Tíminn - 17.10.1986, Qupperneq 19
Föstudagur 17. október 1986
Tíminn 19
m
fca tn fe ta h * H * Míj wrwm
Birgitta Ulfsson og Erna Tauro
í Norræna húsinu
Laugardaginn 18. október kl.
16.00 verður flutt í Norræna hús-
inu dagskrá, þar sem tveir góðir
gestir frá Finnlandi koma fram;
leikkonan BIRGITTA ULFSSON
og lagahöfundurinn og píanó-
leikarinn ERN TAURO. Dagskrána
nefna þær „PÁ KÁNSLIGA FOT-
SULOR". Birgitta Ulfsson les upp
ljóð og syngur vísur við undirleik
Ernu Tauro, en hún hefur samið
all flest lögin. Dagskráin hefst
með upplestri úr Kalevala, en síð-
an flytur Birgitta Ulfsson ljóð eftir
þekkta finnska höfunda og má
nefna Runeberg, Diktonius, Lars
Huldén, Solveig von Schultz,
Bengt Ahlfors o.fl. Þær Birgitta og
Erna Tauro hafa flutt þessa
dagskrá víða í Sviþjóð og alls stað-
ar hlotið mikið lof fyrir í sænskum
blöðum.
Sunnudaginn 19. október fara
þær til Akureyrar, þar sem þær
skemmtaí „Fiðlaranum" kl. 15.00.
Birgitta Ulfsson og Erna Tauro
eru leikhúsgestum hér að góðu
kunnar, en þær hafa báðar komið
og skemmt á Listahátíð. Birgitta
Ulfsson kom fram á Listahátíð
1984 ásamt sænsku leikkonunni
Stinu Ekblad og fluttu þær
dagskrá undir nafninu „Nár man
har kánslor" og var flutningur
þeirra ógleymanlegur þeim sem
sáu. Erna Tauro vann með Leikfé-
lagi Reykjavíkur er það setti upp
„Leikhúsálfana" eftir Tove Jans-
son á Listahátíð 1972, en Erna
Tauro samdi tónlistina við leikrit-
ið.
Birgitta Ulfsson hefur leikið frá
1950 og var hún um 20 ára skeið
ráðin við Lilla Teatern í Helsinki.
1982 flutti hún til Svíþjóðar, þar
sem hún hefur starfað m.a. við Al-
þýðuleikhúsið i Gautaborg. Auk
þess hefur hún leikið í kvikmynd-
um, í sjónvarpi og í útvarpi.
Erna Tauro nam við Sibelíusar-
akademíuna í Helsinki. Að námi
loknu réðst hún til Lilla Teatern
sem hústónskáld og undirleikari
og sló í gegn er hún samdi tónlist
við vísur Tove Jansson um múm-
ínálfana. Hún hefur búið í Svíþjóð
um árabil og m.a. kennt við leik-
listarskóla ríkisins þar.
Uppreisn
á ísafirði
Leikrit Ragnars Arnalds Upp-
reisn á ísafirði verður á stóra
sviðinu í Þjóðleikhúsinu á laugar-
dagskvöld. Leikstjóri var Brynja
Benediktsdóttir og leiktjalda-
hönnuður Sigurjón Jóhannsson.
Uppreisnin fjallar bæði á gam-
ansaman og áhrifamikinn hátt um
hin sögufrægu Skúlamál og at-
burði sem þeim tengdust í Kaup-
mannahöfn, Reykjavík og á ísa-
firði í lok síðustu aldar. Bæði
sögufrægar, gleymdar og skáldað-
ar persónur koma við sögu í þess-
ari fjölmennu og viðamiklu sýn-
ingu, en í helstu hlutverkum má
nefna: Róbert Arnfinnsson, Rand-
ver Þorláksson, Kjartan Bjarg-
mundsson, Lilju Þórisdóttur, Lilju
Guðrúnu Þorvaldsdóttur og Helga
Skúlason.
örn Árnason í hlutverki Jósa búdarmanns og Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir sem Díana.
Sýning á svartlist
frá Úzbekistan
Sýning sú frá Úzbekistan, sem
sett var upp í húsakynnum MÍR,
Menningartengsla íslands og
Ráðstjórnarríkjanna að Vatns-
stíg 10 i tilefni Sovéskra daga
1986, verður opin um helgina, á
laugardag og sunnudag kl. 14-
18. Á sýningunni eru 82 svart-
listarmyndir eftir 23 úzbeska
myndlistarmenn, allmargar
teikningar eftir börn og ung-
linga, bækur, ljósmyndir, auglýs-
ingaspjöld og listmunir. Að-
gangur að sýningunni er ókeypis
og öllum heimili.
Pétur Halldórsson
í Listasafni ASÍ
Nú stendur yfir málverkasýn-
ing Péturs Halldórssonar í Lista-
safni ASÍ. Grensásvegi 16, efstu
hæð. Þetta er fyrsta einkasýning
Péturs og eru á henni 25 myndir,
aðallega olíu- og akrýlmálverk.
Sýningin er opin virka daga kl.
16-20 og um helgar kl. 14-22.
Kaffiveitingar um helgar.
Leiksýningar í Iðnó um helgina:
Síðustu sýningar
á Svartfugli
Nú er komið að því að hin
áhrifamikla uppfærsla Leikfélags
Reykjavíkur á Svartfugli verði að
víkja fyrir öðrum verkefnum.
Leikgerð Bríetar Héðínsdóttur
á þessari frægu skáldsögu Gunn-
ars Gunnarssonar hefur nú verið
sýnd við mjög góðar undirtektir
frá því um mitt síðasta leikár.
í Svartfugli segir frá frægum
morðmálum vestur á Rauðasandi
í byrjun nítjándu aldar. Þar er
sögð mögnuð og áleitin saga.
Með helstu hlutverk fara Sig-
urður Karlsson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Jakob Þór Einars-
son, Þorsteinn Gunnarsson og
Gísli Rúnar Jónsson.
Svartfugl er sýndur á sunnu-
dag, og er það auglýst sem síðasta
sýning.
Þorsteinn Gunnarsson og Jakob
Þór Einarsson í hlutverkum sín-
um sem Eyjólfur Kolbeinsson
kapellán - eldri og yngri.
Mynd eftir Friðriku Geirsdótt-
ur: Engill.
Kristinn Sigmundsson sem Luna greifi og Viðar Gunnarsson sem
Fellando í II Trovatore.
íslenska óperan:
IL TROVATORE
Úperan II Trovatore eftir Verdi
verður sýnd í íslensku óper-
unni á laugardagskvöld kl. 20.00.
Stjórnandinn í þetta sinn heitir
Cem Mansur og kemur frá þjóðar-
óperunni í Istanbul í Tyrklandi.
Þetta er tuttugasta og fimmta
sýningin á II Trovatore, en sl. vor
| urðu sýningarnar alls 18.
Sigurður Steinþórsson sagði í
gagnrýni sinni í Tímanum 16/4
sl.: „... hins vegar kann þetta að
vera besta sýning sem hér hefur
sést. Allt fór saman; leikstjórn og
hljómsveitarstjórn, söngur, leikur,
búningar, sviðsmynd, lýsing -
bókstaflega allt var vel gert og vel
heppnað."
„Skissa" '86
Sýning í
Gallerí Hallgerði
Laugardaginn 18. október kl.
14.00 opnar Guðrún Gunnars-
dóttir textillistakona sýningu á
vefnaði og klippimyndum í Gall-
erí Hallgerði, Bókhlöðustíg 2,
Reykjavík.
Guðrún hélt fyrstu einkasýn-
ingu sína í Gallerí Langbrók árið
1981, en hefur auk þess tekið
þátt í fjölda samsýninga hér
heima og erlendis undanfarin 8
ár.
Öll verkin á sýningunni eru
unnin á árinu 1986.
Á myndinni leika Helgi Björnsson og Guðbjörg Thoroddsen
kirkju!
Upp með teppið,
Sólmundur!
„Nú er áskriftarsýningum á Upp
með teppið...lokið og því er tilval-
ið jafnt fyrir einstaklinga sem
stóra hópa að lyfta sér upp í Iðnó
með Sólmundi og öðrum eldhress-
um frumkvöðlum Leikfélags
Reykjavíkur," segir í fréttatil-
kynningu frá LR.
ÍSLENSK GRAFÍK '86
á Kjarvalsstöðum
íslensk grafík heldur nú sína
stærstu og fjölbreyttustu sam-
sýningu á verkum félagsmanna.
Á sýningunni eru 155 verk eftir
32 félagsmenn.
Sýningin á íslenskri grafík að
Kjarvalsstöðum er opin daglega
kl. 14.00-22.00 og lýkur á sunnu-
dagskvöíd.
Sýningar Þjóðleikhússins um helgina
Óperan Tosca
A föstudags- og sunnudags-
kvöld verða sýningar á óperunni
Tosca eftir Puccini, sem frumsýnd
var um síðustu helgi við mikinn
fögnuð áhorfenda. Hljómsveitar-
stjóri er Maurizio Barbacini, en
leikstjóri var Paul Ross. Gunnar
Bjarnason er hönnuður leikmynd-
ar og búninga, en ljóshönnuður er
Kristinn Daníelsson.
Elísabet F. Eiríksdóttir fer með
hlutverk óperusöngkonunnar
Floria Tosca. Kristján Jóhanns-
son túlkar elskhuga Toscu, list-
málarann Cavaradossi, en Kristj-
án hefur undanfarið gert garðinn
frægan í The New York City Op-
era, en þar syngur hann Rudolfo í
La Bohéme og Faust í samnefndri
óperu. Bandaríski baritónsöngv-
arinn Malcolm Arnold syngur og
leikur Scarpia, lögreglustjóra, sem
eins og fleiri girnist Toscu hina
fögru.
í helstu hlutverkum öðrum eru:
Viðar Gunnarsson (Angelotti),
Sigurður Björnsson (Spoletta),
Sigurður Bragason (Sciarrone),
Elísabet F. Eiríksdóttir sem Flor-
ia Tosca og Malcolm Arnold í
hlutverki Scarpia lögreglustjóra.
Guðjón Óskarsson (Djákninn) og
Stefán Arngrímsson (fangavörð-
ur). Auk þeirra taka stór hljóm-
sveit, Þjóðleikhúskórinn, drengja-
kór og aukaleikarar þátt í sýning-
unni. Samtals er um 150 manns á
sviði og í gryfju.