Tíminn - 16.12.1986, Síða 19

Tíminn - 16.12.1986, Síða 19
Þriðjudagur 16. desember 1986 Tíminn 19 MINNING Aðalheiður Eiríksdóttir f. Herrmann frá Ásmundarstöðum Fædd 23. september 1923. Dáin 18. október 1986. Systir okkar Heidi fæddist á sunnudegi þann 23. 9. 1923 í Elm Habertshof Schliichtern. Hjá okkur vilja menn gjarnan trúa því að sunnudagsbarni fylgi gæfa, þ.e. blessun. „Hún var mikil gæðakona, mig langar að krossa yfir kistu hennar," sagði gamall nágranni. Jósef, einn af tengdasonum: „Hún hugsar eingöngu um aðra.“ Hvernig gat hún það, bóndakona og fimm barna móðir sem þurfti að sinna mörgum störfum bæði úti og inni? Hún prýddi heimili þeirra með mörgum fallegum hlutum og blóm- um og gerði það vingjarnlegt og sólríkt. Utanhúss kom hún sér upp stórum og fallegum garði þar sem hún ræktaði margskonar blóm og tré, auk þess ræktaði hún grænmeti og ber. Hún gaf ríflega af öllu og hugsaði alltaf um það, hvernig hún gæti glatt aðra með því sem var hennar yndi. Kærleikur í garð nágrannans var henni í blóð borinn eins til allra dýra og náttúrunnar. Hún hafði áhyggjur af okkar áhyggj- um og gladdist í gleði okkar. Það var auðvelt að gleðja hana með litlu og þakklát var hún fyrir heimsóknir okkar, símtöl eða bréf, en við hefð- um átt að gera meira af því! Við höfum svo margt að þakka henni, höfum við reynt að að endurgjalda nóg? Þegar ástvinur fer svo skyndi- lega frá okkur, spyrjum við hvers- vegna? Hún var eins og móðir allra og gaf frið og gleði. Hvert er hlut- verk okkar núna? Jú, við getum haldið áfram að elska hana og það gerum við ef við gerum það sem gladdi hana. Hjálpa hvort öðru og styðja. Við getum haldið áfram í hennar anda, gefið gleði og haft augun opin fyrir þörfum nágrann- ans, látlaus í hógværð og stórhug. Það voru nokkur orð eftir Max Ehrmann sem henni bótti vænt um: „Gakktu með jafnaðarg> di í gegn- um hávaða og hraða nutímans og gleymdu ekki hverskonar friður get- ur verið í þögninni. Þess vegna lifðu í friði með guði, hvað svo sem þú erfiðar, eftir hverju sem þú leitar, í hávaðasamari ringulreið lífsins, haltu friði með sálu þinni. Þrátt fyrir allar sjónhverfingar, allan þrældóm og allar brostnar vonir er heimurinn fagur“. Jóhanna Eiríksdóttir. BÆKUR gamanmál — sjálfum sér og öðrum til skemmtunar, eru samt í bókinni alvarlegir þættir sem eru til vitnis um skarpskyggni höfundar og þekkingu á mannlegu eðli, margvíslegum örlögum og vandrötuðum leiðum á lífsbrautinni. Bókin er myndskrett af Bjarna Jónssyni listmálara. Hún er 90 bls., unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Útgefandi er Bókaútgáfan Rauðskinna. Flísar úr auga bróður míns Smásögur eftir sr. Sigurð Helga Guðmundsson Komið er út smásagnakverið Flísar úr auga bróður míns eftir Sigurð Helga Guðmundsson prest í Víðistaðasókn í Hafnarfirði. Séra Sigurður er landskunnur maður fyrir ýmis félagsmálastörf og hann hefur gefið út tvö ljóðakver áður, en þetta fyrsta bók hans í lausu máli. Á bókarkápu segir: „Og nú stígur kennimaðurinn niður úr stólnum og sendir frá sér smásagnasafn. Eru í bókinni 11 smásögur og þættir. Flestar sagnanna eru gamanmál, nánast grinsögur enda er höfundur hrókur alls fagnaðar í góðum félagsskap og kann vel að skemmta sér og öðrum og enginn er fljótari að láta kviðiinga fljúga á fleygri stund. En þótt höfundur , hafi hér brotið blað og skrifað Jóns Stcingrímssonar f öllum heimsálfum i. Um höf til hafna Sjóferðaævintýri Jóns Steingrímssonar í öllum heimsálfum Hjá bókaútgáfunni Vöku- Helgafelli er komin út sjóferðasaga Jóns Steingrímssonar, skipstjóra, Um höf til hafna, þar sem hann tekur upp þráðinn frá fyrri minningabók sinni Kolakláfar og kafbátar sem kom út í fyrra. í þessari bók rekur Jón ævintýralega sjóferðasögu sína um öll heimsins höf og staldrar við minnisverða punkta, en margt bar til tíðinda á ferðum hans og ævintýrin eltu hann eins og málmur segul. í upphafi bókarinnar segir Jón frá stóru smyglmáli við í slandsstrendur og kemur þar margt óvænt fram sem kann að þykja reyfarakennt. Siglingar Jóns með íslenskum og erlendum skipum eru síðan meginefni bókarinnar. Jón gefur með hreinskilinni og ítarlegri frásögn sinni af lífi sínu sem farmaður innsýn inn í heim sem fáir þekkja nema sjómennirnir sjálfir. Langsiglingar og heimsóknir í framandi samfélög gefa farmanninum aukna heimsýn og víkka sjóndeildarhring hans. Æðruleysi og hispursleysi margra sjómanna þarf því að skoða í þessu ljósi. Jón leggur óhikað fram dóma um samferðarmenn sína og þar er ekki talað í gátum né verið að vanda kveðjur þegar við á. Hvort sem hann er að tala um „aukabúgreinina góðu“ eða „skippera" sína af ýmsu sauðahúsi þá er frásagnarstíllinn tæpitungulaus og auðskilinn. Þetta er hressileg og lífleg minningabók sem geymir góðar heimildir um líf og vist á farskipum fjarri heimahöfn. Þar skiptast á skin og skúrir og lífsbaráttan er hörð. Jón þekkir þetta út og inn og segir frá á hreinskiptan hátt, en oft er stutt í glettnina og gamansemina sem skín í gegn þegar sagt er frá því kostulegasta sem aðeins farmaðurinn upplifir á ævintýraferðum sínum. Um höf til hafna er 204 bls. og er sett, prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Odda hf. í Reykjavík. ASKRIFT AÐ TIMANUM Ég undirritaður/uð óska eftir að gerast áskrifandi að TÍMANUM. 3 nýjar matreiðslubækur Sigmars B. Haukssonar verða sendar mér um leið og ég staðfesti umsókn þessa. Nafn Nafnnr. Heimili Sýsla Sími Póstnr. Einnig ertekið við áskriftum í síma 91-686300 Síðumúla 15, 105 Reykjavik FLJÚGIÐ í JÓLAFRÍIÐ Flugleiðir hafa nú sett upp yfir 50 aukaflug innanlands fyrir jólin. Við gerum okkar besta til þess að koma öllum á ákvörðunarstað áður en hátíðin gengur í garð. Vinsamlega bókið far tímanlega því síð- ustu ferðir fyrir jólin fyllast fljótt. Til þess að forðast biðraðir á flugvelli bendum við farþegum okkar á að kaupa farmiða í söluskrifstof- um okkar, hjá umboðsmönnum Flugleiða eða hjá ferðaskrifstofum. Söluskrifstofur Flugleiða í Reykjavík eru: Lækjargötu 2 (Nýja bíó) Hótel Esju við Suðurlandsbraut Álfabakka 10 (í Mjóddinni) Farpantanir í síma 26622. FLUCLEIDIR Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi: RARIK 86019: 125 stk. 25 KVA einfasa staura- spennar. Opnunartími: Þriðjudagur 3. febrúar 1987 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 15. des. 1986 og kosta kr. 300,- hvert eintak. Reykjavík 12. desember 1986. w Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 18. desember 1986 kl. 20.00 i Domus Medica við Egilsgötu. Dagskrá: 1. Samningarnir. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.