Tíminn - 11.04.1987, Page 9

Tíminn - 11.04.1987, Page 9
Laugardagur 11. apríl 1987 Vonarskarð séð úr lofti á milll Tungnafellsjökuls og Vatnajökuls ■ júsm. snom snorrason Hafnarfirði hafði í engu gleymt móð- urmáli sínu og talaði það næstum alveg hreimlaust þrátt fyrir langar fjarvistir. Stöð 2 sendi einn sinn besta mann til að tala við frúna, og heitir þátturinn íslendingar í útlönd- um. Það er svo annað mál og athyglisvert, að þessir íslendingar í útlöndum í Stöð 2 eru allir í Amer- íku og kemur það heim og saman við aðra dagskrárgerð stöðvarinnar. Nú sem þau tóku tal saman frú Halla og Stöðvarmaður minntist hún allt í einu ljóðs eftir Jónas Hallgrímsson, en kom því ekki alveg fyrir sig á stundinni, enda búin að vera fjarri „fósturjarðar ströndum" í 30 ár. Hún sneri sér því að Stöðvarmanni, sem hefur verið heima hjá sér lengst af ævinni, og líklega fengið Tansan- íuskólann. Þá brá svo við að hann mundi ekki neitt, og hefði einhverj- um þótt sem þessi Islendingur væri ekki samræðuhæfur, a.m.k. ekki þar sem Halla Linker var annars vegar. .Jón Magnússon En svo mundi þessi bjarthærða og viðkunnanlega íslenska kona kvæðið: Nú andar suðrið sæla vind- um þýðum. Hjá frúnni var ekki fyrir að fara neinum fossavöðum. Könnun á tilfinningaskorti Ágætir menn í félagsvísindadeild háskólans, sem nú ganga fram fyrir skjöldu til að kanna innviðu stéttar fjölmiðlamanna og spyrja þá hvort þeir séu hugmyndaríkir og fróðleiks- fúsir ættu kannski heldur að spyrja hvort fjölmiðlar séu til þess að auglýsa hvern sérstakan fréttamann í sömu fjölmiðlum eða fjölmiðla- stéttina sem heild. Jón Magnússon, fréttastjóri útvarps á sínum tíma var ötull fréttamaður og margvís og afar nákvæmur í hlutleysi sínu. Hann var Þórarinn Þórarinsson einn af þeim fáu mönnum í fjöl- miðlastétt sem mátti treysta að fara rétt með steðjann. Hann heyrðist aldrei eða sást, og vann sitt mikla starf í kyrrþey. Hann var fjölmiðla- maður, sem bar höfuð og herðar yfir þá, sem nú keppast við að koma í viðtöl og segja frá sjálfum sér á milli þess þeir eru að segja mismunandi áhugaverðar fréttir tíu sinnum á dag á milli popps og þvaðurs. Það skortir nokkuð á virðingu þegar svona er komið, og fróðlegt væri að fá könnun félagsvísindadeildar á því tilfinn- ingalífi, sem Tansaníukennslan inn- rætir fólki og kemur m.a. fram í starfi fjölmiðlamanna. Oflæti og mont Þá speglast mjög í hinni nýju fjölmiðlun, sem nú tíðkast, sá veik- leiki smárrar þjóðar að vera með oflæti og mont út af minnsta tilefni. Magnús Kjartansson Fjölmiðlar eru sérstaklega veikir fyrir þessu vegna þess að eðli málsins samkvæmt þurfa þeir oft að grípa til þess að gera fréttnæmt það sem engu máli skiptir. Þá hafa fjölmiðlamenn, aðrir en fréttamenn tamið sér tungu- mál og framkomu, sem ýtir undir oflætið með því að tönnlast sínkt og heilagt á því hvort hinn eða þessi sé ekki eldhress. Stundum gengurþetta svo langt, að hlustandinn veit ekki hvort hann á að vera eldhress, viðmælandinn eða þulurinn sjálfur. Spurning er hvort hægt er að bjóða fólki upp á að vera eldhresst í tíma og ótíma. Aftur á móti virðist kjafta- gangur á borð við þennan hafa þau áhrif að enginn fjölmiðlamaður virð- ist geta komið nálægt neinu máli öðruvísi en sýna það og sanna að hann sé eldhress, þjóðin sé eldhress og landið og miðin. Við slíkar að- stæður er svo sem við því að búast að oflæti og mont slæðist með, enda er þetta tvennt talið eitt af einkenn- um hressileikans, hvað þá þegar eldinum hefur veri6 blandað saman við. Enda má til sanns vegar færa að hver sá sem of nærri eldi kemur fer í loftköstum, einkum sviðni hann aftan fyrir. Þaðan er líklega komin hugmyndin um hina eldhressu menn. i Innar og heim Ágætis skáld og gamall fréttamað- ur, séra Sigurður Einarsson í Holti sagði í einu kvæða sinna, að hann stefndi „Innar og heim“. Hann lærði ekki fræði sín í Tansaníuskólanum, heldur í Menntaskólanum í Reykja- vík, þar sem hann var skólabróðir Halldórs Laxness, og gott ef ekki granni um sinn neðarlega á Lauga- vegi. Þessi orð séra Sigurðar lýsa tilfinningu, sem lítið er höfð í háveg- um hjá því eldhressa liði, sem stefnir Tíminn 9 með allt sitt hafurtask burt frá göml- um gildum út í ævintýraljóma frægð- arinnar, hvort heldur hana er að finna í flóttamannabúðum í Asíu í leit að börnum og vegalausu fólki, eða í Eþiopíu, þar sem viskíið fæst í heilum skipsförum mitt í hungurs- neyðinni. Það mjögsiglandi fólk sem heldur að heimóttarskapinn sé helst að finna á íslandi hugsar ekki innar og heim í bráð. Hið eina forvitnilega við líf þess er að sjá hvernig föður- land þess verður, þegar það hefur haft völd og yfirráð með höndum í eðlilegan tíma, og þegar Tansaníu- kennslan hefur staðið sína stund vegna þess að hér skiptir allt svo sáralitlu máli, sé ekki hægt að taka þátt í einhverju öðru en byggja ísland. Eldflaugar íhaldsins Fjarvistir frá því sem skiptir máli hverju sinni koma víða fram. Þó er merkilegast þegar gömul og gróin blöð taka upp hætti þeirrar nýju fjölmiðlunar að láta sig engu varða hin næstu mál, en þjóta í þess stað út um allar koppagrundir í leit að viðfangsefnum til að viðhalda þeirri eldhressu ímynd, sem þeir trúa að þeir hafi. Nú er orðið skammt til kosninga, og einhverju sinni hefðu það þótt tíðindi að varla skuli sjást þess merki á Morgunblaðinu. Sú var tíð að Morgunblaðið þurfti margt að skrifa um gular bækur og þvíumlíkt og var þó mikið minna í húfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn en nú, þegar hann gengur hvað skoðanakannanir snertir klofinn til kosninga. Morgun- blaðið tekur upp stefnumið nýfjöl- miðlunar og fjasar nú í löngu máli um meðaldrægar eldflaugar á meðan Sjálfstæðisflokkurinn situr skelfingu lostinn tvo hesta að hætti Rómverja og er við það að rifna eftir endilöngu. Meðaldrægar eldflaugar eru eflaust merkilegar og hin mestu þarfaþing vilji menn standa í manndrápum. En tíu dögum fyrir kosningar skipta þær engu máli, nema þær séu leyni- vopnið. Þegar risinn þegir Vel má vera að Morgunblaðið sé orðið of stórt til að leggja sig niður við að sinna brýnum málum á þjóð- legum vettvangi. En ætli það að verða einskonar New York Times íslands verður skiljanlegt að með- aldrægar eldflaugar þyki merkilegri á þessum dögum en t.d. Þorsteinn Pálsson, sem er maður en ekki eldflaug og að auki formaður Sjálf- stæðisflokksins, sem Morgunblaðið veit ekki að hafi formann síðan Geir Hallgrímsson hætti. Þeir sem fylgst hafa með Morgun- blaðinu í langan tíma og oft séð það gera frábærlega vel f krafti stærðar sinnar, mannafla og fjármuna hljóta að undrast þann doða ög þá stóru þögn, sem blaðið skýlir sér á bak við, þegar það þeytir textann um meðaldrægar eldflaugar,eða skrifar leiðara unr Nató og Ólaf Ragnar Grímsson sem á að vera eitthvert merkilegt fyrirbæri í pólitíkinni. Hann hefur þó ekkert unnið sér til frægðar umfram Nató annað en taka við einhverjum verðlaunum úr hendi alræmdrar konu, sem gat ekki sofið hjá hér á árunum öðruvísi en gera það í fjölmiðlum. Það er sorglegt tímanna tákn að Morgunblaðið skuli velja sér fjar- vistir frá þeirri kosningabaráttu sem nú er háð undir merkjum tvísýnna úrslita. Þessum þegjandi risa virðist ekki koma við lengur hvað er að gerast í samfélaginu eða hvað um það verður. Hvergi örlar á andófi. Blaðið er sterílt í kosningabarátt- unni, nema Sjálfstæðisflokkurinn eigi að ná æru sinni ríðandi á með- aldrægum eldflaugum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.