Tíminn - 11.04.1987, Blaðsíða 16

Tíminn - 11.04.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn *__________________________________ Veðurathugunar- menn á Hveravöllum Veðurstofa íslands óskar að ráðatvo einstaklinga, hjón eða einhleypinga, til veðurathugana á Hvera- völlum á Kill. Starfsmennirnir verða ráðnir til ársdvalar, sem væntanlega hefst seint í júlímánuði 1987. Umsækjendur þurfa að vera heilsuhraustir og reglusamir, og nauðsynlegt er, að a.m.k. annar þeirra kunni nokkur skil á meðferð véla. Tekið skal fram, að starfið krefst góðrar athyglisgáfu, ná- kvæmni og samviskusemi. Laun eru samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, heilsufar, menntun, fyrri störf og meðmæli, ef fyrir hendi eru, skulu hafa borist Veðurstofunni fyrir 1. maí n.k. Allar nánari upplýsingar eru gefnar í tækni- og veðurathuganadeild Veðurstofunnar, Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík, sími 686000. Vísindastyrkir Atlantshafsbandalagsins 1987 Atlantshafsbandalagiö leggur árlega fé af mörkum til aö styrkja unga vísindamenn til rannsókna eöa framhaldsnáms erlendis. Fjárhæö sú er á þessu ári hefur komið í hlut íslendinga í framangreindu skyni nemur um 2,2 millj. ísl. kr. og mun henni varið til að styrkja menn er lokið hafa kandidatsprófi í einhverri grein raunvísinda til rannsókna eða námsdvalar við erlendar vísindastofnanir, einkum í aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins. Umsóknum um styrki af fé þessu- „Nato Science Fellowships" -skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 1. júní nk. Fylgja skulu staðfest afrit prófskírteina og meðmæla, svo og upplýsingar um starfsferil og ritverkaskrá. Þá skal tekið fram hvers konar rannsóknir eða framhaldsnám umsækjandi ætli að stunda, við hvaða stofnanir hann hyggst dvelja, svo og skal greina ráðgerðan dvalartíma. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 9. apríl 1987. Til sölu Zetor 6718 árg. 73 - 4911 árg. 79 - 7911 árg. ’80 5011 árg. ’81 - 5245 árg. ’85 - 7011 árg. ’81 - 7045 árg. ’83 - MF 135 árg. 74 - MF 35 árg. ’58 - IH 414 árg ’66 - MF 128 heybindivél árg. ’82 - NH 370 heybindivél árg. 79 - Case IH 1494 4x4 með ámoksturstækjum árg. ’86 Upplýsingar í síma 99-8313 Styrkir til háskólanáms í Frakklandi Frönsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa Islendingum til háskólanáms í Frakklandi á skólaárinu 1987-88. Um er að ræða eftirtaldar námsgreinar: bókmenntir.húsagerðarlist, kvikmyndagerð, listasögu, leikhúsfræði, tónlistarfræði og raunvísindi. Umsóknum, ásamt staðfestum afritum af prófskírteinum og meðmælum, skal skila til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir27. apríl n.k. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamáiaráðuneytið 9. apríl 1987. Guðmundur Sveinsson netageröarmeistari frá Góustöðum Engjavegi 24, fsafiröi lést að morgni 9. apríl i Landakotsspítala. Jarðarförin auglýst síðar. Bjarney Ólafsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn t Móðir okkar Guðný Gestsdóttir frá Hamri andaðist á Hrafnistu fimmtudaginn 9. apríl Börnin fmj LAUSAR STÖÐUR HJÁ m REYKJAVIKURBORG Fulltrúi í fjölskyldudeild á hverfaskrifstofum heil staða eða hlutastörf Afleysingastarf fyrír fulltrúa er vinnur við forræðis- og umgengnisréttarmál. (7 mánuði). Áskilin er félagsráðgjafamenntun eða sambærileg menntun á sviði sálarfræði eða fjölskyldumála. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. St. Jósefsspítali Landakoti Hjúkrunarfræðingar bd Hjúkrunarfræðingar, langar ykkur ekki til að starfa á frábærri barnadeild? Unnið er eftir einstaklings- hæfðri hjúkrun. Aðlögunarprógram sniðið eftir þörfum starfsfólks. Góður starfsandi. Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma 19600-220 alla virka daga. Reykjavík 9.4. 1987. Laugardagur 11. apríl 1987 lllllllllllllllllllllll DAGBÓK 1111! Baráttuskemmtun á Hressingarskálanum Áhugafólk um miðbæ Reykjavíkur mun efna til baráttuskemmtunar á Hress- ingarskálanum í dag, Iaugard. 11. apríl kl. 15:00. í deiliskipulagi Kvosarinnar er gert ráð fyrir niðurfifi margra elstu húsa Reykjavíkur. Margir borgarbúar eru ugg- andi yfir þeim tíðindum og vilja spyrna við fótum. Hressingarskálinn er eitt þeirra húsa sem skipulagið hefur dæmt til dauða. Samkoman hefst þar kl. þrjú (15:00). Þar munu tala Unnur G. Schram. Flosi Olafs- son, Sigurður A. Magnússon og Ásta Kristjana Sveinsdóttir. Helgi Þorláksson og Guðjón Friðriksson munu fræða um gömlu byggðina, en Þórarinn Eldjárn og Ingibjörg Haraldsdóttir lesa upp. Hópur leikara flytur brot úr dagskránni „Reykja- vík er perla“. Dómkirkjukórinn syngur við innganginn. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Félagsvist Húnvetningafélagsins Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur félagsvist í dag, laugardaginn 11. apríl kl. 14:00 f félagsheimilinu Skeifunni 17. Þetta er síðasta félagsvist vetrarins. Allir velkomnir. Félagsvist Kvenfélags Kópavogs Spiluð verður félagsvist hjá Kvenfélagi Kópavogs á mánudag 13. apríl kl. 20:30 í Félagsheimilinu. Allir velkomnir. Jazzklúbburinn „Heiti potturinn“ Sunnud. 12. apríl leika Kristján Magn- ússon og félagar: Þorleifur Gíslason, tenór og altósax Kristján Magnússon, píanó, ásamt bassa- og trommuleikara í Duushúsi kl. 21:30. Keflavíkurflugvöllur Ný flugstöð Veitingarekstur — Útboð Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli býður út veit- ingarekstur í nýju flugstöðinni. Um er að ræða allan veitingarekstur í flugstöðinni, þar með talið mötuneyti starfsfóiks, frá júní 1987 og fram til ársloka 1990. Eftirtalin svæði samtals 1.114 fermetrar og búnaður tilheyra veiti ngarekstrinum: 1. Aðaleldhús á 2. hæð, 387 fermetrar alls, með tilheyrandi búnaði til matargerðar og uppþvottar, kælum, frystum og öðrum geymslum og aðstöðu fyrir starfsfólk. 2. Mötuneyti starfsfólks á 2. hæð, 321 fermetrar alls, með afgreiðsluborðum og tilheyrandi búnaði, og borðum og stólum fyrir 190-200 manns. 3. Veitingaafgreiðsla og bar við biðsal á 2. hæð, 133 fermetrar alls, með tilheyrandi búnaði, en aðliggjandi er veitingarými með borðum og stólum, um 275 fermetrar alls. 4. Aðstaða fyrir takmarkaða veitingaþjónustu við útsýnisstað á 2. hæð, 23 fermetrar, með tilheyrandi búnaði, en aðliggjandi er veitingarými með borðum og stólum, um 68 fermetrar. 5. Veitingabúð í gróðurskála á 1. hæð ásamt búri, 250 fermetrar alls, með tilheyrandi búnaði. Lágmarksgjald fyrir aðstöðuna er kr. 10.600.000.- á ári. Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræðistofunni, Fellsmúla 26 Reykjavík, frá og með mánudeginum 13. apríl gegn 5.000.- kr skilatryggingu. Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu berast Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 29. apríl 1987. Tilboðum skal skilað til Almennu verkfræðistofunnar fyrir kl. 14:00 föstudaginn 8. maí 1987. Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli DÆMALAUST BITL - VIÐ ÖLLUM KVILLUM?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.