Tíminn - 11.04.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn
FRETTAYFIRLIT
ERMELO — Gassprenging
varö í námu í Suður-Afríku og
létu þrjátíu og fjórir námu-
verkamenn lífiö.
BONN — Sovésk stjórnvöld
ætla aö fara þess á leit, eftir aö
samningum um að fjarlæga
meðaldrægar kjarnorkuflaugar
frá Evrópu hefur verið náö, að
allar skammdrægar kjarnorku-'
flaugar verði einnig fjarlægðar
frá Evrópu. Þetta var haft eftir
sovéskum stjórnarerindreka.
Laugardagur 11. apríl 1987
ÚTLÖND
WASHINGTON - Reagan
Bandaríkjaforseti hefur neitað
að láta utanríkisráðherra sinn
Georae Shultz hætta við fyrir-
hugaoa för sína til Moskvu
þrátt fyrir að þingið hafi hvatt
hann til þess vegna njósna-
hneykslisins í sendiráði
Bandaríkjanna í borginni.
Embættismaður í Hvíta húsinu
sagði að Reagan væri bálreið-
ur vegna njósna Sovétmanna
í sendiráðinu en ætlaði samt
sem áður að senda Shultz
austur til Sovétríkjanna.
MOSKVA — Stjórnvöld í
Sovétríkjunum viróast hafa
minnkandi trú á að ferð Shultz
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna til Moskvu í næstu viku
verði til þess að eitthvað ávinn-
ist í afvopnunarmálum. Sam-
búð risaveldanna tveggja hefur
versnað til muna í kjölfar
njósnamálsins í bandaríska
sendiráðinu í Moskvu.
BRUSSEL — Ráðamenn
NATO svöruðu tilboði Varsjár-
bandalagsríkjanna um að
skera á útgjöld til hernaðar-
mála heldur kuldalega og
sögðu að slíkt myndi einungis
viðhalda ójafnvægi Vestur-
veldunum í óhag.
ALGEIRSBORG
Skæruliðar Polisariohreyfing-
arinnar sem berjast fyrir sjálf-
stæði í Vestur-Sahara sögðust
hafa fellt 157 hermenn Mar-
okkóstjórnar og tekið 17 til •
fanga í hörðum bardögum á
miðvikudag.
JOLO, Filippseyjum -
Fidel Ramos ytirnersnofðingi á
Filippseyjum bað stjórnarher-
menn að vera vel á verði fyrir
árásum uppreisnarmanna úr
hópi múslima. Á sama tíma
var tilkynnt að 22 fleiri menn
hefðu látið lífið í bardögum
stjórnarhersins við skæruliða
kommúnista.
COLOMBO — Ríkisstjórnin
á Sri Lanka lýsti yfir einhliða
vopnahléi í baráttunni við að-
skilnaðarsinna tamila. Vopna-
hléið á að standa yfir í átta
daga og hefur aukið vonir um
að friðarviðræður verði teknar
upp að nýju í þessum grimmu
átökum.
Mikhail Gorbatsjov í Tékkóslóvakíu:
Afvopnunarmál efst á
baugi í sjónvarpsræðu
Moskva, t*rag-Reuter
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi
lagði í gær til að viðræður yrðu
teknar upp er miðuðu að því að
fækka og síðan fjarlæga skamm-
drægar kjarnorkuflaugar frá Evr-
ópu. Sovétleiðtoginn vildi með þessu
greinilega draga úr ótta ráðamanna
Vestur-Evrópuríkja vegna hugsan-
legs samkomulags risaveldanna um
að fjarlæga allar meðaldrægar kjarn-
orkuflaugar frá Evrópu.
Gorbatsjov lagði [retta til í ræðu
sem hann hélt í Prag og var henni
sjónvarpað beint til Moskvu. Hann
er nú í opinberri heimsókn í Tékkó-
slóvakíu.
Margir ráðamenn í ríkjum Vestur-
Evrópu hafa lagt á það áherslu að
allir samningar stórveldanna um
meðaldrægar kjarnorkuflaugar yrðu
að vera tengdir jafnvægi í skamm-
drægum flaugum þar sem Sovét-
menn hafa mikla yfirburði. Gorbat-
sjov kom að nokkru til móts við þær
kröfur í þessari ræðu sinni en sagði
að vísu að viðræður um fækkun
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi:
Heldur áfram að taka af skarið í
afvopnunarmálum.
skammdrægra flauga „ættu að hefj-
ast án tengsla við þróun og útkomu
Fjármálaheimurinn:
Gullið hækkar,
dollari lækkar
Lundúnir-Rcuter
Verð á gulli hækkaði mjög í
verði á fjármagnsmörkuðum í gær
og hafði verðið á málminum ekki
verið hærra í sex mánuði. Á sama
tíma lækkaði bandaríski dollarinn
og hefur ekki verið lægri gagnvart
japanska yeninu síðustu fjörutíu
árin.
Hlutabréf féllu í verði bæði í
Wall Street og í Evrópu. í Lundún-
um reyndu menn allt hvað þeir
gátu til að selja bandarísk ríkis-
skuldabréf og snéru sér þess í stað
að kaupum á gulli, þeim gjaldmiðli
sem ávallt er treyst á er óvissa ríkir
á peningamörkuðum.
Seðlabankar Japans, Vestur-
Þýskalands og Frakklands keyptu
allir dollara í gær til að reyna að
stemma stigu við lækkun hans.
Hún hófst áþreifanlega að nýju á
miðvikudag þegar helstu iðnaðar-
þjóðum heims, sjö þjóða hópnum
svokallaða, tókst ekki að komast
að neinu afgerandi samkomulagi
um aðgerðir til að snúa þróuninni
við.
Það var í rauninni ekki mikið
sem þjóðirna.r sjö, Bandaríkin,
Japan, Vestur-Þýskaland,
Frakkland, Bretland, Italía og
Kanada, gátu heldur gert, efna-
hagsraunveruleikinn er hreinlega
slíkur.
Það er gífurlegur viðskiptahalli
Bandaríkjamanna móti hagstæð-
um vöruskiptajöfnuði Vestur-
Þjóðverja og sérstaklega Japana
sem veldur lækkun dollarans.
Þingkosningarnar í Egyptalandi:
Meirihlutinn
heldur minni
- Flokkur Mubaraks forseta samt sem áður
allsráðandi á þingi
Kairó-Reuter
Stjórnarandstaðan í Egyptalandi
jók þingmannafjölda sinn mikið í
kosningunum í vikunni en sem áður
er flokkur Hosni Mubaraks forseta,
Lýðræðislegi þjóðarflokkurinn, alls-
ráðandi á þingi.
Það var Zaki Badr innanríkisráð-
herra landsins sem las upp lokaúrslit-
in í sjónvarpi í fyrrakvöld. Sam-
kvæmt þeim fær bandalag þriggja'
flokka 56 þingmenn og er þar með
orðið stærsta stjómarandstöðuaflið.
í bandalaginu eru Sósíalíski
verkamannaflokkurinn, Frjálslyndi
flokkurinn og Bræðralag múslima,
sem er bannað að starfa sem sjálf-
stæðum stjórnmálaflokki. Þetta
bandalag tekur nú við af mið- og
hægriflokknum sem stærsta stjórnar-
andstöðuaflið.
Mið- og hægriflokkurinn var eini
stjórnarandstöðuflokkurinn á síð-
asta þingi og hafði þá 58 þingmenn.
Nú fékk flokkurinn hinsvegar ekki
nema 39 þingmenn kjörna.
Flokkur Mubaraks fékk 308 þing-
menn af þeim 400 sætum sem barist
var um og tapaði því þó nokkrum
sætum, fékk 391 sæti síðast.
Aðrir flokkar komust ekki á þing,
fengu ekki þau 8% sem til þurfti í
þessum kosningum sem 7,23 milljón-
ir af 14 milljónum kosningabærra
manna í landinu tóku þátt í.
Hið nýja þing mun síðar útnefna
Mubarak sem forseta til næstu sex -
ára þ.e.a.s. ef ekkert óvænt kemur
upp á í egyptsku stjórnmálalífi.
viðræðanna um meðaldrægar kjarn-
orkuflaugar".
Sovétleiðtoginn lagði einnig til að
utanríkisráðherrar 35 landa sem sæti
eiga á öryggisráðstefnu Evrópuríkja
í Vínarborg hittust til að ræða mögu-
leikann á nýjum viðræðum um af-
vopnunarmál er miðast skyldu að
því að fækka kjarnorkuvopnum og
draga úr hefðbundinni vígvæðingu.
Gorbatsjov kom til Prag í fyrradag
eftir að heimsókn hans þangað hafði
verið frestað vegna kvefpestar
Sovétleiðtogans.
Ítalía:
Guðí
glugga
Supino, Ítalía-Reuter
íbúar í þorpinu Supino á Suð-
ur-ítalíu segjast hafa séð andlit
Krists í gluggarúðu í einu húsi
' þorpsins og hefur rúðan nú verið
tekin til rannsóknar.
Lögreglan sagðist hafa farið
með rúðuna til Rómar til að
kanna hvort hér væri um brot(þó
ekki rúðubrot) að ræða á lögum
sem kallast að „notfæra sér trú
aimennings".
jVfikill fjöldi trúaðra hefur, al-
veg síðan ung skólastúlka sagðist
hafa séð Krist í glugganum fyrr í
þessum mánuði, safnast saman
fyrir utan hús þetta í þeirri von
að sjá andlit drottins bregða fyrir.
Komið upp um spillingu í borginni Rostov
við ána Don:
Bifreiða-
viðgerðir
byggðust
á mútum
Moskva-Reuter
Meira en tugur manns hefur verið
ákærður í sambandi við hneykslis-
mál í sovésku borginni Rostov við
ána Don þar sem hún rennur í
Asóvshaf. Það varvikublaðiðNedel-
ya sem skýrði frá þessu máli.
Nedelya sagði rannsókn undanfar-
inna tveggja ára hafa leitt í ljós að
starfsmenn við bifreiðaverkstæði
héraðsins hefðu þegið mútur frá
viðskiptavinum sem vildu að við-
gerðum yrði hraðað. Einnig hefði
lögreglumönnum sem þetta vissu
verið mútað til að þegja.
Þeir sem þurftu að láta gera við
urðu að borga 100 rúblur (einar sex
þúsund krónur íslenskar) fyrir það
eitt að fá bíla sína tekna inn á
verkstæðið. Þessi upphæð hækkaði
svo verulega ef þörf var á varahlut-
um.
Vikublaðið nefndi framkvæmda-
stjóra viðgerðaþjónustunnar á nafn
og sagði hann persónulega hafa
tekið við þúsund rúblum í mútur
með þessum hætti. Ekki var skýrt frá
hversu réttarhöldin yfir fram-
kvæmdastjóranum og öðrum ákærð-
um tæki langan tíma.
Spillingarmál kom upp í þessari
sömu borg fyrir tveimur árum þegar
framkvæmdastjóri ríkismatvöru-
búðar varð uppvís að því að hafa
tekið til sín matvæli fyrir sig og vini
sína. Hann var tekinn af lífi.
Sú venja að borga „þakklætispen-
inga“ fyrir fljóta viðgerðaþjónustu
er reyndar útbreidd í Sovétríkjunum
þar sem viðgerðir taka venjulegast
langan tíma og varahlutir eru af
skornum skammti.
UTLONP
UMSJÓN:
Júgóslavía:
Brottrekin kona nýtur
samúðarfrægsleikara
Belgrad-Rcutcr
Einn af helstu leikurum Júgó-
slavíu neitaði um síðustu helgi að
leika í vinsælu sviðsverki. Þetta
gerði hann til að mótmæla brott-
vikningu konu úr kommúnista-
flokk landsins. Konunni hafði ver-
ið settir tveir kostir, að skilja við
og fordæma pólitískar aðgerðir
manns síns ellegar vera rekin úr
flokknum.
Aleksander Bercek heitir leikar-
inn og neitaði hann að taka að sér
aðalhlutverkið í „Tattóveruðum
sálum“, leikhúsverki sem sýna átti
fyrir fullu húsi í Sarajevo um
síðustu helgi.
Leikarinn kemur úr hinu vinsæla
leikhúsi Zvezdara í Belgrad og
fordæmdi hann brottrekstur kon-
unnar, doktor Antic Zorka, úr
flokknum.
Maður hennar Bogdan, sem
einnig er doktor, var settur í fang-
elsi á síðasta ári ásamt tveimur
öðrum félögum sínum. Var þeim
stungið inn fyrir þjóðernishyggju
og fyrir að gagnrýna stefnu komm-
únistaflokksins.
Bercek blandaði sér í málið af
„mannúðarlegum" ástæðum eins
og hann sjálfur sagði, ekki af
pólitískum ástæðum.