Tíminn - 11.04.1987, Page 7

Tíminn - 11.04.1987, Page 7
Tíminn 7 Laugardagur 11. apríl 1987 llillll LEIKLIST - ,nr jliE ;|jr Tilefni til óánægju Leikfélag Reykjavíkur: ÓÁNÆGJU-KÓRINN eftir Alan Ayck- bourn. Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Bún- ingar: Una Collins. Leikstjórn: Þor- steinn Gunnarsson. Alan Ayckbourn er sagður vinsæll og mikilsmetinn gamanleikja- höfundur í Bretlandi, og vel trúi ég því, þótt furðu smekklaust megi heita að líkja honum við Moliere eins og hermt er í leikskrá að gert hafi verið. En Ayckbourn er mór- alskur gamanleikjahöfundur, af þessum leik að dæma, og síst er að efa góða verkfærni hans, - maðurinn er leikinn í fagi sínu, ekki að því að spyrja. I meðförum Breta með sína þaulræktuðu hefð gamanleikja er þetta áreiðanlega efni í stórskemmti- lega sýningu. En - best að játa undanbragðalaust að ég hafði litla ánægju af sýningu L.R. á þriðjudags- kvöldið. Sýninguna brestur einfald- lega fjör og snerpu, hugkvæmni og djörfung. Hún var dæmigert meðal- lag, hvernig sem á er litið. Og ef gamanleikur á raunverulega að ná því að kæta áhorfandann verður hann að ná uppfyrir þá miðlungs- mennsku sem þessi sýning var að mestu leyti. Vissulega hefðu allar forsendur átt að vera fyrir því í Iðnó. Óánægjukórinn er gamanleikur í klassískum sniðum: Hversdagslegur meinleysingi kemur inn í samfélag fólks sem býr við margs konar ófull- nægju, áhugaleikarar sem basla við að setja á svið Betlaraóperuna eftir John Gay. Æfingar ganga hörmu- lega, leikstjórinn er gjörsamlega að bugast. Togstreita. öfund, afbrýði- semi og aðrir lestir leika lausum hala í samskiptum þessa fólks, - þetta er sem sagt ósköp venjulegt mannlegt samfélag, eins og hjá okkur öllum. Guy Jones kemur inn í þennan hóp og verður í skjótri svipan sá sem allt snýst um, bjargvættur sem hleypur í skrápana til að leiksýningin megi halda áfram. En um leið setur hann af stað skriðu meðal samstarfsfólks- ins. Konur falla fyrir honum þegar í Þau leika öll hjá leikfélaginu SOLD, sem er að setja upp Betlaraóperuna. Hér slappa af eftir æfingu: Ian Hubbard (Jakob Þór) Guy Jones (Sigurður) og Fay Hubbard (Ragn- heiður Elfa). stað en hann á bágt með að gera upp á milli þeirra. - Inn í leikritið er fléttað söngvum, misgóðum. Hvernig stendur á því að sýningin í Iðnó er ekki skemmtilegri en raun ber vitni? Ég hygg að leikstjórinn hefði þurft að draga miklu sterkar fram hinn gróteska húmor verksins. Persónurnar eru skopgervingar, og því var að minni hyggju misráðinn sá raunsæilegi, hæggengi leikstíll sem Þorsteinn Gunnarsson valdi sýningunni. Einnig vantaði tilfinnan- lega erótíska spennu í samleik Guys og kvennanna Fay og Hönnu. Þetta er hvorki meira né minna en aðal- kjarni verksins svo að súspennuslök- un fer langt með að drepa niður ánægju manns af sýningunni. Að þessum harða dómi upp kveðnum um heildaráhrif leiksins er skylt að játa að hið reynda leikaralið skilaði lýtalausri vinnu eins og reyndar var að vænta. Sigurður Sig- urjónsson er gestaleikari, fenginn að láni frá Þjóðleikhúsinu til að fara með aðalhlutverkið, Guy Jones. Sig- ur er reyndur skopleikari eins og alþjóð veit, sýnir ekki á sér nýja hlið og hinn tempraði leikmáti sem leik- stjórinn hefur valið veitir Sigurði líiið tækifæri til að blómstra í hlut- verkinu, hann ræður ekki við þau fínu blæbrigði sem til þarf. Ragn- heiður Elfa Arnardóttir var cggjandi sem Fay og vantaði ekki nema herslumun að neistaði milli hennar og Sigurðar. Kjartan Ragnarsson, Dafyð leikstjóri, er fremur sjaldséð- ur á leiksviði nú orðið, enda nýtur hann sín betur sem höfundur og leikstjóri. - Af leikendum í smærri hlutverkum báru þeir eldri af, Guð- rún Ásmundsdóttir og Karl Guð- mundsson sér í lagi. Guðrún bjó til skemmtilega manngerð. í smærri hlutverkum auk þeirra voru Jakob Þór Einarsson, Steindór Hjörleifs- son, Margrét Ólafsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Hanna María Karlsdóttir og Þröstur Leó Gunnars- son. Aftur reynir meira á Margréti Ákadóttur í hlutverki Hönnu. konu leikstjórans. Allt slétt og fellt, en tíðindalaust. Karl Ágúst Úlfsson þýddi leikinn á lipurt mál og eðlilegt og söng- textarnir eru líka bærilega þýddir. Fagmennskan við sýninguna er þannig í lagi, en herslumuninn vant- ar til að verkið lifni á sviðinu, þann neista sem gerir leiksýningu að hríf- andi reynslu, því miður. Gunnar Stefánsson IAUSAR STÖEXJR HiÁ REYKJAVIKURBORG Ráðskona - sumarstarf í Árbæjarsafni er staða ráðskonu við Dillonshús laus til umsóknar. Hlutverk ráðskonu er að annast daglegan rekstur kaffisölunnar í Dillonshúsi á opnunartíma safnsins. Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umóknarfrestur er til 27. apríl 1987. Nánari upplýsingar um starfið veitir borgarminjavörður í síma 84412. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5- hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. rmj LAUSAR STÖÐUR HJÁ ÍWl REYKJAVIKURBORG Ritari óskast til starfa á Kjarvalsstöðum í fullt starf, sem fyrst. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á vélritun, íslensku, svo og kunnáttu í einu Norður- landamáli og ensku. Mikilsvert er að viðkomandi hafi áhuga á myndlist. Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til 22. apríl. UpplýsingarveitirEinarHákonarson í síma26180. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. rinl IAUSAR STÖÐUR HJÁ m REYKJAVIKURBORG TÓNLIST VINAMINNI Helga Ingólfsdóttir semballeikari mun leika á vegum Tónlistarfélags Kristskirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 20.30. Tónleikarnir verða í Kristskirkju, sem um nokkuð skeið hefur verið lokuð almenningi vegna stórfelldra viðgerða, innan og utan. Nú hefur kirkjan verið opnuð á ný, og er messað þar á hverjum degi eins og áður, en viðeigandi tónleikar verða haldnir þar á vegum félagsins nokkuð reglulega í vor og sumar. Á þessum tónleikum á miðviku- dagskvöldið, sem eru opnir öllum almenningi, mun Helga leika verk frá 17. og 18. öld. Þau eru eftir Purcell, Froberger, Forquery, Co- uperin og Bach, og eiga það sameig- inlegt að vera samin til minningar um vini tónskáldanna. Nefnir Helga því tónleikana „Vinaminni". Flest verkanna hafa ekki verið flutt á opinberum tónleikum í Reykjavík áður og eru sum þessara gömlu tónskálda, svo sem Froberger og Forquery, lítið sem ekkert þekkt hér á landi. Á sínum tíma voru þeir þó í hópi mestu meistara í semballeik og tónsmíðum og sama má segja um Louis Couperin, sem var ættingi Francois Couperin „hins mikla“. Það verk á efnisskránni sem helst er þekkt hér, og er reyndar með vinsæl- ustu sembalverkum allra tíma, er Krómatíska fantasían í d-moll eftir Bach, en hana samdi Bach eftir skyndilegt fráfall fyrri konu sinnar Maríu Barböru. „Vinaminni", sembaltónleikar Helgu Ingólfsdóttur, eru þriðju tón- leikar Tónlistarfélags Kristkirkju á þessu ári, 1987. Þann 26. apríl gengst félagið fyrir Skáldavöku, í samvinnu við Mál og menningu. Munu sex íslensk ljóðskáld lesa þar úr verkum sínum og einnig munu hljóðfæraleikarar flytja íslensk tón- verk og franska barrokkmúsík. Skáldavakan verður haldin í minn- ingu Kristínar Önnu Þórarinsdóttur, sem lést á s.l. ári, en hún var tvímælalaust meðal bestu ljóðaflytj- enda landsins. Helga Ingúlfsdóttir. m LAUSAR STÖÐUR HJÁ LwJ REYKJAVIKURBORG Staöa forstööumanns viö dagh./leiksk. Hálsaborg, Hálsaseli 27 og Fellaborg, Völvufelli 9 eru lausar til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 26. apríl. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón- arfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða rafeinda- verkfræðing eða tæknifræðing til starfa við stjórn- kerfi og rafeindabúnað veitunnar. Upplýsingar um starfið veitir Árni Gunnarsson í síma 82400. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Hafnarbúðir Hjúkrunarfræðingar nv Hafnarbúðir er lítill en mjög þægilegurvinnustaður, góður starfsandi og gott fólk. Þangað vantar nú hjúkrunarfræðinga á næturvaktir. - Athugið að þeir sem taka 60% nv fá deildarstjóralaun. Upplýsingar veittar í síma 19600-300, hjúkrunarstjórn. Alla daga. $ upfélag ^^^angæinga Aðalfundur félagsins verður haldinn að Heima- landi, þriðjudaginn 5. maí kl. 14.00. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins. Stjórnin

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.