Tíminn - 16.12.1986, Síða 3
Þriðjudagur 16. desember 1986
Tíminn 3
Ólafur Þ. Þórðarson.
Pétur Bjamason.
Prófkjör Framsóknar á Vestfjörðum:
Ólafur Þ. Þórðarson
hlaut fyrsta sætið
Pétur Bjarnason varð annar
Ólafur í>. Þórðarson varð í fyrsta
sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins
á Vestfjörðum. Pétur Bjarnason
fræðslustjóri varð í öðru sæti. Alls
tóku 1188 þátt í prófkjörinu, sem
fram fór um fyrri helgi, en atkvæði
voru ekki talin fyrr en nú á sunnu-
dag.
Ólafur Þ. Þórðarson fékk 334
atkvæði í 1 .sæti, en 642 atkvæði alls.
Á hæla Ólafs kom Pétur Bjarna-
son með 332 atkvæði í 1. sæti, en 534
atkvæði í fyrsta og annað. Pétur
hlaut alls 778 atkvæði.
Jón Gústi Jónsson lenti í 3. sæti
með 497 atkvæði í 1.-3. sæti og 552
atkvæði alls.
í 4.sæti lenti Þórunn Guðmunds-
dóttir með 587 atkvæði í 1.-4. sæti.
Röð annarra frambjóðenda varð
þannig: Magdalena Sigurðardóttir,
Gunnlaugur Finnsson, Guðmundur
Hagalínson, Egill H. Gíslason, Sig-
urður Viggósson, Sveinn Bernódus-
son og Heiðar Guðbrandsson.
Kosningin var ekki bindandi, en
kjördæmisráð mun ganga frá endan-
legum framboðslista um eða uppúr
miðjum janúarmánuði.
-HM
Þórarinn Ó. Þórarinsson, Eggert Guðmundsson og Bríet Héðinsdóttir, en
þau ieika aðalhlutverkin í Skyttunum.
Búið að taka
“Skytturnar“
Stjórn Landverndar:
Álagið
orðið mikið
á ferða-
mannastöðum
Stjórn Landverndar hefur lýst
áhyggjum sínum af niðurskurði á
lögbundnu fjárframlagi til Ferða-
málaráðs í fjárlagafrumvarpinu
1987, einkum í ljósi þess að talið er
að ferðamannastraumur til lands-
ins muni aukast mjög á komandi
ári. Stjórnin telur að nú þegar sé
álag orðið of mikið á fjölsóttum
ferðamannastöðum, svo liggur við
örtröð t.d. í Dimmuborgum og við
Gullfoss.
Stjórn Landverndar telur áríð-
andi að brugðist verði skjótt við
um nauðsynlegar úrbætur á ferða-
mannastöðum m.a. með gerð
göngustíga, bættri hreinlætisað-
stöðu, auknu eftirliti á ferða-
mannastöðum, gerð tjaldsvæða,
aukinni fræðslu um umhverfismál
og endurbótum á fjallvegum til að
koma í veg fyrir landspjöll.
Stjórn Landverndar skorar á
fjárveitingarvaldið að sjá þegar til
þess að nauðsynlegu fjármagni
verði veitt nú þegar til þessara
brýnu verkefna.
Tökum á kvikmyndinni „Skytt-
urnar“ er nú lokið. Tökur fóru fram
í Reykjavík, í Hvalfirði, og úti á
hvalamiðunum.
„Skytturnar" fjallar um tvo hval-
veiðisjómenn sem eru að koma í
land að lokinni vertíð. Þetta eru
gamalreyndir sjóarar sem hafa varla
átt sér annað athvarf síðustu áratug-
ina en mismunandi lúkara og vistar-
verur háseta í veiðiflota lands-
manna. Nú hafa þeir hins vegar hug
á því að kynnast lifnaðarháttum
landkrabba, en þar reynast þeirsem
þorskar á þurru landi.
Handrit myndarinnar er eftir Ein-
ar Kárason og Friðrik Þór Friðriks-
son, sem einnig er leikstjóri.
1
Nýjar bœkui íiá Skuggsjá
VJ
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjarœtt III
Þetta er þriðja bindi nýriar útgáíu aí
Víkingslœkjarœtt, niðjatali Guðríðar
Eyjólísdóttur og Bjarna Halldórssonar
hreppstjóra á Víkingslœk. í þessu
bindi eru niðjar Jóns yngra Bjarna-
sonar. Alls verða bindin íimm í
þessari útgáíu aí hinu mikla œtt-
írœðiriti Péturs Zophoníassonar.
Myndir aí þeim, sem í bókinni em
neíndir, eru íjölmargar eins og í íyrri
bindum ritsins, og mun fleiri heldur
en vom í fyrstu útgáíunni.
Árni Óla
Reykjavík
fyrri tíma III
Hér em tvaer síðustu Reykjavíkur-
bœkur Árna Óla, Sagt írá Reykjavík
og Svipur Reykjavíkur, gefnar
saman út í einu bindi. Þetta er þriðja
og síðasta bindið aí ritinu Reykjavík
íyrri tíma. í þessum bókum er geysi-
mikill fróðleikur um persónur, sem
mótuðu Reykjavík og settu svip á
bœinn. Nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höfuðborg landsins
og forvemnum er hana byggðu. Frá-
sögn Árna er skemmtileg og lifandi, .
og margar myndir prýða bœkurnar.
OIL
«0MM
VDÐ
MENN
Helga Halldórsdóttir
írá Dagverdará
Öll erum vid menn
Helga Halldórsdóttir segir hér írá íólki,
sem hún kynntist sjálí á Snœfellsnesi,
og einnig íólki, sem íoreldrar hennar
og aðrir sögðu henni írá. Þetta em írá-
sagnir af sérstœðum og eftirminni-
legum persónum, svo sem Magnúsi
putta, Leimlœkjar-Fúsa, Þórði sterka
o.fl. Kaíli er einnig um Jóhannes
Sveinsson Kjarval listmálara og sagt
er frá skáldunum Bólu-Hjálmari,
Sigurði Breiðfjörð, Jónasi Hallgríms-
syni og Símoni Dalaskáldi. Mikið er af |
vísum í bókinni, sem margar haía
hvergi birst áður.
s.
-
ZOÞHONtASSON
1ÆKJARÆIT
• ■ . I • 0<i SJAHMAMÁLtOOftSSÍpÍflH'.''
. J HHCP'r-^rjóha h vt toJSWíék . '
Pétur Eggerz
Ævisaga Davíös
Davíð vinnur á skriístoíu snjalls íjár-
málamanns í Washington. Hann.er í
sííelldri spennu og í kringum hann er
sífelld spenna. Vinur hans segir við
hann; „Davíð þú veist of mikið. Þú
verður að íara frá Ameríku eins fljótt
og auðið er. Þú ert orðinn eins og
peningaskápur íullur aí upplýsing-
um. Þeir vita að þú segir ekki írá. En
þeir óttast að einhverjum slóttugum
bragðareí takist að leika á þig, opna
peningaskápinn og' hagnýta sér
upplýsingamar."
SKUGGSJÁ - BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.
huhhHhhí