Tíminn - 20.02.1988, Page 17

Tíminn - 20.02.1988, Page 17
Laugardagur 20. febrúar 1988 Tíminn 17 IIIH MINNING Hólmgeir Arnason Fæddur 27. mars 1910 Dáinn 10. febrúar 1988 Hinn 10. febrúars.l. lést á Sjúkra- húsi Húsavíkur Hólmgeir Árnason, Laugarbrekku 20, Húsavík. Hann hafði komið á sjúkrahúsið um morg- uninn til stuttrar rannsóknar, en varð bráðkvaddur er hann hvíldist að rannsókn lokinni. Pegar mér var tilkynnt um svo óvænt og að mér fannst ótímabært fráfall föðurbróður míns hvarflaði að mér sú hugsun, að þetta væri ekki svo ólíkt honum frænda mínum, þó að hann fengi ekki neinu um slíkt ráðið. Hann var maður sem ekki þoldi neitt slór um dagana og þegar eitthvað var afráðið varð það að ganga hratt og óhikað fyrir sig. Krafturinn í Hólmgeir minnti mig stundum á svar Árna afa míns þegar hann veiktist í Flatey 1958 þá 89 ára gamall. Hólmgeir spurði þá gamla manninn hvort hann vildi ekki að hann yrði fluttur á sjúkrahúsið á Húsavík. Hann vissi að hann myndi fá svarið fljótt, en það var óvíst hvað það yrði. Hólmgeir til mikils léttis var svarið „já“, en hann bætti við - „við skulum þá fara strax“. í þessum anda fannst mér Hólm- geir ljúka jarðvist sinni og ég er nokkuð viss um að það hefði orðið þungbært fyrir hann að liggja lengi rúmfastur, en hann bjó við nokkuð góða heilsu þar til yfir lauk. Hólmgeir var fæddur á Knarrar- eyri á Flateyjardal 27. mars 1910. . Hann var áttunda barn hjónanna Jóhönnu Jónsdóttur og Árna Tóm- assonar, sem þar bjuggu frá 1904 til 1941. Jóhanna og Árni hófu búskap sinn á Kussungsstöðum í Hvalvatns- firði og voru síðustu ábúendur á þeirri jörð. Þeim hjónum fæddust 16 börn og komust 14 þeirra til fullorð- ins ára. Systkinin voru: 1. Jón f. 27. júlí 1899, 2.Guðrún Sigfríður f. 10. september 1900, 3. Jónatan Sigur- björn f. 7. júní 1902 (dó í frumbern- sku), 4. Gísli f. 24. júlí 1903, 5. Guðmundur f. 27. febrúar 1906, 6. Kristbjörg Líney f. 29. maí 1907, 7. Þórveig Kristín f. 5. september 1908, 8. Hólmgeir f. 27. mars 1910, 9. Sigurbjörn f. 4. október 1911, 10. Guðný Anna f. 8. desember 1912, 11. Jónatan f. 4. júlí 1914, 12. Tómas f. 23. september 1915, 13. Stefán f. 30. desember 1917, 14. Hólmfríður Rósaf. 1. apríl 1919,15. Sigurveig Björg f. 24. júní 1920, 16. andvana fædd stúlka 24. júní 1920. Af þessum stóra systkinahóp eru nú aðeins fjögur á lífi. Þau eru: Líney fyrrum húsfreyja í Garði í Fnjóska- dal, Stefán fyrrum bóndi Flöfða- brekku, Grenivík, Rósa fyrrum hús- freyja Þengilbakka, Grenivík og Björg húsfreyja í Reykjavík. Hólmgeir ólst upp á þessu stóra heimili á Knarrareyri við mikila fá- tækt eins og þá var víða. Hann vandist ungur vinnu bæði á sjó og landi. Dugnaður hans og harðfylgi komu fljótt við sögu, enda var hann öflugur og í alla staði vel gerður. Hann byrjaði að stunda sjóinn með föður sínum og eldri bræðrum, en tók síðar við stjórninni og réri með yngri bræðrunum. Skólagangan var stutt en góð hjá hinum rómaða barnakennara í Flatey, Jóhannesi Bjarnasyni. Knarrareyri var eini bærinn austan Dalsár og varð því hver fjölskyldu- meðlimur að leggja sitt að mörkum í lífsbaráttunni um leið og hann hafði til þess þrek og húsmóðirin taldi það ekki eftir sér að koma niður á kambinn til þess að setja bátinn með bónda sínum, þó að hún væri stundum þung á sér. Hólmgeir mat alla tíð foreldra sína mjög mikils og var æskuheimilið hans honum afar kært umræðuefni. Árið 1934 kemur í Knarrareyri Sigríður Sigurbjörnsdóttir frá Vargs- nesi sem ráðskona. Með henni voru einnig foreldrar hennar Petrína Ingi- björg Jóhannesdóttir og Sigurbjörn Sigurjónsson. Sigríður var einka- útgerðarmaður frá Flatey á Skjálfanda dóttir þeirra hjóna, en Petrína hafði áður eignast son. Hann var Aðal- björn Sigmarsson bóndi að Ketils- stöðum á Tjörnesi. Með komu Sigríðar urðu þáttaskil í lífi Hólmgeirs. Þau felldu hugi saman og giftu sig heima á Knarrar- eyri 2. júní 1935 eftir að hafa sótt messu á Brettingsstöðum. Þau hefja búskap í Flatey í fyrstu, en flytja að Látrum við Eyjafjörð 13. maí 1936 ásamt foreldrum Sigríðar, en þau voru með þeim alla tíð. Þau bjuggu að Látrum í tvö ár og þar fæddust tvö elstu börnin. Árið 1938 flytja þau aftur til Flateyjar og reisa nýbýlið Grund. Þau flytja í nýja húsið sitt 26. október 1939 og þar stóð heimili þeirra samfellt til 1961. í Flatey stundaði Hólmgeir sjóinn á eigin bátum og verkaði jafnframt aflann. Snyrtimennska hans á öllum sviðum var einstök og handbragð hans á hlutunum til fyrirmyndar. Fjölskyldan hjálpaðist að við verkun aflans og útgerðina og þegar synirnir stækkuðu byrjuðu þeir að stunda sjóinn með föður sínum. Sigríður og Hólmgeir eignuðust 7 mannvænleg börn. Þau eru: 1. Sigur- björn Ingvar skipstjóri á Húsavík, kvæntur Björgu Gunnarsdóttur. Þau eiga tvær dætur Jóhönnu Árnýju og Sigríði. 2. Jóhanna Árný. Hún lést 23ja ára gömul árið 1960. Séra Friðrik A. Friðriksson segir um Jóhönnu í Árbé>k Þingeyinga 1960: „Stórvel gefin stúlka að gjörvuleik og mannkostum. Lauk gagnfræða- prófi á Akureyri með hárri einkunn. Vann árið 1957 á sjúkrahúsum í Svíþjóð og kom þaðan með glæsileg meðmæli. Innritaðist næsta ár í Hjúkrunarskóla íslands. Afburða músikölsk, vakti eftirtekt sem barn með harmonikuleik sínum, lærði síðar orgel- og píanóleik og var hvött til framhaldsnáms. Listfeng á hannyrðir, skrifaði fagra og styrka rithönd. Kappsöm og trú í starfi. Harmdauði öllum sem hana þekktu.“ 3. Guðmundur Aðalbjörn skipstjóri á Húsavík, kvæntur Helgu Stefánsdóttur. Þau eiga þrjú börn Stefán, Sædísi og Árna. 4. Sigurjón Ævar. Hann lést af slysförum er hann var á síldveiðum á vélbátnum Sigurborgu tæplega 28 ára gamall árið 1967. Ævar stundaði sjó- mennsku frá því hann var unglingur og hafði lokið prófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík. Hann var músikalskur og lék fyrir dansi á harmoniku sína. Hann var duglegur sjómaður og drengur hinn besti. 5. Sigrún Björg. Hún giftist Vilhjálmi Bessa Kristinssyni frá Reykjavík. Þau eignuðust þrjú börn Sigur- hönnu, Kristin og Elvu. Björg lést 1984 aðeins 41 árs að aldri. Hún var myndarleg húsmóðir og sérstaklega ljúf og góð stúlka. 6. Ása Dagný. Hún er gift Pétri Olgeirssyni fram- kvæmdastjóra Tanga h/f á Vopna- firði. Þau eiga þrjú börn Sigurgeir, Lindu og Sævar. 7. Elsa Heiðdís. Hún er gift Óla Austfjörð rafvirkja- meistara á Húsavík. Þau eiga þrjú börn Ævar, Hólmgeir og Heiðdísi. Eins og að framan getur var hugur Hólmgeirs mest bundinn við sjóinn og um tíma gerði hann út tvo báta frá Flatey, Sævar og Svan. Hann réri sjálfur á öðrum með Ingvari, en yngri bræðumir Guðmundur og Ævar á hinum. En þó að sjómennsk- an hafi jafnan verið hans aðal starf hafði hann einnig landbúskap, kýr og fáeinar kindur. Þá hafði Hólmgeir póstferðirnar til Húsavíkur með höndum og var farsæll í þeim ferðum. Hann átti sæti í hreppsnefnd Flateyjarhrepps um skeið. Grundarheimilið var alla tíð ein- stakt myndar heimili, þar sem glað- værð og gestrisni sátu í fyrirrúmi. Hjónin voru mjög samhent að gera hlýlegt og vistlegt í kringum sig, og húsmóðirin einstaklega myndvirk við hvað sem hún tók sér fyrir hendur. Það er ekki hægt að minnast svo á fjölskylduna á Grund, að ekki sé talað um tónlistina, því hún var mikið iðkuð og í hávegum höfð. Sigríður og Sigurbjörn faðir hennar léku á orgel og börnin voru mörg ágætir hljóðfæraleikarar. Hólmgeir hafði sjálfur yndi af tónlist og var ágætur söngmaður. Árið 1961 flytja SigríðurogHólm- geir til Húsavíkur og kaupa íbúðar- húsið að Laugarbrekku 20 með Ing- vari og Björgu og þar hefur heimili þeirra staðið síðan. Þau voru þó fram til 1967 á hverju sumri í Flatey þar sem Hólmgeir stundaði áfram útgerð, og grásleppuútgerð stundaði hann í nokkur ár með Guðmundi syni sínum frá Flatey eftir að hann hætti að halda heimili þar. Síðustu árin starfaði hann mest við útgerð Ingvars á Húsavík meðan kraftar leyfðu. Þrátt fyrir þung áföll héldu Sigríð- ur og Hólmgeir reisn sinni og glað- værð svo aðdáun hefur vakið og heimilið þeirra að Laugarbrekku 20 og garðurinn bera þeim góða sögu. Eg og fjölskylda mín nutum í ríkum mæli vináttu Hólmgeirs og Sigríðar sem við þökkum af alhug. Ferðirnar með þeim til Flateyjar eru okkur ógleymanlegar. Ég veit að skilnaðarstundin er blandin trega, en sjóðir minning- anna verma um hjartarætur. Við Sigrún og börnin vottum Sig- ríði, börnum hennar og tengdabörn- um, svo og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Hólmgeirs Árnasonar. Gísli Jónatansson Fréttaskýring Þorsteinn daginn velja vildi. Vigdís heima sitja má. Steingrímur þegar skjótast skyldi skyndilega til Rússíá. Þaðan ætlaði að þjóta vestur, þinga NATO-körlum með. Auðvitað yrði hann góður gestur. Gorbatsjov þessi brögðin réð. Hjá prjónavélum við bingó bauka blankar keríingar. Horfa upp á Þorstein þrauka, þjóðinni til hrellingar. Jón Leví OKKAR KJÖT ER ÓDÝRARA ÚRVALS NAUTAKJÖT MEISTARAFLOKKUR.......... 790 kr./kg Buff............................ 720 kr./kg Gullasch................. 670kr./kg Fillet.......................... 960 kr./kg Mörbráð.................1.290 kr./kg Grillsteikur.............. 360 kr./kg Bógsteikur...................... 395 kr./kg Hakk............................. 435 kr./kg Hamborgarar m/brauði 40 kr. /stk. NÝTT Folaldasnitchel Folaldabuff... Folaldagullasch Folaldafillet. Folaldahakk.... 938 kr./kg 959 kr./kg 752 kr./kg 959kr./kg * 199 kr./kg SVÍNAKJÖT Bacon aðeins.................. 421 kr./kg Rifjasteikur aðeins............ 406 kr./kg Lærissteikur.................. 485 kr./kg Svínakótilettur................ 869 kr./kg Svínalundir...................1.010 kr./kg Opið til kl. 19.00 virka daga m REYKJKJÍKURBORG |f| ---------------- Aeuttevi Stödívi Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Eldhús Starfsfólk vantar til starfa í eldhúsi. 75% vinna. Vinnutími kl. 8.00-14.00. Unnið aðra hverja helgi. Vakt - sjúkraliðar Sjúkraliða vantar til afleysinga í júní - ágúst. Deildarfulltrúi Staða fulltrúa á skrifstofu er laus til umsóknar. Reynsla við tölvuvinnslu æskileg. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377 virka daga frá kl. 10.00-12.00.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.