Tíminn - 11.04.1987, Page 20

Tíminn - 11.04.1987, Page 20
tmsœmmœ ENDURSKOÐUN RIKISREKSTRARINS Aukum sjálfstæði og ábyrgð ríkisstofnana Kjósum Guðmund G. Þórarinsson á þing 1917 /\J 1987 Á D A I / . IVl/AINO Tíminn Einstaklingar eiga um 2/3 allra innistæðna í bönkum og sparisjóðum: Um 11.000 milljónir I eigu ellilífeyris|>ega Um tveir þriðju hlutar allra inni stæðna í bönkum og sparisjóðum í landinu eru í eigu einstaklinga, eða nær 34 milljörðum króna (sem svarar t.d. um 80% af fjárlögunum í árj.Þar af er um helmingurinn í eigu fólks 60 ára og eldra, sem þýðir að um 34 þús. Islendingar eiga um þriðjung allra bankainnistæðna í landinu. Sá helmingur þeirra sem náð hefur 70 ára aldri á þó drjúgan meirihluta þess, eða tæplega 10 milljarða króna miðað við innlán banka og spari- sjóða nú í endaðan janúar. Meðal- inneign íslendinga á þessum aldri var þá tæplega 580 þús. kr. á mann og hafði vaxið úr um 440 þús. kr. frá árslokum 1985. Leyndardómurinn, hver á alla peningana í bönkunum (og tapar því eða græðir á lágum eða háum vöxtum) hefur nú verið afhjúpaður, að því er fram kemur í grein Yngva Arnar Kristinssonar í nýjum Fjár- málatíðindum Seðlabankans. Innlán banka og sparisjóða frá 1982 hafa verið flokkuð niður í eigendahópa og inneignir einstaklinga sömuleiðis niður á ákveðna aldurshópa. í árslok 1986 reyndust einstaklingar eiga 55,5% allra innlána, fyrirtæki tæp- lega 22%, peningastofnanir 8,5% og ríki og bæjarfélög aðeins 3,6%. Þau 10,5% sem á vantar eru á gömlum ónafnskráðum sparisjóðsbókum, sem líkur (og skyndikannanir) hafa þótt benda til að væru að stærstum hluta í eigu einstaklinga og við það er miðað í framangreindum tölum. Innistæður á þessum ómerktu bók- um hafa minnkað úr um 30% heild- arlána niður í rúm 10% á árunum 1982-86, enda vextir á þeim oftast verið neikvæðir. Heildarinnlán banka og spari-| sjóða voru 51.273 millj. króna í lok ^ janúar s.l., samkvæmt skýrslum Seðlabankans. Sem fyrr segir eru( það rosknir og aldraðir landsmenn1 (um 14% þjóðarinnar yfir 60 ára)1 sem eiga um þriðjung þessa sjóðs. Þeir sem yngri eru eiga svo annan þriðjung. Meðaleign á mann lækkar í beinu hlutfalli við lægri aldur. Miðað við nýjustu mannfjölda- spár, um hlutfallslega mikla fjölgun aldraðra, áætlar Yngvi Örn að sparn- aður einstaklinga gæti aukist um rösk 30% til ársins 2010 að öðru óbreyttu. Spurningin er hins vegar hvort sú kynslóð sem nú er ung og á besta aldri verður eins sparsöm og nægjusöm á efri árum og þeir sem fæddust í upphafi þessarar aldar virðast nú vera. Athyglisvert er hve landsmenn geyma enn mikið af sparifé sínu á reikningum með neikvæðum vöxtum. Þannig voru í janúar s.l. nær fjórðungur allra innlána á al- mennum sparisjóðsbókum með í kringum 10% vöxtum og um 7. hlutinn á hlaupareikningum með rúmlega 5% vöxtum. f 20% verðbólgu, eins og verið hefur nú frá áramótum t.d. rýrnar 580 þúsi kr. meðalinneign ellilífeyr- isþega í kringum 4.600 kr. á mánuði sé hún geymd á almennri sparisjóðs- bók, eða t.d. sem næst 2/3 af mánað- arlegum ellilaunum frá Trygginga- - álíka upphæö og innistæöur allra fyrirtækja stofnun. Þær 5.380 milljónir sem geymdar eru á hinum ómerktu gömlu sparisjóðsbókum rýrna því í kringum 40 millj. króna á mánuði hverjum sem verðbólgan er í kring- um 20% en vextirnir um 10% - sem virðist auka líkurnar á því að þessar innistæður séu fremur í eigu ein- stallinga en fyrirtækja og bísniss- manna. En 40 millj. kr. ert.d. á hinn bóginn upphæð sem samsvarar mán- , aðarlegum ellilaunum til 5.700 elli- lífeyrisþega. -HEI Inneignir einstaklinga í bönkum og sparisjóðum Aldurshópar Heildareign Meðalt.ámann: 70 ára og eldri 9.814 millj. 578 þús. 60-69 ára 7.005 millj. 408 þús. 50-59 ára 5.787 millj. 269 þús. 40-49 ára 4.095 millj. 170 þús. 30-39 ára 3.587 millj. 100 þús. 20-29 ára 2.335 millj. 66 þús. 0-19ára 1.218 millj. 15þús. Allir: 33.840 millj. 139 þús. Sumarið komið Mjög gott veður var í gær víða um land. Einstaka sólaraðdáendur ruku upp til handa og fóta og létu geislana ekki fara til spillis með innisetum. Við getum því birt fyrstu „sumarmynd" ársins og er hún tekin í Laugardalslaug þar sem fjöldi fólks sólaði sig í gær. Tímamynd Pjeíur Björn Jónasson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks á Siglufirði: „Vorum að f ram- fylgja kosninga> máli“ , „Við vorumaðframfylgjaokk- ar kosningamáli vegna þess að þetta er sá kostur sem við teljum bestan fyrir bæjarfélagið. Með þessu móti fáum við alla peninga Íánaða til langs tíma en ef við byggðum nýtt þyrftum við að leggja fram 15% fjármagnsins. Þessar 8 íbúðir uppfylla allar ströngustu kröfur sem Bygginga- sjóður Verkamanna gerir til þess að lána peninga í. Það sárvantar hér leiguíbúðir og framkvæmdastjóri stærsta fyrirtækis bæjarins nýbúinn að lýsa því yfir að það vanti um 30 til 40 fjölskyldur í bæinn en það eru engar íbúðir til fyrir þetta fólk. Björn sagðist ekki vita hvenær farið yrði að ræða um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn. „En það er ljóst að þessum bæ verður ekki stjórnað án þess að við höfum forystuna. Það sama skeði á síðasta kjörtímabili og gerist nú“, sagði Björn. ABS Fundur ASÍ, VSÍ og VMS í gær: Samanburður við nýgerða samninga Ríkissaksóknari: Ákærir vegna nær-árekstra Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá flugumferðarstjóra og einn flug- stjóra hjá Flugleiðum, vegna tveggja flugumferðaratvika, þar sem nærri lá við árekstri í lofti. Eru þeir ákærðir fyrir að hafa með vanrækslu stefnt lífi mörg hundruð manna í voða. Um er að ræða tvö aðskild mál. Flugumferðarstjóri á Keflavíkur- flugvelli og flugstjóri hjá Flugleiðum eru ákærðir fyrir atvik sem varð í september 1984 þegar tvær Flug- leiðaþotur rákust nærri saman. Tveir flugumferðarstjórar á Reykjavíkurflugvelli hafa síðan ver- ið ákærðir fyrir atvikið þegar tvær farþegaflugvélar höfðu rétt sloppið frá árekstri yfir Austfjörðum síðast- liðið sumar. Ákærurnar voru birtar í fyrradag. Ármann Kristinsson dómari mun dæma í málinu. Fulltrúar atvinnurekenda töldu sig ekki geta fallist á að tilefni væri til endurskoðunar kjarasamninga á þeim fundi sem forseti ASÍ, átti með þeim í gær. Þeir féllust hins vegar á að sérfræðingum ASÍ, VSÍ og VMS væri falið að meta þær breytingar á kjarasamningum sem orðið hafa að undanförnu. Ásmundur Stefánsson sagði eftir fundinn að það hefði kannski ekki komið sér á óvart þó atvinnurekend- ur væru ekki fyrirfram tilbúnir til þess að gefa yfirlýsingu um endur- skoðun samninganna. „En málið verður nú skoðað og ég tel miklu skipta að þeirri vinnu verði flýtt." Ásmundur sagðist telja mjög brýnt að fljótlega verði gerður samn- ingur, því ella muni kauphækkanirn- ar verða með launaskriði. Þau tvö meginmarkmið hafi verið með des- embersamningunum í fyrra að hækka lægstu launin og að færa taxtana að greiddu kaupi. Hvoru- tveggja þessi markmið muni fara forgörðum verði málið leyst með launaskriði en ekki samningum. „Þess vegna skiptir það máli og er á ábyrgð beggja samningsaðila, að tryggja að meginmarkmiðin standist," sagði Ásmundur. -HEI Skagafjörður: Metár í giftingum Rómantíkin svífur yfir vötnum í Skagafirði og kannski ekki laust við að margrómuð náttúrufeg- urðin á þessum slóðum kyndi undir ástarfunann í ungu fólki. Síðasta ár var metár í giftingum í firðinum. Sr. Hjálmar Jónsson gaf saman rúmlega 20 hjón í sínu 2600 manna prestakalli á Sauðár- króki. Þessum ungu hjónum til- einkar hann textann í Lífsdansin- um, sem var í fjórða sæti í söngvakeppni sjónvarpsstöðva, skv. kirkjunnar fréttablaði, Víð- förla. Textinn byggir lauslega á ljóði Páls postula um kærleikann, segir ennfremur í blaðinu. „Það fjallað um tilhugalífið, er hinn vaxandi og dýpkandi kær- leika sem þróast í ást, vináttu og tryggð - kærleika sem fellur ald- rei úr gildi.“ þj 'v ■ i ,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.