Tíminn - 11.04.1987, Side 2

Tíminn - 11.04.1987, Side 2
2 Tíminn Laugardagur 11. apríl 1987 Jón Helgason. og styrkja markaði fyrir landbúnað- arvörur hefðu skilað umtalsverðum árangri. Sala smjörs og osta hefði aukist verulega á undanförnum mán- uðum. Markaðsátakið varðandi fjallalambið á síðsumarmánuðum s.l. árs hefði aukið kjötsöluna úr 500 tonnum á mánuði í 900 tonn. Jón sagði að halda yrði áfram á sömu braut. Sama gilti um eflingu nýrra búgreina. Vænlegar horfði nú með loðdýraræktina, sérstaklega minkaræktina, en áður hefði verið. Fiskeldi mætti auka enn frekar og hvers kyns ferðamennsku. Framsóknarflokkurinn er í raun eini valkosturinn fyrir bændur í þessu landi, því hann vildi stefna fram í tímann í stað þeirra eilífu skammtímalausna, sem hinir flokk- arnir og flokksbrotin legðu til. Ömurlegt væri að heyra frambjóð- endur Þjóðarflokksins reyna sí og æ að gera nýjungar í landbúnaðar- framleiðslu að háði og spotti. Slík viðhorf bæri aðeins vott um þröng- sýni og afturhald. Borgaraflokkur- inn legði það eitt til málanna að afnema allar niðurgreiðslur vegna afurðanna. Jón Baldvin réri svo undir með sína „patentlausn" á vandamálum landbúnaðarins, sem felst í því að leggja niður samvinnu- félögin. Þetta væri í hnotskurn það sem sykurvatnsmennirnir vildu gera í landbúnaðarmálum. Þá benti land- búnaðarráðherra á að launaliðurinn í verðlagsgrundvelli búvara hefði aldrei verið nær launum viðmiðunar- stéttanna en einmitt nú. „Það verður kosið um heilbrigt skipulag í sölumálum landbúnaðar- ins, eins og Framsóknarflokkurinn hefur unnið við að koma á, eða niðurrifsstarfsemi og skammtíma- lausna brotabrotsflokkanna, Al- þýðubandalags og Alþýðuflokks þann 25. apríl,“ sagði Jón Helgason landbúnaðarráðherra. Það kom fram í máli Sæmundar Kristjánssonar framkvæmdastjöra Fóðuriðjunnar í Ólafsdal að menn hefðu miklar áhyggjur af framtíð verksmiðjunnar og vildi hann fá að vita hvað ráðamenn ætluðust fyrir varðandi starfsemina. Kom fram í máli Jóns að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um það í ríkisstjórn, en ákjósanlegast væri að Dalamenn tækju hana í sínar hendur. Davíð Aðalsteinsson sagði að ekki kæmi til mála að leggja starfsemina niður. Þá minnti Davíð menn á að vandinn í landbúnaðarframleiðslunni væri ekki nýr og ætti sér langan aðdrag- anda. Nú loksins væri framleiðslan að nálgast það að vera í takt við markaðinn og það skipti öllu máli fyrir framleiðendurna. Alexander Stefánsson félagsmála- ráðherra tók í sama streng og sagði að finna yrði strax lausn á þeim vanda. Þá kom fram hjá Alexander að ekki kæmi til mála að leggja niður Mjólkursamlagið í Búðardal eða þá Mjólkurbúið í Borgarnesi. En kvis- ast hefur að nefnd, sem er að athuga málefni mjólkurvinnslunnar í land- inu muni gera slíkt að tillögu sinni. Steinunn Sigurðardóttir, sem skipar þriðja sætið á lista flokksins í kjördæminu, minnti menn á tillögur Framsóknarkvenna varðandi opin- bera stefnu í manneldis- og neyslu- málum, sem hefði það markmið að stuðla að betra mataræði og heil- brigði í landinu. Þar gætu landbún- aðarafurðir gegnt mikilvægu hlut- verki. ÞÆÓ Jón Helgason landbúnaðarráðherra í Búðardal: „Vilja bændur flokksbrota og sykurvatnsmenn“ - Vandamál Fóðuriðjunnar verða leyst segja Alexander Stefánsson og Davíð Aðalsteinsson Nýlega var haldinn, að frumkvæði framsóknarmanna á Vesturlandi fundur í Búðardal með Jóni Helga- syni landbúnaðarráðherra um stöð- una í landbúnaðarmálum. En í Dala- sýslu skiptir landbúnaðurinn og við- gangur hans öllu máli. Landbúnaðarráðherra rakti gang mála í atvinnugreininni síðustu fjög- ur árin og nauðsyn þeirra aðgerða sem gripið hefði verið til. Búvöru- lögin frá vormánuðum 1985 hefðu verið nauðsynleg aðgerð til að bæta úr þeim vanda sem óheft offram- leiðsla hefði valdið. Fólk hlyti að sjá fáránleikann í því að framleiða vöru sem seldist ekki. Þær aðgerðir sem hann hefði stað- ið fyrir á undanförnum misserum hefðu verið unnar í samvinnu við Stéttarsamband bænda og skyldi ætla að það væri best fært um að meta hvað kæmi bændastéttinni í landinu- best við slíkar aðstæður. Búmarkið, sem Pálmi Jónsson land- búnaðarráðherra Sjálfstæðisflokks- ins bæri mesta ábyrgð á, hefði aðeins verið innistæðulaus ávísun fyrir bændastéttina. Framlenging búvörusamningsins til 1992 mundi tryggja eðlilegan aðlögunartíma fyrir þær búhátta- breytingar sem nauðsynlegt hefur verið að takast á hendur. Þetta kölluðu niðurrifsmennirnir á DV síðan „þjófnað aldarinnar“, þannig væri viðhorfið á þeim bæ til landbún- aðarins og bændastéttarinnar. Þá nefndi Jón Helgason nokkur skýr dæmi um að aðgerðir til að auka • 2 4 SUBARU 1800 4WD station að verðmaeti kr. 600.000 hver 18 SUBARU JUSTY 4WD að verðmæti 350.000 hver HAPPDRÆTTl Slysavamafélags íslands

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.