Tíminn - 16.12.1986, Qupperneq 17

Tíminn - 16.12.1986, Qupperneq 17
Tíminn 17 llllllllllllllllllllllll IPRÓTTIR '...................................................... ............................... ...................... .......................... Þriðjudagur 16. desember 1986 Tíminn flaug frá íslensku strákunum - 21 árs liðið gerði jafntefli gegn Bandaríkjamönnum Það eru orð að sönnu að tíminn hafi flogið frá strákunum í 21 árs landsliði íslands í handknattleik í gærkvöld því þeir áttu aukakast þegar tvær sekúndur voru eftir og staðan var jöfn 19-19. Þeir gerðu vegg, boltinn var sendur á Héðin Gilsson og í netiö fór hann en markið var ekki dæmt gilt, tíminn útrunninn sögðu tímaverðirnir og var það mjög umdeild ákvörðun. íslenska liðið hafði yfir í leikhléi, 10-8 og var fjórum mörkum yfir unt iniðjan síðari hálfleik. Mörkin: Árni Friðleifsson 4, Halfdán Þórðarson 3, Bjarki Sigurðsson, Jón Þórír Jónsson, Konráö Olavsson, Óskar Helgason og Pétur Petersen 2 hver, Héöinn Gilsson og Sigurjón Sigurösson 1 hvor. Tímamynd Sverrir. Karl Þráinsson skoraði fimm mörk gegn Finnum og hér vindur hann sig inn úr horninu. Alþjóðlega handknattleiksmótið: Tap í fyrsta leik -fyrstatap íslendingagegn Finnum í handknattleik íslenska A-landsliðið í handknatt- leik byrjaði ekki vel í fyrsta leiknum á handknattleiksmótinu sem hófst í gærkvöld, leikið var gegn Finnum og leikurinn tapaðist 29-31. Leikurinn fór gífurlega hratt af stað og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan orðin 9-12 Finnum í hag. Staðan í leikhléi var síðan 16-18 og hefðu það sjálfsagt þótt líklegri lokatölur. íslendingar skoruðu fyrsta mark leiksins en Finnar jöfnuðu um hæl og höfðu yfirhöndina eftir það. Rúmum fimni mínútum fyrir leiks- lok var munurinn fimm mörk en íslenska liðið smá saxaði á og minnk- aði muninn í eitt ntark, fyrst 28-29 og síðan 29-30 en allt kom fyrir ekki og Finnar unnu, 29-31. Sigurður Gunnarsson fékk að sjá rauða spjaldið tæpum fimm mínútum fyrir leikhlé er hann hékk í einum Finnan- um í hraðaupphlaupi. Veikti það að vonum sóknina nokkuð. Geir Sveinsson varð síðan að yfirgefa leikvöllinn um miðjan síðari hálfleik eftir að hann hafði verið rekinn þrisvar útaf í tvær mínútur. Mark- varslan var mjög slök í fyrri hálfleik, þeir Guðmundur Hrafnkelsson og Einar Þorvarðarson vörðu samtals 4 skot þá en Einar hresstist talsvert í þeim síðari og varði þá ein 12 skot, þar af þrjú úr hraðaupphlaupum. Sókn finnska liðsins byggist að verulegu leyti upp á tveimur leik- mönnum, þeim Jan Roenneberg og Mikael Kaellmann og til samans skoruðu þeir 20 mörk, Roenneberg raunar 13. Þeir voru teknir úr um- ferð síðustu 15 mínúturnar og gekk það vel til að byrja með en dugði þó ekki til. Um frammistöðu íslenska liðsins verður fátt annað sagt en það að hún var slök. Hvað eftir annað fundu Finnarnir leið í gegnurn vörnina, oft þurfti ekki nema einfalda gabbhreyf- ingu og-bingó-mark. Markvarslan eins og fyrr var nefnt en einna helst að sóknin væri í lagi. Á þeim bæ var Þorgils Óttar Mathiesen fyrirliði bestur en Sigurður Gunnarsson einnig ágætur meðan hans naut við. Mörkin skoruðu: Steinar Birgjs- son 7(2), Þorgils Óttar Mathiesen 6, Karl Þráinsson 5, Guðmundur Guðmundsson 4, Sigurður Gunnars- son 4(1), Júlíus Jónasson 2, Aðal- steinn Jónsson 1. Eðvarð þriðji - Ragnheiöur varö sjöunda Eðvarð Þór Eðvarðsson varð þriðji í 200 metra baksundi á Evrópumcistaramótinu í Malmö um helgina. Hann synti á 2:01,61 mín. sein cr íslandsmet. Sigurvcg- ari varð heimsmethafinn Igor Pol- ianskiy frá Sovétríkjunum á 1:57,66 og Frank Hoffmeister Vestur Þýskalandi varð annar á 1:58,59 mín. Ragnheiður Runólfsdóttir varð 7. í 200 vn bringusundi, synti á 2:37,67 mín. sem einniger íslands- met. Nánar vpröur sagt frá mótinu í blaöinu á morgun. Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Sanngjarn sigur ÍBK Aftur 100 hiá UMFN Njarðvíkingar sigruðu KR-inga með 102 stigum gegn 83 í úrvals- deildinni á sunnudag eftir að staðan var 49-45 KR í hag í leikhléi. KR-ingar sprungu á limminu eftir River Plate vannSteaua Suður-Amcríkumeistararnir River Plate frá Argentínu sigruðu Evrópumeistarana Steaua Búka- rest frá Rúmentu á sunnudaginn og urðu þar með heimsmeitarar félagsliða f knattspyrnu. Leikurinn fór 1-0 og það var Antonio Alza- mendi sem skoraði sigurmarkið um miðjan fyrri hálfleik. Leikurinn fór fram í Tokyó. leikhlé en Njarðvíkingar héldu sínu striki. Stig Njarðvíkinga skoruðu: Valur Ingimundarson 35, Jóhannes Krist- björnsson 23, Helgi Rafnsson 17, Teitur Örlygsson 12, ísak Tómasson 6, Kristinn Einarsson 5, Hreiðar Hreiðarsson 4. KR: Guðni Guðna- son 34, Garðar Jóhannsson 18, Þor- steinn Gunnarsson 13, Guðmundur Jóhannsson 10, Ólafur Guðmunds- son 8. Þórsarar lágu ÍR-ingar unnu öruggan sigur á Þór í 1. deild karla í körfuknattleik um helgina, lokatölur 90-67 eftir að staðan í hálfleik var 44-29. í 1. deild kvenna voru tveir leikir, KR vann ÍR 70-48 og Njarðvík vann Grindavík 52-29. Úrvalsdeildarlið Keflvíkinga í körfuknattleik kom í höfuðborgina á sunnudagskvöldið, lék við Vals- menn í íþróttahúsi Seljaskóla og sigraði þá sanngjarnt með 68 stigum gegn 54. Torfi Magnússon átti stór- leik í liði Vals, skoraði 31 stig og fór á kostum, en það dugði skammt því flestir aðrir leikmenn liðsins voru ólíkir sjálfum sér í þessum mikilvæga leik. Keflvíkingar hófu leikinn með látum, skoruðu jafnt og þétt og í vörn sem sókn náðu bræðurnir Gylfi og Hreinn Þorkelssynir flestum frá- köstum. ValsmennogaðallegaTorfi gáfust þó ekki upp, náðu að jafna leikinn 24-24 er langt var liðið á hálfleikinn og leiddu í leikhlé 30-29. í upphafi síðari hálfleiks þurfti Gylfi Þorkelsson að fara út af með fimm villur og fögnuðu Valsmenn því. Sá fögnuður stóð þó stutt. Keflvíkingar með Jón Kr. Gíslason í broddi fylkingar tvíefldust, sigu framúr og stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar í lokin. Jón Kr. Gíslason átti mjög góðan leik í liði Keflvíkinga. Hann skoraði 28 stig, gerði fá mistök og stjórnaði spili sinna manna gallalaust. Sigurð- ur Ingimundarson og Guðjón Skúla- son skoruðu 12 stig hvor, Sigurður lenti þó snemma í villuvandræðum sem höfðu sín áhrif. Gylfi Þorkels- son og Ólafur Gottskálksson skor- uðu 6 stig hvor og Matti Stefánsson var með 4 stig. í heild var leikur Keflvíkinga dulítið gloppóttur en inn á milli sáust leikfléttur og ein- staklingsframtak í hæsta gæðaflokki. Torfi Magnússon var langsamlega langbestur Valsmanna eins og áður ... . - er getið. Einar Ólafsson skoraði 8 stig, Leifur Gústafsson var með 6 stig og þeir Tómas Holton og Björn Zoega skoruðu 4 stig hvor. Sturla Örlygsson skoraði aðeins 1 stig, gerði fjöldamörg mistök og hrein- lega fann sig hvergi í þessari viður- eign. Blak: KA vann Víking KA sigraði Víking3-1 í miðnætur- leik liðanna á Akureyri um helgina en mikil töf varð á að Víkingar kæmust norður. Leikurinn fór 3-1, Víkingar unnu 2. hrinuna 18-16 en hinar fóru 15-13, 15-13 og 15-9. Þá vann IS Fram 3-1 (15-12, 10-15, 15-12, 15-10). í 1. deild kvenna tókst Þrótturum að sigra Breiðablik í lengsta kvenna- leik vetrarins, 112 mín. Lokaniður- stöður 3-2 og hrinurnar 15-9, 12- 15, 15-12, 15-17, 15-5. Víkingar sigruðu hinsvegar KA léttilega 3-0, 15-5, 15-3, 15-8. Hlín valin fimleika- maðurársins1986 Hlín Bjarnadóttir frá Gerplu í Kópavogi hefur verið valin fim- leikamaður ársins 1986. Hún er 15 ára en hefur stundað æfingar frá 6 ára aldri. Hlín varð fyrst unglinga- meistari árið 1980 og hefur hún pinnig tekið bátt í mörgum lands- keppnum. Á Norðurlandameist- aramóti unglinga í Kaupmanna- höfn á þessu ári varð hún í 4. sæti í gólfæfingum og 6. sæti í stökki. Þá er hún unglingameistari 1986. Jón Kr. Gíslason er einbeittur á mynd Sverris enda lék hann mjög vel. Hér er karfan greinilega komin í sigtið og Einar Ólafsson virðist lítið geta að gert. Sovétmenn meistarar Sovéska kvennalandsliðið í hand knattleik sigraði Tékkóslóvakíu mei 30 mörkum gegn 22 í úrslitaleil A-Heimsmeistarakeppni kvenna handknattleik í Hollandi um helg ina. Staðan í leikhléi var 15-12 Norðmenn urðu í 3. sæti, sigruði Austur-Þjóðverja 23-19 eftir að stað an í hálfleik var 14-8. Rúmenar urði fimmtu, Júgóslavar sjöttu, Vestur Þjóðverjar sjöundu og Ungverja áttundu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.