er leið á leikinn.
Þegar liðnar voru 15 mínútur af
fyrri hálfleik voru Framarar yfir,
27-23 en það sem eftir lifði hálfleiks-
ins skoruðu Keflvíkingar 18 stig
gegn tveimur og var staðan í leikhléi
41-29 þeim í hag.
Það sama var uppi á teningnum í
upphafi fyrri hálfleiks, fyrstu 10
mínúturnar skoruðu Framarar
aðeins 6 stig. Lokatölurnar urðu
86-46 fyrir ÍBK, algerir yfirburðir
þrátt fyrir að „varalið" IBK spilaði
síðustu mínúturnar. Allir 10 leik-
menn Keflvíkinga komu inná og
allir komust þeir reyndar líka á blað
í stigaskorun. Hinsvegar sáu 5 leik-
menn um að skora stigin fyrir Fram.
Stigaskorunin skiptist annars
þannig niður: ÍBK: Guðjón Skúla-
son 19 stig, þar af þrjár þriggja stiga
körfur, Sigurður Ingimundarson 15
stig, Jón Kr. Gíslason 15 stig (öll í
fyrri hálfleik), Hreinn Þorkelsson9,
Falur Harðarson 8, Gylfi Þorkelsson
6, Matthías 6, Ólafur Gottskálksson
4, Ingólfur 2, Skarphéðinn 2.
Fram: Þorvaldur Geirsson 12,
Ómar Þráinsson 11, Jón Júlíusson
11, Jóhann Bjarnason 9, Guðbrand-
ur Lárusson 3 stig.
KRvannKeflavík
KR sigraði ÍBK með 50 stigum
gegn 47 í leik liðanna í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í
gærkvöld. Staðan í leikhéi var
29-21 KR í hag.
Þetta er fyrsti leikur þessara
liða í deildinni en auk KR hafa
IR og ÍS unnið einn leik.
Urvalsdeildin í körfuknattleik:
■ Og í lokin má svo bæta því
við að Manchester United er í
efsta sæti í körfuboltanum í Eng-
landi. Það er vonandi að sú
vitneskja hressi upp á aðdáendur
liðsins eftir slakt gengi á knatt-
spyrnuvellinum í haust.
■ Jón G. Bjarnason knatt-
spyrnumaður hefur tilkynnt fé-
lagaskipti úr KR í ÍR sem leikur
nú í 2. deild í fyrsta sinn í sögu
félagsins.
Jón lék lítið með KR síðastlið-
ið sumar en árið á undan varð
hann þekktur eftir að „Jónsmál-
ið“ sem við hann var kennt kom
upp.
Körfuknattleikur:
Spennandi
í Grindavík
lR-ingar sigruðu Grindvíkinga
með 71 stigi gegn 70 í æsispennandi
leik liðanna í 1. deildinni í körfu-
knattleik í Grindavík í gærkvöld.
Staðan í leikhlé var 36-34 Grind-
víkingum í hag og á síðustu niínút-
unni var staðan 70-69 Grindvíking-
um í hag. Þá fengu þcir bónusskot
sem Guðmundur Bragason tók.
Hann hitti ekki, I R-ingar brunuðu í
hraðaupphlaup og Jón Örn Guð-
mundsson skoraði úr því á síðustu
sekúndum leiksins og tryggði sínum
mönnum þar með nauman sigur.
Jón Örn skoraði mest ÍR-inganna,
20 stig en Vignir Hilmarsson skoraði
10 stig. ÍR liðið var nokkuð jafnt að
getu.
Hjá Grindavík skoraði Hjálmar
Hallgrímsson mest, 17 stig en Guð-
mundur Bragason skoraði 16 stig.
ÍR-ingar eru þá með 6 stig í
deildinni að loknum fjórum leikjum
og eru langefstir, hafa að vísu leikið
flesta leiki líka. Grindvíkingar eru
með 2 stig eftir 2 leiki.
Handknattleikur, 3 deild:
Selfyssingar sigruðu ÍK
Fró Sveini Helgasyni á Selfossi:
Selflyssingar eru með fullt hús
stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í 3.
deildinni í handbolta. Á miðviku-
dag sigruðu þeir ÍH á heimavelli
með 25 mörkúm gegn 16 og virðast
þeir til alls líklegir í vetur.
Leikurinn var jafn framanaf og í
leikhlé var staðan 10-8 Selfossi í
hag. Þegar leið á seinni hálfleik
tóku heimamenn hinsvegar við sér
og yfirspiluðu þá ÍH menn.
Árnór Friðþjófsson var marka-
hæstur í Selfossliðinu með 6 mörk
en Einar Guðmundsson var næstur
með 5.
Selfyssingar eru efstir í 3. deild
en ÍS hefur einnig 4 stig. Þeir hafa
leikið þrjá leiki.
Ertu að byggja upp
Tímlnn
SIÐUMULA 15
686300
líkamann?
Við leitum að
blaðberum til
starfa víðsvegar
um borgina.
Rauðagerði
Borgargerði
Sogavegur
Einimelur
Hofsvallagata
Melhagi
Neshagi
Fornhagi
Kvisthagi
Ægissíða
Hjarðarhagi
Hafðu samband.