Tíminn - 16.12.1986, Blaðsíða 20
20 Tíminn
BÆKUR
°r«W II
Drykkir við
allra hæfi
Stórglæsileg bók sem
stendur undir nafni
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út
á íslensku alhliða og vönduð bók
um drykki, áfenga jafnt sem
óáfenga, Drykkir við allra hæfi.
Þetta er hiklaust viðamesta og
fjölbreyttasta bók sem til þessa
hefur komið út á íslensku um
drykki. Auk margvíslegs fróðleiks
og góðra ráða af ýmsu tagi er í
bókinni að finna uppskriftir að 260
drykkjum af ólíkustu gerðum.
Fjallað er um helstu glös fyrir
drykki, áhöld og útbúnað, um
skreytingar og blöndun. Gefnar
eru uppskriftir að fjölmörgum
lystaukum úr ýmsum tegundum,
löngum drykkjum, áfengum og
óáfengum bollum. Rætt er um
sterka drykki og gefin holl ráð og
góðar uppskriftir að köldum
drykkjum, þ.á m. kaffi- og
tedrykkjum, ávaxtadrykkjum,
mjólkurhristingum og
ísdrykkjum. Annað eins er af
uppskriftum að heitum drykkjum,
kaffi- og tedrykkjum, glöggi,
toddýi og púnsdrykkjum.
Sérstakur kafli er um
heimatilbúna matardrykki. ítarleg
uppskrifta- og efnisskrá er aftast
í bókinni.
Drykkirnir eru ýmist áfengir eða
óáfengir og fjölmargir íslenskir
drykkir eru kynntir. Þar á meðal
ýmsir verðlaunadrykkir
Barþjónaklúbbs Islands.
Við gerð bókarinnar hefur verið
kappkostað að drykkirnir séu við
aUra hæfi og eigi við hin ólíkustu
tUefni. Maður er manns gaman og
ávaUt er gaman að fá vini og
kunningja í heimsókn og einkum
ef hægt er að gleðja þá með
góðum veitingum. SkemmtUegar
nýjungar og frumlegar útfærslur á
því venjulega gefa
gestaheimsókninni eða
heimboðinu gUdi. Það er von
útgefanda að þessi hagnýta
handbók standi undir nafni:
Drykkir við aUra hæfi.
Drykkir við aUra hæfi frá Vöku-
HelgafeUi er í stóru broti, 186 bls.
að stærð og er ríkulega
myndskreytt í litum. Bókina þýddi
og staðfærði Einar Örn
Stefánsson. Efni bókarinnar er
tekið saman í Svíþjóð fyrir
alþjóðamarkað, og er íslenska
útgáfan unnin í samráði við ýmsa
sérfræðinga, þekkta sælkera og
barþjóna. Frumtexti og
uppskriftir eru eftir Mariann
Erlandsson og Kent Jardhammar
ljósmyndaði. Bókin er prentuð í
Þýskalandi en Prentstofa G.
Benediktssonar í Kópavogi
annaðist setningu og fUmuvinnu.
Setið á
svikráðum
- tólfta bók Snjólaugar
Bragadóttur
Út er komin hjá Erni og örlygi
skáldsagan Setið á svikráðum
eftir Snjólaugu Bragadóttur frá
Skáldalæk og er þetta tólfta bók
hennar. Þetta er spennusaga sem
gerist að mestu á Suður-Englandi.
Aðalsögupersónan er íslensk
stúlka í sumarfrii en jafnframt er
hún í leit að hálfbróður sínum sem
hefur horfið sporlaust ásamt
eiginkonu sinni sem er frá Norður-
írlandi. íslenska stúlkan finnur
fljótlega að mikUlar varkárni er
þörf, því norður-írskir
hryðjuverkamenn eru líka í leit að
mágkonu hennar. Ferðin fer að
líkjast ævintýri þegar Magnea, en
svo heitir íslenska stúlkan, er
tekin í misgripum fyrir víðförla
auðkýfingsdóttur og fær
glæsilegan unnusta í kaupbæti,
en það er nú bara í byrjun
sögunnar og margt á eftir að ske
áður en yfir lýkur.
Bókin er sett og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar en
bundin hjá ArnarfeUi. Kápumynd
er eftir Brian Pilkington.
Elliðaárnar
eftir Ásgeir Ingólfsson
Bókin segir sögu EUiðaánna að
fornu og nýju og hefur auk þess
að geyma ítarlega lýsingu á
veiðistöðum í ánni. í henni eru 120
litmyndir, þar á meðal litmynd af
hverjum veiðistað, með lýsingu á
því hvernig best er að bera sig að
við veiðarnar á hverjum stað, en
slíkt mun vera algjör nýjung. Auk
þess eru í bókinni margar
svarthvítar myndir. Bókinni fylgir
vandað litprentað kort af
Elliðaánum og annað sem sýnir
nöfn allra hylja og annarra
kennUeita við árnar.
Höfundurinn, Ásgeir
Ingólfsson, fyrrum varaformaður
og framkvæmdastjóri
Stangaveiðifélags Reykjavíkur er
gjörkunnugur sögu ánna og veiði
í þeim. Hann rekur söguna og
birtir afrit skjala sem varða árnar
og viðtöl við menn sem tengjast
þeim. Ásgeir er fjórði ættliður sem
stundar veiðar í ánum, og í
bókinni miðlar hann meðal annars
þekkingu afa síns og langafa sem
stunduðu veiðar í EUiðaánum með
breskum veiðimönnum fyrr á
öldinni.
Það er sennilega einsdæmi í
heiminum að laxveiðiá renni um
fniðja höfuðborg, og þótt
megintilgangur bókarinnar sé að
tengja veiðimann og á sterkari
böndum og fjölga þeim sem
standa vilja vörð um þessa fallegu
og gjöfulu á í borginni, er hún
engu síður ætluð þeim sem unna
náttúrunni, því að Elliðaámar eru
sannkölluð náttúmperla og saga
þeirra er hluti af náttúmsögu
landsins, auk þes sem fegurðin
við árnar kemur glæsilega fram í
myndunum.
Bókin er litprentuð og að öðm
leyti unnin í ísafoldarprentsmiðju
hf., en litaaðgreiningar eru gerðar
í Myndamótum hf.
Stríðs-
minningar
- framhald hinna
geysivinsælu bóka
Stríðsvindar sem
sjónvarpsþættirnir Blikur
á lofti byggðu á
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út bækurnar
Stríðsminningar eftir Herman
Wouk í þýðingu Snjólaugar
Bragadóttur. Þetta er framhald
hinna geysivinsælu bóka
Stríðsvindar sem þættinir Blikur
á lofti byggðu á.
Sagan hefst þar sem síðara
bindi Stríðsvinda lauk en þá stóð
síðari heimsstyrjöldin sem hæst.
Pug var kominn til Pearl Harbour og
hefur tekið við stjórn
Northampton, skipsins sem
honum er ætlað. Styrjöldin er i
algleymingi, synir hans taka þátt
í stríðinu, en kona hans leitar
nýrra ásta heima við.
Stríðsvindar er söguleg
skáldsaga úr síðari
heimsstyrjöldinni. Hún fjallar um
ástir og örlög einstaklinga en um
leið er hún hluti
mannkynssögunnar en ekki síst
fjallar hún um mannlega reisn og
niðurlægingu á úrslitastundu.
Bókin er sett og prentuð í
prentstofu G. Benediktssonar en
bundin hjá Arnafelli. Sigurþór
Jakobsson hannaði kápuna.
Stcfín Jónsson
Höskuldsstöðum
RITSAFN III
SAGNA
ÞÆTTIR
Sagnaþættir
Stefáns á
Höskuldsstöðum
Sögufélag Skagfirðinga hefur
gefið út Sagnaþætti eftir Stefán
Jónsson á Höskuldsstöðum, og er
þetta þriðja bindið í ritsafni hans.
í þessu bindi er þrír sagnaþættir,
og nefnist sá fyrsti og lengsti
Söguþættir úr Austurdal. Þar lýsir
Stefán byggð og mannlífi í
afskekktri sveit og einangraðri
eftir því sem heimildir og sagnir
hrökkva til. Annar þátturinn er um
Þorlák auðga Símonarson á Stóru-
Ökrum, og í lokaþættinum er
aðallega greint frá Jóni sterka
Guðmundssyni á
Hafgrímsstöðum og afkomendum
hans. Umsjón með útgáfunni
höfðu Hjalti Pálsson, Sölvi
Sveinsson og Þórdis
Magnúsdóttir.
Jörundur Pálsson á einni af Esju-sýningum sínum.
7. sýning Jömndar
á Esjumyndum
S.l. laugardagopnaði Jörundur Pálsson
7. einkasýningu sína á málverkum af
Esjunni. Sýningin er í Ásmundarsal og á
að standa fram til 22. desember og er opin
kl. 14.00-20.00 hvern dag. Á sýningunni
eru 50 myndir af jallinu Esjunni, en
Jörundur hefur haft það fjall sem mótíf
árum saman og einbeitt sér að því að mála
Esjuna í musmunandi veðri og litabrigð-
um.
Jóla-almanak SUF
Þessar tölur hafa verið dregnar út:
12. des. no. 6660
13. des. no. 6793
14. des. no. 1665
15. des. no. 243
16. des. no. 5666
Gallerí
Svart á hvítu
Sölusýning á smámyndum
Þriðjudaginn 16. desember opnarGall-
erí Svart á hvítu sölusýningu á smámynd-
um eftir unga myndlistarmenn.
Meðal verka eru olíumálverk, pastel-
myndir. teikningar, grafik, höggmyndir
og samlímingar. Hægt er að taka með sér
verkin strax að kaupum loknum.
Sýningin stendur til 24. desember.
Galleri svart á hvítu er opið alla daga
frá kl. 14-18.
Dregið I Lukkupotti
Hlaðvarpans
Dregið hefur verið í Lukkupotti Hlað-
varpans og kom vinningurinn Nissan
Sunny wagon IX á miða nr. 1837. Ei.
göngu var dregið úr seldum miðum.
Vinningsins má vitja á skrifstofu Hlað-
varpans Vesturgötu 3, sími 19055.
Rafmagn, vatn, hitaveita
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita má
hringja í þessi símanúmer:
Rafmagn: í Reykjavík, Kópavogi og Seitjarn- ’
arnesi er sími 686230. Akureyri 24414, Keflavík
2039, Hafnarfjöröur 51336, Vestmannaeyjar
1321.
Hitaveita: Reykjavík sími 82400, Seltjarnarnes
sími 621180, Kópavogur 41580, en eftir kl. 18.00
og um helgar í síma 41575, Akureyri 23206,
Keflavík 1515, en eftir lokun 1552. Vestmann-
aeyjarsími 1088 og 1533, Hafnarfjöröur 53445.
Sími: Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnárnesi, Ak-
ureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í
síma 05
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-
veita o.fl.) er í síma 27311 alla virka daga frá kl.
17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er svarað!
■ sólarhringinn. Tekið er þarvið tilkynningum
á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum,
þar sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð
borgarstofnana.
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort Safnaðarfélags
Áskirkju hafa eftirtaldir aðilar til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir. Austurbrún 37,
' sími 681742, Ragna Jónsdóttir, Kambs-
vegi 17. sími 82775. Þjónustuíbúðir aldr-
aðra, Dalbraut 27. Helena Halldórsdótt-
ir. Norðurbrún 2, Guðrún Jónsdóttir.
Kleifarvegi 5, sími 681984, Holts apótek,
Langholtsvegi 84. Verslunin Kirkjuhúsið,
Klapparstíg 27.
Þá gefst þeim. sem ekki eiga heintan-
gengl, kostur á að hringja í Áskirkju,
síma 84035 á milli kl. 17.00 og 19.00 á
daginn og mun kirkjuvörður annast send-
ingu minningarkorta fyrir þá sem þess
óska.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohól-
ista,Traðarkotssundi6. Opinkl. 10.00-12.00 alla
laugardaga, sími 19282.
AA-samtökin. Eigir þu við áfengisvandamál að
stríða, þá'er simi samtakanna 16373, milli kl.
17.00-20.00 daglega.
Borgarbókasafn
Reykjavíkur
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270
Borgarbókasafnið í Geröubergi, Gerðu-
bergi 3-5, s. 79122/79138
Opnunartími ofangreindra safna er:
Mán.-Föst. kl. 9-21, sept.-apríl, einnig
opið á laug. kl. 13-16.
Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640
Opnunartími: mán.-föst. kl. 16-19.
Lestrarsalur aðalsafns, Þingholtsstræti
27, s. 27029
Opnunartími: Mán.-föst. kl. 13-19,
sept-apríl einnig opið á laug. kl. 13-19.
Bókabílar, Bækistöð í Bústaðasafni s.
36270.
Bókin hcini, Sólheimasafn s. 83780.
Heimsendingaþjónusta fyrir fatlaða og
aldraða. Símatími mán. ogfim. kl. 10-12.
Sérútlán, aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s.
27155. Bækur lánaðar skipum ogstofnun-
um.
Sögustundir fyrir börn á aldrinum 3-6 ára
Aðalsafni: Þriðjud. kl. 14-15, Bú-
staðasafni og Sólheimasafni: Miðvikud.
kl. 10-11 og Borgarbúkasafninu í Gerðu-
bergi: Fim. kl. 14-15.
Kvenfélagið Seltjöm
Hefur jólapakkafund í Félagsheimilinu
á Seltjarnarnesi, þriðjudaginn 16. des.
nk. kl. 20.30.
Áramótaferð Útivistar
í Þórsmörk
Útivist fer áramótaferð í Þórsmörk 31.
des. (4 dagar). Brottför kl. 8.00. Gist í
Útivistarskálunum Básum. Pantanir ósk-
ast sóttar í síðasta lagi um miðjan des-
ember. Upplýsingar og farmiðar á skrif-
stofunni Grófinni 1, símar: 14606 og
23732.
12. desember 1986 kl. 09.15
Kaup Sala
Bandarikjadollar.....40,880 41,000
Sterlingspund........58,356 58,528
Kanadadollar.........29,6520 29,739
Dönsk króna.......... 5,3368 5,3525
Norskkróna........... 5,3752 5,3908
Sænsk króna.......... 5,8584 5,8756
Finnsktmark.......... 8,2411 8,2653
Franskur franki...... 6,1515 6,1696
Belgískur franki BEC .. 0,9699 0,9727
Svissneskur franki...24,0496 24,1202
Hollensk gyllini.....17,8593 17,9118
Vestur-þýskt mark....20,1677 20,2269
ítölsk líra.......... 0,02912 0,02920
Austurrískur sch..... 2,8675 2,8759
Portúg. escudo....... 0,2730 0,2738
Spánskur peseti...... 0,2992 0,3001
Japansktyen.......... 0,25049 0,25123
írsktpund............54,949 55,110
SDR (Sérstök dráttarr. ..48,9715 49,1157
Evrópumynt...........42,0369 42,1603
Belgískur fr. FIN BEL ..0,9637 0,9665
Börnum mínum og ölium vinum og vandamönnum,
sem glöddu mig á áttræðisafmæli mínu 17. nóvem-
ber s.l. vil ég segja þetta:
„Fyrir gjafir gott og allt,
sem gjörið mér að hlynna.
Drottinn blessi eitt og allt
ykkar vina minna.“
Hróifur Jóhannesson,
Hólavegi 9, Sauðárkróki.