Tíminn - 20.03.1988, Page 9
Sunnudagur 20. mars 1988
Tíminn 9
■Hj mii hhhbhhh
w®*™®l®"*“™®“““M^HIMHHHIIBI^HHIMIHHi^HHMHHHMMMHHHHHOHHHB ■■■Hi — ’
Þegar ég fór sem unglingur til að
dvelja hjá Joan, skemmti ég mér vel.
Ég var að skoða mig um í Hollywood
og gerði það rækilega. Þannig lærði
ég að þekkja karlmenn.
Ég skil ekki, hvernig ég stóðst alla
feitu, gömlu ríkisbubbana, sem
sögðu sem svo: - Borðaðu með mér
í kvöld, Ijúfan og ég skal gera þig að
stjörnu. Ég féll aldrei fyrir svona
löguðu, kannski vegna þess að í mér
var það eðli rithöfundarins, að vera
aðeins fluga á vegg, en taka ekki þátt
í atburðum.
Ætla skyldi að rithöfundur á borð
við Jackie þyrfti að kynna sér málin
á næturklúbbum heimsborganna, en
þegar hún er í London, les hún
dagblöðin, nýtur þess að ganga um í
rigningunni, borða enskan mat og
versla.
Þó myndir af henni sé víða að sjá,
finnst henni alltaf jafn indælt, þegar
einhver lesandi hennar ber kennsl á
hana á götu. - Ein stúlka sagði mér,
að kærastinn hefði brugðist sér, en í
stað þess að leggjast í grát og eymd,
Ég nýt þess sem ég er að gera. Ég
er ekki ein þeirra sem raða saman
ástafarslýsingum í heila bók til þess
eins að eignast peninga. Fólk segir
að ég skaði orðstír Hollywood, en
þegar aðgætt er, hvað gerist í raun-
veruleikanum, eru sögurnar rnínar
eins og barnabækur.
Sjáum bara Jeffrey Archer-málið,
skilnað Stallones og hvað um Oliver
North? Þegar sá náungi sagði sem
svo: - Ég hef verið kvæntur í 20 ár,
ég hef fallegan einkaritara, en hef
aldrei brugðist konu minni, sá ég
fVrir mér fagnaðarlæti áheyrenda.
Ég hef alltaf sagt að karlmenn sem
eru tryggir, séu mun meira æsandi
en hinir sem sofa hjá úti um borg og
bý.
Hvort sem Jackie ætlaði sér það
eða ekki, er hún orðin auðug af
skrifum sínum. Hún gefur í skyn
miklar upphæðir, þegar hún segir:
- Hvort sem ég segðist hafa þénað
40 milljónir eða 300 milljónir, þætti
það mikið. Hvað um það, peningar
hafa gert henni ýmislegt kleift, til
YAMAHA msSA
Urval varahluta á lager - hagstætt verö.
Félagsmenn L.Í.V. fá 10% stadgreiðsluafslátt.
LÆKKAÐ VERÐ
Á OLÍU
KR. 145.- LÍTRINN
j
f
Samrýmdar systur. Fyrsta bók Joan er talin seljast fullt eins vel og
margar af bókum Jackie hafa gert.
hefði hún lesið „Lucky“ og öðlast
við það nýjan kraft.
Ég nýt þess að finna að ég skapi
jákvæðar persónur í bókum mínum.
Ef stúlkur, sem lesa þær gera sér
ljóst, að óþarfi er að sitja heima og
bíða þess að síminn hringi, fá tauga-
áfall eða visna upp, bara af því
einhver karlmaður hefur brugðist,
þá hef ég gert gott.
Jafnréttiskonur líta þó sannarlega
ekki á Jackie sem boðbera jafnréttis.
- Það er af því þær hafa ekkert
skopskyn, segir hún. - Bækur eins
og mínar eiga að vera skemmtilesn-
ing og góð afþreying. Ekkert er
leiðinlegra en þrautfúl bók með
boðskap, bætir hún við.
Tólfta bók Jackie um æsilíf og
uppáferðir er „Eiginmenn í Holly-
wood“ og sú fjórtánda er farin að
mótast: „Börnin í Hollywood". Sem
dæmis að hafa hönd í bagga með
hlutverkaskipan, þegar framhalds-
þættir um Eiginmennina í Holly-
wood verða gerðar.
- Ég vil fá Elizabeth Taylor sem
stórstjörnuna og Bruce Willis sem
slæma strákinn, tilkynnir hún.
- Yrðu þau ekki stórkostleg saman?
Ennfremur hefur hún í huga Don
Johnson, Ryan O'Neal, Farrah
Fawcett og Mel Brooks í hlutverk.
- Kannski ég fái þau ekki öll, en hver
veit? Ég hef efni á að hugsa stórt.
Hvað um Joan Collins í hlutverk-
ið, sem Liz er ætlað? - Ef ég get ekki
fengið Liz, heldur Joan, yrði ég svo sem
ánægð, þó ég reyni að blanda málum
okkar systra ekki of mikið saman.
Líka skal haft í huga að Joan er
dálítið önnum kafin um þessar
mundir í smáþætti, sem heitir Ættar-
veldið, eða þannig.
Hún gefur sér stundir meft fjölskyldunnl, hér með dætrunum og einum
heimilishundanna þriggja.
stendur er Jackie önnum kafin við
þá þrettándu: „Rokkstjörnu“, sögu
bresks dægurlagasöngvara, Chris
Phoenix, sem hefur starfsævi sína í
kleinuhringjaverksmiðju, en verður
mikil stjarna.
Hæfileiki Jackie til að segja sögur
um elskulega fátæklinga, sem ná
langt, hefur aflað henni viðurkenn-
ingar í útgáfuheiminum. - Ég hef
visst vald, segir hún. - Karlmönnum
finnst það miður, en þeir verða bara
að sætta sig við það. Ég berst fyrir
að fá rétta kápu á bækur mínar og
ég ræð, hvernig þær eru auglýstar.
Ég kæri mig ekki um að verða illa úti
vegna mistaka einhvers annars, satt
að segj a vil ég alls ekki verða illa úti.
Joan Collins er raunar einnig að
semja í allar átti um fyrstu bók sína,
sem heitir „Prime Time“ sem sagt er
að hún hafi fengið 30 milljónir fyrir.
Bókin selst geysivel og er jafnvel
talin ógna afurðum Jackie.
Oft er Jackie boðið að hafa sinn
eigin sjónvarpsþátt, þar sem hún
ræðir við þekkt fólk, en hún hafnar
því jafnan. - Ég má ekkert vera að
slíku. Hvað um skrif mín, eigin-
manninn, fjölskylduna, heimilið og
3 stóra hunda, ásamt félagslífinu?
Ég þarf að sinna þessu öllu og hef
sannarlega nóg að gera.
Kannski best selda bók Jackie
hefði átt að heita „Húsmóðir í
Hollywood?“
BUHADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
YAMALUBE-2
olian frá YAMAHA
Fyrir þá sem vUja tryggja sér eitthvað reglu-
lega ferskt ( upphafi og lok sumarteyfislns er
Norræna góður kostur. Hún er nýtískuleg far-
þega- og Mferja sem sfglir frá Seyðisfirði aHa
fimmtudaga (jún(, júl( og ágúst og hefur við-
komu f höfnum Færeyja, Noregs, Danmerkur
og Hjaltlandseyja. Að sigla f friið og taka bflinn
með er kjörið tækifærí fyrir þá sem viija njóta
sumarfrísins meðal grannþjóða okkar.
Því ekkl að flýta sér hægt og njóta dvalarinn-
ar um borð. Þar geta ailir fundið eítthvað við
sitt hæfi, s.s. veitingastaði, bari, frihöfn, kvik-
myndasýningar, leiksvæði fyrir böm og m.fl.
Einnig vilja margir njóta þess að sitja út á dekki
og láta hressandi sjávaríoftið leika um sig.
Já, sigling með Norrænu er sannariega
ferskur og nútímalegur ferðamáti.
Siglið í f rfið og takið bflinn með