Tíminn - 11.04.1987, Side 10

Tíminn - 11.04.1987, Side 10
10 Tíminn II ÍÞRÓTTIR Laugardagur 11. apríl 1987 Laugardagur 11. apríl 1987 ÍÞRÓTTIR Tíminn 11 BBi Stjarnan og Fram leika til úrslita í bikarkeppni HSÍ í meistaraflokki karla í Laugardalshöll á morgun og hefst leikurinn kl. 14.30. Á undan leika Fram og FH til úrslita í meistaraflokki kvenna og hefst sá leikur kl. 13.00. Framarar leika í fyrsta skipti til úrslita í bikarkeppni HSl en Stjörnumenn í fjórða sinn. Þeim hefur þó aldrei tekist að sigra svo ljóst er að nýtt nafn verður rist á bikarinn að leik loknum. Stjörnu- menn slógu Víkinga út í sögulegum undanúrslitaleik og þurfti fram- lengingu til að fá úrslit. Framarar lögðu hinsvegar Valsmenn að velli í undanúrslitum. Stjörnumenn hafa átt heldur betra gengi að fagna í vetur en Framarar, meiðsl hafa sett sitt mark á Framliðið sem var á tíma- bili í fallhættu en slapp við það. Stjörnumenn hafa einnig þurft að fást við meiðsli og lengi vel var Magnús Teitsson, þeirra leikreynd- asti maður frá keppni. Hann lék með liðinu í síðasta leik íslands- mótsins og verður væntanlega með á morgun. Magnús er eini núver- andi leikmaður Stjörnunnar sem lék með liðinu 1982 er það keppti í fyrsta sinn í 1. deild. 1 Bikarmeistarar Bikarmeistarar í handknattieik hafa orðið: 1974 Valur 1981 Þróttur 1975 FH 1982 KR 1976 FH 1983 Víkingur 1977 FH 1984 Víkingur 1978 Víkingur 1985 Víkingur 1979 Víkingur 1986 Víkingur 1980 Haukar 1987??? Magnús Teitsson, leikreyndasti leikmaður Stjörnunnar hefur verið meiddur í allan vetur. Hann leikur væntanlega með á morgun og gæti reynsla hans reynst Stjörnumönnum drjúg. Ekki er gott að vita hvort liðið það verður sem fer með sigur af hólmi, réttast að mæta bara í höllina og sjá en svo mikið er víst að von er á spennandi leik eins og bikarúrslitaleikir eru ævinlega. Liðin sem leika á morgun verða þannig skipuð (leikjafjöldi með m.fl. félagsins - aldur): FRAM Markverðir: Guðmundur A. Jónsson . . 25-21 Óskar Friðbjörnsson .... 75-25 Aðrir leikmenn: Agnar Sigurðsson ........112-23 Andrés Andrésson..........85-25 Birgir Sigurðsson.........27-22 Björn Eiríksson .........130-28 Hermann Björnsson .... 199-23 Júlíus Gunnarsson.........18-18 Ólafur Þór Vilhjálmsson . . 20-19 Per Skaarup...............27-32 Ragnar Hilmarsson .... 125-32 Tryggvi Tryggvason .... 125-23 STJARNAN Markverðir: Sigmar Þröstur Óskarsson . 33-25 Jónas Þorgeirsson . 30-30 Aðrir leikmenn: Agnar Róbertsson . 17-21 Sigurjón Guðmundsson . 214-23 Guðmundur Óskarsson . . 125-27 Hilmar Hjaltason . 35-18 Magnús Teitsson 296-29 Páll Björgvinsson . 33-36 Skúli Gunnsteinsson .... 136-20 Gylfi Birgisson . 66-23 Hafsteinn Bragason .... . 70-19 Einar Einarsson 104-19 Ragnar Gíslason . 8-19 Hannes Leifsson 148-30 HVERJAR ERU - PÍNAR TÖLUR? 1 2 3 4 5 6 7 8 4 7 3 7 5 0 3 2 9 10 11 12 13 14 15 16 4 4 3 4 2 1 2 2 17 18 19 20 21 22 23 24 6 1 3 2 2 1 6 1 25 26 27 28 29 30 31 32 0 0 3 1 5 2 5 4 Skrá yfír tölur sem dregnar hafa veríð út í Lottói undanfamar nítján víkur. j c Algerir yfirburðir Njarðvíkingar unnu yfirburðasigur á Valsmönnum í bikarúrslitaleiknum í körfu- knattleik í gærkvöldi. Njarðvíkingar skor- uðu 91 stig gegn 69 stigum Valsmanna og var sá munur jafnvel heldur í minna lagi miðað við gang leiksins. Njarðvíkingar urðu þarna bikarmeistarar í fyrsta sinn, þeir höfðu áður leikið fjórum sinnum til úrslita án sigurs, töpuðu síðast í fyrra með aðeins einu stigi. Njarðvíkingar höfðu sem fyrr sagði al- gera yfirburði og gildir það hvar sem á er litið, á öllum sviðum leiksins. Sérstaklega voru þó yfirburðirnir í fráköstunum áber- andi. Munurinn jókst jafnt og þétt eftir því sem á fyrri hálfleikinn leið, Valsmenn skoruðu tvær fyrstu körfurnar, Njarðvíkingar jöfn- uðu 4-4 og síðast var jafnt 14-14. Þá skildu leiðir, 39-32 í hálfleik og 91-69 í lokin. Jóhannes Kristbjörnsson var besti maður vallarins, einkum átti hann stórleik í fyrri hálfleik og skoraði þá 16 stig. Aðrir leik- menn Njarðvíkinga léku einnig vel og komust vel frá þeim mikla hraða sem var allan leikinn. Hjá Valsmönnum var Tómas Holton sprækastur og Einar Ólafsson átti einnig þokkalegan leik. Stig Njarðvíkinga gerðu: ísak Tómasson 22, Jóhannes Kristbjörnsson 20, Valur Ingimundarson 17, Helgi Rafnsson 12, Kristinn Einarsson 12, Teitur Örlygsson 4, Árni Lárusson 2, Hreiðar Hreiðarsson 2. Stig Vals: Tómas Holton 19, Einar Ólafs- son 16, Torfi Magnússon 13, Leifur Gúst- afsson 8, Sturla Örlygsson 6, Björn Zoéga 4, Bárður Eyþórsson 2, Páll Arnar 1. Þokkalegir dómarar leiksins voru Sigurð- ur Valur Halldórsson og Sigurður Valgeirs- son. Jóhannes madur leiksins Bikarúrslitaleikurinn í kvennaflokki: Sáallrabesti Torfí Magnússon er grimmur á svip og ætlar sér greinilega þetta frákast. Engin furða, Njarðvíkingar áttu þau flest í leiknum og hér eru þeir einir fjórir sem sækjast eftir boltanum. Tfmámynd Pjcfur. Jóhannes Kristbjörnsson var kjörinn besti maður bikarúrslitaleiksins í gær- kvöldi. Jóhannes var vel að heiðrinum kominn, barðist mjög vel bæði í vörn og sókn og skoraði grimmt. Það voru íþrótta- fréttamenn sem stóðu að kjöri manns leiksins. KR-ingar lögðu Keflvíkinga að velli í stórgóðum og æsispennandi úrslitaleik í kvennaflokki. Lokatölur urðu 65-61 KR í hag en munurinn var aðeins 1 stig 1 1/2 mín fyrir leikslok. Það voru Keflavíkurstúlkurnar sem höfðu yfirhöndina framanaf, voru mun sprækari og virtist sem einhver deyfð væri yfir KR liðinu. Keflvíkingar komust mest í 7 stiga mun, 29-21, eftir að hafa verið yfir m.a. 17-11 og 21-15. Þegar fjórar mínútur voru til leikhlés tóku KR- ingar hraustlegan kipp og löguðu stöðuna úr 21-29 í 34-29. Þær létu leikhléið engin áhrif hafa á sig og voru komnar í 41-29 þegar tvær mínútur voru liðnar af seinni hálfleik eða gerðu með öðrum orðum 20 stig í röð! Á þessum kafla gekk allt upp hjá þeim, þær stálu boltanum hvað eftir annað, hittu ágætlega (að vítun- um frátöldum) og áttu mun fleiri fráköst. Á meðan gekk ekkert upp hjá Keflavíkurlið- inu. Þær tóku sig loks saman í andlitinu og snéru dæminu alveg við, minnkuðu muninn í 47-49 þegar hálfleikurinn var tæplega hálfnaður. Var það fyrst og fremst að þakka góðum varnarleik og fráköstum. Gífurleg barátta var það sem eftir var leiks og þegar 1 1/2 mín. var eftir var staðan 62-61 KR í hag. ÍBK var í sókn en tapaði boltanum í uppkasti. KR fékk þá dæmdar á sig 10 sek. en stálu boltanum aftur og skoruðu 64-61. Enn stálu KR-ingar boltan- um og Keflvíkingar fengu ásetningsvillu er 10 sek voru eftir. Eitt stig bættist þar enn við og KR hélt boltanum út leikinn. Leikurinn var mjög skemmtilegur og sá albesti kvennaleikur sem undirrituð hefur augum barið, mikil barátta, góður varnar- leikur og oft á tíðum bráðskemmtilegur samleikur í sókninni. KR liðið er mun leikreyndara og líkast til hefur það riðið bakkamuninn en hið unga iBK-lið er stór- gott og á sannarlega framtíðina fyrir sér. Bikarmeistararnir í kvennaflokki; KR. Þær léku mjög vel í gærkvöldi og unnu sigur i stórgóðum leik. KR-ingar eru einnig íslandsmeistarar. Tímamynd Pjciur. Engin ein stóð uppúr KR-liðinu, Krist- jana er alltaf sterk í fráköstunum og einnig nú þrátt fyrir daufa byrjun. Þá skoraði Linda margar góðar körfur. Hjá ÍBK átti Anna María hreint stórkost- legan seinni hálfleik, mjög sterk í vörninni og skoraði drjúgt. Guðlaug átti einnig mjög góðan leik. Stigin, KR: Kristjana Hrafnkelsdóttir 19, Linda Jónsdóttir 19, Cora Barker 11, Björg Björgvinsdóttir 11, Emelía Sigurðar- dóttir 3, Dýrleif Guðjónsdóttir 2. ÍBK: Anna María Sveinsdóttir 22 (18 í seinni hálfl.), Guðlaug Sveinsdóttir 21, Kristín Sigurðardóttir 5, Björg Hafsteins- dóttir 5, Margrét Sturlaugsdóttir 4, Bylgja Sverrisdóttir 2, Kristín Blöndal 2. Jóhannes Kristbjörnsson, maður bikarúrs- litaleiksins. Timamynd Pjelur. Bikarmeistarar Njarðvíkinga fögnuðu ákaft þegar sigurinn var í höfn. Otrúlegt en satt, þeirra fyrsti bikarmeistaratitill. Tímamynd Pjelur. íþróttaviðburðir helgarinnar Kraftlyftingar: ísiandsmót í Bæjarbíói í Hafnarfirði, laugar- dag. Keppni í kvenna- og léttari flokkum hefst kl. 10.00 en í þyngri flokkum kl. 14.00. Skíði: Alpagreinarí Bláfjölluin, Fjarðarganga og íslandsganga í Olafsfirði. Knattspyrna: UMFA-ÍK í stóru bikarkeppninni kl. 14.00 á laugardag, Þróttur-KR í Reykja- víkumiótinu kl. 20.30 á sunnu- dag. Blak: Vormót BLÍ á Akureyri, hófst i gærkvöldi, lýkur í dag, laugardag. Frjálsar íþróttir: Víða- vangshlaup íslands, Brautarholti á Skeiðum sunnudag kl. 14.00, Skólakeppni FRÍ í Baldurshaga kl. 10.00 laugardag og í Laugar- dalshöll kl. 14.00. VIB BYGGJUM Á REYNSLUNNI VIB BYGGJUM Á REYNSLUNNI VIB BYGGJUM A REYNSLUNNI URVALS PARKET FRA PAL0HEIM0 FINNLANDI: EIK - BIRKI - BEYKI - ASKUR $ SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR KRÓKHÁLSI 7 SlMAR: 672888 og 82033

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.