Tíminn - 11.04.1987, Síða 19
Laugardagur 11. apríl 1987
ÚTVARP/SJÓNVARP
JESÚS FRÁ NASARET
- endursýning
Kl. 16.25 á morgun,
pálmasunnudag hefst
i Sjónvarpi
endursýning á bresk-ítölsku
sjónvarpsmyndinni Jesús frá
Nasaret í leikstjórn Francos
Zeffirelli, sem sýnd var um
páskaleytið í fyrra.
Myndin er í fjórum hlutum og
verða hinir hlutarnir þrír sýndir
síðdegis á föstudaginn langa,
laugardag og páskadag.
Robert Powell fer með hlutverk
Jesú, en auk þess er mikið
stjörnuval í þessari
sjónvarpsmynd.
GESTIR OG GANGANDI
. Kl. 11.00 á
■3|H’ sunnudögum á Rás 2
■■Bi w tekur Ragnheiður
Davíðsdóttir enn á móti gestum
og gangandi en þættir hennar,
Gestagangur, sem lengi voru á
fimmtudagskvöldum á Rás 2 nutu
mikilla vinsælda.
Gestir og gangandi nefnist
þessi nýi þáttur og eins og nafnið
bendir til tekur Ragnheiður enn á
móti gestum. Sumir koma beint til
hennar í hljóðstofu, en hún slær
hka á þráðinn út á land og
skreppur í bæinn með segulband
og tekur vegfarendur tali.
Það er spjallað um heima og
geima í þáttunum, og tónlistin er
að mestu íslensk, einkum frá fyrri
Renata Scotto í
Sviðsljósi
KL 20.30 annað kvöld
verðuv á Stöð 2 hin
heimsfræga
sópransöngkona Renata Scotto í
Sviðsljósinu, en hún er stödd hér
á landi þessa dagana og heldur
tónleika.
Jón Óttar Ragnarsson talar við
söngkonuna um viðburðaríkt líf
hennar og list.
1 Safnahúsinu á Húsavík er margt merkra muna
Safnahúsið á Húsavík og leikgagnrýni
meðal efnis í Sinnu
Kl. 14.00 ídageráRás
1 þátturinn Sinna í
umsjá Þorgeirs
Ólafssonar að venju og er þar víða
komið við.
M.a. verður rætt við Finn
Kristjánsson forstöðumann
Safnahússins á Húsavík um tilurð
og starfsemi safnsins. Fjallað
verður um þrjár leiksýningar,
Ofurefli, sem Leikfélag Húsavíkur
frumsýndi sl. laugardag, Þú og
ég... sem Hugleikur í Reykjavík
frumsýndi sama dag og
Óánægjukórinn, sem Leikfélag
Reykjavíkur frumsýndi sl.
þriðjudag. Þorgeir Ólafssonfjallar
um fyrstnefndu sýninguna en
Hlín Agnarsdóttir um hinar.
Þá ræðir Arthur Björgvin
Bollason við Einar Guðmundsson
skáld um lífið og listina. Viðtalið
var tekið upp á bjórstofu í
Munchen.
Tíminn 19
Hin góðkunna útvarpskona
Ragnheiður Davíðsdóttir hefur
nú tekið sér bólfestu á dagskrá
Rásar 2 á sunnudagsmorgnum
kl. 11 og tekur þar sem fyrr á
móti gestum.
-
Fær almenningur aldrei framar
að sjá Sólblóm Van Goghs?
- ekki fæst uppgefið hver kaupandinn er né hvar hann er
Geysilega athygli vakti fyrir
skemmstu þegar hæsta verð nokkru
sinni var greitt fyrir listaverk. Það
var ein sólblómamynda Van Goghs
sem óþekktur aðili var reiðubúinn
að borga fyrir 24,75 milljónir sterl-
ingspunda á uppboði hjá Christie's í
London. Það vekur ekki síður at-
hygli að það er á vitorði fárra hver
kaupandinn er og nú eru margir
uggandi um að aldrei framar fái
almenningur að líta þetta fræga
listaverk augum, það verði hengt
upp á leynilegan einkavegg ríkis-
bubba og aðeins augnayndi fjöl-
skyldu hans og náinna vina. Bretar
hafa misst enn einn fjársjóð í hendur
fjársterks aðila í öðru landi.
Síðla kvölds tveim dögum eftir
uppboðið var þetta dýrasta listaverk
sögunnar borið út úr skrifstofum
uppboðsstofu Christie's í London án
þess að mikið bæri á. Það hafði verið
vafið inn í öryggisábreiðu áður en
búið var um það í sérsmíðuðunt
viðarkassa. Ekkert var látið uppi um
ákvörðunarstað en orðrómur, talinn
áreiðanlegur, var á kreiki um að
kaupandinn væri Bandaríkjamaður.
Forsvarsmenn Christie's, sein
bundnir eru þagnarskyldu, hétu
kaupandanum því að enginn skyldi
nokkru sinni fá vitneskju um hver
hann væri. Og fyrirtækið fékk dálag-
lega summu fyrir þjónustu sína, 2,25
milljónir sterlingspunda komu í þess
hlut af söluverðinu.
Listsagnfræðingar eru ekki á einu
máli um ágæti þessa metverðs. Einn
þeirra, vestur-þýski listsagnfræð-
ingurinn dr. Roland Dorn, sem nýt-
ur alþjóðlegrar virðingar á sínu sviði
og var Christie's til ráðuneytis í
sambandi við myndina, heldur því
fram að kaupandinn hafi goldið of
mikið fyrir myndina, verðið sé af-
brigðilega hátt og slík saga eigi ekki
eftir að endurtaka sig á næstu árum.
Dr. Dorn hefur áhyggjur af því að
þetta háa verð eigi eftir að hækka
tryggingaiðgjöld af frægum lista-
verkum sem geri söfnunr erfiðara
fyrir að fá þau til láns á sýningar.
Hann heldur því fram að „aðeins"
10 milljónir punda fyrir verkið hefði
verið nær lagi og bendir á að þessi
sólblómamynd sé alls ekki sú besta
af þeim sem Vinccnt Van Gogh
málaði. Dr. Dorn ætlar sjálfur að
halda uppi fyrirspurnum í listaheim-
inum um livar ntyndin eigi nú santa-
stað, þar sem það sé mikilvægt fyrir
listfræðinga að fylgjast með hvar
frægustu sígildu listaverkin séu
niðurkomin.
Sólblómamyndin margumtalaða
er ein úr röð sólblómamynda sem
málarinn Vincent Van Gogh málaði
í vinnustofu sinni í Arles, Provence
1889, rétt fyrir dauða sinn. Ein
þeirra eyðilagðist í eldi í safni í
Yokohama fyrir heimsstyrjöldina
síðari, fjórar eru í söfnum hingað og
þangað, þ.á m. ein í National Gall-
ery í London.
Þeir sem kunnugir eru í listaheimi
Lundúnaborgar eru sannfærðir um
að kaupandinn sé Bandaríkjamað-
ur. Breska viðskiptaráðuneyrið hef-
ur fengið umsókn um útflutnings-
leyfi fyrir myndina og engar líkur
eru taldar á að hægt sé að hafna því
þar sem enginn kaupandi fyrirfinnist
í Bretlandi sem geti reitt fram tilsvar-
andi upphæð innan tilskilins tíma,
sex mánaða.
Laugardagur
11. apríl
6.45 Veðuríregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur“ Pétur Pét-
ursson sér um þáttinn. Fréttir eru sagðar kl.
8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar
kl. 8.15. Að þeim loknum erlesiðúrforustugrein-
um dagblaöanna en síðan heldur Pétur áfram
að kynna morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 í morgunmund.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Óskalög sjúklinga. Helga P. Stephensen
kynnir. Tilkynningar
11.00 Vísindaþátturinn Umsjón: Stefán Jökuls-
son.
11.40 Næst á dagskrá
12.00 Hér og nú. Fréttir og fréttaþáttur i vikulokin
í umsjá fréttamanna útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá. Tónleikar.
14.00 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
15.00 Tónspegill.
16.00 Fróttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Að hlusta á tónlist. 27. þáttur: Hvað er
konsert? Umsjón: Atli Heimir Sveinsson.
18.00 íslenskt mál Guðrún Kvaran flytur þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Bein lína til stjórnmalaflokkanna. Sjöundi
þáttur: Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins svara
spurningum hlustenda.
20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Sigurður Al-
fonsson.
20.40 Framboðskynning stjórnmálaflokkanna
Sjöundi þáttur: Borgaraflokkurinn kynnir stefnu
sína.
21.05 íslensk einsöngslög.
21.20 Á réttri hillu. Umsjón: Örn Ingi. (Frá Akur-
eyri).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma. Andrés Björnsson les
46. sálm.
22.30 Tónmál. Heinrich Neuhaus. Listin að leika á
píanó. Soffía Guðmundsdóttir flytur annan þátt
sinn.
23.10 Danslög
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Mar-
inósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til morguns.
Laugardagur
11. apríl
1.00 Næturútvarp Georg Magnússon stendur
vaktina.
6.00 í bítið - Rósa Guöný Þórsdóttir kynnir
notalega tónlist í morgunsárið.
9.03 Tíu dropar. Helgi Már Barðason kynnir Ijúfa
tónlist og upp úr kl. 10.00 drekka gestir hans
morgunkaffið hlustendum til samlætis.
11.00 Lukkupotturinn Bjarni Dagur Jónsson sér
um þáttinn.
12.45 Listapopp í umsjá Gunnars Salvarssonar.
14.00 Poppgátan Gunnlaugur Ingvi Sigfússon og
Jónatan Garðarsson stýra spurningaþætti um
dægurtónlist. (Þátturinn verður endurtekinn n.k.
þriðjudagskvöld kl. 21.00).
15.00 Við rásmarkið. Þáttur um tónlist, íþróttir og
sitthvað fleira í umsjá Sigurðar Sverrissonar og
íþróttafréttamannanna Ingólfs Hannessonar og
Samúels Arnar Erlingssonar.
17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin. Svavar Gests
rekur sögu íslenskra söngflokka í tali og tónum.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Tilbrigði. Þáttur í umsjá Hönnu G. Sigurðar-
dóttur. (Þátturinn verður endurtekinn aðfaranótt
miðvikudags kl. 02.00).
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Með sínu lagi: Umsjón: Guðrún Gunnars-
dóttir.
20.00 Rokkbomsan - Þorsteinn G. Gunnarsson.
21.00 Á mörkunum - Sverrir Páll Erlendsson. (Frá
Akureyri).
22.05 Snúningur Vignir Sveinsson kynnir gömul
og ný danslög.
00.05 Næturútvarp
Fréttir sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 12.00,
16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
18.00 Spænskukennsla: Hablamos Espanol.
Tólfti þáttur. Spænskunámskeið í þrettán þátt-
um ætlað byrjendum. íslenskar skýringar: Guð-
rún Halla Tuliníus.
18.25 Litli græni karlinn. (9) Sögumaður Tinna
Gunnlaugsdóttir.
18.35 Þytur í laufi. Tíundi þáttur í breskum brúðu-
myndaflokki. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.55 Háskaslóðir (Danger Bay) - 9. Kata og
hvalurinn. Kanadískur myndaflokkur fyrir börn
og unglinga um ævintýri við verndun dýra í sjó
og á landi. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Smellir.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Fyrirmyndarfaðir. (The Cosby Show). -13.
þáttur. Bandarískur gamanmyndaflokkur með
Bill Cosby í titilhlutverki. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.10 Kvöldstund með Pétri Gunnarssyni -
Hvernig verður rithöfundur til?
22.00 Húsið á hæðinni eða Hring eftir hring -
fyrri hluti Herranótt Menntaskólans í Reykja-
vík 1986. Höfundur Sigurður Pálsson. Leikstjóri
Þórhildur Þorleifsdóttir. Leikendur: Nemendur
Menntaskólans í Reykjavík. Tónlist: Jóhann G.
Jóhannsson. Sviðsmynd: Guðrún Sigríður Har-
aldsdóttir. Búningar: Sigrún Guðmundsdóttir og
nemendur í MR. Aðalpersóna leiksins er í
rauninni hið 140 ára gamla hús MR en það
birtist í líki húsanda sem hafa öðlast ólíka
eiginleika í tímanna rás. Þessir svipir leiða fram
nokkra kafla úr sögu skólans sem jafnframt er
saga lands og þjóðar. I fyrri hluta kynnumst við
19. öldinni kringum pereatið 1850 og tímabilinu
1870-80. Þekktir menn koma við sögu, svo sem
Sveinbjörn Egilsson rektor, Hannes Hafstein og
Kristján Fjallaskáld þó atburðir séu að öðru leyti
skáldskapur. Stjórn upptöku: Gunnlaugur Jón-
asson. Síðari hluti verður sýndur mánudags-
kvöldið 13. apríl.
22.50 í blíðu og stríðu ((Pete n Tillie) Bandarísk
bíómynd í léttum dúr gerð árið 1972 eftir sögu
Peters de Vries. Leikstjóri Martin Ritt. Aðalhlut-
verk: Walter Matthau, Carol Burnett og Ger-
aldine Page. - Pete er piparsveinn og mesti
galgopi. Þau Tillie kynnast í boði og rugla
saman reytunum þótt þau séu um margt ólík.
Þau eignast son og Pete fær stöðuhækkun og
stillist nokkuð. Það stendur þó ekki lengi auk
þess sem þau hjónin verða fyrir óvæntu áfalli
sem hefur áhrif á sambúðina. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
00.35 Dagskrárlok.
Laugardagur
11. apríl
8.00-12.00 Valdís Gunnarsdóttir. Valdís leikur
tónlist úr ýmsum áttum, lítur á það sem
framundan er hér og þar um helgina og tekur á
móti gestum.
Fréttir kl. 8.00 og 10.00.
12.00-15.00 Ásgeir Tómasson á léttum laugar-
degi. öll gömlu uppáhaldslögin á sínum stað.
Fréttir kl. 12.00 og 14.00.
15.00-17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Heigi
Rúnar Óskarsson leikur 40 vinsælustu lög
vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00-19.00 Laugardagspopp á Bylgjunni með
Þorsteini Ásgeirssyni.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-21.00 Rósa Guðbjartsdóttir lítur yfir atburði
síðustu daga leikur tónlist og spjallar við gesti.
Fréttir kl. 19.00.
21.00-23.00 Anna Þorláksdóttir í laugardags-
skapi. Anna trekkir upp fyrir kvöldið með tónlist
sem engan ætti að svíkja.
23.00-04.00 Jón Gústafsson, nátthrafn Bylgjunn-
ar heldur uppi stanslausu fjöri.
4.00- 8.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Harald-
ur Gíslason leikur tónlist fyrir þá sem fara seint
í háttinn og hina sem fara snemma á fætur.
Laugardagur
11. apríl
9.00 Lukkukrúttin Teiknimynd.
9.20 Högni hrekkvísi. Teiknimynd
9.40 Penelópa puntudrós. Teiknimynd
10.05 Herra T. Teiknimynd
10.30 Garparnir. Teiknimynd.
11.00 Fréttahornið. Fréttatími barna og unglinga.
Umsjónarmaður er Sverrir Guðjónsson.
11.10 Fálkaeyjan (Falcon Island). Ævintýramynd
fyrir börn og unglinga.
11.30 Fimmtán ára. Nýr myndeflokkur í 13 þáttum
fyrir börn og unglmga. Þaö eru unglingar sem
fara með öll hlutverkin og semja þau sjálf
textann jafnóðum. Annar þáttur.
12.00 Hlé_____________________________________
12.30 Flokkakynning Kynning á öllum stjómmála-
flokkum í beinni útsendingu úr sjónvarpssal.
Einn af helstu talsmönnum hvers flokks flytur
5-7 mín. framsögu og situr síðan fyrir svörum
hjá fulltrúum hinna flokkanna. Hver flokkur
tilnefnir einn mann til framsögu og svara, og
annan til að spyrja talsmenn hinna flokkanna.
• 16.00 Ættarveldið (Dynasty). Blake Carrington og
Steven sonur hans reyna að ná sáttum.
16.50 Chernobyl Slysið í kjamorkuverinu í Chern-
obyl séð frá sjónarhóli Sovétmanna.
18.05 Tíska Umsjónarmaður er Helga Benedikts-
dóttir.
18.30 Bíladella. (Automania) Ný bresk þáttaröð í
léttum dúr sem qreinir frá söqu bílsins oq þeim
áhrifum sem tilkoma hans hefur haft á líf manna.
I þessum fyrsta þætti er kastljósum beint að
þeim sem safna gömlum bílum, ýmist sem
stöðutáknum, leikföngum eða fjárfestingum.
18.55 Myndrokk________________________________
19.05 Ferðir Gúllivers. Teiknimynd.
19.30 Fréttir
20.00 Meistari Nýr þátturbyggðurá „Mastermind",
hinum virtu og vinsælu þáttum Magnúsar Magn-
ússonar. Stjórnandi er Helgi Pétursson.
20.30 Undirheimar Miami (Miami Vice) Tubbs og
Crocett eru komnir fast á hæla manns, sem
hefur gerst sekur um eiturlyfjasmygl og sifja-
spell._________________0*__________________
21.15 Benny Hill Breskur gamanþáttur.
21.45 Kir Royal Slúðurdálkahöfundurinn Baby'
Schimmerlos og Ijósmyndari hans, svífast
einskis til að verða sér úti um góða frétt.
22.45 Einn á móti öllum (Against All Odds).
Bandarísk kvikmynd frá árinu 1984. Með aðal-
hlutverk fara Rachel Ward, Jeff Bridges og
James Woods. Spennandi ástarsaga sem
byggð er á frægri sögu eftir Daniel Mainwaring
og er sögusvið myndarinnar að stórum hluta
Mexico. Tónlistin í myndinni er samin og flutt
af Phil Collins og leikstjóri er Taylor Hackford.
00.55 Opnustúlkan (Policewoman Centerfold).
Bandarísk sjónvarpsmynd byggð á sannsögu-
legum atburðum með Melody Anderson og Ed
Marinaro í aðalhlutverkum. Það fellur ekki í
góðan jarðveg hjá yfirmönnum lögreglunnar
þegar nektarmynd af ungri lögreglukonu birtist
í opnu blaðs.
02.25 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok