Tíminn - 16.12.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn
Garðabær
Vegtenging
Hnoðraholts
í þessum dálki var í haust fjallaö
um vandræöi bæjarstjórnar Garða-
bæjar vegna tengingar Hnoöraholts
viö aöra hluta Garðabæjar, þar sem
nýtengd Reykjanesbraut sker hverf-
iö frá öörum hlutum bæjarins. Hent-
ug tenging hefur ekki verið gerö og
barst bæjarstjórninni fyrir nokkru
svar viö beiðni um að núverandi
tenging veröi bætt og standi í 2-4 ár.
Erindinu var hafnað.
Bæjarráö samþykkti aö kynna
málið fulltrúum íbúasamtaka
Hnoöraholts og hefur það verið gert.
Staðan í tengingarmálum er því enn
óljós.
Heilsugæsla
Garðabæjar
í bæjarráöi Garöabæjar hefur ver-
iö lagt fram erindi frá læknum heilsu-
gæslunnar Garðabæ. Annað varöar
trúnaöarlækningar við dagheimilin í
Garðabæ og er þar vakin athygli á
ákvæöi heilbrigöisreglugerðar, er
mælir fyrir um, að skylt sé aö ráöa
trúnaöarlækna aö barnaheimilum. I
erindinu kemur fram, aö frá opnun
Heilsugæslunnar í Garðabæ hafi
verið mikil samskipti milli Heilsu-
gæslu og starfsfólks leikskólanna.
Bæjarstjóra var faliö aö ræöa viö
lækna heilsugæslu Garðabæjar og
gera drög aö samningi um, aö þeir
taki aö sér aö vera trúnaðarlæknar
bæjarins. Samningur skal lagöur
fram í bæjarráöi til staðfestingar.
JL. -JHL. tískumyndum frá
sýningunum í París, þar sem sýnd
voru fyrstu vorfötin frá tískuhús-
um, svo sem Dior, Chanel og Y.
Saint-Laurent, má sjá að þar eru
mörg pils, sem eru fyrir ofan hné á
sýningardömunum, þó ekki séu
komin almennt „mini-pils“ eins og
voru í móð fyrir 12-15 árum.
Annars má segja að sjá megi
allar mögulegar síddir á pilsum.
Ökklasídd er mjög vinsæl, og þá
eru pilsin oftast höfð víð. Síðan
eru sumir tískuhönnuðir, sem
halda sig við vinsælustu síddina
sem klæðilegust er fyrir sem flestar
konur.
Við sjáum hér nokkur sýnishorn
frá tískusýningum, þar sem lögð
var áhersla á stuttu pilsin.
Félagshesthús
Andvara
j Hestamannafélagið Andvari í
Garðabæ hefur fengiö byggingarétt
á 5 lóðum, fjórum undir hesthús og
einni undir félagsheimili. Bæjarráð
hefur samþykkt aö afhenda tvær
lóðir strax, en tvær síðar. Hvaö varö
ar lóö undir félagsheimili, skal hafa
samráð viö bæjaryfirvöld um tíma-
setningu á byrjunarframkvæmdum.
Umferðaröryggi við
Hofsstaðaskóla
Foreldraráö Hofsstaðaskóla hefur
fariö fram á við bæjarráð aö settar
veröi upp hraðahindranir á Kirkju-
lundi. Bæjarráö hefur vísaö erindinu
til athugunar bæjarverkfræöings og
húsnefndar safnaöarheimilisins.
Þá hefur bæjarráö faliö bæjar-
verkfræðingi að kynna foreldraráöi
hugmynd um uppsetningu á grind-
verki meðfram götu í báðar áttir frá
útgangi skólans og málun gangb-
rautar á götu við göngustíg er liggur
viö Kjarrmóa.
Byggingarnefnd
íþróttahúss
Sem kunnugt er, þá er brýn nauð-
syn á stærra íþróttahúsi en nú er í
Garðabæ. Því hefur verið skipuö
sérstök byggingarnefnd íþrótt-
ahúss.
Fundargerð byggingarnefndar
íþróttahúss var gerð aö umtalsefni á
síðasta bæjarstjórnarfundi. Þar
geröi Einar Geir Þorsteinsson at-
hugasemd viö fjármögnun á fyrir-
hugaöri byggingu. Benti hann á aö
nauðsynlegt væri aö nefndin gerði
sér grein fyrir hver væri eftirspurn
félaga og skóla eftir tímum í húsinu.
Hann benti á að til greina kæmi aö
kaupa hús meö kaupleigusamningi.
Einar taldi þaö skoðun sína, aö ekki
væri hægt aö treysta á framlag frá
ríkinu til byggingar hússins og aö
honum sýndist framkomnar tillögur
nefndarinnar fyrst og fremst vanga-
veltur.
Benedikt Sveinsson gerði þá
grein fyrir störfum byggingarnefndar
íþróttahúss og sagöi frá tillögum um
byggingu nýs húss viö gafl gamla
íþróttahússins, en taldi rétt aö kalla
þaö hugmynd frekar en tillö’gur.
-HM
Y. SAINT-LAURI
Franska vortískan 1987
Stuttur kvöldkjóll úr svörtu
leðri með einni pífuermi úr
þunnu efni. Kjóllinn er frá
Chanel
Dragt frá Dior. Breiðar axlir,
síður jakki og pils sem nær
ekki niður á hné. Dragtin er
skærgræn með svörtu belti og
hnöppum.
Hlyralaus stuttur kvöldkjoll,
svartur og með rauðu smapilsi,
sem er eiginlega ekki annað en
tvöföld stór pífa. Tískuhús Y.
Saint-Laurent á heiðurinn af
þessum kjol
Þriðjudagur 16. desember 1986
SVEITARSTJÓRNARMÁL
SPEGILL