Tíminn - 30.01.1987, Page 7
Tíminn 7
Föstudagur 30. janúar 1987
UTLOND
Frá Kína: „Borgaralegt frjálslyndi" er slæmt orð um þessar mundir og
flokkurinn hyggst taka upp baráttu gegn slíkri villutrú
Kína:
“Borgaralegt
frjálslyndi“
íordæmt af flokknum
Pekíng - Keuter
Kommúmstaflokkurinn í Kína hóf
nýja árið þar í landi í gær með
varnaðarorðum um að baráttu gegn
vestrænum hugmyndum myndi
verða haldið áfram í langan tíma.
Þessi barátta var þó ekki sögð munu
hafa áhrif á efnahagsstefnu og venju-
legt líf fólks.
Öll opinber dagblöð landsins birtu
harðorða forystugrein sem sér-
fræðingar sögðu sýna hinn aukna
styrk harðlínuafla í flokknum eftir
brottvikningu Hu Yaobang úr starfi
flokksformanns. Hinn umbótasinn-
aði Hu þurfti að vfkja úr starfi sem
næst æðsti ráðamaður landsins þann
16. janúar.
I forystugreininni var baráttan
gegn „borgaralegri frjálslyndis-
stefnu" sögð vera afar mikilvæg fyrir
„framtíð flokksins“.
„Borgaraleg frjálslyndisstefna“ er
annars það orðasamband sem notað
er af flokknunt til að lýsa vestrænum
lýðræðishugmyndum á neikvæðan
hátt. Þessar hugmyndir voru inn-
blástur mótmæla stúdenta í síðasta
mánuði þar sent krafist var meira
lýðræðis og minna flokksræðis.
Forystugreinin var birt undirfyrir-
sögninni „Verið harðari og meira
vakandi í baráttunni gegn borgara-
legri frjálslyndisstefnu" og var henni
beint til flokksmeðlima, reyndar tek-
ið fram að baráttan mætti ekki
breiðast út fyrir flokkinn og hafa
áhrif á venjulegt líf fólks.
Prír menntamenn hafa verið rekn-
ir úr flokknum í þessum mánuði,
sakaðir um að vilja innleiða „algjör
vestræn áhrif“ og þykir það benda til
að harðlínumenn innan flokksins
hafi aukið völd sín verulega að
undanförnu.
Persaflóastríðið: transkir hermenn í vörslu íraka
Ráðstefna múhameðstrúarríkja í Kuwait:
Hvatt til friðar
í Persaflóastríði
Kuwait - Reuter
Ráðstefnu leiðtoga múhameðs-
trúarríkja lauk í Kuwait í gær og var
þar endurnýjuð áskorun til stjórn-
valda í íran og írak að binda enda á
hið blóðuga stríð þjóðanna tveggja
sem staðið hefur yfir í sex og hálft ár.
1 yfirlýsingu sem birt var í lok
fjögurra daga ráðstefnu Samtaka
múhameðstrúarríkja var Persaflóa-
stríðið sagt vera alvarleg ógnun við
frið og öryggi á þessu svæði sem og
við alþjóðlegan frið.
Hvatt var til þess að hin 46
aðildarríki Samtaka múhameðstrú-
arríkja „ynnu saman að því að binda
enda á stríðið“.
íran er aðili að samtökunum en
fulltrúar þess létu ekki sjá sig í
Kuwait heldur gáfu út yfirlýsingu
þar sem sagði að íransstjórn myndi
í engu fara eftir samþykktum sam-
takanna.
Samkvæmt heimildum var hætt
við þá hugmynd að senda friðarsveit
til Teheran til að fá stjórnvöld í fran
til að taka vel í friðartilboð íraka.
Leiðtogarnir á ráðstefnunni munu
ekki hafa talið slíka leið vænlega til
árangurs.
Fermingar-
tilboð
— Ekki iáö nema í tíma sé
tekid. Leigjum út sali íyrii
feimingaiveislui.
— Tökum aö okkui aö sjá um
feimingarveislui í heima-
húsum. Fagleg þekking
ykkui aö kostnaðarlausu.
— útvegum öll áhöld sem til
þarf í feimingarveisluna og
losum ykkur jaínframt viö
uppvaskið ykkux aö kostn-
aðarlausu.
— Fermingarhlaöboröiö
okkai mœlir meö sér sjálft.
Verö i lágmarki - Gœöi í há-
marki.
SKEMMTISTADUR
Upplýsingar í
símum 4166 oq
4040
KvöUlverður, gisting, morgunveröur ú tiöeins
kr. 1500 pr. tnunn.
Tökum aó okkur smærri hópa og veitum afslátt.
Því ekki að bregða sér í helgarreisu
aö Blúa lóninu.
BLÁA LÓNIÐ
BOX 13. 240 GRINDAVÍK
SÍMAR: 92-8650 OG 92-8651