Tíminn - 21.01.1987, Side 8
8 Tíminnj
Miðvikudagur 21. janúar 1987
Miðvikudagur 21. janúar 1987
Tíminn 9
Twiggy er orðin 36 ára
fullþroska kona.
Leigh Lawson (Travelling Man) er
nú maðurinn í lífi Twiggy.
staður til að ala upp börn á,“ segir
Twiggy og bætir því við að þar
snúist allt um peninga og fólk sé
einungis vegið og metið eftir því
hvað það afli mikils fjár.
Twiggy er nú orðin 36 ára gömul.
Hún býr með Leigh Lawson, sem
áhorfendur Stöðvar 2 þekkja úr
myndaflokknum um einfarann
(Travelling Man). Hann var áður
sambýlismaður Hayley Mills og á
með henni son sem nú er 10 ára.
Twiggy er mikil fjölskyldumann-
eskja og finnst vænt um að eiga nú
orðið í rauninni tilbúna fjölskyldu.
En hún segist gjarna vilja sjálf
eignast a.m.k. annað barn í viðbót
og sig skipti ekki öllu máli hvort
það verði í hjónabandi eða ekki.
í starfinu gengur Twiggy líka allt
í haginn þessa dagana. Hún er
nýbúin að leika í 90 mínútna
sjónvarpskvikmynd sem gerð var
eftir sögu H.C. Andersen um litlu
stúlkuna með eldspýtumar. Sú
mynd var sýnd í Bretlandi um jólin.
Twiggy er sem sagt engin eftirsjá
að lífinu á 7. áratugnum sem
mörgum finnst hún reyndar nokk-
urs konar einkennismerki fyrir.
„í>að var ofsafjör, ég ferðaðist um
allan heim og kynntist merkilegu
fólki. Þetta voru stórkostlegir
tímar, en þeir eru nú liðnir. Annars
hefði ég getað orðið venjulegur
táningur, þá hefði ég sennilega
gifst og eignast 20 börn og væri
áreiðanlega skilin núna,“ segir
Twiggy kímileit.
Svona muna allir eftir
Twiggy. „Grindhoruð
stelpurengla, ekkert
nema augu og
munnur,“ sögðu sumir.
oglangartilaðverða
móðir á ný!
Hver man ekki eftir Twiggy,
ensku sýningarstúlkunni þveng-
mjóu sem virtist ekki vera neitt
nema heljarstór augu og munnur?
Og út úr munninum kom endalaus
orðaflaumur á hroðalegri enskri
mállýsku sem engin tilraun hafði
verið gerð til að lagfæra. Enginn
hefði búist við því fyrir 20 árum að
þessi 16 ára óskólagengna stelpu-
rengla ætti eftir að njóta eftirlætis
og virðingar landa sinna um ókom-
inn aldur.
Twiggy er nýkomin aftur „heim“
eftir margra ára búsetu í Banda-
ríkjunum. t>ar beið hún bæði sigra
og ósigra. Hún sló í gegn á Broad-
way og Ameríkanar hefðu gjarna
viljað hafa hana lengur sín á meðal,
en hún kaus að halda aftur til
Englands, sérstaklega vegna dóttur
sinnar Carly, sem nú er orðin 7 ára
gömul. Carly var nefnilega orðin
föðurlaus, pabbi hennar Michael'
Whitney féll niður örendur þar
sem hann var staddur á veitinga-
húsi með Carly. „Þá ákvað ég að
fara heim, Los Angeles er ekki
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Þorgils Óttar Mathiesen og félagar hans ■ íslenska landsliðinu keppa við Austur-Þjóðverja í kvöld í opnunarleik Baltic-keppninnar.
Baltic-keppnin í Austur-Þýskalandi:
Ballið byrjar í kvöld
Já, Baltic-ballið hefst í kvöld er íslenska
landsliðið í handknattleik mætirgestgjöfun-
um Austur-Þjóðverjum í Rostock og hefst
viðureignin kl. 16.30 að íslenskum tíma.
Hinar viðureignirnar í kvöld verða leikir
Sovétríkjanna og Póllands og V-Þýskalands
og Svíþjóðar.
Keppt verður síðan á hverju kvöldi fram
á sunnudag er íslendingar mæta nágrönnum
vorum og vinum(nema í íþróttum) Svíum.
Það er Ijóst að geysisterk lið eru mætt til
leiks á Baltic-keppnina í ár og víst að
róðurinn verður þungur fyrir okkar menn.
Viðureignin við Austur-Þjóðverja í kvöld
Jóhann Ingi kosinn
besti þjálfarinn
- af lesendum Handball Magazin
Jóhann Ingi Gunnarsson fyrrver-
andi landsliðsþjálfari og núverandi
þjálfari handknattleiksliðsins Tusem
Essen hefur verið kosinn þjálfari
ársins 1986 af Handball Magazin.
Þetta er mjög mikill heiður fyrir
þjálfara, þar sem Handball Magazin
er eitt af virtari tímaritum í Evrópu
sem fjalla um handknattleik.
Það eru lesendur blaðsins sem
velja þjálfara ársins og var þetta í
fjórða sinn sem hann er kosinn. Sem
dæmi má nefna að landsliðsþjálfari
V-Þjóðverja Schobel lenti í sjötta
sæti í kosningunni. Það er ekki að
sjá að lesendur tímaritsins hafi átt í
erfiðleikum með að velja þjálfarann.
Jóhann Ingi fékk 2416 atkvæði á
meðan Petre Ivanescu, sem varð í
öðru sæti-, fékk 1600 atkvæði.
Árangur Essen var mjög góður
undir stjórn Jóhanns Inga á síðast-
liðnu ári og ekki virðist vera neinn
afturkippur það sem af er árinu. í
fyrra lék Essen fjórtán leiki í röð í
fyrri hluta deildarkeppninnar þýsku
án taps. Liðið er nú komið í undan-
úrslit Evrópukeppni meistaraliða
eftir sigur á Dukla Prag, tékknesku
meisturunum.
Illur Boris úr leik
Wimbledonmeistarinn, táningurinn og Vestur-Þjóðverjinn (þó ekki
endilega í þessari röð) Boris Becker var sleginn út úr Opna ástralska
meistaramótinu i tennis í gær af heimamanninum Wally Masur. Fór tapið
illa í Becker sem blótaði og barði spaða sínum í völlinn oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar. Fékk hann fyrir það áminningu.
Af körfukonum
Þetta er Uð VífUfells í knattspyrnu en það sigraði nýlega í firmakeppni Gróttu í innanhússfótbolta.
Kókstrákamir sigraðu Granda í úrsUtaleik en í þriðja sæti lenti svo Uð A. Karlssons. AUs tóku
þrjátÍU Uð þátt í mótinu. Timamynd-Pjclur
verður kannski allra erfiðust en það fáum
við að sjá í ríkissjónvarpinu í kvöld en bein
útsending verður frá þessum opnunarleik
keppninnar sem fram fer í íþróttahöllinni í
Rostock sem tekur um fjögur þúsund
áhorfendur í sæti.
2.deildin í handknattleik:
Þórsarar
sigruðu
Fylki létt
Frá Gylfa Krístjánssyni á Akureyri:
Þórsarar áttu ekki í erfiðleikum
með að sigra Fylki er liðin léku í 2.
deildinni í handboltanum á Akureyri
um helgina. Úrslitin urðu 21-12 eftir
að staðan í hálfleik hafði verið 12-5
fyrir Þór.
Strax í byrjun var Ijóst hvert
stefndi. Þór skoraði þrjú fyrstu
mörkin og skömmu síðar var staðan
6-3. Þá komu sex mörk í röð frá
heimaliðinu en Fylkir skoraði síð-
ustu tvö mörk hálfleiksins og staðan
þá 12-5.
í síðari hálfleik var aldrei um
neina keppni að ræða, Þórsarar voru
með unninn leik og viðureignin þró-
aðist upp í algjöra vitleysu.
Með þessum sigri eru Þórsarar
enn í baráttunni um sæti í 1. deild að
ári, þeir eru fjórum stigum á eftir liði
í öðru sæti en eiga leik til góða.
Hermann Karlsson markvörður
Þórs var langbesti maður vallarins í
þessum leik. Sigurður Pálsson og
Sigurpáll Aðalsteinsson voru marka-
hæstu menn liðsins, hvor með 6
mörk, Kristinn Hreinsson með 3.
Hjá Fylki voru allir slakir og liðið
það lélegasta sem leikið hefur á
Akureyri í vetur. Flest mörk Árbæ-
inganna skoruðu Einar Einarsson 5
og Magnús Sigurðsson 3.
Körfuknattleikssambandið hefur
nú skipað í landsliðsnefnd kvenna
sem starfa mun út keppnistímabilið
1987-1988. í nefndinni eru Sigurður
Hjörleifsson, Margrét Eiríksdóttir,
Stefán Kristjánsson og Guðrún ÓI-
afsdóttir.
Af fyrirhuguðum verkefnum á
þessu ári er það fyrsta að unglinga-
landsliðið (stúlkur fæddar 1968 og
síðar) fer til Skotlands í lok febrúar
og leikur þar 2-3 leiki við Skota.
Unglingalandsliðið mun jafnframt
taka þátt í Norðurlandamóti í Nor-
egi í apríl n.k.
A-Iandsliðið fer í keppnisferð í
apríl til Lúxemborgar og leikur þar
landsleik og hugsanlega nokkra leiki
gegn félagsliðum. Þá eru möguleikar
á því að liðið leiki nokkra leiki næsta
haust.
Þjálfari hefur verið ráðinn Sigurð-
ur Hjörleifsson og mun vera í bígerð
að leggja sérstaka áherslu á upp-
byggingu unglingalandsliðsins. For-
ráðamenn körfuknattleikssam-
bandsins vonast til að það muni skiia
sér í auknum áhuga í yngri aldurs-
flokkum kvenna og þrýstingi á fleiri
félög að taka upp æfingar í kvenna-
flokkum.
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari
vestur-þýska handknattleiksliðsins
Tussem Essen: Kjörinn besti þjálfar-
inn í vestur-þýskum handknattleik á
síðasta ári. Mikill heiður fyrir snjall-
an þjálfara.
Iiminn DJÓÐVIUINM
S. 686300 S. 681866
Blaðburður er.
S.681333
BESTA TRIMMIÐ
ogborgar sigl
Eskihlíð
Mjóuhlíð
Skerjafjörð
Armúla
Suðurlandsbraut
Afleysing Vz mán.
Einimelur
Melhagi
Neshagi
HMINN Sföumúla 15 S 68 6300