Tíminn - 21.01.1987, Blaðsíða 16
BALTIC-KEPPNIN í
handknattleik hefst í Austur-
Þýskalandi í kvöld meö leik
íslendinqa í
ostock. Aörar
heimamanna o
íþróttahöllinni í
þjóðir sem þátttaka í keppninni
eru lið Vestur-Þjóðverja, Sov-
étmanna, Pólverja og Svía.
Hjördís Árnadóttir íþrótta-
fréttakona Tímans er úti í Aust-
ur-Þýskalandi og mun hún
senda fréttir af mótinu til les-
enda blaðsins.
Miövikudagur 21. janúar 1987
Heildarútflutningur sjávarafurða jókst um
26% í magni og 36% að verðmæti
Freðfiskútflutningur Sjávar-
afurðadeildar Sambandsins til
Bandaríkjanna minnkaði um 4% á
árinu 1986 á meðan hann jókst
gífurlega til Evrópulanda. Aukning-
in til Bretlands var 17%, til Sovét-
ríkjanna 54%, Frakklands 61% og
til Vestur-Þýskalands var aukningin
113%. Bandaríkjamarkaðurinn er
þó lang þýðingarmestur, en þangað
fóru 46% útflutningsins.
Heildarútflutningur sjávarafurða.
SÍS var 69.100 lestir og jókst um
26% í magni á árinu 1986, en um
36% að verðmæti.
Þrátt fyrir að nokkuð meira hafi
verið fryst á árinu 1986 en 1985, hafa
birgðir frystra sjávarafurða Sjávaraf-
urðadeildar SIS minnkað um 500
milljónir að útflutningsverðmæti.
Sveiflan frá Bandaríkjunum til
freðfiskmarkaða í Evrópu á síðasta
ári á einkum rætur sínar að rekja til
lækkandi gengis Bandaríkjadollars
gagnvart Evrópugjaldmiðlum.
Á seinni helmingi ársins urðu
verulegar verðhækkanir á frystum
fiski á Bandaríkjamarkaði sem
höfðu þau áhrif að beina framleiðsl-
unni aftur á þann markað, enda
eftirspurn mikil. Áframhaldandi lágt
gengi dollarans skapar hins vegar
mikla óvissu um samkeppnisaðstöðu
þeirramarkaðaergreiða í dollurum.
Þrátt fyrir þetta seldi Iceland Sea-
food Corporation, söluaðili Sam-
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs:
Herbjörg
Wassmo
hlýtur
verðlaunin
Norski rithöfundurinn Herbjörg
Wassmo hlaut í gær bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs árið 1987.
Verðlaunin fékk hún fyrir bókina
„Himinn án hörunds“ (Hudlös
Himmel).
Dómnefndin tilkynnti þetta f
Stokkhólmi í gær og færði eftirfar-
andi rök fyrir ákvörðun sinni: „Him-
inn án hörunds er þriðja bindi þrí-
leiksins um Þóru, dóttur norskrar
konu og þýsks hermanns, sem sjálf
verður fórnarlamb en tekst að öðlast
nýja trú á lífið og annað fólk. Bókin
er óvenjulega blæbrigðarík lýsing á
sálarlífi ungrar stúlku, skrifuð af
miklum næmleika, en um leið tæpi-
tungulausu raunsæi."
Verðlaunin, 25.000 danskar
krónur, verða afhent á 35. þingi
Norðurlandaráðs af forseta ráðsins.
íslensku fulltrúarnir í dómnefnd-
inni voru rithöfundarnir Jóhann
Hjálmarsson og Sveinn Einarsson.
bandsins á Bandaríkjamarkaði,
frystar sjávarafurðir fyrir 157,1 mill-
jón dollara, sem er 15,3% meira en
árið 1985. Mikið skorti á að fyrirtæk-
ið gæti annað eftirspurn eftir frystum
flökum og frystri rækju á árinu 1986.
Var svo komið í árslok, að birgðir
voru í algjöru lágmarki og má segja
að afurðirnar hafi verið skammtaðar
beint upp úr skipi síðustu mánuði
ársins.
Þess má geta að Guðjón B. Ólafs-,
son, núverandi forstjóri Sambands-
ins, var framkvæmdastjóri Iceland
Seafood Corporation til Ioka ágúst
1986 og hafði þá gegnt því starfi í
tæp 12 ár. Núverandi framkvæmda-
stjóri er Eysteinn Helgason.
-HM
HÆKKUN GJALDA I STOÐUMÆLA
Þessa dagana er verið að hækka gjöld i alla stöðumæla í miðbæ Reykjavíkur. Mest er hækkunin i
Austurstræti, en þar hækka gjöld um 100% frá því sem áður var.
Fyrir 10 krónur var leyfilegt að leggja bílum í hálftíma á bílastæðum hvar sem var ( miðbænum. Tíminn
hefur verið styttur í tuttugu mínútur fyrir sama gjald, en í kortér í Austurstræti.
Á myndinni er starfsmaður að skipta um verðskrá á einum nýju stöðumælanna við Kalkofnsveg.
þj/Tímamynd: Pjetur
Landsbankinn mun semja við OLÍS á næstunni:
Semja þarf um
aílt aftur til
Landsbankinn bíður nú eftir áætl-
unum Olíuverslunar íslands um
áframhaldandi rekstur og stöðu
fyrirtækisins. Fulltrúar OLIS vinna
nú við gerð slíkrar áætlunar.
OLÍS hefur ekki staðið við samn-
inga við bankann sem gerðir voru
1985 og eru vanskil veruleg. Þó hafa
vanskil lækkað talsvert síðustu tvo
mánuði, éða frá miðjum nóvember.
Þegar áætlanir OLÍS berast bankan-
um verður það sennilega aðaláhuga-
efni bankans hversu miklum endur-
greiðslum til bankans er gert ráð
fyrir, á árinu. Því ljóst er að þessar
áætlanir munu verða grunnurinn að
þeim erfiðu samningum sem fram-
undan eru milli þessara tveggja að-
ila, Landsbankans og OLÍS. Höfuð-
atriði samningagerðarinnar verður
að tryggja að fyrirtækið greiði upp
vanskilin, en hinsvegar munu helstu
átökin standa um á hversu löngum
tíma og með hvaða skilyrðum er
vanskil
1985
hægt að greiða upp vanskilaskuldirn-
ar.
Jónas Haralz bankastjóri Lands-
bankans sagði í samtali við Tímann
í gær að ljóst væri að þetta væri
mikið mál og að samningar gætu
orðið erfiðir. Hann sagði einnig að
ljóst væri að á þessum fyrstu vikum
nýja eigandans hefði innheimta
batnað.
Atvinnuleysisskráning:
Um 1.750 vinnu-
lausir um áramót
Tæplcga tvö þúsund manns
voru skráðir atvinnulausir í des-
embermáuuði sl. -semsamsvarar
8 af hverjum 1.000 sem taldir eru
á vinnumarkaðinum. Atvinnu-
lausum hafði fjöjgað um rúmlega
helming frá nóvembcrmánuðinn.
og fór jafnframt fjölgandi eftir
því sem leið á mánuðinn. Á
gamlársdag voru 1.750 á atvinnu-
leysisskrá, þar af 1.000 konur.
Atvinnulausir nú um áramótin
voru þó helmingi færri cn á árinu
áður.
Hæsta landshlutatalan var að
vanda Norðurland eystra með
197 atvinnulausa, þar af 67 á
Akureyri og 58 á Húsavík. At-
vinnulausir á höfuðborgarsvæð-
inu voru 187 þar af 137 í Reykja-
vík. í öðrurn landshlutum voru
rúmlega 100 á skrá, nema á
Vcstfjörðum sem varla komst á
blað freinur en venjulcga.
Á árinu 1986 voru skráðir um
214.000 atvinnulcysisdagar, sem
samsvarar því að 820 manns hafi
ekki fengið vinnu allt árið. Færri
atvinnuleysisdagar hafa þó ekki
verið skráðir síðan árið 1982.
Af atvinnulausum í fyrra voru
31% á höfuðborgarsvæðinu á
móti28% áriðáður. Hlutfailslega
meira hefur því dregið úr atvinnu-
leysi á landsbyggðinni en á höf-
uðborgarsvæðinu.
Af 820 atvinnulausum allt árið
hafa samsvarandi um 188 verið í
Reykjavík, um 84 á Akurcyri, 46
í Kcflavík, 44 á Húsavík, um 30
á Akranesi, Sauðárkróki, Hafn-
arfirði og Kópavogi, 26 á Selfossi,
um 20 í Borgarnesi og á Ólafsfirði
og um 15 á Hvolsvelli og á
Egilsstöðum.
-HEI
-ES
Flugleiðir á biðlista eftir
tveimur nýjum Boeing-þotum
Meðal annars vegna nýrra háv-
aðareglna um flugvélar sem taka
gildi á næstu árum víðs vegar um
Evrópu er óumflýjanleg einhver
endurnýjun flugvélakosts Flug-
leiða. Til þess að hafa vaðið fyrir
neðan sig hefur flugfélagið skotið
sér inn á biðlista um kaup á
tveimur flugvélum Boeing verk-
smiðjanna, en langur afgreiðslu-
frestur erá þeim vélum sem koma
til greina að festa kaup á. Staðfest-
ingargjaldið er 75 þúsund Banda-
ríkjadalir, eða samsvarandi um 3
milljónum íslenskra króna.
„Flugleiðir hafa greitt inn á tvær
Boeing flugvélar, annað hvort 737-
300 eða -400, til þess að tryggja
afgreiðslu á slíkum vélum vorið
1989,“ sagði Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, í samtali við
Tímann. Þær vélar taka allt að 160
farþega. „Það hefur engin pöntun
eða samningur verið gerður enn,
heldur verður staðfestingargjaldið
endurgreitt, ákveði Flugleiðir að
hætta við kaupin. Einnig erum við
með í huga kaup á Airbus A320,
sem tekur 160 manns í sæti. Það er
ýmislegt í myndinni."
Vélar, sem taka færri farþega en
250, eru ekki framleiddar með
fleiri hreyflum en tveimur og þá er
gert ráð fyrir tveimur flugmönnum,
en engum flugvélstjóra.
„Það er komin löng og góð
reynsla á tveggja hreyfla vélar og
það þekkist ekki annað nú á dögum
á ekki stærri vélum.
Þegar þessar vélar komu fyrst,
fyrir um tíu til fimmtán árum, var
nokkuð deilt á að fljúga tveggja
hreyfla vélum yfir hafið. En það
eru ákveðnar reglur í gildi hvað
varðar þessar flugvélar. Til dæmis
má ekki fljúga lengra frá næsta
flugvelli, en vélin komist þangað á
einni klukkustund. Aldrei er meira
en 60 mínútur í næsta flugvöll á
leiðinni frá íslandi til Evrópu.
Um þá ákvörðun framleiðenda
að hafa tvo menn frammi í flugvél-
inni, í stað þriggja, eins og tíðkast
hefur hjá Flugleiðum á lengri leið-
um, er það að segja, að þessu hafa
menn vanist í innanlandsfluginu og
Arnarflug hefur alltaf flogið til
útlanda með tvo flugmenn. Enn-
fremur má benda á, að nýjasta 747
flugvél Boeing verksmiðjanna,
sem enn þá er verið að hanna, mun
aðeins hafa tvo flugmenn en taka
yfir 500 farþega."
Gagnrýnisraddir á tveggja hreyfla
vélar eru þess vegna löngu þagnað-
ar: Þj
Freðfiskútflutningur Sjávarafurðadeildar SÍS:
Sveifla frá
Bandaríkjun-
um til Evrópu