Tíminn - 11.04.1987, Qupperneq 6
6 Tíminn
Wencke Myhre vill nú vera sem
mest með bömunum sínum fjórum
og ætlar að minnka við sig vinnuna.
Fjölskyldulífið á nú að hafa for-
gang hjá Wencke Myhre og Micha-
el Pfleghar.
Katharine
Hepburn
skrifar bók
K
lATHARINE Hepburn var
illa haldin af niðurgangi og var
stöðugt óglatt. Svæðið þar sem
verið var að mynda „African Qu-
een“ inn í frumskógum Afríku var
allt vaðandi í maurum. Búnings-
herbergið hennar var úr bambus
og pálmablöðum og með moldar-
gólfi!
En það versta var samt, - að
vinurinn, hann Spencer Tracey,
var í mörg þúsund mílna fjarlægð.
Hcpburn og Bogart í Afríku. Nú
rifjar leikkonan upp atburðina í
bók sinni
Auðvitað var gott og áhugavert
fólk á vinnustað með henni, svo
sem eins og Humphrey Bogart og
kona hans Lauren Bacall og stjórn-
andinn John Huston. Svo mátti sjá
þarna fullt af flóðhestum, og einn
og einn krókódíl, segir Katharine
Hepburn í nýrri bók sem er að
koma út eftir hana og heitir „The
Making of the African Queen“.
Hún kennir bók sína við gerð
þessarar kvikmyndar, því að sú
mynd hafi komið með breytingu og
nýtt líf í leikferil sinn.
Vinnutitill bókarinnar segir
leikkonan að sé „Sköpun afrísku
drottningarinnar, - eða þegar ég
fór til Afríku með Bogey, Bacall
og Huston og nærri missti vitið".
Wencke Myhre
tekur móðurhlut-
verkiðframyfir líf í sviðsljósinu
NORSKA söngkonan
Wencke Myhre hefur lengi
verið eftirlæti þýska
skemmtanaheimsins. Hún hefur
lengi verið vinsæl sjónvarpsstjarna
þar í landi og plötur hennar hafa
selst eins og heitar lummur. Pess
vegna fylgir því nokkur eftirsjá í
þeim herbúðum þegar Wencke
hefur nú látið það spyrjast að hún
hafi í hyggju að draga sig í hlé í
skemmtanaheiminum, hún ætli að
helga sig búi, börnum og eigin-
manni næstu árin. Hún stendur nú
á fertugu.
Hingað til hefur einkalíf Wenc-
kes ekki verið neitt einkamál
hennar. Þýskir aðdáendur hennar
fylgdust með því af einlægri
hneykslun þegar þáverandi eigin-
maður hennar, danski tannlæknir-
inn Torben Friis Möller fór fram á
skilnað árið 1980, eftir ellefu ára
hjónaband, og hafði fundið sér
aðra konu. í sárum sat Wencke og
börnin þeirra þrjú. Kim er nú 15
ára, Dani 13 ára og Fam ellefu ára.
í hópinn hefur bæst Michael, nú
fjögurra ára, fæddur í hjónabandi
Wenckes og þýska kvikmynda-
leikstjórans Michaels Pfleghar.
Wencke segist hafa farið að
hugsa sinn gang fyrir 5 árum. Þá
var hún stödd í Basel og vann við
upptöku á sjónvarpsþætti þegar
henni bárust fréttir um að börnin
hennar hefðu dottið niður um ís á
Oslófirði og verið hætt komin.
Hún, sem áður hafði ekki getað
hugsað sér líf án söngs, dans og
sviðsljósa, fór að sjá það í öðru
ljósi.
Það er reyndar fulldjúpt í árinni
tekið að segja að Wencke hafi sagt
algerlega skilið við sviðsljósin, en
hún ætlar að minnka talsvert við
sig vinnuna og halda sig meira
heima við, eiginmanni og börnum
til mikillar ánægju.
Laugardagur 11. apríl 1987
llll BLÖÐ O.G TÍMARITJÍ
Tímarit MM um fjölmiðla o.fl
Fyrsta hefti Tímarits Máls og menning-
ar 1987 er komið út og er aðalefni þess
fjórar greinar um fjölmiðla, einkum út-
varp og sjónvarp. Má þar nefna erindi
Stefáns Jóns Hafstein sem hann flutti á
Rás 1 nýlega og nefnir Kreppu í ríkis-
fjölmiðlum. Einar Örn Benediktsson fjöl-
miðlafræðingur, kunnur sem Kuklari og
Sykurmoli, rekur afdrif menningarstefnu
ríkisútvarpsins frá upphafi, og Þorbjörn
Broddason skrifar um Samvitundina og
ljósvakann, fróðlega úttekt á sambýli
þjóðar og ríkisútvarps.
Halldór Laxness er 85 ára í vor og er í
tilefni af því birt í tímaritinu, í tveim
hlutum, grein eftir Peter Hallberg sem
heitir Listin að ljúka sögu.
Þá eru mög Ijóð í tímaritinu og löng
smásaga eftir ensku skáldkonuna Margar-
et Drabble sem kom í heimsókn til íslands
fyrir tæpu ári. Smásaga er eftir nýliðann
Agúst Sverrisson og heitir Saknað,. Ör-
sagan Nóvembermorgunn er líka eftir
nýliða á þessu sviði, Agústu Snæland, en
hun hefur lagt hönd á aðrar listgreinar.
Þorleifur Hauksson minnist Snorra
Hjartarsonar í heftinu. Þá eru ýmsir
ritdómar í tímaritinu og ádrepa eftir
Einar Kárason.
Tímarit Máls og menningar er 128 bls.,
prentað í Odda. Kápu hannaði Teikn.
Ritstjóri er Silja Aðaísteinsdóttir.
Fréttabréf MENOR
- Menningarsamtök
Norðlendinga
2. tbl. 5. árgangs af Menor, fréttabréfs
Menningarsamtaka Norðlendinga er
nýkomið llt'. Ritstjórarabb er tremst í
blaðinu eftir Hauk Ágústsson, formann
MENOR. Forsíðumyndin er eftir Lars
Emil Árnason, myndlistarmann á Hofs-
ósi, sem er með sýningu á verkum sínum
í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi.
Þá ersmásagan Nótt eftir Jón Erlendsson,
en hún hlaut fyrstu verðlaun í smásagna-
keppni MENOR og Ríkisútvarpsins á
Akureyri.
Þættir úr sögu MENOR eftir Guðmund
Ármann segja ýmsar fréttir af menningar-
samtökunum, og einnig eru frásagnir af
sönglífi norðanlands, sýningu Bjarna Ein-
arssonar í Dynheimum á Akureyri og
tónleikum Þórarins Stefánssonar, píanó-
leikara. Ýmsar MENOR-fréttir eru svo
að lokum í þessu blaði.
Nýr Hafnarpóstur
Útgefendur Nýs Hafnarpósts eru ís-
lendingafélagið og Félag íslenskra
námsmanna í Kaupmannahöfn. í þessu
blaði eru aðallega upplýsingar um páska-
og sumarflug SIDS 1987, og aftast er
pöntunarseðill til að klippa út og senda til
SIDS á heimilisfangið sem á honum
stendur. Það er Gunnar Snælundur Ingi-
marsson sem vann að þessu blaði.
Nýr Hafnarpóstur er prentaður í 1200
eintökum.
¥ÉSJ\IR&
IMMUSmHF
Jámhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES:............ 93-7618
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐARKRÓKUR: ... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR: ....... 96-71489
HUSAVÍK:...... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ......... 97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .. 97-3145/3121
FÁSKRUÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
ínterRevtt