Tíminn - 16.12.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriöjudagur 16. desember 1986
(þróttaskólinn Laugarvatni:
Nemendur
mótmæla
áformum
rádherra
- um flutning á Hótel
og veitingaskólanum
Á fundi sem nemendafélag
íþróttakennaraskóla íslands hélt
nýlega var hugmyndum mennta-
málaráðherra um flutning á Hótel
og veitingaskólanum til Laugar-
vatns, mótmælt harðlega. f bréfi
sem nemendafélag skólans hefur
ritað ráðherra er m.a. spurt hvað
verði þá um nemendur Í.K.Í.
Jafnframt er bent á að nefnd er
starfandi nú, sem vinnur að
endurskoðun á lögum um
skólann. Við þá endurskoðun
hafa komið fram hugmyndir um
að skólinn taki inn nemendur á
hverju ári í stað annars hvers árs
eins og verið hefur. Nemendur
skólans telja að hugmyndir Sverr-
is Hermannssonar vinni beinlínis
gegn hugmyndum þeim sem
nefndin hefur komið fram með.
„Við nemendur Í.K.Í. viljum
eindregið hvetja þig hæstvirti
menntamálaráðherra, til að
endurskoða hugmynd þína um
flutning Hótel og veitingaskólans
að Laugarvatni," segir í niðurlagi
bréfsins sem ráðherra var afhent
í gær.
Yfirnefnd hefur úrskuröað:
Bændureigaréttá
viðbótargreiðslum
- vegna ársfjórðungslegra hækkana
Yfirnefnd hefur kveðið upp úr-
skurð sinn varðandi ágreining sem
kom upp í sexmannanefnd vegna
verðhækkana til bænda ársfjórð-
ungslega og skotið var til yfirnefndar
til endanlegs úrskurðar.
Yfirnefnd kvað upp úr með það,
að samkvæmt 29. gr. búvörulaga nr.
46 frá 1985 ættu bændur fullan rétt á
viðbótargreiðslum vegna hækkana
sem kunna að verða við ársfjórð-
ungslegar breytingar verðlagsgrund-
vallar í hlutfalli við óseldar birgðir í
landinu 1. desember, 1. mars og
l.júní er inntar séu af hendi eigi
síðar en 15. dag hvers þess mánaðar.
Neytendur höfðu haldið því fram
um leið og staðgreiðslukerfi væri
komið á til sauðfjárbænda og kúa-
bænda fyrir afurðir, þá ættu þeir
ekki lengur tilkall til þeirrar verð-
mætisaukningu birgða á þriggja
mánaða fresti þar sem þeir væru
búnir að fá haustverð fyrir.
Yfirnefnd var skipuð af Magnúsi
Sigurðssyni af hálfu framleiðenda,
Sveini Snorrasyni af hálfu neytenda
og oddamaður var Jóhannes L. L.
Helgason, en hann var skipaður af
Hæstarétti.
Sexmannanefnd fundaði síðan í
gær um hverjar verðhækkanir ættu
að verða á búvörum frá og með 1.
desember. ABS
Landlæknisembættið:
Verjumst eyðni,
notum smokkinn
- upplýsingabæklingi um eyðni dreift til ungmenna
landsins. Mistök áttu sér stað við dreifingu og 15
þús. eintök innkölluð
Landlæknisembættið hefur látið
útbúa upplýsingabækling um eyðni
sem dreift verður til allra lands-
manna á aldrinum 15 til 24 ára. Alls
verður því dreift 42.598 eintökum til
jafnmargra einstaklinga. Þegar hef-
ur verið dreift 25 þúsund eintökum
og var ætlunin að setja í póst á
mánudaginn það sem eftir var.
Hins vegar áttu sér stað mistök
hjá Skýrsluvélum ríkisins við út-
keyrslu nafna þeirra sem senda átti
bæklinginn og var aldurshópurinn
frá 12 ára til tvítugs valinn í stað
ungmenna á aldrinum 15 - 20 ára.
Uppgötvaðist þetta í gær og voru þá
þegar 15 þúsund eintök innkölluð,
þar sem ekki mun hafa þótt við hæfi
að senda unglingum á þrettánda ári
bæklinginn.
í bæklingnum er á skilmerkilegan
hátt gerð grein fyrir sjúkdómnum,
uppruna hans og útbreiðslu, hvernig
smit berst og hverjir geta smitast.
Síðast en ekki síst er leiðbeint um
hvernig má verjast því að smitast af
sjúkdómnum og er þar eindregið
mælt með notkun verja fyrir karl-
menn eða smokka öðru nafni. Fylgja
leiðbeiningar um notkun smokka og
hvatt til að þeir verði ávallt hafðir
við hendina eigi að stofna til bólfara
með ókunnugum.
Mikill akkur er í þessum bæklingi
og þá fyrir fólk á öllum aldri, þar
sem enn skortir því miður á upplýs-
ingu almennings í þessu alvarlega
máli og hefur brunnið við að fordóm-
ar og hræðsla ráði ferðinni þegar"
eyðni berst í tal. Ætti því bæklingur-
inn að vera þörf lesning landsmönn-
um á öllum aldri. - phh
Bjarni Guðmundsson aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra sagði
að „heilt fótboltalið manna“ hjá
Framleiðsluráði kepptist nú við að
reikna út magn fullvirðisréttarkjöts
hjá einstökum afurðastöðvum og
vonast væri til að þeim útreikningum
lyki mjög fljótlega. Þessir útreikn-
ingar væru nú að fara fram í fyrsta
sinn og sláturskýrslur hefðu borist í
seinna lagi svo það hefði tafið fyrir
útreikningum.
Að auki þarf að taka frá þann
fullvirðisrétt sem Framleiðnisjóður
hefur keypt af bændum og fara þeir
útreikningar fram jafnhliða útreikn-
ingum vegna afurðalánanna.
ABS
Davíð Oddsson borgarstjóri veitti trénu viðtöku og þakkaði jafnframt fyrir, fyrir hönd borgarinnar.
Kveikt á
jólasveinar komnir í auglýsingamennsku
Ljósin á jólatrénu á Austurvelli
voru kveikt nú á sunnudaginn að
viðstöddum stórum hópi borgarbúa.
Er þetta í 36. sinn sem Osló-borg
gefur Reykjavíkurborg þennan jóla-
glaðning og tók norski sendiherrann,
Niels L. Dahl sérstaklega fram, um
leið og hann afhenti gjöfina form-
lega, að hann hefði pappíra upp á að
með trénu væri hvorki flutt inn lús
né önnur óværa. Áður lék Lúðra-
sveit Reykjavíkur jólalög og Dóm-
kirkjukórinn söng. Davíð Oddsson,
borgarstjóri þakkaði fyrir gjöfina
fyrir hönd Reykjavíkur.
Síðan tók við jólasveinaskemmt-
un sem var með hefðbundnu sniði,
utan þess að klúðurslegar tilraunir
voru gerðar til auglýsingamennsku
fyrir ákveðin fyrirtæki og þótti mörg-
umsemþaðværi vartviðhæfi. -phh
Það var hins vegar ekki staðið við
ákvæði búvörulaganna í þessu efni
og bændur fengu því ekki greitt fyrir
kjötið.
Þess er skemmst að minnast að
ingar frá afurðastöðvunum um hvar
fullvirðisréttarkjötið er. Við svöruð-
um því strax í síðustu viku að við
værum tilbúnir að hækka lánin upp
í 70,2%. Það voru allir viðskipta-
bankarnir tilbúnir fyrir helgi að af-
greiða lánin en það stendur á því að
vita hvar það kjöt er sem lána á út
á,“ sagði Stefán Pálsson bankastjóri
Búnaðarbankans.
Sauðfjárbændur áttu lögum sam-
kvæmt að fá haustgrundvallarverð
kjöts greitt að fullu í gær fyrir þau
11.800 tonn sem ríkið hefur lofað
bændum að greiða fullt verð fyrir.
kúabændur fengu ekki heldur greitt
10. nóvember fyrir mjólkurinnlegg
til mjólkurstöðva fyrir nóvember-
mánuð eins og lög kveða á um.
„Við bíðum eftir því að fá upplýs-
Lufthansa hefur
áætlanaflug í maí
- loftferðasamningar í gildi við ellefu ríki
Þýska flugfélagið Lufthansa hef- þessari samkeppni ótrauðir og von-
ur áætlanaflug til íslands næsta
vor, nánar tiltekið þann 31. maí.
Mun félagið halda uppi ferðum
hingað til lands yfir sumarmánuð-
ina með Boeing 737 vél sem tekur
um 120 farþega, fram til 6. sept-
ember. Flogið verður einu sinni í
viku á leiðinni Munchen - Dussel-
dorf- Keflavík. Áætlun hefurverið
birt og bókanir eru þegar hafnar.
Sæmundur Guðvinsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða sagði í samtali
við Tímann, að þeir muni mæta
uðu bara að Lufthansa yrði duglegt
að selja Þjóðverjum íslandsferðir
og ykju þar með ferðamanna-
strauminn.
Flugleiðir halda uppi áætlana-
flugi til Frankfurt yfir sumarmán-
uðina og flugu áður til Dusseldorf.
Arnarflug tók síðan við þeirri
flugleið.
Samkvæmt upplýsingum Birgis
Guðjónssonar í samgönguráðu-
neytinu hefur verið í gildi í mörg
ár gagnkvæmur loftferðasamning-
ur við Vestur-Þýskaland og hefðu
vestur-þýsk yfirvöld tilnefnt Luft-
hansa-flugfélagið til að sjá um
þessar ferðir. Það hefur hins vegar
ekki nýtt sér þetta leyfi fyrr en nú.
Alls munu vera í gildi loftferða-
samningar milli íslands og ellefu
annarra ríkja, þeirra á meðal Tai-
lands og geta tilnefnd flugfélög frá
öllum þessum löndum hafið hingað
flug með stuttum fyrirvara, hafi
þau til þess áhuga. -phh
Bændur fengu ekki
greitt fyrir kjötið
-viðskiptabankarnirafgreiðaekki afurðalán fyrren upplýsingar um kjötmagn berast
frá afurðastöðvunum.