Tíminn - 21.01.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 21. janúar 1987
Tíminn 3
Launakönnun ASÍ og VSÍ:
Bílastyrkur algeng
yfirborgunaraðferð
Allt frá um 15 ára aldri og fram að
fimmtugu bæta íslenskir verkamenn
að meðaltali um 52-55% við dag-
vinnulaunin sín með yfirvinnu, sam-
kvæmt launakönnun þeirri er Kjara-
rannsóknarnefnd vann í apríl sl. vor
fyrir ASÍ, VSÍ og VMSÍ. Á milli 50
og 70 ára draga þeir heldur úr
yfirvinnunni, en hún var þó að
meðaltali 36% ofan á dagvinnulaun-
in. Með bónus og vaktaálögum náðu
verkamenn að meðaltali að bæta
63-88% við dagvinnulaunin. Hjá
verkakonunum er yfirvinnuhlutfall-
ið frá 16-21% af dagvinnulaunum,
en með bónus og öðru tekst þeim að
ná heildarlaununum 32-55% um-
fram dagvinnulaunin. Bílastyrkir
eru fátíðir meðal verkamanna og
nær óþekktir meðal verkakvenna.
Mestu vinnuþrælarnir virðast þó
vera unglingar (15-19 ára) við af-
greiðslustörf, með um og yfir 70% af
dagvinnulaununum fyrir yfirvinnu.
Þess ber að geta að fáir á þeim aldri
voru í úrtakinu. Hjá öðru af-
greiðslufólki er þetta hlutfall um
21-35% að meðaltali og svipað hjá
körlum og konum. Heildartekjur
karlanna voru þó miklum mun hærri.
Auk þess sem hrein dagvinnulaun
þeirra voru um 10 þús. kr. hærri á
mánuði voru bílastyrkir og greiðslur
fyrir óunna yfirvinnu mjög algengar
þeirra á meðal. T.d. hafði um helrn-
ingur afgreiðslukarla 40-50 ára um 7
þús. kr. á mánuði í bílastyrk að
meðaltali. Aðeins urn 2-3% kvenna
fengu þessar greiðslur.
Unnin yfirvinna er algengust 15-
25% af dagvinnulaunum hjá skrif-
stofufólki. Um helmingur karlanna
hafði hins vegar bílastyrk, um 9-10
þús. kr. á mánuði og fór það hlutfall
bílastyrk og þá á bilinu 5-6 þús.
krónur, og enn færri greitt i'yrir
óunna yfirvinnu. Um helmingur
þeirra fékk greidda ferða- og fata-
peninga. -HEI
MÁNAÐARLAUN ÁN ÁLAGA
KarIar
Hflfudb. Uton
■vadl hflfudb.sv.
r-----1 xzzzzza
10 11 12 13
1 - PAKKHÚSVINNA
2 - BYGGINGARVINNA
3 - VERKSTJÓRN ÓFAGL.
4 - ÓFAGL. 'ÍVIISS STÖRF
5 - BIFREIOASTJÓRN
6 « STJÓRN VINNUVÉLA
7 - uAljusmIðar
8 - BIFVÉLAVIRKJUN
9 = TRÉSMlÐAR
10 - RAFVIRKJUN
11 - VÉLSTJÓRN FAGL.
12 = VERKSTJÓRN FAGL.
13 - ALMENN SKRIFSTOFUSTÖRF
Launakönnun Kjararannsóknarnefndar í apríl 1986 sýnir mikinn
launamun milli karla á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni í svo
að segja öllum starfsgreinum. Miðað er við mánaðarlaun án alls alags
(ekki taxtakaup), en inni í því geta verið yfirborganir. Sem sjá má hafa
þessi laun verið algengast rétt um 25 þús. kr. að meðaltali hjá nær
öllum ófaglærðum á landsbyggðinni.
Mestur hefur launamunurinn þó verið hjá almennum skrifstofu-
mönnum, yfir 17 þús. kr. lægri á landsbyggðinni en við Faxaflóann.
upp í 70% meðal 40-50 ára karla. ——
Mikill launamunur karla innan sömu stétta á höfuðborgarsvæðinu
annars vegar og landsbyggðinni hins vegar kom í Ijós í könnun VSÍ
og ASÍ s.l. vor. Efri taflan sýnir mánaðarlaun fyrir dagvinnu án álags
(ekki taxtakaup) en yfirborganir geta verið innifaldar. Neðri taflan sýnir
hins vegar mánaðarlaun fyrir dagvinnu að viðbættu álagi (svo sem
bónus, vaktaálagi, óunninni yfirvinnu, bílastyrk, ferða- og fatapening-
um og fleiru) en án unninnar yfirvinnu, þ.e. raunverulega greitt kaup
fyrir dagvinnuna. Á efri töflunni sést að mánaðarlaun án álags hjá
ófaglærðum körlum á landsbyggðinni hafa að meðaltali verið í kring
um 25 þús. kr. í apríl 1986. Drýgst virðist álagið vera hjá vélstjórum á
landsbyggðinni (11) sem hækka dagvinnulaun þeirra úr um 39 þús. í
59 þús. kr. á mánuði.
Um 15% þeirra fékk og drjúgar
greiðslur vegna óunninnar yfirvinnu.
Aðeins um 10% þeirra fengu bíla-
styrk og þá aðeins um hálfa upphæð
á við starfsbræður þeirra.
Meðal iðnaðarmanna var yfir-
vinnuhlutfallið um 45% af dagvinnu-
launum og niður í 31% í elsta
hópnum. Aðeins um 15% þeirra fá
Athugasemd vegna fréttar í Tímanum:
SÍMAMÁL Á
VESTURLANDI
- eftir Jóhann Hjálmarsson blaöafulltrúa
Póst- og símamálastofnunar
Afleitt ástand í símamálum
Símamál á Vesturlandi, einkum í
Borgarfirði, hafa oft verið til um-
ræðu og umfjöllunar í Tímanum að
undanförnu. Fyrir nokkru birtist
frétt um afleitt ástand í símamálum
í uppsveitum Borgarfjarðar og er
haft eftir íbúum á svæðinu að þeir
séu orðnir „langþreyttir á aðgerðar-
leysi póst- og símamálayfirvalda til
lausnar þessu vandræðaástandi".
Til þess að ljóst sé að símamálayf-
irvöld hafi ekki setið með hendur í
skauti er nauðsynlegt að rifja upp
það sem þegar hefur verið gert til að
bæta símaþjónustu á Vesturlandi.
Langlínum hefur verið fjölgað
Langlínum milli þéttbýlisstaða á
norðanverðu Snæfellsnesi og við
Breiðafjörð hefur verið fjölgað veru-
lega og langlínustig stöðva á sama
svæði stækkuð. Aukning hefur orðið
á langlínum frá Stykkishólmi til
Akraness og frá Stykkishólmi til
Reykjavíkur og telst hún nægjanleg.
Mælingar sýna hins vegar að fjölga
þarf langlínum milli Reykjavíkur og
Akraness og Reykjavíkur og Borg-
arness, einkum vegna álagstoppa á
kvöldin þegar afsláttargjöld eru í
gildi.
Ný stafræn símstöð í Borgarnesi
Ný stafræn símstöð verður tekin í
notkun í Borgarnesi um mitt þetta
ár og verður þá línum fjölgað um
leið eins og þörf er á. Einnig er gert
ráð fyrir að á þessu ari verði not-
endasímar á Hreðavatni, Hvann-
eyri, Kljáfossi og Gröf tengdir staf-
ræna símakerfinu.
Stöðin í Búðardal verðurstækkuð
um 100 númer fyrir lok þessa mánað-
ar, úr 400 í 500. Samhliða þeirri
stækkun verður línum milli Búðar-
dals og Stykkishólms fjölgað.
Grundarfjarðarstöðin verður stækk-
uð um 100 númer um svipað leyti, úr
300 í 400. Stöðin á Hellissandi var
stækkuð um 100 númer í desember
1986, úr 200 í 300. í undirbúningi er
að fjölga línum frá Ólafsvík með
beinum línum í stafrænu stöðina í
Reykiavík. Nú liggja allarsímalínur
frá Ólafsvík um Stykkishólm og
Akranes og myndi þessi síðast-
nefnda framkvæmd minnka álag á
línum milli Akraness og Reykjavík-
ur.
Á undanförnum þremur árum hef-
ur fjölgun langlína á Vesturlandi
verið rúmlega 60%.
Á undanförnum þremur árum hef-
ur fjölgun langlína á Vesturlandi
verið rúmlega 60%.
Kostir stafræna kerfisins
Stafræna kerfið hefur miklar
breytingar í för með sér. Afköst
símakerfisins aukast stórlega svo að
gera má ráð fyrir að á mestu álag-
stímum muni litlum erfiðleikum
bundið að ná sambandi. Stöðvarnar
í Borgarfirði og víðar hafa ekki
annað hinu mikla álagi, allra síst á
kvöldin. Mælingar sýna að símaum-
ferð á kvöldin er 50% meiri en á
álagstíma að degi til. Þetta gildir um
fleiri svæði en Borgarfjörð.
Sífellt er unnið að því að koma á
stafrænum stöðvum um allt land.
„Aðgerðarleysi" er ekki rétta orð-
ið yfir framkvæmdir Póst- og síma-
málastofnunar. En ýmislegt getur
tafið framkvæmdir, til dæmis niður-
skurður fjárfestingartillagna stofn-
unar.
Nokkrir af stjórnendum afmælisbarnsins. Frá vinstri Árni Einarsson,frkvst., Anna Einarsdóttir stjórnarmaður,
Silja Aðalsteinsdóttir, ritstjóri TMM, Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri og Þorleifur Einarsson stjórnarfor-
maður. Á milli sín halda þau á auglýsingu fyrir Rauða penna, þar sem bent er á hversu hentug jólagjöf sú bók
er. Jólabókarhefðin er því að minnsta kosti hálfrar aldar gömul.
Mál og menning
hálfrar aldar
- gefa út 12 afmælisbækur á árinu
Bókmenntafélagið Mál og
menning á fimmtugs afmæli á þessu
ári, en forlagið var stofnað sumarið
1937 að frumkvæði Kristins E.
Andréssonar. í upphafi var félagið
eins konar bókaklúbbur og hafði
það að markmiði að koma góðum
bókum á framfæri á viðráðanlegu
verði fyrir almenning. Á fimmtíu
ára ferli félagsins hefur því hins
vegar vaxið mjög fiskur um hrygg
og á síðasta ári seldi félagið um 200
þúsund bækur til landsmanna.
Tímarit Máls og menningar var
stofnað 1938 og hefur verið gefið
út óslitið síðan, en nú eru um 3000
áskrifendur að tímaritinu. Ritstjóri
TMM er nú Silja Aðalsteinsdóttir,
bókmenntafræðingur. Annar angi
af starfsemi M&M er íslenski kilju-
klúbburinn og eru félagar þar nú
um 5500. í fyrra voru seldar um 60
þúsund kiljur, aðallega í gegnum
klúbbinn.
f tilefni afmælisins verða gefnar
út 12 afmælisbækur eða ein í hverj-
um mánuði. Þegar er komin út
fyrsta afmælisbókin, en það er
ljóðabókin Tengsl, eftir Stefán
Hörð Grímsson. í febrúarmánuði
verður endurútgefin Hundrað ára
einsemd, eftir Gabriel Garcia Mar-
ques, sem hefur verið ófáanteg um
nokkurn tíma. Veitt verður 30%
afsláttur af hverri afmælisbók í
útgáfumánuðinum. Flaggskipið á
afmælinu verður svo fyrsta bókin í
ritröð um Náttúru íslands eftir
Guðmund Ólafsson náttúrufræð-
ing.
-phh