Tíminn - 20.03.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.03.1988, Blaðsíða 3
Sunnudagur 20. mars 1988 Tíminn 3 ◄ Eigendur Matreiðsluskólans OKKAR, Elín Káradóttir og Hilmar Bragi Jónsson ásamt einum kennara skólans Sigurvin Gunnarssyni matreiðslumeistara í setustofunni. (Tímamynd pjciur) heldur en við erum með á dagskrá í dag. Við hlökkum alveg heilmikið til að takast á við þetta verkefni, enda er það mjög spennandi. Þessi skóli er að sjálfsögðu opinn fyrir alla, alveg frá unglingum og upp í gamalmenni, það ættu allir að geta fundið eitthvað hérna við sitt hæfi. Nú ef það eru einhverjir hópar sem hafa sérstakan áhuga á ein- hverju ákveðnu, þá er ekkert annað en að hafa samband við okkur, við Hilmar B. Jónsson í kennslustofunni sem notuð er til sýnikennslu. Til að allir geti séð vel handtök kennarans var komið fyrir spegli fyrir ofan kennsluborðið. (Tímamynd pjcmr) Sigurvin Gunnarsson, einn af kennurum skólans, í kennslustofunni þar sem fram fer verkleg kennsla. Þar eru f jögur kennsluborð eins og það sem hann stendur við fyrir nemendur, með öllum tilheyrandi áhöldum. (Tímamynd Pjetur) ■ ■ . Elín Káradóttir á skrif stofunni, en hún hefur rekstur skólans að mestu leyti á sínum herðum. (Tímamynd Pjetur) erum ekki alltaf það þétt bókuð að það er alltaf hægt að stinga inn einu og einu námskeiði, þá í einhverju sérstöku sem hópurinn mundi fara fram á. Eins ef til dæmis hópur utan af landi sem er að fara í helgarferð til Reykjavíkur eða á ráðstefnu, þá geta makarnir komið með og notað tímann og farið á námskeið í leið- inni. Við setjum þetta þannig upp að sérhver tími er í raun sjálfstæður, þess vegna gefum við út tveggja mánaða dagskrá og í henni stendur hvað er verið að kenna á hverjum tíma og fólk getur þá raðað saman sjálft þeim námskeiðum sem það langar til að fara á. Fólk getur komið hérna á eitt námskeið sem tekur kannski tvo til þrjá tíma og séð svo til hvort það sé ekki eitthvað fleira sem það hefði áhuga á að læra, sumir eru búnir að skrá sig á nær hvert einasta námskeið. Þannig að það er númer eitt að fólk velji sér það námskeið sem það langar til að fara á.“ Heim í hádeginu Matreiðsluskólinn OKKAR býð- ur upp á fimmtíu mismunandi nám- skeið á komandi tveim mánuðum, en síðan er hugmyndin að breyta stundaskránni. Til að gefa lesendum nokkra hugmynd um fjölbreytileika námskeiðanna sem boðið er upp á, skulu hér nefnd nokkur dæmi um heiti á námskeiðum sem segja að mestu leyti til um hvað þar fer fram. Gerbakstur, Vín og vínþekking, Lagt á borð (munnþurrkubrot, borð- lagning, valið af matseðli á veitinga- húsi o.fl.), Fæði fyrir sykursjúka, Fiskur á ýmsa vegu, Heim í hádeg- inu, Ferming í fjölskyldunni, Græn- metisréttir, Gott úr lambakjöti, Eld- að úr afgöngum, Logandi réttir og Veisla í fjórum löndum auk fjölda annarra námskeiða þar sem fengist er við fjölda framandi rétta úr fjar- lægum löndum. Sem stendur eru átta fastir kennarar við skólann auk Hilmars, sem hver um sig cr sérfræð- ingur á sínu sviði. ABÓ Vísnaþáttur, 17. þáttur. Hagyrðinga hrossatað. Þegar ný umferðarlög taka gildi er ekki úr vegi að leiða hugann að umferðinni. Er breytt var í hægrihandarakstur um árið kvað Dýrmundur Ólafsson frá Stóruborg í Víðidal: Á þér sýndu ekkert hik aðeins hægri róður. Brostu út í hæði vik byrjandi minn góður. En næstu vísu hefur Dýrmundur ort vegna hreytinganna nú í vetur, og þeirra fyrirmæla að hafa Ijós ávallt kvcikt: Við skulum sýna viðmót hlýtt svo varast slysin megi. Kveikja ljós og brosa blítt bæði á nóttu og degi. Ur Trollmannarímum Guðmundar Guðmundssonar frá Kálfsstöðum: Hann fór þó að hugsa um sjó hafið bláa þankann dró. Koti frá í ferð sig bjó fötin á og nýja skó. Ýmsum döllum á hann var eins og tröll af dvergum bar. Hann af öllum öðrum bar afbragðsköllum hverskonar. Það mun hafa verið á fyrsta eða öðrum áratug sem ríkisútvarpið starfaði, að vísnaþáttur var þar fluttur. í þættinum voru hluti vísnanna kveðnar. Þar munu hafa komið fram Einar Sæmundsen og Kjartan Ólafsson kunnur kvæðamaður. Kristján Jónsson frá Skarði kvað þessa kersknisvísu af því tilefni: Hagyrðinga hrossatað hrakið andans fóður. Einar las en Kjartan kvað hvorugur þótti góður. Bjarni Jónsson frá Gröf kveður svo: Ellina ég illa ber alltaf harðnar glíman. Pað væri alveg eftir mér að andast fyrir tfmann. Mjög var algengt að hagorðir menn kvæðu barnagælur og vögguljóð. Sigurður Breiðfjörð Sigurðsson bóndi á Köldukinn á Fcllsströnd kvað svo til dóttur sinnar Margrétar, er hún var tveggja ára: Árin tvö að baki ber. Bæn mín heit er þessi. Dagana sem hún dvelur hér. Drottinn hana blessi. Ekki veit ég um höfund þessara vísna: Mörg er vist og víða gist varir þyrstar, dans og kæti. Ein er kysst og óðar misst önnur flytst í hennar sæti. Margan svanna ég mætan sá mér sem ann að vonum. Yndi fann ég oftast hjá annara manna konum. Sveinn Björnsson bóndi í Hvamini í Dölum kveður svo: Rcykjavikurtjörnin er tignarlegur staður á tjarnarbökkum þessum er stundað fugladaður. Og borgarstjórinn þeirra er bæði hress og glaður. hann tiullar þar í drullunni eins og vitlaus maður. Kristmundur J óhannesson Giljalandi Haukadal 371 Búðardalur. s. 91-41352

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.