Tíminn - 16.12.1986, Síða 24
SSAMBANDSFÓÐUR
3
|£
Hækkun bóta almannatrygginga:
Er lagaheimild
til hækkunar?
Enn hefur ekki veriö lokið við
gerð nýrrar reglugerðar um hækkun
bóta almannatrygginga, sem nauð-
synleg er vegna nýgerðra kjarasamn-
inga. Samkvæmt lögum á hækka
bætur innan sex mánaða frá því
launabreytingar verða, cn þessi
hækkun hefur að jafnaði komið til
framkvæmda í næsta mánuði eftir að
laun hafa hækkað. Samkvæmt regl-
um skal miða við þegar breyting
verður á vikukaupi í verkamann-
avinnu og skuli bæturnar þá hækka
til samræmis við það.
Páll Sigurðsson í heilbrigðis og
tryggingaráðuneytinu sagði að það
flækti nokkuð málin, að laun hefðu
ekki hækkað um ákveðna prósentu,
heldur hefðu laun hækkað mjög
mismikið, allt frá 3% til rúmlega 26
% hækkunar. Þá hefði Dagsbrún
lýst því yfir að þessir samningar
hefðu ekki fært þeirra mönnum
neinar launahækkanir.
„Þannig að verkamenn í Reykja-
vík hækka ekkert í launum. Pá er
náttúrlega spurningin hvaða laga-
heimild er til hækkunar, ef þetta er
svona óljóst hver hækkunin hefur
orðið.“ Það tæki því eðlilega tíma að
reikna þetta út og hefðu þeir leitað
ráða hjá Kjararannsóknarnefnd
vegna þessara mála.
Sagði Páll enn fremur að það væri
hugsanlegt að það þyrfti að reikna út
bæturnar upp á nýtt eftir að Dags-
brún gerði sinn samning.
Enn væri engin niðurstaða komin
um hvaða upphæðir væri um að
ræða. Reglugerðina þyrfti hins vegar
ekki að setja fyrr en í lok mánaðarins
eða byrjun janúar, því þessi hækkun
yrði ekki greidd út fyrr en með
bótagreiðslum í janúar.
“En það verður örugglega gefin út
reglugerð fljótlega, þannig að Trygg-
ingastofnun hafi góðan tíma til að
reikna þetta,“ sagði Páll Sigurðsson.
-phh
y Ofgreidd lán til Húsnæðisstofnunar frá 1983:
Utreikningar Seðla-
banka á þingi í dag
Líklegt er að nokkur þúsund
skuldunautar Húsnæðisstofnunar
ríkisins eigi von á samtals í kringum
20 millj. króna endurgreiðslu frá
stofnuninni vegna þeirra ca 3% sem
þeir hafa ofgreitt af lánum sínum
árlega frá haustinu 1983, samkvæmt
heimildum Tímans.
Félagsmálaráðherra, Alexander
Stcfánsson, mun á Alþingi í dag
kynna niðurstöður á útreikningum
Seðlabankans á því hvaða áhrif það
hafði að hækkun lánskjaravísitölu
milli ágúst og september 1983, sem
var rúmlega 8%, var að fullu látin
koma á húsnæðislánin í stað rúmlega
5% hækkunar eins og ríkisstjórnin
ákvað. Stærstu lánaflokkar stofnun-
arinnar, nýbyggingarlán og G-lán
voru ekki verðtryggð eftir lánskjara-
vísitölu fyrr en í apríl 1982 en önnur
lán stofnunarinnar frá árinu 1980,
þannig að um er að ræða lán sem
veitt voru frá þessum tímapunktum
og þar til í ágúst 1983.
Byggingarsjóður ríkisins lánaði út
á í kringum 4 þús. íbúðir á þessum
árum og Byggingarsjóður verka-
manna nokkur hundruð íbúðir. Þessi
umframhækkun lánskjaravísitöl-.
unnar í september 1983 gæti því hafa
haft áhrif á t.d. 6-8 þús. lán.
Þessi u.þ.b. 3% vísitölumunur
sem hér um ræðir mun í heild
samsvara í kringum 100 millj. króna
á núvirði, þ.e. sem heildarlánsupp-
hæðin hefur hækkað umfram það
sem ella hefði verið. Hækkun af-
borgana og vaxta af þessum lánum
frá 1983 hefur af þessum sökum
numið í kringum 20 milljónum
króna, samkvæmt heimildum
Tímans. Þá upphæð sem ofgreidd
hefur verið mun félagsmálaráðherra
ætlast til að Húsnæðisstofnun skili til
baka. Hins vegar mun enn ekki
ákveðið hvaða aðferð verði viðhöfð
um skil á þeirri upphæð sem ógreidd
er. Einn möguleikinn er sá að hækka
upphafsvísitölu þessara lána um3%,
sem þar með lækkar uppfærðar eftir-
stöðvar þeirra og þá um leið afborg-
anir í framtíðinni. Annar möguleiki
er að lækka hverja afborgun þeirra
framvegis um 3% hverju sinni.
Formannafundur BSRB:
Félögin hafi sam-
f lot í samningunum
- vilja fundi með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga
Formannafundur BSRB og stjórn-
ar bandalagsins var haldinn í gær og
voru væntanlegir kjarasamningar til
umræðu, í lok fundarins var eftirfar-
andi yfirlýsing send til fjölmiðla.
„Fundur formanna aðildarfélaga
BSRB og stjórnar bandalagsins var
haldinn í dag, þar sem staða samn-
ingaviðræðna var rædd í ljósi þess að
vonir standi til að ný samningsréttar-
lög verði samþykkt fyrir jól. For-
menn þorra þeirra félaga sem mættir
voru á fundinum samþykktu að fé-
lögin hefðu samflot í komandi við-
ræðum. Tvö af þeim munu þó ák-
veða afstöðu sína á næstu dögum.
Samþykkt var, að viðræðunefnd
ræði við fjármálaráðherra qgfulltrúa
sveitarfélaganna um fyrirkomulag
viðræðna, en í framhaldi af þessu
mun verða óskað eftir fundum með
fjármálaráðherra, borgarstjóranum
í Reykjavík og formanni Sambands
íslenskra sveitarfélaga.“ -phh
Sjötíu ára afmæli
Framsóknarflokkurinn og þingflokkurinn
í dag eru 70 ár frá því að átta
þingmenn komu saman í Alþingis-
húsinu, mynduðu þingflokk og
stofnuðu Framsóknarflokkinn.
Þessara tímamóta verður minnst
í dag á Hótel Sögu.
Milli klukkan 16:30 og 19 verður
opið hús í Súlnasalnum. Þar munu
alþingismenn flokksins og ráðherr-
ar taka á móti gestum og veitingar
verða fram bornar.
Elliðaárnar eru náttúruperla Reykjavíkur. Höfundurinn
kemur fróðleik og ieiðbeiningum fjögurra ættliða um veiði og
veiðistaði í ánum til skila í skýru og skemmtilegu máli. í bók-
inni eru á annað hundrað litmyndir, m.a. af öllum veiði-
stöðum, ásamt mörgum svarthvítum myndum og kort sem
sýnir kennileiti og veiðistaði við árnar. Þetta er bók veiði-
mannsirís og náttúruunnandans.
vff, vi! ekki
Vil, vil ekkifjallar um menntaskólastúlkuna Elísu sem stendur
á tímamótum í lífi sínu. Hún er í föstu sambandi við ungan
mann á uppleið sem getur tryggt henni áhyggju- og áreynslu-
lausa framtíð. En með henni bærast margvíslegar tilfinningar.
Er þetta það sem hún vill? Lætur hún aðra stjórna sér? Eða
tekur hún óvissu og ævintýri fram yfir öryggið? Skemmtileg og
spennandi bók um vaknandi vilja og sjálfsvitund.
\'K é
Æ
Menn með mönnum gerist í demantalandinu Suður-Afríku.
Draumur Zougas Ballantyne um „Norðrið“ hefst í þrældómi
demantanámanna í Kimberley og lýkur á frjósömum gras-
lendum Matabelelands - en ekki fyrr en heil þjóð stoltra
stríðsmanna hefur nánast verið þurrkuð út. Metsöluhöfund-
urinn, Wilbur Smith, gjörþekkir náttúru landsins og sögu
þjóðanna sem það byggja. Heillandi saga, mannleg, þrungin
spennu, ævintýrum og rómantík.
í blíðu og stríðu
I blíðu og Stríðu er önnur bókin í þriggja bóka flokki um
Stúlkuna á bláa hjólinu eftir metsöluhöfundinn Régine
Deforges. Við fylgjumst áfram með söguhetjunni Leu Delmas
í síðari heimsstyrjöldinni, ástum hennar, sorgum og baráttu
í hinu hernumda Frakklandi. Atburðarásin er hröð og spenn-
andi og örlög ráðast.
Boðið er upp á 1. og 2. bindi sögunnar saman í pakka á
afsláttarverði.
ÍSAFOLD