Tíminn - 17.01.1988, Blaðsíða 9

Tíminn - 17.01.1988, Blaðsíða 9
8 Tíminn Sunnudagur 17. janúar1988 fssg3$, Um aldamótin veröur tölva á hverju heimili ef eitthvað er aö marka spár þeirra manna sem leggja sig niður við að segja til um hvernig framtíðarþjóð- félagið komi til með að verða. | (Tímamynd pétur) FRAMTÍÐARÞJÓÐFÉLAGIÐ? u I VERNIG framtíðarþjóðfélagið kemur til með að verða er okkur hulin ráðgáta enn sem komið er. Það er þó ekki laust við að gerðar hafi verið tilraunir til að segja til um hvaða breytingar muni eiga sér stað og hvernig þjóðfélagið komi til með að vera. Hefur þú ekki oft velt því fyrir þér hvernig það kemur til með að vera. Verður vélvæðingin orðin allsráðandi með aðstoð tölvutækninnar á ötlum sviðum atvinnulífs- íns, verður ástandið óbreytt eins og það er í dag eða verðum við komin aftur á frumstig landbúnaðarþjóðfé- lagsins áður en langt um líður. HRAÐIBREYTINGANNA HEFUR AUKIST STIG AF STIGI Til aðgreiningar frá landbúnaðar- og iðnaðarþjóðfélaginu hefur þriðja stigið oft verið nefnt upplýsinga- þjóðfélag. En hvaða teikn eru á lofti um að einhverra breytinga sé að vænta. Oft er talað um að iðnaðar- þjóðfélagið sé að ganga sér til húðar vegna þess að það er hætt að sinna þeim verkefnum sem því er ætlað. Gífurlegir möguleikar hafa komið upp á yfirborðið með nýrri tækni svo sem tölvunni. Örtölvan gerir hug- myndir þeirra sem hve mest fást við að fjalla um þjóðfélag framtíðarinn- ar ekki svo óraunverulegar ef vel er að gáð. Hraði breytinganna hefur sífellt verið að aukast. Til marks um það má benda á að þó landbúnaðarbylgj- an hafi tekið mörg þúsund ár þá hefur iðnaðarbylgjan aðeins staðið yfir í um 300 ár. Ný tækni gefur endalausa möguleika. Súþekkingar- öflun sem hefur farið fram á um 30 ára skeiði, fór áður fram á mörgum öldum og búast má við að breytingar verði ansi afgerandi um aldamótin. TALIÐ LÍKLEGT AÐ VINNUTÍMISTYTTIST f>að er mikil bjartsýni sem ein- kennir umræðuna um upplýsing- aþjóðfélagið. Þeir sem á annað borð hugsa eitthvað um þessa hluti skipt- ast mjög í tvö hom um hvort þær breytingar sem þörf er á, muni koma fram. Annar hópurinn ermjögbjart- sýnn á að upplýsingaþjóðfélagið verði orðið að veruleika upp úr aldamótunum, en hinn hópurinn er aftur á móti á því að breytingamar geti orðið mjög erfiðar og taki lengri tíma, m.a. vegna yfirstandandi efna- hagskreppu sem muni án efa fresta því að breytingamar geti átt sér stað ef þær þá verða á einhvem hátt í líkingu við það sem talað er um. Hver svo sem niðurstaðan verður þá eru menn í stómm dráttum sammála um hvernig framtíðarþjóð- félagið muni líta út. Hér á eftir skulum við skoða nokkra þætti sem einkum er bent á og líklegt er talið að taka muni hve mestum breyting- um. Hvað fjölskylduna varðar þá hefur þróun iðnaðarþjóðfélagsins leitt til þess að hlutverk fjölskyldunnar hef- ur orðið æ viðaminna. En með breyttri þjóðfélagsgerð er talið að vinnutími muni styttast enn meir en hann er í dag og margt af því sem fjölskyldan sinnti hér áður fyrr í sameiningu, komi aftur til með að verða hlutverk heimilisins, s.s. um- BÍLA-HAPPDRÆTTI HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSLANDS 10 SUZUKI FOX JEPPAR - með drifi á öllum, eins og landsliðið okkar 25 SUZUKI SWIFT - tískubíllinn í ár 35 BILAR m m, Dregið mánudagskvöld ’fV/ííý' FLUGLEIDIR Sunnudagur17. janúar1988 Tíminn 9 Verða vísindamenn, sérfræðingar og stjórnmálamenn leiðandi þjóðfélagshópar í stað athafna- og fjármálamanna? (Timamynd Brein) önnun bama, sjúkra og gamla fólksins. TÖLVA Á HVERJU HEIMILI Þó svo að tölvutæknin ætti að geta leitt til þess að vinnan færi í ein- hverju mæli fram á heimilunum sjálfum þá er ekki víst að fólk sé tilbúið til að fórna félagsskapnum sem það hefur af vinnufélögunum fyrir einveru á skrifstofu innan veggja heimilisins. í hugmyndum manna um framtíðarþjóðfélagið er gert ráð fyrir því að á hverju heimili verði tölva, en litið er svo á að hún komi til með að verða eins nauðsyn- legt tæki á hverju heimili eins og stóllinn sem þú situr á. í iðnaðarþjóðfélaginu hefur þró- unin orðið sú að fyrirtækin eru alltaf að verða stærri, benda þeir á sem einkum eru hugfangnir af hinu nýja þjóðskipulagi. Telja þeir að með því að nota tölvunetið væri hægt að brjóta fyrirtækin upp í smærri ein- ingar og hafa fleiri og smærri vinnu- staði inn í hverfunum og þannig glæða íbúahverfi lífi sem áður voru aðeins svefnstaðir. Ekki er víst að þróunin verði sú sama í öllum löndum. Til dæmis er óvíst að reyndin yrði á þennan veg hér á landi, þar sem vegalengdirnar eru ekki svo ýkja miklar. En þegar ferðir til og frá vinnu eru farnar að taka allt að einum til tveim tímum á dag, þá er spuming hvort ekki borgi sig að brjóta vinnustaðina upp í smærri einingar sem staðsettar væru nær íbúðahverfunum. KALLAR Á AUKNA SÉRHÆFINGU Talið er víst að vinnan muni breytast allverulega sem einkum er talið að felist í því að flest störf muni verða þjónustustörf, þá bæði við vélar og persónulega þjónustu. Einnig eru viðskipta- og upplýsinga- störf talin verða megin atvinnugrein- amar. Þetta gefur tilefni til að ætla að þörf sé á aukinni sérhæfingu starfsfólks. en slíkt telja sumir að muni leiða til þess að fólk hafi mun minni þekkingu á öðmm sviðum heldur en það hefur til að mynda í dag. Aðrir benda hins vegar á, að með styttri vinnutíma geti fólk einn- ig aflað sér þekkingar á öðruni sviðum, helduren það hefursérhæft sig á, þannig að þekking þess geti orðið mun víðtækari heldur en hún er almennt í dag. Leiðandi þjóðfélagshópar yrðu vísindamenn, sérfræðingar og stjórnmálamenn í stað athafna- og fjármálamanna eins og er í dag. Einnig er talið líklegt að átök í þjóðfélaginu muni minnka og þekk- ingin muni gmndvallast á samstöðu um bestu lausnir sem hægt er að finna á þeim málum sem upp kynnu að koma. í stað stjómmálaflokk- anna muni koma fram á sjónarsviðið frjáls félög sem mynduð yrðu um tiltekin málefni, búsetusamtök og laustengdir flokkar, þetta mundi að lokum leiða til þess að ákvarðana- taka í stjómmálum yrði að öllum líkindum dreifðari. AUKIÐ ATVINNULEYSI Ekki eru allir sammála þessum hugmyndum eins og gefur að skilja enda er hér um mjög viðamiklar breytingar að ræða á núverandi þjóðskipulagi. Breytingarsem marg- ir telja að leiði til aukins atvinnuleys- is. Enda hefur það sýnt sig að með aukinni tæknivæðingu hefur aukið atvinnuleysi oft fylgt í kjölfarið. Það verður ekki um það deilt að tölvu- tæknin sé vinnuaflssparandi í mörg- um tilvikum. Það getur því oft verið hagkvæmt fyrir fyrirtæki að láta tæknina leysa starfsmenn af hólmi á mörgum sviðum. Hitt er annað mál hvort þau nýju störf sem tæknin skapar í staðinn verði nægjanlega mörg. Þróun undanfarinna ára bend- ir til þess að fyrst um sinn að minnsta kosti, geti atvinnuleysis gætt í ein- hverju mæli, en þegar tímar líða þá virðist sem atvinnumarkaðurinn lagi sig að breyttum aðstæðum. Töfvutæknin hefur farið inn á sífellt fleiri svið í atvinnulífinu á undanförnum árum þar sem áður voru ekki taldir miklir möguleikar á vélvæðingu. Þetta á við um skrif- stofustörf ýmis konar, viðskipti og þjónustu, en í þessum starfsgreinum hafa flest ný störf komið fram á undanförnum árum. Það verður vart deilt um það að við höfum tekið fyrsta skrefið inn í hið svokallaða upplýsingaþjóðfélag, en hvort skrefið verður tekið til fulls áður en langt um líður er ekki ljóst að svo komnu máli. ABÓ 'jöíppBrsbusrt) ^EEH601 SW Blástursofn til innbyggingar. Rolaboró tyrir hellur. H X B x D 59.5 X 56 X 55cm V-þýsk geeði. gufugleypib I Fáanlegut I 5 li'um- Bláslur beint út eða I gegnum kolslu. ára ábyrgð. H x B X D B x 60 x 45cm ABYRGO ZANUSSI Z-918/8 kælir/frystir Keelir 180 Itr.Frystlr 80 Itr. Frystlgeta B kg á sólarhring- Má snúa huróum. H B*m ttuppe'sbusth) ÖRBVLGJUOFN Stœrð 22 Itr- Tlmárotl 060 mln. H X B X D: 32,5 X 52 x 38.8 cm. EK 62 WZB Keramik holluborð með !|ðrum hellum; steersta hellan 24 cm fif H X B X 0: 6,5 x 58 x 49 cm. V-þýsk gæði. abyrgð abyrgð ZF-821X pVOTTAVÉL hvottamagn 4.5 k 16 þvottaxerlt. X s n ú n I n 0 a vinduhraöl. H x B x 0 85 X 60 X 55cm Z-9210 I frystiskApur Frystl! 200 Hr. Frystlgeta 15 Xg á sólarhring. Má snúa huró. H x B x D 128,5 X 52,5 x60cm C 23/2H og Z-9230 kælir/frystir Kaelir 190 Itr. Frystir 40 Itr. Frystigeta 3,5kg ó sólarhring. SjálfvirK afhrlming á kaeli- snúa huróum. H X B x D 14t.5 x 52.6 x 55cm ABYRGÐ ZG-122-VS gppþVOTTAVÉL 7 þvottakertl, tekur mn heiit •«» vatn. M|ðg WMIH (aðeins *8db). SparnaöarteXXl. H x B x D 82 X 59.5 X 57cm ZF-1000 JX HRAÐÞVOTTAVÉLi Þvottamagn 4,5 Xg 18 þvoUakerft. Vinduhraöi 1000 snúnlngar pr. mln. H x B x D 85 X 60 X 60cm ABYRGÐ þftt MMfitflSS Kr. 52.945.-_____ ---------ji, . Brot af vöruvali) Meöf. myndir.. Broi« ATH.s Ýmsar vörur lækka, aörar á óbreyttu veröi meöan birgöir endast. LÆKKUN ÓBREYTT Vlftur isnkápar 2 FrystÍBskápar Þvottaválar > . 5: Þurrkarar Örbylgjuofnar Útborgun aöeins 25°/o. Eftirstöövar á allf að 12 mánuöum. 5°/o staögreiösiu afsláttur. ÍIÖRC KKEPIT ■am tjrcwwvrw F PMf LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.