Tíminn - 02.03.1988, Side 6

Tíminn - 02.03.1988, Side 6
6 Tíminn Miðvikudagur 2. mars 1988 Ingólfur Davíösson: Verður þú kallaður á hvalbeinið? í skrifstofu gamla gagnfræða- skólans á Akureyri stóðu, á þriðja tug þessarar aldar, þeir nafnkunnu stólar: Alráður, Makráður og Sjálfráður. Sigurður skólameistari kaus sér sæti í Alráð, svipmikill og stjórnsamur í besta lagi. Brynleifur Tobiasson lét fara vel um sig í Makráð, tók virðulega í nefið og reif af sér brandara. Guðmundur G. BárðarsonsathelstíSjálfráðog hélt fast fram skoðunum sínum. Gat stundum hvesst með honum og meistara, en þeir mátu hvor annan mikils, og þegar Sigurður gerðist skólameistari setti hann það skilyrði að Guðmundur, sem þá bjó búi sínu góðu á Bæ í Hrútafirði, yrði náttúrufræðikenn- ari við skólann. Sigurður gekk oft til eftirlits um skólann árla morg- uns og raunar öðru hvoru. Virtist stundum hálfviðutan, steig stórum og raulaði fyrir munni scr alltaf sama lagstúflnn, brot úr gamalli stemmu, sem ég kann enn. „Klæddur sloppnum kveðandi sitt kennilagið, á stórri kippu læt ur löngum lykla hringla á skólagöngum - - Enginn karli snúning stóðst í stjórnarráði - Honum fylgdi fjör og kraftur, fáum viðslíkan buðlung aftur?" Brynleifur var fyrirferðarmikill maður á Akureyri. B.B.B. var hann kallaður í gamanmálum, það er bróðir Brynleifur bæjaríulltrúi. „/ pontu steig með tignarbrag í templaraskrúða. Vigur vcl á sögusviði sækir hart að bakkusliði. “ Með Guðmundi var gott að skoða grös og steina. Forna gátu reyna að ráða, rúnum jarðlaganna skráða. Allir þeir voru mikilhæfir menn og á ég góðar minningar um kennslu þeirra. Dvölin í hinni stóru, fjölmennu heimavist skólans var mjög ánægjuleg. Ég ætla að bregða upp myndum: Sella Eldjárn skörunglega skammtar matinn. Henni veitist hrós og lotning, heimavistar ókrýnd drottning. Bjallan kallar komið á sal, komið og takið morgunlag. Augu Ijóma, hún Elsa syngur, Áskell leikur við hvern sinn fingur. Horfir léttbrýnn á hópinn sinn úr hásæti skólamcistarinn. Klukkan ymur að kvöldi dags, - komin snurða á þráðinn. kallar hann mig á hvalbein sitt, komdu að skripta tötrið mitt, ég ræð fram úr flóknari rúnum. Hleypir stórum, höfðinglegum brúnum! Hvaða þátt átti hvalbein í skóla- lífinu? Stóiarnir þrír fyrrnefndu stóðu fyrir sínu, en langfrægast var þó hvalbeinið í hugarheimi manna. Þetta var stór og ellilegur hryggjar- liður úr hval inni á skrifstofu meist- ara. Ef mönnum gramdist við ein- hvern óskuðu þeir honum á hval- beinið! En hvers vegna? Ef nem- andi gerðist brotlegur við reglur skólans, kallaði meistari hann fyrir sig inn á skrifstofuna og vísaði honum stundum, að sögn, til sætis á hvalbeinið, og lét hann dúsa þar uns málið var leyst með sáttum og e.t.v. áminningu. Þegar síðan „sökudólgurinn'* kom fram á skólaganginn langa, undirleitur eða stoltur á svip eftir atvikum, söfnuðust stundum forvitnir gár- ungar að honum og spurðu í þaula: „Varstu tekinn á hvalbeinið karlinn, hvernig var að sitja þar? Sigurður skólameistari er fyrir löngu gcnginn á vit feðra sinna, en hvalbeinið er sennilega enn á sín- um stað og hugartengsl við það lifa í góðu gengi. Mér er sem ég sjái í anda Sigurð skólameistara, taka t.d. Davíð borgarstjóra á hvalbeinið vegna Tjarnarráðhússmálsins! Tjörnin, iðandi af lífi, er einhver fegursti og vinsælasti staður í Reykjavík. Ætti alls ekki að þrengja að henni með ráðhúsbyggingu eða öðrum mann- virkjum. Ráðhúsi er ætlað að taka sneið af Tjörninni nú, en böggull fylgir því skantmrifi. Umferð mun óhjákvæmilega aukast stórum og þar með mengunarsvæla. Líklegt má telja að síðar þyki bera nauðsyn til að breikka Tjarnargötu út í Tjörnina og sennilega Fríkirkjuveg einnig. Væri þá illa farið. Ennþá er Tjörnin unaðsreitur, jafnt fyrir unga og gamla. Fjöldafundur við Tjörnina sýndi ljóslega vilja fjölda Reykvíkinga. Ráðhúsið þarf alls ekki endilega að vera í gamla miðbænum. Fjarri fer því. Deilt er líka um teikningu af fyrirhuguðu ráðhúsi, Hriflu-teikninguna, segja gárungarnir og segja fyrirmyndina sótta til Hriflu-Jónasar, eins og hún var fyrir aldamótin! Annar gárungi sagði að þingmenn yrðu að geta horft á báta á Tjörninni til að missa ekki snertingu við sjósókn! Það mætti hafa þar fótknúna báta, sem að vísu róta upp botnleðjunni og trufla fuglalífið, en hverju er ekki fórnandi fyrir andlega heilsu þingmanna! Víkjum aftur að gamla gagn- fræðaskólanum á Akureyri. Vorið 1927 fóru 6 nemendur, sem kenn- arar skólans höfðu undirbúið, suð- ur og luku stúdentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík. Einn þeirra var Þórarinn Björnsson, síð- ar skólameistari á Akureyri. Vorið 1928 tóku síðan 5 nem- endur stúdentspróf í skóianum á Akureyri, samkvæmt sérstöku leyfi, og vorið 1929 sjö stúdentar, þar af ein stúlka Guðríður Aðal- steinsdóttir, fyrsti kvenstúdent nyrðra. Gamall draumur Norð- lendinga hafði ræst, það var kom- inn menntaskóli á Akureyri (með fullum réttindum 1930). Nú bætist stór hópur stúdenta við árlega, og deildir skólans eru orðnar margar. Á mínum námsárum varþaraðeins máladeild. Margs er að minnast frá þeim árum: Halldóra Ólafs, hefðarkona harla fögur. Sigurði var hún sól og blíða, sveinar frúna virða og hlýða. Stærðfræði var ekki mín kjör- grein, en samt! Stórmannlega ístofu vora stígur Lárus. Krít og sirkil kunni að nota, sem konungursinn veldissprota. (Örlygur gerði „snarlifandi" mynd af honum). Vorið 1929 bauð Hriflu-Jónas ráðherra stúdentum frá Akureyri og Reykjavík í fræðsluferð til Hornafjarðar. Farkostur varðskip- ið Óðinn, kennarar Pálmi Hannes- son og Guðmundur G. Bárðarson. Farið var víða um hið svipmikla hérað og m.a. gengið á jökul: Fríðu liði Pálmi hélt til Hornafjarðar. Las á jökul, ár og engi, augum skyggnum gæddi drengi. Eftir þessa för var kveðið um skólann: Hingað fór ég fróðleiksþyrstur, fimm ár drakk úr menntabrunnum. Útskrifast þyrstarí en þegar ég kom. - það er aðalsmark skóla - Blessun sýndist mér bikar hver borinn af kennurum snjöUum. Örvandi veigar í öllum. Ég sigli í haust og sýp úr nýjum lindum. Forvitinn fletti framandi mannlífsmyndum. - - Óráðin gáta, ég það veit, að eiga fegursta drauminn, og sigla óreyndur utan úr sveit, í útlenda stórborgarglauminn. Ég ætla að enda þetta spjall með því að minnast Árna, sem kenndi ensku við gagnfræðaskólann á Ak- ureyri um langan aldur og síðan við menntaskólann. „Árni Þorvalds leið scm Ijós um lífsins brautir. Enskumaður afbragðsgóður, oft af feimni karfarjóður." Honum gekk seint að þekkja nemendur og leit oft í nafnaskrá í- tímum. Nemendum var vel við hann, en höfðu gaman af að glett- ast dálítið. Einu sinni sem oftar kallaði hann nemanda til yfir- heyrslu upp að kennaraborðinu. Sá var ólesinn í þetta skipti og gekk ég upp og svaraði í hans stað, án þess að Árna virtist gruna að ekki væri allt með felldu. Þegar ég gekk til sætis, fór hann þó að rýna í nafnalistann og við heyrðum að hann tautaði „Ég fór í allt aðra röð.“ Stundum gat Árni þó strokið af sér feimnina og varð allur sem annar maður, fyndinn og fjörugur. Ég man t.d, eftir að á kaffikvöldi í heimavist skólans, stóð Árni upp og hélt ræðu svo bráðskemmtilega að allir veltust um af hlátri. Einu sinni losnaði tala í buxna- klauf Árna og treystist hann hvorki til að festa hana í sjálfur, né biðja um þann smágreiða. Loks sá hús- freyjan þar sem hann bjó, hvað að var og bjargaði málunum. Loks kvæntist Árni, þá orðinn roskinn maður, og varð hjónabandið farsælt.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.