Tíminn - 01.04.1987, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 1. apríl 1987
Tíminn 15
MINNING
lllllllllllllllllllllllllllllllll
Gísli Andrésson
Hálsi
MÖGNUÐ Ný]
M-F 3000 LÍNA!
Góður - Betri - Bestur ■
Fæddur 14. nóvember 1917
Dáinn 1. mars 1987
Á Skólavörðuholtinu í hinni ný-
vígðu Hallgrímskirkju, sem mun
vera stærsta guðshús á íslandi, fór
hinn 9. mars s.l. fram jarðarför
Gísla Andréssonar á Hálsi, en hann
lést í hörmulegu bílslysi 1. dag
marsmánaðar. Til þeirrar athafnar
komu á annað þúsund manns, til
þess að kveðja mikinn heiðursmann
og þakka góðvild og vel unnin störf
í þágu margvíslegra góðra málefna.
Sá, sem þetta ritar, átti þess ekki
kost að taka þátt í þessari fjölmennu
kveðjustund sökum fjarveru í mjög
fjarlægu heimshorni, en langar að
setja fram nokkrar minningar um
náinn samverkamann og góðan vin.
Ég minnist fyrstu kynna við Gísla
á Hálsi í sumardvöl á barnsárunum
að prestsetrinu Reynivöllum í Kjós
og var þá aðeins níu ára gamall, en
Gísli á Hálsi var tíu árum eldri.
Minnisstæðar eru samkomur Ung-
mennafélagsins „Drengur" í Kjós,
sem þá voru oft haldnar í „Þinghús-
inu“ á Reynivöllum. Þar fóru Háls-
bræður fremstir í flokki, og vel man
ég, hvernig sópaði að þeim Gesti,
Gísla og öðrum Hálsbræðrum.
Leiðir okkar Gísla lágu annars
lítið saman og kynni okkar urðu
ekki náin, fyrr en hann tók sæti í
stjórn Sláturfélags Suðurlands á ár-
inu 1964 og einkanlega eftir að hann
tók við stjórnarformennsku í Slátur-
félaginu af Pétri Ottesen, alþingis-
manni, eftir lát hans 1968. Um ættir,
uppruna, menntun og uppvaxtarár
Gísla Andréssonar mun ekki fjallað
hér, þar eð margir hafa gert þessu
góð skil í minningargreinum eftir
andlát Gísla á Hálsi, en mig langar
að rifja upp nokkur atriði úr ágætu
starfi þessa látna sómamanns í þágu
Sláturfélags Suðurlands og kynni
mín af honum á þeim vettvangi.
Frá stofnárinu 1907 til 1968 höfðu
aðeins tveir menn gegnt formennsku
í stjórn S.S., þeir Ágúst Helgason í
Birtingaholti, 1907-1948, og Pétur
Ottesen, alþingismaður, 1948-1968.
Það var mikill vandi á höndum þeim
manni, sem valdist til þess að taka
við formannsstörfum eftir þessa
skörunga, en til þess kusu sunnlensk-
ir bændur Gísla Andresson, Hálsi í
Kjós. Hann naut frá upphafi trausts
og vaxandi virðingar innan Sláturfé-
lags Suðurlands og á hann hlóðust
margvísleg trúnaðarstörf fyrir alla
bændastétt landsins. Hefur Gunnar
Guðbjartsson, fyrrv. formaður
Stéttarsambands bænda, látið þau
sönnu orð falla nýlega, að „með
Gísla er fallinn einn af atkvæða-
mestu félagsmálamönnum, sem
starfað hefur fyrir bændastéttina síð-
ustu áratugina." Bændur hafa misst
skeleggan, traustan foringja og bar-
áttumann fyrir betri lífskjörum.
Hann var íslenskum bændum einnig
góð fyrirmynd. Búskapur á Hálsi
var jafnan framúrskarandi um
ræktun, húsakost og gæði framleiðsl-
unnar.
Það kom oft í hlut Gísla Andrés-
sonar eftir að hann tók við for-
mennsku í S.S. að stjórna fjölmenn-
um fundum og fórst það jafnan vel
úr hendi, enda mikill félagsmála-
maður og góður fundarstjóri.
Samstarfsmenn Gísla á Hálsi í
S.S. sakna hollráðs vinar. Hann var
skoðanafastur og vildi jafnan hafa
rétt við, ótrauður og ósérhlífinn.
Framkoma hans var jafnan glæsileg
og átti að nokkru rætur í ástundun
íþrótta og menntun á því sviði á
yngri árum. Gísli vildi jafnan að
Sláturfélagið væri í fararbroddi.
Hann hvatti okkur samstarfsmenn-
ina til þess að fylgjast vel með
nýjungum innanlands og ekki síður
á erlendum vettvangi og var’jafnan
ákafur að taka upp nýjar fram-
leiðslu- og söluaðferðir, sem tjl fram-
fara horfðu. Mér fannst það sameig-
inlegt með Gísla og forvera hans í
formannsstarfi, Pétri Ottesen, al-
þingismanni, að þeir virtust verða
enn víðsýnni og framfarasinnaðri
eftir því sem árin færðust yfir, ólíkt
því, sem fer um flesta aðra menn.
Andlát Gísla Andréssonar bar
mjög skyndilega að. Við höfðum
starfað saman að undirbúningi 80
ára afmælishátíðar í tengslum við
aðalfund Sláturfélagsins í apríllok,
glaðst yfir að geta þá gert okkur
dagamun og gefið félagsmönnum
árlegar skýrslur og nú um bætta
rekstrarafkomu. Dimman skugga
ber á afmælissamkomur okkar, sem
fram munu þó fara eins og til var
stofnað, enda væri annað síst hinum
látna formanni að skapi.
Vinir og samstarfsmenn Gísla
munu lengi geyma minningarnar um
hinn látna drengskaparmann oggóð-
an samstarfsmann. EiginkonaGísla,
Ingibjörg Jónsdóttir, ljósmóðir, frá
Gemlufalli við Dýrafjörð, Iifir mann
sinn. Hún tók jafnan af brennandi
áhuga og dugnaði þátt í störfum
manns síns heima og heiman og var
honum styrk stoð. Við vottum Ingi-
björgu og hinum stóra og glæsilega
barna- og barnabarnahópi þeirra
Gísla innilega samúð.
Jón H. Bergs
Dráttarvélin
M-F sem þig vantar
Massey-Ferguson
KAUPFÉLÖGIN OG
BÚNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SlMI 38900
IIMINN Síðumúla 15 © 68 63 00
Blaðberar óskast
frá 1. apríl
SELTJARNARNES:
Melabraut,
Skólabraut,
Suðurströnd,
Unnarbraut,
v/Nesveg,
Lambastaðabraut,
Selbraut,
Sólbraut, Sæból og
Tjarnarból.
Tíminn
DJðÐVILJINN
S.686300
S.681866
S.681333
Blaðburður er
Viö óskum eftir starfsfólki í eftirtalin störf.
1. LAGERSTARF
Um er aö ræöa starf á fatalager. Leitað er að
starfskrafti á aldrinum 35-50 ára.
2. SENDLASTÖRF.
Leitaö er að unglingum í heildagsvinnu.
Umsóknareyöublöö fást hjá starfsmannastjóra er
veitir nánari upplýsingar.
SAHIBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Óskað eftir að
komast í sveit
14 ára strák langar tíl að komast í sveit helst á
Norðurlandi (þó ekki skilyrði).
Upplýsingar í síma 93-1400, Þórður Már.
t
Móðir okkar
Margrét Þorsteinsdóttir
fyrrum húsfreyja, Hallanda, Hraungerðishreppi Flóa
Þinghólsbraut 35
andaðist22.mars. Útförinhefurfariðfram. Þökkumauðsýndasamúð.
Börn, tengdabörn og barnabörn.