Tíminn - 13.11.1986, Qupperneq 3
Fimmtudagur 13. nóvember 1986
Tíminn 3
K. Jónsson & Co:
Nota óleyfilegt efni við
niðursuðu á rækju
Ríkismat sjávarafurða og Hollust-
uvernd ríkisins hafa í samvinnu og
að höfðu samráði við Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins hafið athugun
á notkun rotvarnarefnisins hexamet-
hýlentetramín við framleiðslu á
niðursoðnum fiskafurðum hér á
landi. Komið hefur í Ijós að fyrirtæk-
ið K. Jónsson & Co. hefur notað
áðurnefnt efni í niðursoðna rækju.
Ríkismat sjávarafurða og
Hollustuvernd ríkisins hafa gefið
fyrirmæli um að útflutningur, dreif-
ing og sala niðursoðinnar rækju með
þessu efni í frá K. Jónsson & Co.
hérlendis verði stöðvuð, þar sem
notkun rotvarnarefnisins er óheimil.
Jafnframt hefur verið gerð krafa um
að fyrirtækið innkalli þessa vöru nú
þegar úr verslunum og mun heil-
brigðiseftirlitið á hverju eftirlits-
svæði hafa eftirlit með því að svo
verði gert. Forráðamenn verslana
eru einnig beðnir að sjá til þess að
vara þessi verði ekki til sölu í
verslunum.
Rannsókn stendur nú yfir á því
hvort aðrar niðursuðuverksmiðjur
hafi notað hexamethýlentetramín
við niðursuðu á rækju. Skýrt verður
frá niðurstöðum strax og þær liggja
fyrir og viðunandi ráðstafanir
gerðar.
480 atvinnulausir
Skráðir atvinnuleysisdagar í októ-
ber jafngilda því að 360 manns hal'i
að meðaltali vcrið án atvinnu allan
mánuðinn, þar af 105 á höfuðborg-
arsvæðinu (þó svo fréttir bcrist af
því að þúsundir manna vanti til
starfa á vinnumarkaðinn). Um
helmingur atvinnúlausra voru
konur.
Atvinnulausir í október voru um
50 fleiri en í mánuðinun á undan
og fór þeim fjöjgandi eftir því sem
leið á mánuðinn, í 480 manns.
Ástæður eru m.a. taldar hráefnis-
skortur í fiskvinnslu og lok slátur-
tíðar. Mest varð fjölgun atvinnu-
lausra í: Keflavík, Bakkagerði,
Húsavík.Ólafsfirði, Drangsnesi og
Þingeyri og er það óvenjulegt að
pláss á Vestfjörðum komist á at-
vinnulcysisskýrslur. Nær fjórðung-
ur atvinnulausra á landinu var í
Norðurlandskjördæmi-eystra, sem
ekki er ótítt.
Þótt atvinnuleysi htifi aukist
nokkuð síðan í september voru
atvinnulausir nú töluvert færri en
verið hefur í októbcrmánuði síð-
ustu 3 árin, samkvæmt skrám
vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins.
-HEl
stendur
fyrir sínu
STORKOSTLEG VERÐLÆKKUN
Vegna hagstæðra sainninga við
ZETOR verksmiðjurnar getum við
nú boðið verðlækkun á takniörkuðuin
fiölda
umbodið:
íslensk-tékkneska verslunarfélagið hf.
Lágmúla 5, sími 84525, Rcykjavík.
DRÁTTARVÉLA
Undirritun samninga um búvöru-
deild.
Sunna Karlsdóttir deildarstjóri fjár-
reiða búvörudeildar.
Búvörudeild SÍS:
Sláturleyfis-
hafar inn í
reksturinn
Félag sláturleyfishafa innan sam-
vinnuhreyfingarinnar hefur gerst
helmingsaðili að rekstri búvöru-
deildar Sambandsins á móti Samb-
andi íslénskra samvinnufélaga. Jafn-
framt gerast sláturleyfishafar aðilar
að rekstri Kjötiðnaðarstöðvar Sam-
bandsins í Reykjavík. Félag slátur-
leyfishafa sér nú þegar um sölu
kinda-, nauta- og hrossakjöts en
innan tíðar munu þeir einnig bindast
samtökum um sölu á svína-og fugl-
akjöti.
Jafnframt hefur verið ákveðið að
búvörudeildm hafi sjálfstæðan fjár-
hag og bein viðskiptasambönd við
sláturleyfishafa. Sunna Karlsdóttir
hefur verið ráðin deildarstjóri fjár-
reiða hjá búvörudeildinni í kjölfar
þessara rekstrarbreytinga.
Greiðslukjör til allt að tveggja ára
ZETOR sú mest selda - Bestu kaupin
Undanfarin 10 ár hefur ZETOR verið söluhæsta dráttarvélin á
íslandi og sum árin hefur hlutfallið numið yfir 50% af heildarsöl-
unni. Þetta sannar að íslenskir bændur vita að langmest fæst
fyrir peningana með kaupum á ZETOR.
Þráttfyrirþessa verðlækkun, bjóðum við áfram sama fullkomna búnaðinn
og áður. ViðfuIIyrðumaðenginnbýður jafn fjölbreyttan „Standard“ búnað
á dráttarvélum.
Því miður getiim við ekki tryggt þetta lága verð
lengur en til 10. des., eða meðan birgðir endast.
Zetor-allar gerðir:
Afar vandaö ekilshús meö öllum þægindum s.s. góöri hljóö-
einangrun - kassettu stereóútvarpstæki meö leiðbeininga-
snældu - rafdrifnum þurrkum aö framan og aftan - rúöu-
sprautu - vókvastýri og öflugri miöstöö.
Dráttarkrókur aö framan og aftan - þverbiti - hliðarsláttustífur
- véjknúin loftdæla - tveir baksýnisspeglar - tvö vökvaúttök
- aurhlífar að framan - vandaður Ijósabúnaöur og halogen
Ijóskastarar aö framan og aftan - tectyl ryövörn - 540 snún-
inga- og fjölhraöaaflúttak.
Auk þess: ZETOR 7211 og 7245: 1000 snúningaaflúttak.
ZETOR 5211 og 7211: Fjaðrandi framöxull.
Verð eftir lækkun:
5211 47 lia. án (jórhjóladril's kr. 349.000
5245 47 ha. með fjórhjóladrifi kr. 410.000
7211 65 ha. án Ijorhjoladrils kr. 403.000
7245 65 ha. með Ijórhjóladrill kr. 499.000
Þessi verð og ístékk greiðslu-
kjör gera nú öllum bændum
kleift að eignast ZETOR