Tíminn - 16.12.1986, Side 14

Tíminn - 16.12.1986, Side 14
Framsóknarflokkurinn Sigurður Kristinsson, 1933-1934, Jónas Jónsson frá Hriflu 1934-1944, Hermann Jónasson, 1944-1962, Formenn Framsóknar- flokksins hafa verið eftirtaldir: Ólafur Briem, 1916-1920, Sveinn Ólafsson í Firði, 1920-1922, Þorleifur Jónsson frá Hólum. 1922-1928, Tryggvi Þórhallsson, 1928-1932, Ásgeir Ásgeirsson 1932-1933, Eysteinn Jónsson, 1962-1968, Ólafur Jóhannesson, 1968-1979 og Steingrímur Hermannsson síðan 1979. Formenn þingflokks Framsóknarflokksins hafa verið eftirtaldir: Ólafur Briem, 1916-1920, Sveinn Ólafsson í Firði, 1920-1922, Þorleifur Jónsson frá Hólum, 1922-1928, Tryggvi Þórhallsson, 1928-1933, Þorleifur Jónsson, 1933-1934, Eysteinn Jónsson, 1934, Jónas Jónsson, 1934-1943, Eysteinn Jónsson, 1943-1969, Ólafur Jóhannesson, 1969-1971, Þórarinn Þórarinsson, 1971-1978, Halldór E. Sigurðsson, 1978- 1979, Ingvar Gíslason, 1979- 1980 og Páll Pétursson, síðan 1980. Ljóð það sem hér birtist samdi höfundur í tilefni af sjötíu ára afmæli Framsóknarflokksins og var flutt á hátíðarsamkomu í Háskólabíói 6. des. sl. af Halldóri Kristjánssyni frá Kirkjubóli. Þeir reistu merkið í Reykjavík til ráðgjafar íslenskri þjóð, átta þingmenn utan aflandi og eldhuginn Jónas frá Hriflu sem bak við þá bóndamenn stóð. Þeir stofnuðu traustan Framsóknarflokk með formerki djörf og snjöll. En bakhjarlar þeirra til sjávar og sveita var samvinnustefna fólksins og ungmennafélögin öll. í ellefu liðum var ávarp gert sem alhliða stefnuskrá um atvinnublómgun og alþýðumenntun, að ógleymdri samhjálp og frelsi sem fólkið átti að fá. Sú byggðastefna var boðuð þar sem blómleg í verki stóð með menntaskóla á Akureyri og alþýðuhéraðsskóla sem lyftu lesandi þjóð. Þegar hin fyrsta framsóknarstjórn í forvígi landsins gekk þá opnuðust vegir með undrahraða með öðrum samgöngubótum sem fólkið í byggðunum fékk. Þá komu dagar og þá komu ráð sem þjóðinni gott var að fá. Og umskiptin voru aldrei meiri við íslensk stjórnarskipti né hollari heldur en þá. Draumarnir rœttust í daglegri önn, þá döfnuðu sveitir og ver. Og nú þegar litið er langt til baka er Ijóminn um Jónas og Tryggva sá bjarmi sem bjartastur er. Oft var í landi stríðið strangt er stefnurnar tókust á en góð reyndust vopnin til varnar og sóknar. Þau vopn heita Tíminn og Dagur sem notum við nú eins og þá. Heimskreppan illrœmda gekk í garð og grimmd hennar lengi stóð. Þá héldu þeir vökunni, Hermann og Eysteinn, með höftum og gjaldeyrismiðlun þeir björguðu bágstaddri þjóð. Eins þegar rofaði aftur til var afstaða þeirra glögg, þá leiddu þeir flokkinn þá félagsgötu sem frjálsum mönnum hentar með víðsýni, ráðdeild og rögg. Um Ólaf og Steingrím með sanni er sagt að sömu þeir fetuðu braut. í hafréttarmálum stóð Ólafur ætíð með íslenskri ró og festu uns Bretastjórn lögutn hans laut. Steingrímur merkinu fylgir fast með föður síns þrek og dug. Honum er runnið það kapp í kinnar að kveða verðbólgudrauginn niður á neðsta tug. í sjötugum flokki við sœkjum fram til sigurs á góðri leið og rækjum það hlutverk miðjumanna að milda samtímans öfgar svo fólki sé gangan greið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.