Tíminn - 16.12.1986, Síða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 16. desember 1986
Reagan forseti hugleiðir nú að svara spurningum þingsins vegna íransmálsins. Fari svo verður um einn dramatískasta atburð síðari ára að ræða þar vestra. Hér
má sjá forsetann á fundi með helstu samstarfsmönnum sínum
Bandaríkin:
Vitnar Reagan forseti
frammi fyrir þinginu?
Washington-Reuter
IWASHINGTON - Svo
gæti farið að Donald Regan
starfsmannastjóri Hvíta húss-
ins yrði kallaður fyrir nefnd þá
innan öldungardeildar Banda-
ríkjaþings sem rannsakar
vopnasöluna til írans og mál
henni tengd. Þetta var haft eftir
embættismönnum innan
þingsins sem sögðu þetta geta
verið prófraun á þao hvort sú
fulla samvinna, sem Reagan
forseti hefur lofað rannsókn-
arnefndunum í sambandi við
þetta mál, stæðist í raun.
GENF - Fulltrúar Saudi
Arabíu komu fram með mála-.
miðlunartillögu á fundi OPEC
samtakanna í Genf sem miða
að því að haekka olíuverð.
Ósamkomulag fulltrúa írans og
(raks dró verulega úr vonum í
gær um að samkomulag
tækist.
BANGKOK - Truong
Chinh leiðtogi víetnamska
kommúnistaflokksins tilkynnti
um breytingar á stefnu flokks-
ins þar sem þörfin fyrir nokkurn
einkarekstur og erlenda fjár-
festingu var viðurkennd. Þetta
kom fram í ræðu Chinhs við
upphaf flokksþings víet-
namskra kommúnista í Hanoi
BAGHDAD — Að sögn tals-
manns Frelsishreyfingar Pal-
estínumanna(PLO) féllst
Yasser Arafat leiðtogi samtak-
anna á vopnahlé við búðir
Palestínumanna í Líbanon og
á það að ganga í gildi nú
þegar. Palestínumenn hafa
barist við múslima úr hópi shita
í kringum flóttamannabúðirnar
síðustu ellefu vikurnar.
NÝJA DELHI - Útgöngu-
bann var komið á í Amritsar,
heilögustu borg síkha i Punj-
abhéraði á Indlandi, eftir óeirðir
þar tvær nætur i röð. Óeirðirn-
ar brutust út eftir að öfgasinn-
aðir síkhar höfðu myrt stjórn-
málamann úr hópi hindúa.
BERN — Stjórnvöld í Sviss
hafa samþykkt að loka banka-
reikningi i Genf sem talið er að
tengist hinni umdeildu vopna-
sölu Bandaríkjastjórnar til
írans.
Reagan Bandaríkjaforseti hug-
leiðir nú að koma fram fyrir þing-
nefndir þær sem rannsaka vopna-
söluna til írans og mál tengd henni.
Þetta var haft eftir öldungadeildar-
þingmanninum Paul Laxalt, nánum
vini forsetans.
Laxalt sagði í sjónvarpsviðtali að
hann hefði lagt það til við Reagan að
hann íhugaði hvort ekki væri rétt
fyrir hann að svara spurningum þing-
nefndanna.
Margrét Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands sendi Mikhail Gor-
batsjov Sovétleiðtoga bréf í gær þar
sem hún skýrði frá nýjustu hug-
myndum sínum í sambandi við víg-
búnaðartakmörkun. Þetta var haft
eftir talsmanni breska sendiráðsins í
Moskvu í gær.
Sendiherrann Sir Bryan Cartledge
afhenti Gorbatsjov bréf þetta per-
sónulega á fundi þeirra í Kreml.
Bréfið er svar við skilaboðum,
sem Gorbatsjov sendi breska for-
sætisráðherranum þann 13. nóvemb-
er, og þar eru settar fram hugmyndir
sem Thatcher ræddi við Rónald
Reagan á fundi þeirra á sveitasetri
Bandaríkjaforseta, Camp David,
fyrir skömmu.
Thatcher og Reagan voru sam-
„Við töluðum um þetta“, sagði
þingmaðurinn frá Nevada og bætti
við að forsetinn myndi örugglega
huga alvarlega að þessari uppá-
stungu.
Möguleikinn á þessari óvenjulegu
yfirheyrslu yfir forsetanum jukust
um helgina eftir að hneykslismálið
tók á sig enn umfangsmeira yfir-
bragð. Þá komu fram fréttir um að
eitthvað af gróðanum frá vopnasöl-
unni til írans hefði ekki einungis
farið í að styrkja Contra skæruliðana
mála um það í viðræðum sínum í
Camp David að takmarka þyrfti
fjölda meðaldrægra kjarnorkuflauga
og minnka fjölda árásarflauga um
50% á næstu fimm árum.
Leiðtogarnir tveir hvöttu hinsveg-
ar einnig til að haldið yrði áfram
rannsóknum á geimvopnum eða á
„stjörnustríði" Reagans forseta eins
og þessi áætlun er oft kölluð. Geim-
vopnaáætlunin var einmitt það mál
sem viðræður Gorbatsjovs og Reag-
ans hér í Reykjavík í október strönd-
uðu á.
Talsmaður breska sendiráðsins
sagði einnig að í bréfi Thatchers væri
minnst á heimsókn hennar til Sovétr-
íkjanna sem fyrirhugað er að hún
fari. Ekkert hefur þó verið ákveðið
um dagsetningar í sambandi við
þessa heimsókn.
í Nicaragua, heldur hefði einnig
getað farið í að fjármagna kosninga-
baráttu gegn þingmönnum sem
hefðu verið á móti því að styrkja
skæruliðana sem berjast gegn hinni
vinstrisinnuðu stjórn í Nicaragua.
Eini forsetinn sem komið hefur
fram fyrir þingið til að svara spurn-
ingum er Gerald Ford sem árið 1975
féllst á að útskýra þá ákvörðun sína
að veita Richard Nixon forseta sak-
aruppgjöf vegna Watergatemálsins.
Forsetinn og aðrir ráðamenn geta
Ný átök milli ættflokka í borginni
Karachi í Pakistan brutust úr í gær
og létust fjórtán manns, þar af voru
fimm brenndir til bana. Átökin hóf-
ust um helgina og hafa að minnsta
kosti 98 manns látið lífið.
Lögreglan skýrði frá því í gær að
götubardagar hefðu brotist út að
nýju milli pashtúna og mohajira í að
minnsta kosti tveimur hverfum í
Karachi, stærstu borg Pakistan.
Hersveitir voru kallaðar út til að
koma á reglu á nýjan leik og öryggis-
sveitir skutu viðvörunarskotum upp
í loftið og dreifðu táragasi á lýðinn.
Pashtúnar frá norð-vestur Pakist-
an og Afganistan hófu að því er
virðist skipulagðar ofbeldisaðgerðir
gegn mohajirum um helgina. Skotið
var á mohajira, sem eru um fjórð-
ungur af íbúum borgarinnar, og þeir
stungnir og kveikt í húsum þeirra og
verslunum. Að minnsta kosti fimm
þúsund hermenn hafa verið kallaðir
út til að gæta þess að útgöngubannið,
sem komið hefur verið á í mörgum
hverfum borgarinnar, verði virt.
Hermönnum hefur verið skipað
að skjóta þá á staðnum sem virða
útgöngubannið að vettugi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn að
ættflokkadeilur milli þessara hópa
brjótast út og raunar er hægt að
rekja sögu þeirra aftur um tuttugu
ár. Átökin nú um helgina og í gær
eru þó þau verstu til þessa.
Mohajirar telja að pashtúnar, sem
ráða yfir öllum flutningum í Karachi,
og hinir betur menntuðu punjabar
beiti þá misrétti og geri hið opinbera
lítið til að laga það.
samkvæmt lögum neitað að bera
vitni fyrir þingnefndum og hafa þeir
John Poindexter fyrrum þjóðarör-
yggisráðgjafi og Oliver North að-
stoðarmaður hans hingað til notfært
sér þennan rétt sinn í tengslum við
íransmálið.
Laxalt sagði í sjónvarpsviðtalinu
að ef Reagan forseti myndi ákveða
að koma fram fyrir þingið myndi
verða um einn dramatískasta atburð
síðari ára í Bandaríkjunum að ræða.
Júgóslavía/Rúmenía:
Lítils-
virðing
á landa-
mærum
Belgrad - Reuter
Opinbert dagblað í Júgóslavíu
sakaði rúmenska lögreglu í gær
um að fara illa með og lítilsvirða
júgóslavneska borgara sem færu
um landamæri ríkjanna tveggja.
Blaðið Borba sagði þing lands-
ins meira að segja hafa þurft að
ræða meðferð rúmenskra landa-
mæravarða á júgóslavneskum
borgurum.
Áður hafði vikublaðið Nin
skrifað grein um þetta mál og var
því þar haldið fram að oft á tíðum
væri júgóslavneskum borgurum
haldið í nokkrar klukkustundir
við landamærin án nokkurrar á-
stæðu og þyrftu þá oftast að
greiða háar mútur til að losna.
Blaðið sagði einnig að landa-
mæraverðirnir rúmensku við-
hefðu niðurlægjandi líkamsleit
þegar konur ættu í hlut.
„Upplýsingum um illa meðferð
á borgurum okkar við landamæri
Júgóslavíu og Rúmeníu var kom-
ið til þingsins í síðustu viku,“
sagði í dagblaðinu Borba sem
bætti við: „En spurningin er
þessi: Af hverju var ekki vakið
máls á þessu fyrr?“
Pakistan:
Blóðugar
ættflokkaerjur
Rarachi - Reuter
Gorbatsjov og Thatcher: Bréfasambandi viðhaldið
Frá Thatcher til Gorbatsjovs:
Vígbúnaðarbréf
Moskva - Reuter