Tíminn - 10.04.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 10.04.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn, Sunnudagur 10. apríl 1988 Sunnudags- LEIÐARI JÓN BALDVIN GRÍPUR TÖNG 0G LÓDBOLTA Fjármálaráðherra hefur brotið upp á athygl- isverðri nýjung. Hann hefur fyrir skemmstu látið auglýsingu í blöð þar sem hann hvetur menn til að láta frá sér heyra, viti þeir af bruðli eða einhvers konar óráðsíu í hverslags opinber- um rekstri. Nú í vikunni vildu þeir á Stöð 2 heyra ofan í ráðherrann um viðbrögð við hinni óvenjulegu auglýsingu og var áhorfendum stöðvarinnar boðið að hringja til hans og leggja orð í belg um sitthvað þar sem pottur mundi vera brotinn. Víst biðu menn spenntir eftir hvort nú kynni að verða flett ofan af einhverjum ósómanum og kannske hefur farið um einstöku umboðsmenn ríkisins sem um almannafjármuni hafa velt. En menn biðu til einskis að þessu sinni, þar sem svo margir virtust hafa hringt að símakaplar sjónvarpsstöðvarinnar „brunnu yfir“ - og lá við að eldglæringunum rigndi yfir ráðherrann og þotufólkið við hlið hans á skerminum. Það verður því ekki fyrr en nk. mánudagskvöld sem Jón fær að heyra af létta af brotlegum meðal undirsáta sinna, eftir endur- bætur á símkerfinu hjá Jóni Óttari. Sannarlega má búast við spennandi stund við sjónvarpstækið, virki kerfið hjá Stöð tvö í nýrri tilraun á mánudagskvöldið. Og satt að segja er lítil hætta á öðru en að það virki. Tæknifræðing- ar Pósts og síma kalla nú ekki allt ömmu sína eftir leiðtogafundinn og eru efalaust þegar búnir að skrúfa saman nýtt og stærra kerfi handa stöðinni. Meiri efasemdir eru tengdar því kerfi sem Jón Baldvin langar nú til að rífa úr brunaþræðina og betrumbæta, þannig að það skili sér heim til hans í ríkiskassann, sem þangað á að fara. Enginn efast um að Jón vill ganga rösklega til verks og hann mun albúinn til að sneiða og klippa, lóða og raspa hvað af tekur. En kerfið sem hann ber ábyrgð á er talsvert flóknara en símadræsurnar er liggja inn til þeirra á Stöð 2, þótt þær séu svosem marg- slungnar. Tæknifræðingar Jóns Baldvins eiga erfiðara uppdráttar en þeir hjá Pósti og síma. Sennilega munu þeir eiga bágt með að koma sér saman um hvar skuli klippa og hvar tvílóða og hverju á þá ráðherrann að trúa? Um gamla og morkna kolaþræði munu berast raddir sem segja að nákvæmlega þessi þráður sé sá lífstreng- ur og stofnrás, sem líf og heill þjóðarinnar sé komið undir. Útslegnar „sikkeringar“ munu fá vottorð úr öllum áttum að þær séu öryggispóll fjölda byggðalaga. Auðvitað er skömm að því að viðra svona hrakspár um viðgerðaáætlun Jóns Baldvins fyrirfram. En gangi ofansagt eigi að síður eftir getur ráðherrann þó huggað sig við að ekki er hann sá fyrsti sem reyndi, þótt það kæmi fyrir lítið. Það hefur komið fyrir bestu lækna að sauma saman aftur í flýti er þeim varð ljóst hvað fyrir innan bjó. Umsjón Helgarbjaðs: '___B---- Atli Magnússon ~~ Agnar Birgir Óskarsson Iímiiin IJós. Ljósmyndari Tímans Pjetur Sigurðsson Sólarlag í skammdeginu á Álftanesi. Horft til Straumsvíkur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.