Tíminn - 31.01.1987, Qupperneq 19

Tíminn - 31.01.1987, Qupperneq 19
Tíminn 19 Laugardagur 31. janúar 1987 ÚTVARP/SJÓNVARP Rúmenska fimleikastúlkan Nadia Comaneci hefur hvað eftir annað unnið landi sínu dýrmæta sigra á alþjóðavettvangi. En oft hefur hún orðið að gjalda frægðina dýru verði. Fimleikastúlkan Nadia sigrumNadiuog ósigrum, alltfrá því hörkuþjálfarinn Bela Karolyi veitir henni athygli á skólavellinum 6 ára gamalli og tekur hana að sér til þjálfunar. Honum tekst að gera hana að margföldum verðlaunahafa á alþjóðlegum vettvangi, en sú leið hefur oft verið þyrnum stráð fyrir Nadiu. — v—Þýðandi er Gauti í myndinni er fylgst með Knstmannsson. Kl. 21.50 í kvöld verður sýnd í Sjónvarpinu bandarisk mynd um rúmensku fimleikastúlkuna Nadiu Comaneci sem vann hug og hjörtu almennings um allan heim þegar hún vann þrenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Montreal Helgi Tómasson ballettdansari hefur hlotið mikinn frama á erlendri grund. M.a. voru honum veitt bjartsýnisverðlaun Bröstes 1984 og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Stöð 2 heimsækir Helga Tómasson Kl. 20.40 á sunnudag sýnir Stöð 2 fyrsta þáttinn í nýrri þáttaröð undir nafninu íslendingar erlendis, en þar heimsækir Hans Kristján Árnason íslendinga sem búsettir eru erlendis. í þessum fyrsta þætti heilsar Hans Kristján upp á Helga Tómasson balletdansara og listastjóra San Francisco- ballettsins. Ágúst Baldursson stjórnaði upptökunni. Þessir þættir verða á þriggja vikna fresti. Rafn Jónsson ætlar að stikla á stóru í íslenskri tónlist síðustu 20 ára í dag á Rás 2. Þáttur hans byrjar kl. 13. Þær eru fráskildar og leita nýs lífs Kl. 21.50 á sunnudag verður sýnd á Stöð 2 bandarísk kvikmynd sem hefur verið gefið nafnið Á milli vina á íslensku (BetweenFriends). Þær Elizabeth Taylor og Carol Burnett fara þar með aðalhlutverk. Tvær fráskildar konur þurfa að byggja upp nýtt líf. Önnur hefur hallað sér að flöskunni og hin að elskhugum en þær styðja hvor aðra í viðleitninni við að skapa sér líf sem veitir þeim raunverulega lífsfyllingu. Húmar hægt að kvöldi í negraleikhúsi Tilvera afmælisbarna krydduð með kveðjum og gjöfum Kl. 21.20 á mánudagskvöld sýnir Sjónvarpið hið magnaða og víðfræga leikrit Eugene O'Neill Húmar hægt að kvöldi (Long Day‘s Joumey Into Night). Það er negraleikhús sem á heiðurinn af þessari uppfærslu og skipa svertingjar öll hlutverkin. Höfundurinn, Eugene O'Neill sækir margt til æskuáranna í föðurhúsum í leikritinu Húmar hægt að kvöldi, sem gerist á einum degi á heimili Tyronefj ölskyldunnar. James Tyrone er leikari sem nýtur ekki sömu frægðar og vinsælda sem fyrrum. Kona hans er haldin sektarkennd og flýr á vit fíkniefna og synir þeirra eiga líka við vandamál að stríða. Leikritið var nýlega sýnt hér í Þjóðleikhúsinu. Þýðandi er Jón O. Edwald. Ruby Dee leikur Mary Tyrone og Earle Hyman fer með hlutverk James Tyrone. u Við förum bara fetið“ í íslenskri tónlist Kl. 13.00 á mánudag sest Rafn Jónsson í hljóðstofu á Rás 2 og byrjar þátt sinn Við fömm bara fetið. Næstu þrjár klukkustundirnar ætlar hann að leika íslenska tónhst frá síðustu 20 ámm. Ekki ætlar Rafn að gera sögulega úttekt á þessu tímabili, en tínir til lög helstu hljómsveita sjöunda áratugarins, s.s. Hljóma, Trúbrots og Náttúm. Þá verður komið við á blómatímanum upp úr 1980 og þar má heyra Utangarðsmenn, EgóogBubbaMorthens. Og frá allra síðustu tímum má heyra t.d. í Possibillies og Sverri Stormsker. Þá má ekki gleyma Megasi sem eitthvað verður þarna á róli líka. Kl. 13.00 á sunnudag verður á Rás 2 þátturinn Krydd í tilveruna í umsjá Ásgerðar J. Flosadóttur. Afmæli'sbörn dagsins njóta sérlegrar athygh þáttarins og em lesnar kveðjur til þeirra, auk þess sem síminn er opnaður tvisvar í þættinum þar sem hlustendur geta sjálfir sent vinum og ættingjum kveðjur. En flestar koma kveðjurnar skriflega og eru þær alla jafna yfir hundrað talsins. Tvö nöfn em síðan dregin út úr bréfabunkanum og fær annað afmælisbarnið blómvönd frá Rás 2 en hitt hljómplötu að eigin vah. Utanáskrift þáttarins er: Krydd í tilvemna, Rás 2, Efstaleiti 1, 108 Reykjavík. Ásgerður J. Flosadóttir er umsjónarmaður þáttarins Krydd í tilveruna á Rás 2. Laugardagur 31. janúar 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur" Pétur Pét- ursson sér um þáttinn. Fróttir eru sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum er lesið úrforustugrein- um dagblaðanna en svo heldur Pétur áfram að kynna morgunlögin. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 í morgunmund. Þáttur fyrir böm í tali og tónum. Umsjón: Heiðdís Norðfjörð. (Frá Akur- eyri) 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Morguntónleikar. 11.00 Vísindaþátturinn Umsjón: Stefán Jökuls- son. ‘ 11.40 Næst á dagskrá Stiklað á stóru í dagskrá útvarps og sjónvarps um helgina og næstu viku. Umsjón: Trausti Þór Sverrisson. 12.00 Hér og nú. Fréttir og fréttaþáttur í vikulokin í umsjá fréttamanns útvarps. 12.45 Veðurfregnir. 12.48 Hér og nú, framhald. 13.00 Tilkynningar. Dagskrá. Tónleikar. 14.00 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál. Umsjón Þorgeir Ólafsson 15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tónmenntir á líðandi stund. Umsjón: Magnús Einarsson og Ólafur Þórðarson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Skeiðvöllurinn11 eftir Patriciu Wrightson í leikgerð Edith Ranum. Lokaþáttur: Hérinn vinnur. Þýðandi: Hulda Valtýsdóttir. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Leikendur: Ámi Bene- diktsson, Einar Benediktsson, Stefán Jónsson, Þórður Þórðarson, Eriingur Gíslason, Árni Tryggvason, FlosiÓlafsson, SigurðurSkúlason, Sigmundur örn Amgrímsson, Jón Gunnarsson, Guðrún Alfreðsdóttir, Valdimar Helgason og Benedikt Ámason. (Áður útvarpað 1976). 17.00 Að hlusta á tónlist. Sautjándi þáttur: Hvað er sinfónía? Umsjón: Atli Heimir Sveinsson. 18.00 íslenskt mál Jón Aðalsteinn Jónsson flytur þáttinn. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30Tilkynningar. 19.35 Skríðið til Skara. Þáttur í umsjá Halls Helgasonar og Davíðs Þórs Jónssonar. 20.00 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Högni Jónsson. 20.30 Herkonungur og menntafrömuður. Séra Sigurjón Guðjónsson ftytur frásöguþátt, þýddan og endursagðan. 21.25 íslensk einsöngslög. Kristján Jóhannsson syngur lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Markús Kristjánsson, Þórarin Guðmundsson og Emil Thoroddsen. Konunglega fílhamóníuhljóm- sveitin leikur með; Karsten Andersen stjórnar. 21.20 Á réttri hillu Umsjón: Öm Ingi. (Frá Akur- eyri). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Mannamót. Leikið á grammófón og litið inn á samkomu. Kynnir: Leifur Hauksson. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón örn Marin- ósson. 01.00 Dagskrárlok. RAS 9.00 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Steph ensen kynnir. 10.00 Morgunþáttur í umsjá Ástu R. Jó- hannesdóttur. 12.03 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist í umsjón Margrétar Blöndal. 13.00 Listapopp í umsjá Gunnars Salvarssonar. 15.00 Við rásmarkið. Þáttur um tónlist, íþróttir og sitthvað fleira. Umsjón: Sigurður Sverrisson ásamt íþróttafréttamönnunum Ingólfi Hannes- syni og Samúel Emi Erlingssyni. 17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin. Svavar Gests rekur sögu íslenskra söngflokka í tali og tónum. 18.00 Hlé 20.00 Kvöldvaktin - Gunnlaugur Sigfússon. 23.00 Á næturvakt með Andreu Guðmundsdóttur. 03.00 Dagskrárlok. Svæðisútvarp virka daga vikunnar 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5 MHz. Um að gera. Þáttur fyrir ‘unglinga og skólafólk um hvaðeina sem ungt fólk hefur gaman að. Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson. Laugardagur 31. janúar 14.55 Enska knattspyrnan - Bein útsending Tottenham-Crystal Palace eða Manchester Un- ited-Coventry í fjórðu umferð bikarkeppninnar. 16.45 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.05 Spænskukennsla: Hablamos Espanol. Annar þáttur. Spænskunámskeið í þrettán þáttum ætlað byrjendum og Spánarförum. ís- lenskar skýringar: Guðrún Halla Túliníus. 18.30 Ævintýri frá ýmsum löndum. Þýðandi Jó- hanna Jóhannesdóttir. Sögumaður Helga Jóns- dóttir. 18.55 Gamla skranbúðin. (The Old Curiosity Shop) 9. þáttur. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 19.20 Fréttaágrip á táknmáli. 19.25 Stóra stundin okkar. Umsjón: Elísabet Brekkan og Erla Rafnsdóttir. 20.00 Fréttir og veður. # 20.30 Lottó. 20.35 Nýtt líf - Seinni hluti. íslensk gamanmynd um tvo æringja á vertíð í Eyjum. Leikstjóri Þráinn Bertelsson. Aðalhlutverk Eggert Þorleifs- son og Karl Ágúst Úlfsson. 21.35 Fyrirmyndarfaðir. (The Cosby Show) - 6. þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur með Bill Cosby í titilhlutverki. Þýðandi Guðni Kol- beinsson. 21.50 Nadia. Bandarísk bíómynd frá árinu 1984. Leikstjóri Alan Cooke. Aðalhlutverk Talla Bals- am og Jonathan Banks. Saga rúmensku fim- leikastúlkunnar Nadiu Comaneci sem varð heimsfræg þegar hún vann þrenn gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Montreal árið 1976 aðeins fjórtán ára að aldri. Þýðandi Gauti Kristmanns- son. 23.25 Hotel New Hampshire. Bandarísk bíómynd frá árinu 1984, gerð eftir samnefndri metsölubók John Irvings. Leikstjóri Tony Richardson. Aðal- hlutverk: Jodie Foster, Beau Bridges, Rob Lowe og Nastassja Kinski. 01.15 Dagskráríok. Laugardagur 31. janúar 8.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir. Valdís leikur tónlist úr ýmsum áttum, Fréttir ki. 8.00 9.00 og 10.00. 12.00-12.30 í fréttum var þetta ekki helst. Rand- ver Þorláksson, Júlíus Brjánsson, Guðrún Þórð- ardóttir og Saga Jónsdóttir bregða á leik. 12.30-15.00 Jón Axei á Ijúfum laugardegi. Fréttir kl. 14.00. 15.00-17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson leikur 40 vinsælustu lög vikunnar. Fréttir kl. 16.00. 17.00-19.00 Ásgeir Tómasson á laugardegi. Léttur laugardagur með Ásgeiri, öll gömlu uppáhaldslögin á sínum stað. Fréttir kl. 18.00. 19.00-21.00 Rósa Guðbjartsdóttir líturyfiratburði síðustu daga leikur tónlist og spjallar við gesti. 21.00-23.00 Anna Þorláksdóttir í laugardags- skapi. 23.00-04.00 Jón Gústafsson nátthrafn Bylgjunnar heldur uppi stanslausu fjöri. 4.00- 8.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Harald- ur Gíslason leikur tónlist fyrir þá sem fara seint í háttinn og hina sem fara snemma á fætur. Lauaardaaur 31. janúar 09.00 Lukkukrúttin (Monsurnar). Teiknimynd. 09.30 Högnl Hrekkvlsl. Teiknimynd. 10.00 Penelópa puntudrós. Teiknimynd. 10.30 Herra T. Teiknimvnd. 11.00 Vængatákurinn (The Winged Colt). Ungliiigamynd. Frændi Charles, sem er ungur strákur, var staðgengill I kúrekamyndum. Charles heimsækir frænda sinn og hyggst læra af honum listina. Öllum til mikillar undrunar reynist eitt lolaldið á bænum geta flogið. 12.00 Hlé._____________________________________ 16.00 Hltchcock. Réttlæti (l'll be Judge Jury) Nýgift hjón á brúðkaupsferðalagi i Mexlkó eru myrt. Lögreglunni mistekst að sanna sekt morð- ingjans svo að ættingjar fórnariambanna taka til sinna ráða.____________________________ 17.00 Hinir öldruðu (The Last Of The Great Survivors). Bandarisk kvikmynd frá 1984 18.30 Myndrokk._____________________________ 19.00 Teiknimynd. Gúmmíbirnimir (Gummi Bears). 19.30 Fréttlr. 19.55 Undirheimar Miami (Miami Vice). Banda- rískur framhaldsmyndaflokkur með stórstjörn- unni Don Johnson í aðalhlutverki. Þátturinn var útnefndur besti spennuþáttur Bandarikjanna og Don Johnson hlaut útnefningu og síðan verð- laun sem besti spennuleikari Bandaríkjanna 1986. Crockett og Tubbs eru I þann veginn að koma upp um peningafalsara þegar einum falsaranna tekst að kveikja í húsi þar sem prentsmiðjan er staðsett. 20.45 Stjarna (Star). Bandarísk biómynd með Julie Andrews, Richard Crenna, Michael Craig og Daniel Massey i aðalhlutverkum. Myndin fjallar um lít og frama söngstjörnunnar Gertrude Lawrence (Julie Andrews). Fylgst er með sigr- um hennar í sviðsljósinu og hvernig hún fetar metorðastigann í Englandi meðan hún er í ástarsambandi við breskan aðaismann. 23.40 Orustuflugmaðurinn (Blue Max). Banda- rísk biómynd trá 1966 með George Peppard, James Mason og Ursula Andress í aðalhlutverk- um. 02.10 Myndrokk. 03.00 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.