Tíminn - 16.12.1986, Síða 1
/rAr m STOFNAÐUR1917 ÍSHAU3HAGI *
I i tni ti ti ■“*
B MBMMMMMMm íslandshf-^
ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBÉR 1986 - 287. TBL. 70. ÁRG.
ISTUTTU MÁLl
iia
FOKKER flugvél Flugleiöa sem
fór í áætlunarflug til Vestmannaeyja
um hádegisbilið í gær hlekktist á við
lendingu í Vestmannaeyjum þegar
sprakk á tveimur hjólbörðum vélarinn-
ar. Hvorki áhöfn né farþega flugvélar-
innar sakaði en um borð í vélinni var
þriggja manna áhöfn og 35 farþegar.
Mjög erfið skilyrði voru á flugvellinum
er óhappið varð.
LANDSVIRKJUN hefur farið
fram á 10 til 16,5% hækkun gjaldskrár
frá og með áramótum. Hækkunar-
beiðni þessi hefur ekki fengið jákvæða
umfjöllun Þjóðhagsstofnunar, þar sem
það þýddi umtalsverðar hækkanir hjá
dreifiveitunum á landinu. Búist er við
að hækkun hjá dreifiveitunum þurfi að
vera um 9% burtséð frá hækkun af
völdum hækkunar Landsvirkjunar. Ef
Landsvirkjun fengi að hækka um 10%
mætti því búast við samtals um 15%
hækkun hjá dreifiveitunum.
LANDSSAMBAND hjálpar-
sveita skáta hefur ákveðið að taka á
sig kostnað við að hafa einn lækni á
bakvakt, ef til sjúkraflugs kemur, í einn
mánuð.
Læknar af Borgarspítalanum hafa um
nokkurt skeið myndað sjálfboðaliða-
hóp og átt árangursríkt samstarf við
þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar.
Hafa þeir skipst á að fara í sjúkraflug
með þyrlunum og eru flug þeirra orðin
36 talsins. Talið er víst að þátttaka
læknanna hafi bjargað a.m.k. 6
mannslífum. Þessu launalausa til-
raunastarfi læknanna lauk í gær og
vonast menn til að tekjustofnar fáist til
að halda áfram þessu starfi.
LOÐSKINN hækkuðu að með-
altali um 15% á desemberuppboði
danska loðdýrasambandsins sem
haldið var í Kaupmannahöfn um helg-
ina. Öll skinn sem í boði voru seldust
upp. Fyrir lá að umtalsverð vöntun
væri á minkaskinnum og óttuðust
menn að verð færi óhæfilega hátt upp,
sem gæti leitt til verðfalls í janúar. Sú
varð ekki raunin og er útlit talið mjög
gott fyrir sölu minkaskinna á uppboð-
um í vetur.
RAUÐAKROSSHÚSIÐ
hefur opnað sérstaka símaþjónustu
fyrir börn og unglinga undir 16 ára
aldri. Símaþjónustan er ætluð börnum
og unglingum sem telja sig hafa þörf
fyrir að ræða við einhvern fulloröinn
um sín mál, hvort sem það er þeirra
vegna þeirra sjálfra eða þeirra að-
stæðna sem þau búa við, á heimilinu,
í skóla eða í vinahópi. Þá er líka hægt
að hringja og segja frá einhverju
jákvæðu og skemmtilegu sem þau eru
að gera eða gerst hefur hjá þeim.
Símaþjónustan verður á mánudög-
um, miðvikudögum og föstudögum frá
kl. 15.00 til 19.00. Símanúmerið er
622260.
MIKHAIL GORBATSJOV Sovét-
leiðtogi ræddi í gær'við Gary Hart sem
líklegur þykir til að hljóta útnefningu
sem forsetaefni demókrata fyrir for-
setakosningarnar árið 1988. Sovét-
leiðtoginn hélt því fram á fundi sínum
við Hart að afvopnunarviðræður fram-
tíðarinnar yrðu að byggja á þeirri
afstöðu sem tekin var á Reykjavíkur-
, fundi hans og Reagans Bandaríkja -
forseta.
KRUMMI
“Kannski
hefur hún ekki ver-
ið nógu góð, ekki
hangið nógu
lengi?"
Skreiðarsalan:
Eru 200 milljónir
króna tapaðar?
Fyrsti víxill vegna skreiðarsölu frá í sumar gjaldfallinn og ekkert bólar á greiðslum
Uggur er nú meðal skreiðar-
framleiðenda vegna skreiðarfarnrs
sem seldur var gegnum aðila f
London á Nígeríumarkað í sumar.
Ýmis teikn þykja á lofti, þess efnis
að greiðslur fyrir farminn muni
ekki inntar af hendi.
Fyrsti víxillinn, sem átti að vera
greiðsla fyrir 16 þúsund pakka af
skreið sem send var til Nígeríu í
vor og í sumar á vegum íslensku
umboðssölunnar og Skreiðarsam-
lagsins, féll í gjalddaga þann 1.
desember sl. Annar víxill fellur í
gjalddaga síðar í mánuðinum.
Skreiðarfarmurinn var seldur til
Nígeríu í gegnum aðila í London,
sem keypti skreiðina með víxlum
og án þess að fyrir lægju banka-
ábyrgðir. Heildarverðmæti þessa
farms er metið á um 200 milljónir
króna, og fóru um 80% skreiðar-
innar út á vegum Skreiðarsamlags-
ins og um 20 % farmsins á vegum
íslensku umboðssölunnar.
Árni Bjarnason hjá íslensku um-
boðssölunni sagði í samtali við
Tímann í gær að þeir hefðu látið
Skreiðarsamlaginu eftir að sjá um
pappírsvinnu og útfærslu á útflutn-
ingi þessarar skreiðar og að hann
gæti lítið um þessi viðskipti sagt
annað en að Ólafur Björnsson
stjórnarformaður í Skreiðarsam-
laginu hafi farið til London til að
semja við viðskiptaaðilann þar um
greiðslu á hinum gjaldfallna víxli.
Milliliðurinn í London, sem
keypti skreiðarfarntinn heitir Sam
Naidoo og rekur nokkur fyrirtæki
sem m.a. hafa verið nteð rekstur í
nokkrum löndum í Vestur-Afríku
þar á meðal Nígeríu.
Naidoo þessi bauð á sínum tíma
Sjávarafurðadeild Sambandsins
viðskipti en því var hafnað. Ragnar
Sigurjónsson hjá skreiðardcild
Sambandsins var spurður að því
hvers vegna tilboði Naidoos hafi
verið hafna'ð. „Þeir gátu ekki boðið
viðunandi greiðslutryggingar, þeir
gátu ekki boðið öruggar greiðslur
svo þctta var nokkuð sjálfgefið,"
sagði Ragnar. Aðspurður hvort
gerðar hafi verið fyrirspurnir um
þennan aðila sagði Ragnar að svo
hafi verið og „að okkar mati töld-
unt við okkur ekki fært að selja
honum," sagði hann ennfremur.
Hannes Hall hjá Skreiðarsam-
laginu sagði að þeir hefðu aflað sér
upplýsinga um Naidoo eftir á-
kveönum leiðum og að þær upplýs-
ingar hafi ekki gefið tilefni til
annars en að selja honum skreið-
ina. Sagði liann að þeirra upplýs-
ingar hafi greinilega verið annars
eðlis en þær senr Sambandið hafi
fengið, þegar bornar voru undir
hann upplýsingar Sambandsins um
greiðslugetu Naidoos. Aðspurður
unt hvort ekki væri ócðlilegt að
ganga frá sölu upp á 200 milljónir
mcð víxlum án bankatryggingar
benti Hannes á að engin viðskipti
við Nígeríu gætu talist eðlileg
vegna óstöðugra viðskiptahátta þar
í landi. -ES/BG
Trilla sökk í Reykjavíkurhöfn á mánudagskvöld og má rekja tjónið til óveðursins sem gekk yfir landið aðfaranótt mánudags. Myndin er tekin
skömmu áður en trillan sökk. Lögregluþjónar og hafnsögumenn komu böndum á hana og drógu yfir að annarri bryggju, þar sem hún sökk.
Tímamynd Sverrir
Djúp lægö gekk yfir landið aöfaranótt mánudags:
Almannavarnir og björgunar-
sveitir voru í viðbragðsstöðu
Of mikiö veöur gert út af veörinu segir veðurfræðingurinn
Mjög djúp lægð gekk yfir landið
sunnudagskvöld og aðfaranótt
mánudags. Almannavarnir ríkisins
gáfu út aðvörun og björgunarsveit-
ir voru víða í viðbragðsstöðuog
þurftu á nokkrum stöðum, aðal-
lega suð-vestan lands, svo sem í
Grindavtk, að grípa til aðgerða.
Ekki urðu miklar skemmdir af
völdum veðursins en þó nokkrar. í
Reykjavíkurhöfn sökk trilla, þak
tók af að hluta á húsi fsbjarnarins
á Seyðisfirði og í Grindavík fauk
þakplötustæða og dreifðist um
bæinn. Ekki urðu þó miklar
skemmdir af þeirra völdurn, en
auk þess tók þakplötur af einum
þremur íbúðarhúsum. Á Isafirði
brotnaði ytra gler í flugturninum
og hlerar fuku af flugskýli. Þá
brotnuðu 8 rafmagnsstaurar með
þeim afleiðingum að rafmagnslaust
varð á skíðasvæðinu í Bláfjöllum.
Vindhraðinn mældist mest 12
vindstig í Vestmannaeyjum og á
ísafirði, en í Reykjavík mældist
mest rúmlega átta vindstig.
Vindhraði mældist þó meiri í verstu
hviðunum eða rúmíega 100 hnútar,
t.d. á ísafirði. Sagði Unnur Ólafs-
dóttir, veðurfræðingur að Veður-
stofan hefði hvergi spáð fárviðri,
sem cru 12 vindstig og þar yfir og
hefði sú spá staðist vel. Væri mikill
munur á ofsaveðri, sem eru 11
vindstig og síðan fárviðri. „Það var
bara dálítið mikið veður út af
þessu í fjölmiðlum, þeir ruku upp
til handa og fóta. Það var alltof
mikið gert úr þessu fyrir Reykja-
vík, þó þetta hafi kannski átt við
um suma staði," sagði Unnur
Ólafsdóttir. -phh