Tíminn - 22.10.1986, Page 3
Miðvikudagur 22. október 1986
Albert Guðmundsson:
Tíminn 3
Nemendaleikhúsið
sýnir:
Morgunblaðið aldrei hrósað
happi yfir velgengni minni
„Morgunblaðið hcfur aldrei lirós-
að happi þegar mér hefur gengið vel,
og þetta kemur ntér ekkert á óvart,“
sagði Albert Guðntundsson iðnaðar-
ráðherra við Tímann þegar hann var
inntur eftir áliti á leiðaraskrifum
Morgunblaðsins í gær, þarsem dreg-
ið cr í efa að úrslit prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins eigi eftir að verða
flokknum til framdráttar í næstu
kosningum. í leiðaranunt er m.a.
talað um að þrátt fyrir góða málefna-
stöðu í landsmálunum sé hætta á að
flokkurinn sé ekki í þeirri sóknar-
stöðu sem vænta hefði mátt vegna
„pólitískra sviptivinda" í kringum
Albert Guðmundsson. „Albert
Guðmundsson hefur sýnt að hann
Tekjur fjölmiðla
tveir milljarðar
Gróflega áætlað var 2,milljörðum
króna veitt í að greiða fyrir birtingu
auglýsinga í íslenskum fjölmiðlum
á tímabilinu frá 1. október 1985 til
30. september 1986. Þetta kemur
fram í upplýsingum sem upplýsinga-
fyrirtækið Miðlun hefur tekið saman
um auglýsingamarkaðinn á íslandi
og kynntar voru á blaðamannafundi
í gær. Inn í þessa heildartölu er
reiknaður brúttókostnaður uppgef-
ins verðs fyrir auglýsingar á núvirði.
M.ö.o. ekkert tillit er tekið til þess
hversu mikinn afslátt fjölmiðlarnir
gefa á auglýsingum. Þá er í þessari tölu
ekki reiknað með útiauglýsingum,
auglýsingum í landsmálablöðum,
auglýsingum í kvikmyndahúsum og
framleiðslukostnaður er ekki reikn-
aður með í þessu dæmi heldur, en
hann er þó stór hluti af því fjármagni
sem á annað borð er varið til auglýs-
inga í landinu.
Þessi auglýsingapakki upp á 2
milljarða skiptist þannig milli hinna
ýmsu fjölmiðla að dagblöðin fá
54,9% eða rétt tæplega 1.058 millj-
ónir í sinn hlut, sjónvarp fær tæpar
259 milljónir eða 13,4%. Rás 1 fær
tæplega 365 milljónir eða 18,9%,
Rás 2 rúmar 87 milljónir eða 4,5%
og tímarit fá 7,8% eða rúmar 147
milljónir. Athygli vekur að Bylgjan
fékk í septembermánuði einum sam-
an 0,5% af þessum tólf mánaða
auglýsingapakka sem upplýsingarn-
ar ná til, eða 9,5 milljónir 'króna.
f máli þeirra Árna Zophaníasson-
ar og Halls Leopoldssonar hjá Miðl-
un kom fram að hér er um brautryðj-
endastarf í könnun á íslenska aug-
lýsingamarkaðnum að ræða og
könnura fyrirtækisins næði einungis
til þessa eina árs. Með fyrirvara um
ófullnægjandi upplýsingar sögðu
þeir að miðað við þær upplýsingar
scm þó væru til frá fyrri árum
virtist þróunin vera sú að magn
auglýsinga í íslenskum fjömiðlum
færi heldur minnkandi og að um
4-6% minnkun hefði verið að ræða
frá því í kringum 1981. Þessi sam-
dráttur á jafnt við um dagblöðin
útvarp og sjónvarp, en orsakir þessa
liggja ekki á reiðum höndum og geta
raunar verið margvíslegar.
Athygli vekur hversu mikið er
auglýst á Bylgjunni og í september
munaði 1/2 á henni og Rás 2 í
leiknum auglýsingum.
Þá koma í þessum upplýsingum
vel fram yfirburðir Morgunblaðsins
í magni auglýsinga og virðist það
hcldur vera að auka við sig og fær nú
yfir 50% af þeim auglýsineum sem
birtast í dagblöðunum. -BG
hcfur mikið pólitískt þanþol. Hitt er
annað mál, hvort það dugar Sjálf-
stæðisflokknum í næstu kosning-
um,“ segir orðrétt í leiðaranum.
Þá var Albert spurður um fréttir,
sem heyrst hafa um að Ftladelfíu-
söfnuðurinn og Kattavinafélagið
hafi staðið að liðssöfnun mcðal sinna
félagsmanna til stuðnings honurn í
prófkjörinu á laugardaginn og geng-
ið í Sjálfstæðisflokkinn í því skyni.
„Mér er ekki kunnugt um að neitt
slíkt hafi gerst, en ég vona að
Fíladelfíumenn hafi gengið í
flokkinn, það er gott fólk, og ég
fagna því ef svo er. Hvað varðar
Kattavinafélagið þá er það vafalaust
nefnt í þessu sambandi til þess að
gera þetta eitthvað tortryggilegt, en
þeir sem standa að því félagi er fólk
með hjartað á réttum stað, það eru
dýravinir. Ég held að flokkurinn ætti
að fagna því ef þetta fólk hefur
gengið í flokkinn og reyna að fá fleiri
hópa eins og þessa til að koma inn í
flokkinn. Ég held að allir flokkar
myndu fagna því. En ég veit ekkert
um það hvort þetta fólk hefurgengið
í flokkinn fyrir prófkjörið, það getur
vel vcrið, en reglurnar voru þannig
að ef menn vilja styðja einhvern
frambjóðanda, ntig eða aðra, þá
verða þeir að vera í flokknum og ég
hefði haldið að það væri fengur fyrir
stjórnmálaflokk að sent flestir
gcngju í hann." sagði Albert.
Tíminn hafði samband við Einar
Gíslason í Fíladelfíu og spurði hann
hvort söfnuðurinn hefði beitt sér í
prófkjöri sjálfstæðismanna. Einar
sagði að safnaðarstjórnin væri í cngri
aðstöðu til þess að blanda sér í
pólitík, enda hefði hún ekki áhuga á
að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir
meðlima sinna. Hann sagðist ekkert
geta sagt um hvað einstaka safnað-
armeðlimir hefðu gert, slíkt væri
alfarið þeirra einkamál. Ekki náðist
í talsmann Kattavinafélagsins í gær.
-BG
„Leikslok
í Smyrnu“
- eftir Goldonis
Nemendaleikhús Leiklistar-
skóla íslands frumsýnir á morgun
leikritið „Leikslok í Smyrnu" eft-
ir samnefndu lcikriti Goldonis í
leikgerð Horst Laube.
Frumsýningin verður í Lindar-
bæ kl. 20.30 en 2. sýning verður
laugardaginn 25. okt. Leikstjóri
er Kristfn Jóhannesdóttir en leik-
mynd og búninga gerði Guðrún
Sigríður Haraldsdóttir. Lýsingu
annast Ólafur Örn Thoroddsen
og Guðrún Sigríður Haraldsdótt-
ir, en tónlist er eftir Hilmar Örn
Hilmarsson. Árni Bergmann
þýddi.
Nemendur á fjórða ári eru
Halldór Björnsson, Hjálmar
Hjálmarsson, Ingrid Jónsdóttir,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Stefán
Sturla Sigurjónsson, Valgeir
Skagfjörð, Þórarinn Eyfjörð og
Þórdís Arnljótsdóttir. Tveir
gestaleikarar leika að þessu sinni
með, þau Jón Gústafsson og
Kristbjörg Kjeld. Þá tekur einn
nemandi á fyrsta ári þátt í sýning-
unni en aðrir nemendur 1. árs sjá
um tæknivinnu og aðstoð á sýn-
ineum.
Nemar Leiklistarskóla íslands ásamt Kristínu Jóhannesdóttur á æfíngu á „Leikslokum í Smyrnu“ í gær.
Tímamynd Svemr
Stöðvarmenn glaðhlakkalegir innan um tæknibúnaðinn. Frá vinstri eru
Ragnar Guðmundsson forstjóri íslenska myndversins sem sér um þýðingu
og textun á myndum sem sýndar eru í stöðinni, Jón Óttar Ragnarsson
stöðvarstjóri og Hans Kristján Árnason fjármálastjóri. (Tímamynd-Sverrir)
Fréttastúdíóið er enn hálfkarað, þó það sjáist ekki á skerminum.
(Tímamynd-Sverrir)
Stöö 2 færir fljótlega út kvíarnar:
Helgi Pétursson verður
„mastermind“ íslendinga
Stöð 2 hyggst færa verulega út
kvíarnar á næstu vikum, hvað varð-
ar dreifingu á sjónvarpsefni, út-
sendingartíma og innlenda dag-
skrárgerð. Innan tveggja vikna er
áætlað að hefja gerð þátta, t.d.
umræðuþátta, auk þess sem fréttir
verða teknar upp á sunnudögum
og síðar á laugardögum. Eftir ára-
mót er áætlað að hefja gerð
skemmtiþátta, t.d. íslenskri gerð
af spurningaþætti Magnúsar Magn-
ússonar í BBC, Mastermind, sem
Helgi Pétursson mun stjórna. Auk
þess er ætlunin að þulur kynni
dagskrárliði stöðvarinnar innan
skamms.
Forráðamenn Stöðvar 2 kynntu
framtíðaráætlanir sínar á blaða-
mannafundi í gær. Að þeirra sögn
nær stöðin nú til milli 40 og 45
þúsund heimila á Faxaflóasvæðinu
og innan skamms verða settir upp
endursendar fyrir „skuggasvæði"
sem komið hafa í Ijós á höfuðborg-
arsvæðinu. Dagskrá stöðvarinnar
er nú send tveim kapalkerfum, á
Ólafsvík og á Ólafsfirði, og þrjú
önnur kapalkerfi munu bætast við
innan tíðar. Síðan mun Sjónvarps-
félag Eyjafjarðar bætast við innan
fárra vikna og innan árs gera
stöðvarmenn ráð fyrir að 80%
landsmanna nái útsendingunum.
Sala á myndlyklum gengur von-
um framar að sögn forraðamanna
Stöðvar 2, en þá þarf að tcngja við
sjónvörp svo hægt sé að horfa á
svokallaðan áskriftarhluta
dagskrár. Þeir myndlyklar scm
ganga að útsendingu Stöðvar 2 eru
framlciddir af Philips og á, að sögn
kunnugra, að vera illmögulegt að
„svindla" á þeim. Einnig mun þetta
truflunarkerfi hafa þann kost að
endurvarp hcfur engin áhrif á af-
ruglunina.
í upphafi var gert ráð fyrir að
þessir lyklar myndu kosta rúmar
30.000 krónur nteð innflutnings-
gjöldum og söluskatti og Heimilis-
tæki, sem hafa umboð fyrir Philips,
lögðu því aðeins inn pantanir fyrir
2-3000 lyklurn fram að áramótum.
Ekki var talið hægt að hafa sama
háttinn á og t.d. í Danmörku þar
sem Kanal 2 á myndlyklana cn
leigir þá síðan út og áskrifendur
greiða því mun lægra stofngjald
eða rúmar 2000 krónur.
Málið horfði st'ðan öðruvísi við
þegar fjármálaráðherra ákvað að
nýta sér lagaheimild sem kveður á
um að fella skuli niður aðflutnings-
gjöld á búnaði sem fluttur er inn til
aukningar á dreifikerfi útvarps.
Með nýjum útvarpslögum var talið
að hugtakið dreifikerfi hefði breyst
þegar gert var ráð fyrir einkastöðv-
um sem selja dagskrá sína í áskrift,
og því var þessi lagaheimild notuð
til að fella niður toll, vörugjald og
söluskait af myndlyklum svo að
endanlegt verð á lyklununt varð
11800,- krónur.
Þrátt fyrir ýmis tæknileg vanda-
mál sem komu upp þegar fólk
reyndi að „Ijúka upp“ sendingu
Stöðvar 2, með myndlyklunum
streyma pantanir nú til Heimilis-
tækja. Að sögn Bjarna Ágústsson-
ar tæknistjóra, hafa um 5000 þegar
fengið eða pantað tækið og 150
bætast við á dag. Afgreiðslufrestur
er þó langur eða rúmar 6 vikur eins
og er, og er ekki fyrirsjáanlegt að
hann styttist í bráð.
Til þess að rekstur stöðvarinnar
beri sig var gert ráð fyrir að þyrfti
um 7000 áskrifendur og samkvæmt
þessu ætti það takmark að nást
fljótlega og gott betur. Hinsvcgar
hafa efasemdaraddir heyrst sem
benda á rnikinn stofnkostnað, háan
launakostnað og fleira og því sé
vonlítið að rekstur stöðvarinnar
beri sig. Ýmsir byrjunarörðugleik-
ar urðu síðan ekki til þess að auka
trú þessara manna á fyrirtækinu.
Forráðamenn fyrirtækisins eru
samt hvergi bangnir og segja að
undirtektir hafi verið mun betri en
reiknað var með og allt sé því að
sigla á lygnan sjó.