Tíminn - 11.04.1987, Page 8

Tíminn - 11.04.1987, Page 8
8 Tíminn Laugardagur 11. apríl 1987 Timiim MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoöarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Birgir Guömundsson Eggert Skúlason Steingrímur G íslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:. 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Hafskipsmálið Öldur rísa hátt vegna Hafskipsmálsins þessa Tiagana. Nýstofnaður stjórnmálaflokkur er skilgetið afkvæmi þess. Einkabanki rís á rústum lamaðs ríkisbanka, sem gjaldþrot Hafskips dró með sér á fallinu. Opinber ákæra hefur verið gefin út og sakargiftir tilgreindar. Fjórir forráðamenn Hafskips eru ákærðir fyrir margvísleg brot og sjö bankastjórar fyrir vanrækslu í starfi. Starfandi bankastjórar Útvegsbankans hafa beðist lausnar á meðan mál þeirra eru vegin og metin af dómstólum. Þótt Hafskipsmálið sé nú fyrst orðið opinbert dómsmál má segja að það hafi að miklu leyti verið rekið fyrir opnum tjöldum allt frá því að skipafélagið var lýst gjaldþrota, og jafnvel fyrir þann tíma. Margt hefur stuðlað að því. Dauðateygjur fyrirtækisins voru harðar fyrir gjaldþrotið, stjórnmálatengsl blönduð- ust í málið og ríkisbanki riðaði til falls. Umfang þrotabúsins er svo mikið að það hlaut að verða Ijóst við hvað skiptaráðendur höfðu að glíma. Þingskipuð nefnd rannsakaði tengsl Útvegsbankans og Hafskips og skilaði skýrslu. Rannsóknarlögregla ríkisins greip til ráða sem hlutu að vekja mikla athygli og skattarannsókn var óhjákvæmileg í kjölfar alls þessa. Hafskipsmenn hafa látið margt frá sér fara sér til varnar. Sjónarmið þeirra hafa komið fram í greinum og viðtölum í fjölmiðlum og einn þeirra skrifað og gefið út bók, sem er samfelld varnarræða. Mikil, en ekki alltaf að sama skapi ítarleg, fjölmiðla- umfjöllun heldur málinu sívakandi manna á meðal sem og öll þau gríðarlegu umbrot sem eru bein afleiðing gjald- þrotsins. Þegar nú ákæruatriði liggja fyrir og málið, eða málin, eru komin til dómsrannsóknar er von til að öldur lægi og að réttvísin hafi starfsfrið til málsrannsókna og dómsupp- kvaðningar. Sókn og vörn í Hafskipsmálum fer nú fram fyrir hlutlausum dómstólum. Fjölmiðlar fylgjast að sjálfsögðu með framvindu mála, en það er ekki hlutverk þeirra að taka-þátt í málatilbúnaði, hvað þá að setja upp dómssal, þar sem starfsmenn leika hlutverk dómara og sakborning- ur leikur einleik í vörn síns málstaðar og ber fram grófar ásakanir á hendur ákæruvaldi. Menn geta haft sínar skoðanir á réttarkerfinu og ekki er óeðlilegt að þeir sem eiga þar undir högg að sækja grípi til að lýsa það marklaust og hlutdrægt. En varast ber að veita slíkum ásökunum brautargengi í hóflausum mæli. Lausnarbeiðni bankastjóranna er sjálfsögð og sýnir að þeir hafa til að bera siðferðisþrek, sem því miður er sjaldgæft hér á landi, þegar vafaatriði í sambandi við grun um misferli koma upp. Bankastjórunum ber saman um að þeim sé ekki alveg Ijóst í hverju ákærurnar um vanrækslu og hirðuleysi í starfi felist. En með slíkar ákærur yfir höfði sér telja þeir ekki við hæfi að stjórna banka á meðan rannsókn fer fram. Hafa ber í huga að ákæra um misferli er ekki hið sama og að sök sé sönnuð. Það er dómstóla, og dómstólanna einna, að kveða upp sektardóma. Það er langt því frá að Hafskipsmálið heyri sögunni til. Dómsrannsókn er rétt að hefiast og þar verður tekist á um ákærur og málsbætur. A meðan sú málsmeðferð stendur yfir ættu fjölmiðlar og aðrir að halda ró sinni og virða þá gömlu réttarreglu að enginn er sekur fyrr en sök er sönnuð. Umrótið í kjölfar gjaldþrotsins hefur hvergi nærri lægt og má vera að það hafi meiri áhrif á íslenskt þjóðlíf en nokkurn grunaði þegar fyrst kvisaðist að ekki var allt með felldu í rekstri Hafskips hf. U I A.ÓPUR fréttamanna sem vinn- ur við blöð og aðrar fréttastofnanir sleppur ekki við naflaskoðun frekar en aðrir í því skoðanaflóði sem þjóðin syndir í um þessar mundir. Nú mun í gangi einskonar frétta- mannakönnun hjá þeim sem hafa atvinnu og lífsviðurværi sitt af marg- víslegri upplýsingaöflun um náung- ann og tengja sig við háskólann. Spurt er að ýmsu í þessari könnun, en þó gleymast mikilvæg atriði, sem kannski er ekki spurt um fyrir kurteis- issakir. Þar má nefna kynlífshegðun og hefðbundnar spurningar um verjur. Einnig reykingar og brenni- vín, sem þessi atvinnustétt hefur orðið fræg fyrir um heimsbyggðina. Þá hefur gleymst að spyrja um ástæður fyrir því að blaðamenn lifa yfirleitt skemur en aðrar atvinnu- stéttir ef undanskildir eru þeir sem vinna við asbest og lík eiturefni. Þá er ekki spurt um matarvenjur frétta- manna, en mjög er orðum hallað ef talið er að þeir hafi tíma til að sitja kjötveislur á borð við þær sem helsti matvælasérfræðingur stéttarinnar situr og hefur skrifað um lærðar bækur. í leit að vanþekkingu Staðlaðar og tölfræðilegar upplýs- ingar leiða til ákveðinnar vanþekk- ingar, alveg eins og skoðanakannan- ir. Þess vegna má alveg gera því skóna að fréttamannakönnun 1987 segi nákvæmlega ekkert um stéttina sem ekki var vitað fyrir. Naflaskoð- un af þessu tagi er því ekki síður leit að vanþekkingu en upplýsingu. Því veldur fámenni stéttarinnar og það, hvað hún er blessunarlega lítið stöðl- uð fyrir stofnanir eins og félagsvís- indadeild háskólans. En þá erum við komin að spurningum eins og þeirri hvað fólk sé yfirleitt að læra og hverju er það bættara þótt það heyri tölulega skýringu á því hvort frétta- maður er slóttugur, frekur eða til- finninganæmur? Svo hefur stéttin tekið breytingum til hins verra. Þar sem svo horfir að hver einasti íslend- ingur komist í sjónvarp eða útvarp einhvern tíma á ævinni, hafa fjöl- miðlamenn reynt að koma sér upp hópi viðmælenda í fjölmiðlum. Við sjáum sömu andlitin og heyrum sömu stöðluðu svörin mánuð eftir mánuð. Hér er um að ræða ýmiskon- ar „uppa“, viðskiptafræðinga og verkalýðsforingja, auk fulltrúa úr skemmtiiðnaðinum, sem hafa helst til mála að leggja að allt sé óskaplega skemmtilegt. Til að rjúfa þessa keðju hefur fjölmiðlafólk í auknum mæli tekið upp þann sið að tala saman innbyrðis, sem var höfuðsynd á tímum Valtýs Stefánssonar, Stef- áns Pjeturssonar, Magnúsar Kjart- anssonar og Þórarins Þórarinssonar. Nú þykir huggulegt að tala við sléttan fjölmiðlamann eins og hann væri þjóðhöfðingi í San Marino. Unga fólkið og þekkingin Öllu hugnanlegri og meir upplýs- andi um þekkinguna var keppni skólafólks í Ríkisútvarpinu sem lauk nýlega með sigri Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Þeir sem fylgdust með þeirri keppni munu hafa undrast þekkingu skólafólks á margvíslegum atriðum, sem varða fréttir og atburði líðandi stundar og þekkingu á því sem liðið er. Það er eiginlega furðu- legt að skólapiltur, sem var varla ' vaxinn úr grasi þegar einhver fót- boltahetjan gerði tvö mörk í ákveðn- um leik á Spáni, eða var það á Ítalíu tíu árum fyrir samkeppnina, skuli muna svona atvik. En keppendur léku sér að því að svara svona spurningum. Þá vissu nemendurhér- umbil allt um hljómsveitir og þarf það engan að furða. Einnig vissu þessir bráðskörpu nemendur allt um nöfn og ártöl úrþriðja heiminum, og gátu komið með kórrétt svör við spurningum, sem ekki voru nema hálf spurðar af því þeir vissu nóg til að fara vítt og breitt um viðfangsefn- ið. Vonarskarð sem týndist Þótt áhorfendur hafi fyllst stolti yfir því að sjá æsku íslands sýna frábæra hæfni í hörðu og miskunnar- lausu prófi, kunna svör við flestum atriðum og sýna dæmafáa alhliða þekkingu, komust þeir þó ekki hjá því að verða fyrir vonbrigðum. Þar kom í spurningakeppninni að ástæða Íiótti til að spyrja um landafræði slands. Brugðið var upp mynd af Bolungavík, en svarið hljóðaði upp á Seyðisfjörð. Staðurinn var sýndur á mynd og getur ekki meiri ólíkinda en á milli þessara tveggja bæja. Seyðisfjörður er aðkrepptur en Bol- ungavík er á opnu svæði frammi við sjóinn. Annað dæmi sem svar fékkst ekki við, a.m.k. ekki rétt, var spurn- ingin um Vonarskarð. Þetta æru- verðuga nafn gamals fjallvegar er svo gróið í þjóðarsálina, að það þarf alveg sérstaka skemmdarstarfsemi í kennsluháttum til að hindra að börn og unglingar fái nasasjón af Vonar- skarði. Þar fór Gnúpa-Bárður á leið sinni tii baka úr Bárðardal, þar skammt norðvestur af skarðinu er Tómasarhagi, sem Jónas orti svo vel um, og í þetta skarð setti Jón Helgason niður “melgrasskúfinn harða“, sem að vísu sprettur þar ekki. En þrátt fyrir það vissu bráð- snjallir nemendur í spurningakeppni frammi fyrir alþjóð engin deili á Vonarskarði. Hinar rauðu fossavöður Fyrst minnst er á Jónas Hallgríms- son er ekki úr vegi að benda á þá staðreynd að ekki kunna allir kvæðin sem skyldi. Skorti þó hvorki reynslu eða þekkingu þegar blaðakona á Morgunblaðinu nefndi rauðar fossa- vöður og taldi sig vera að vitna í kvæðið Fjallið Skjaldbreiður. Þegar hún var leiðrétt sagði hún að tölvan hefði platað sig og nefndi nú fossa- móður sér til ábötunar. Rétt er línan hinsvegar svona og vona ég að tölvan fari ekki að blanda sér í málið: Belja rauðar blossamóður. Þetta er aðeins nefnt hér sem dæmi Valtýr Stefánsson um, að ekki þarf námsmenn til að týna vonarskörðum hvorki í skáld- skap eða veruleika. Um námsmenn gegnir þó því máli, að þeir eiga að standa nær uppsprettunum, sem eiga síðan að duga þeim allt lífið. Þá veltur auðvitað á miklu hvaða náms- efni er talið þýðingarmikið og hvað aukaatriði. Það heimshyggjufólk, sem miklu hefur ráðið um námsefni á liðnum árum, búið það í hendur nemenda, og lagt línur um áherslur, hefur í heimsvafstri sínu týnt vonar- skörðum landsins, og þess vegna er ekki ástæða til að sakast við bráð- snjalla námsmenn, sem læra einung- is það sem fyrir þeim er haft á þessum tíma æviskeiðsins. Tansaníufræði kennslubóka Hér um árið vöktust upp miklar umræður um efni kennslubóka, einkum þann þátt er snerti saman- tekt fslandssögunnar. Hafði þá ein- hverjum dottið í hug áð óþarfi væri að notast við íslandssögu Jónasarfrá Hriflu sem hafði eflt í okkur þjóðar- metnað og tengt saman gullöldina, frelsisbaráttuna og næsta nútíma með þeim hætti að ógleymanlegt varð. En í staðinn komu félagsleg viðhorf og þess freistað að blanda sögu okkar ívafi annarlegra sjónar- miða og óskyldra. Um þær mundir sem íslandssögu Jónasar frá Hriflu var hent var uppi mikið þus um þriðja heiminn og er enn. Það átti að kenna unglingum á íslandi hvað þriðji heimurinn mátti líða, og fylgdi síðan í kjölfarið öflug hjálparstarf- semi þar sem hungursneyðir ríktu. Við vorum horfin af eigin vettvangi og létum prestum eftir að biðja um hjálp handa íslendingum, sem höfðu orðið fyrir tjóni á meðan við söfnuð- um og sendum ómælt fé og mann- skap til sultarlanda, þar sem þjóð- höfðingjar létu senda sér viskískipin heim í hlað. Þessi mikli hjálparbú- skapur kom heim og saman við kennslugögn skólanna um þriðja heiminn. Kennslugögn um Tansaníu þóttu skipta meiru máli en íslands- saga Jónasar frá Hriflu. Nú andar suðrið sæla Svo eru til íslendingar, sem vilja ekki gleyma íslandi og því sem íslenskt er. Frú Halla Linker býr í Kalífomíu og hefur víst átt þar heima í þrjátíu ár. Hún hefur auk þess atvinnu sinnar vegna ferðast um allan heim og gert sér far um að kynnast menningu ólíkustu þjóða. Maður frá Stöð 2 átti við hana tal á dögunum. Þá kom í ljós að þessi. konaj sem eflaust hefur lært íslands- sögu Jónasar frá Hriflu í skóla í Stefán Pjetursson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.